Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 45 I I > I > > W d 5 I f FRÉTTIR Norræn samtök um vemdun lands- byggðarinnar Morgunblaðið/Jón Svavarsson JON H. Sigurðsson afhenti Haraldi Guðmundssyni fyrstu íbúð SEM-samtakanna, en hann slasaðist alvarlega í ágúst sl. Fyrir aftan standa: Sigrún Árnadóttir og Anna Þrúður Þorkelsdóttir frá RKI og Eydís Lúðvíksdóttir, eiginkona Haralds ásamt börn- um sínum Guðmundi og Hafdisi Lilju. SEM samtökin afhenda íbúð STJÓRN Húsnæðisfélags SEM- samtakanna afhenti 1. febrúar sl. einum félagsmanna sinna ný- keypta íbúð til leigu í Fannafold. * í félaginu eru aðeins einstakling- ar sem hafa lent í hörðum slysum og lamast varanlega og eru fé- lagsmenn nær allir bundnir hjólastólum. í fréttatilkynningu segir að takmark félagsins undanfarin átta ár hafi verið að byggja eða kaupa sérútbúið húsnæði sem henti vel hreyfihömluðu fólki. Þá segir að Rauði kross Islands hafi styrkt framtakið um fimm milljónir króna auk þess að góð- ar undirtektir hafi verið við byggingarhappdrætti Húsnæðis- félags SEM. FORMLEGA hefur verið géngið frá stofnun Norrænu áhugamannasam- takanna „Hela Norden skall leva“. Samtök þessi eru mynduð af lands- samböndum í Noregi, Svíþjóð, Dan- mörku og Finnlandi sem hafa áhuga á verndun landsbyggðarinnar. En auk þeirra eru Bændasamtök ís- lands aðili að samtökunum. Valið hefur verið í stjórn með fulltrúa frá hverju aðildarlandi, en auk þess var frú Vigdís Finnboga- dóttir fyrrverandi forseti íslands gerð að heiðursforseta samtakanna og þar með verndara þeirra. Að sögn Jónasar Jónssonar fyrr- verandi búnaðarmálastjóra og full- trúa í stjórn „Hela Norden skall leva“ hafa samtökin verið í mótun undanfarin þijú ár. „Meginmarkmið þeirra er að vemda landsbyggðina með því að leggja rækt við lifandi menningar- og atvinnulíf og hafa þau til að mynda áhuga á því að lítil samfélög njóti virðingar og fái Umboðsmaður barna Vill breyta skaðabóta- lögunum UMBOÐSMAÐUR barna skorar á dómsmálaráðherra að beita sér fyr- ir breytingu á skaðabótalögunum varðandi miskabætur til barna sem fórnarlamba kynferðisafbrota. Tilefnið er dómur Hæstaréttar sem kveðinn var upp 23. maí 1996 þar sem miskabætur til barns vegna alvarlegs kynferðisbrots föður voru ákvarðaðar helmingi lægri en bætur sem dæmdar voru barninu í héraði. í álitsgerð sem umboðsmaður barna hefur samið segir að dómurinn veki upp spurn- ingar um hvaða atriði komi til skoðunar eða skuli koma til skoð- unar við mat dómstóla á fjárhæð miskabóta skv. 26. gr. skaðabóta- laga nr. 50/1993 í málum vegna kynferðisbrota gegn börnum. I álitsgerð sinni vekur umboðs- maður barna athygli á breytingum sem gerðar hafa verið m.a. á norsku skaðabótalögunum þar sem tilgreind eru ákvæði sem dómstólar skulu leggja sérstaka áherslu á við mat sitt á fjárhæð miskabóta vegna kynferðisbrota á börnum og má þar m.a. nefna að misnotkun ættartengsla er eitt af þeim atrið- um sem á að leiða til hækkunar á miskabótum. Umboðsmaður barna telur brýnt að skaðabótalögum nr. 50/1993 verði breytt til samræmis við norsku skaðabótalögin til þess að koma í veg fyrir að fyrrnefndur hæstaréttardómur hafi fordæmis- gildi í sambærilegum málum. í niðurlagi álitsgerðarinnar segir orðrétt: . . .„beini ég þeirri áskorun til dómsmálaráðherra að við heildarendurskoðun skaðabótalaga, sbr. 3 gr. laga nr. 42/1996 um breytingu á skaðabótalögum nr. 50/1993 verði 26. gr. laganna breytt á þann veg að í ákvæðinu verði tilgreind þau atriði sem sér- stök áhrif hafa við ákvörðun bóta- fjárhæðar til barna sem fómar- lamba kynferðisbrota.“ Afhenti trúnað- arbréf í Kostaríka EINAR Benediktsson, sendiherra, afhenti 31. janúar sl. José Mana Figueres, forseta Kostaríkaj trún- aðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Kostaríka með aðsetur í Washing- ton, D.C. sömu þjónustu og stærri bæir og borgir,“ segir hann. Jón segir ennfremur að á íslandi sé ekki til landssamband um þessi málefni eins og á hinum Norður- löndunum, en Bændasamtök Is- lands, kvenfélagasamtökin og fleiri samtök hafi rætt þann möguleika að slíkt samband verði stofnað. Aðallega samráðsvettvangur Jónas segir að hin nýstofnuðu sam- tök séu fyrst og fremst samráðs- vettvangur, ekki sé ætlunin að búa til neitt skrifstofubákn heldur að beita sér fyrir fundum og ráðstefn- um til að ræða og kynna þá starf- semi sem fer fram í hveiju landi fyrir sig,“ segir hann. Þá segir Jónas að samtökin hafi fengið fjárstuðning til starfseminn- ar frá menningarmálasjóði Norður- landaráðs, en með þessum stuðningi séu samtökin um leið að fá vissa viðurkenningu frá ráðinu. MR. BLOND er einn þeirra karldansara sem staddir eru á Islandi. Karldans um helgina FJÓRIR karldansarar sem kalla sig „The Los Angeles Bad Boys“ eru staddir á Islandi og koma þeir fram á veitingahúsunum Erótik Club Óðali í Austurstræti og Píanói í Hafnarstræti frá fimmtudegi til laugardags. Strákarnir dansa á veitinga- staðnum Píanói fimmtudags- og föstudagskvöld frá kl. 21, bæði kvöldin, og á laugardagskvöld á Óðali frá kl. 21-3. Sérstakur gestur á laugardagskvöld er hinn íslenski Charlie. Á Óðali verður dansað á 1. og 2. hæð og leikið fyrir dansi á 3. hæð. Sami miði gildir á allar hæðir. Þingflokkur jafnaðarmanna Samræða um launin og réttlætið ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna hefur ákveðið að efna til „Samræðu um launin og réttlætið á íslandi" á Hótel Loftleiðum laugardaginn 8. febrúar kl. 14 til 17.30. Formið á fundinum er nýlunda hér á landi því þar munu forystumenn úr verkalýðs- hreyfingunni og hagfræðingar segja álit sitt á stöðu mála og svara fyrir- spurnum þingmanna þingflokks jafn- aðarmanna, segir í fréttatilkynningu. Þingflokkur jafnaðarmanna hefur að undanförnu heimsótt vinnustaði og rætt við ýmsa fulltrúa launafólks á skrifstofum samtaka þeirra. í framhaldi af því efndi þingflokkurinn til umræðu utan dagskrár á Alþingi um alvarlega stöðu samningamála. Nú vill þingflokkurinn gefa almenn- ingi kost á að fylgjast með samræð- um þingmanna sinna við frammá- menn í samtökum launafólks fyrir opnun tjöldum. Allir eru velkomnir á Hótel Loftleiðir laugardaginn 8. febr- úar kl. 14 til þess að sýna samtöðu og fræðast um þau viðhorf sem uppi eru. Rannsóknir ræddar á ráðu- nautafundi RÁÐUNAUTAFUNDUR Bænda- samtaka ísland og Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins verður haldinn í ráðstefnusal A á 2. hæð Hótels Sögu 11.-14. febrúar nk. Ráðunautafundurinn er alhliða fagráðstefna þar sem lagt er fram margvíslegt efni úr niðurstöðum rarinsókna og umræður fara fram um ýmis framfaramál í landbúnaði. Fundurinn er öllum opinn. Fyrsti dagur fundarins er helgað- ur sauðfjárrækt þar sem gerð verð- ur úttekt á framleiðslu- og hagræð- ingarmöguleikum greinarinnar. Á miðvikudag verður fjallað um tölvu- notkun í landbúnaði sem eykst með degi hveijum, bæði hjá bændum og starfsmönnum þeirra. Skógrækt og landnýting verður rædd fyrir hluta fimmtudags og m.a. kynnt áætlun um Suðurlandsskóga. Önnur helstu fundarefni eru jarðrækt, fóður, loð- dýr, hross og svín. Skráning og afhending gagna hefst kl. 8.15 þriðjudaginn 11. febrúar og fundurinn verður settur stundvíslega kl. 9. Ráðstefnugjald er 7.000 kr. og er innifalið í því ráðstefnurit með öllum erindum eða yfirlitum þeirra og kaffi/te. Ráð- stefnugjald fyrir einn dag er 2.000 kr. og ráðstefnuritið kostar í lausa- sölu 2.500 krónur. Nánari upplýsingar um fundinn er að fá hjá Bændasamtökum ís- lands og Rannsóknastofnun land- búnaðarins. Flugeldar á kínverskum áramótum í Perlunni í TILEFNI af 25 ára stjómmála- sambandi íslands og Kína verður efnt til sérstakra Kínadaga í Perl- unni dagana 7.-9. febrúar nk. Að Kínadögum standa Islensk-kínv- erska viðskiptaráðið, Kínversk-ís- lenska menningarfélagið og utan- ríkisráðuneytið. Fimmtudaginn 6. febrúar er gamlársdagur í Kína og samkvæmt kínverskri hefð verður gamla árið kvatt rneð flugeldasýningu sem verður við Perluna fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 21-22 og nýju ári fagnað að morgni föstudagsins 7. febrúar kl. 8-9. Skóli fyrir börn frönskumæl- andi foreldra ALLIANCE Frangaise stofnaði haustið 1996 skóla fyrir börn frön- skumælandi foreldra sem ber heitið „Petite Ecole Francaise“. I hérlendum skólum geta þessi börn fengið aðgang að íslensku máli og menningu en til þess að veita þeim tækifæri til að viðhalda og rækta þeirra frönsku hlið, stofn- aði Alliance Fran?aise þennan franska skóla sem í em börn á aldr- inum 4-14 ára. Kennarar skólans eru franskir og í hveijum hópi eru 10-12 nemendur. Þegar farið var af stað með skól- ann síðasta haust fékk hann óvænt- an stuðning frá „Foundation Hachette" sem er styrktaraðili inn- an Matra-Hachette bókaútgáfunn- ar, sem gaf allar bækur og kennslu- gögn sem skólinn þurfti á að halda. Skólanum hefur verið vel tekið og er nú hafin innritun á vornám- skeið. Hefst námskeið eldri barna 7. febrúar en þeirra yngri 8. febr- úar. Innritun stendur yfir í Alliance Francaise og em þar einnig veittar allar frekari upplýsingar um skól- ann. Misfarið með textajólasöngs ájólakorti MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Hans Petersen hf.: „Að gefnu tilefni langar okkur að koma á framfæri ábendingu frá Elsu G. Guðjónsson sem gerði texta jólasöngsins Skreytum hús (Deck the Hall) sem er gamalt jóla- lag frá Wales. Á einni tegund jólakorta Hans Petersens hf. sem selt var fyrir jólin hafði verið settur textinn: „Tendrum ljós á trénu bjarta. Tendram ljós í hveiju hjarta.“ Texti Elsu E. Guðjónsson er hins vegar svohljóðandi: „Tendmm ljós á trénu bjarta. Tendrum jól í hveiju hjarta.“ Viljum við koma þessari leiðréttingu á framfæri og biðj- umst velvirðingar á því að ekki var farið rétt með textann og höfundar hans var ekki getið.“ Doktorsvörn í lyfjafræði DOKTORSVÖRN við lyfjafræði lyfsala, læknadeild Háskóla Is- lands, fer fram laugardaginn 8. febrúar í Odda, sal 101 og hefst kl. 14. Öllum er heimill aðgangur. Hafrún Friðriksdóttir, iyfja- fræðingur, ver doktorsritgerð sína „Polymer enchanccement of cyc- lodextrin complexation. In vitro and in vivo observations“ eða Áhrif fjölliða á fléttumyndun cýk- lódetrína sem læknadeild hefur metið hæfa til doktorsprófs. Andmælendur af hálfu lækna- deildar verða dr. Nicholas Bodor, prófessor við University of Florida, Bandaríkjunum og dr. Arto Urtti, prófessor við Univers- ity of Kuopio, Finnlandi. Deildar- forseti læknadeildar, prófessor Einar Stefánsson, stjórnar athöfn- inni. Heimildar- myndin Aðvör- un um hættu sýnd í bíósal MÍR SOVÉSKA heimildarkvikmyndin Aðvörun um hættu eða „Prédúpres- hdeníe ob opastností" verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnu- daginn 9. febrúar kl. 16. Mynd þessi var gerð árið 1983 meðan „kalda stríðið“ milli risaveldanna og fylgiríkja þeirra stóð enn yfir. Fjallað er um þær hörmungar og ógnir sem styrjaldir hafa jafnan í för með sér og þó einkum hætt- una á gereyðingu heimsbyggðar- innar, sem samfara yrði kjarnorku- stríði á vorum dögum. Skýringar eru með myndinni á ensku. Að- gangur er öllum heimill og ókeypis. KATRÍN Hrafnsdóttir og Guðrún Karla Sigurðardóttir á hárstofunni Hjá Körlu. Hjá Körlu opnuð HÁRSTOFAN Hjá Körlu var opnuð 12. nóvember sl. að Strandgötu 19, Hafnarfirði. Eigandi stofunnar er Guðrún Karla Sigurðardóttir. í jan- úar hóf þar störf Katrín Hrafnsdótt- ir. Unnið er við alla almenna hár- þjónustu, jafnt fyrir dömur sem herra. Opið er mánudaga, þriðju- daga og föstudaga kl. 10-20, mið- vikudaga og fimmtudaga kl. 10-22 og á laugardögum er opið frá kl. 11-16. LEIÐRÉTT Þingmenn jafnaðarmanna RANGHERMT var í frétt í gær um þingsályktunartillögu um allsheij- arúttekt á áhrifum Efnahags- og myntbandalags Evrópu á íslenskt efnahagslíf, að flutningsmenn væru þingmenn úr Alþýðuflokki. Hið rétta er að einn þriggja flutnings- manna er Ágúst Einarsson þing- maður Þjóðvaka, sem situr í þing- flokki jafnaðarmanna. Ágúst er jafnframt fyrsti flutningsmaður til- lögunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.