Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ferdinand Við verðum að tala saman... En hvernig getum við talað sam- Voff er ekki tal... an ef þú ert hundur og hundar geta ekki talað? Voff! BREF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Sólskríkjusj óðurinn - tilgangur og starfsemi Frá Þorsteini Eriingssyni: MARGAR fyrirspumir hafa bor- ist föður mínum, Erlingi Þorsteins- syni, um hinn svo kallaða Sól- skríkjusjóð upprana hans, tilgang og þau störf sem unnin eru í hans nafni. Þar eð ég, undirritaður, hef nú tekið við formannsstarfmu af föður mínum langar mig meðal annars til að svara í fáum orðum þessum fyrirspurnum. Sjóðinn stofnaði Guðrún J. Erl- ings, föðuramma mín, á sjötugsaf- mæli sínu þann 10. janúar 1948 í minningu eiginmanns síns Þorsteins skálds Erlingssonar en hann var, eins og þjóð veit, mikill fuglavinur og bera ljóð hans um fuglana vott um það. Tilgangur sjóðsins er að kaupa fuglafóður og senda það til sem flestra grunnskóla víðsvegar um landið óg að fá nemendur til að gefa smáfuglunum þegar snjór þek- ur jörð. Er það gert í þeirri trú að það sé góð aðferð til að stuðla að hjálpfýsi og miskunnsemi barna og unglinga. Eftir lát Guðrúnar, árið 1960, veitti faðir minn sjóðnum forstöðu þar til ég tók við því starfi fyrir nokkru. Tekjur sjóðsins voru fyrstu árin aðeins ágóði af útgáfu jólakorta og minningarspjalda en auk þess hafa honum borist margar góðar gjafir sem hafa komið sér vel og eiga gefendurnir innilegar þakkir skilið. Utgáfu jólakorta lauk árið 1980 af ýmsum ástæðum en minningar- spjöld eru enn fáanleg hjá sjóðnum. Nokkrir þjóðkunnir listamenn, sem Guðrún þekkti vel, færðu henni teikningar og málverk að gjöf til þess að láta prenta jólakortin eftir. Meðal þeirra voru Höskuldur Björnsson, Guðmundur Einarsson frá Miðdal og Jóhannes Kjarval. Velvilji fyrirtækja ómetanlegur Fljótlega eftir stofnun sjóðsins kom kurlaður maís á markaðinn sem smáfuglafóður og var hann almennt notaður. Það var fyrsta fuglafóðrið sem Sólskríkjusjóðurinn sendi til skólanna og er hann það að stórum hluta enn. Ég held að Fóðurblandan hafi verið eitt fyrsta fyrirtækið hér á landi sem kurlaði maís og setti hann á markað al- menningi til kaups. Fyrirtækið bauð Sólskríkjusjóðnum að greiða honum 5% af útsöluverði þess maískurls sem fyrirtækið seldi ár hvert og kom það sér mjög vel fyrir sjóðinn. Þennan sama velvilja sýndu forráð- menn Lýsis hf. einnig árum saman. Fyrir allmörgum árum hætti Fóð- urblandan að kurla maís en fyrir- tækið Katla yfirtók framleiðsluna og voru stjórnendur þess svo vin- samlegir að veita sjóðnum einnig þessi 5% og var það þegið með þökkum en sjóðurinn hefur fengið þau í formi korns. Fyrirtækið Kornax hóf innflutn- ing á ómöluðu hveitikorni og stóð Sólskríkjusjóðurinn fyrir tilraunum með að gefa fuglunum það samtím- is maískurli á sama stað en aðskilið og í sama magni. Oftast voru þeir álíka langan tíma að éta báðar þess- ar korntegundir. Forráðamenn Kornax hafa einnig veitt Sólskríkjusjóðnum skerf af söluverðmæti hveitikorns sem einn- ig er sent til grunnskólanna. Árlega hefur þeim skólum fjölgað sem Sólskríkjusjóðurinn sendir korn til og eru þeir nú orðnir um fjörutíu talsins. Hvernig haga skal fóðrun Fólk hefur á liðnum árum oft hringt til formanns Sólskríkjusjóðs- ins og spurst fyrir um hvernig best sé að haga fóðrun smáfuglanna. Því er til að svara áð æskilegast er talið að gefa þeim strax og birtir í skammdeginu og dreifa fóðrinu þar sem kettir síst ná til þeirra — út á svalir þar sem komið hefur verið fyrir spjaldi á handriðið fyrir fóðrið og út á hús- eða bílskúrsþök. Um leið og ég sendi skólunum bestu nýársóskir fyrir hönd Sól- skríkjusjóðsins vil ég þakka for- ráðamönnum þeirra fyrir samskipt- in á árinu sem er að líða og nemend- unum fyrir að gefa fuglunum. Ég vil sérstaklega þakka Flugleiðum og íslandsflugi fyrir þá höfðinglegu og ómetanlegu hjálp sem þeir hafa veitt okkur við að flytja kornsekkina ókeypis út um landið, einnig Val- geiri Guðmundssyni, frænda mín- um, fyrir að sjá um að koma fóðr- inu til flutningsaðila. Að lokum vil ég óska öllum lands- mönnum gleðilegs nýs árs og hvetja þá að gefa smáfuglunum þegar jörð er hulin snjó og hart er í ári hjá þessum smáu meðbræðrum okkar! ÞORSTEINN ERLINGSSON, Bólstaðarhlíð 3, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SlMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. 1 tausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.