Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 47
___________BREF TIL BLAÐSINS______
Að berja höfðinu við steininn
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
MIKIÐ er ánægjulegt að enn skuli
uppi með þjóð vorri fólk sem býr
yfir svo ósvikinni og skemmtilega
einsýnni húsbóndahollustu að ljóm-
i inn af störfum þess mun á lofti
meðan menn hafa einhverja ánægju
af skoplegri skemmtan. Út er geng-
I i_n á þrykk framtíðarsýn stjórnar
ÁTVR og þar veijast nú ekki smá-
munirnir fyrir höfundinum. Enda
verður maður að standa sig þegar
maður er skipaður í stjórn af yfir-
völdum sem hafa einkavinavæðing-
una fyrir sinn guð og þykir sómi að
sköttunum, einkum þó tekjusköttum
á lágar tekjur og miðlungs.
í raun og veru eru störf þessarar
stjórnar til fyrirmyndar fyrir þá sem
kunna í framtíðinni að hljóta þá
| upphefð eða lenda í þeim hremming-
' um að þurfa að vinna eftir trúarsetn-
ingum sem eru jafnfjarri manneskju-
legum viðhorfum og heilbrigðri
skynsemi - en setja einkagróðann
í öndvegi.
Þeir sem eiga að gera tillögur um
áfengismálastefnu mega helst ekki
vita af því sem sérfræðingar Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
hafa til málanna að leggja - og ef
þeir hafa einhveija nasasjón af slíku
má alls ekki láta á því bera. Þeir
mega til að mynda alls ekki vita að
áfengiseinkasala þykir þar á bæ
góður kostur í forvörnum en vafa-
samt hvort fræðsla ein og sér geri
nokkurt gagn. Auðvitað er miklu
snjallara að bera á borð það sem
áfengisframleiðendur haida fram að
bestu forvarnir séu að bæta aðgengi
að þessum vímugjafa og auka jafn-
framt fræðsluna. Enginn skyldi láta
sér detta í hug að þar sé einhver
maðkur í mysunni og þeir menn séu
fremur að hugsa um budduna sína
en almannaheill.
Að ekki sé minnst á augljósar
niðurstöður af slíkri röksemda-
færsiu. Því að ljóst má vera ef að-
gengi að vímuefni skiptir engu um
tjónið sem það veldur en fræðslan
ein dugar - þá er því fé á glæ kast-
að sem fer í að stemma stigu við
innflutningi ólöglegra vímuefna,
best að gefa allt fijálst og auka
bara fræðsluna.
Ekki er ástæða til að gefa gaum
að rannsókn Hagfræðideildar Há-
skóla íslands á kostnaði þeim sem
áfengisneysla veldur þjóðinni. Og
fara verður með þá staðreynd sem
mannsmorð að líklega er engin vöru-
tegund jafnmikið niðurgreidd af
skattþegnum sem áfengi. Bráð-
snjallt er að lækka verðið. Þó ekki
væri nema fyrir útlendinga sem sum-
ir halda að komi hingað einkum og
sér í lagi til að drekka áfengi. Skítt
með alla skattþegna sem tjónið
greiða. Og náttúrulega þá sem fyrir
tjóninu verða, eru til að mynda fórn-
arlömb öldrukkina ökumanna eða
ölvaðs ofbeldisfólks.
Svo er náttúrulega grundvallar-
atriði að hafa ekki hugmynd um það
sem vísindamenn íslenskir á þessu
sviði, svo sem prófessor Tómas
Helgason, hafa um málið að segja.
Og ef maður veit eitthvað um slíkt
ber að tortryggja og draga í efa og
halda sjálfur eitt eða annað, búast
við og gera ráð fyrir.
Á hinn bóginn skal öllu trúað sem
verslunarráð og kaupmannasamtök
og aðrir sem stunda þá iðju að dreifa
áfengi láta frá sér fara. Og enginn
skyldi ætla að tilgangur slíks fólks
væri ekki hreinn og soralaus. Þar
er nú ekki verið að hugsa um eigin
hagnað. Þar er nú heldur betur ver-
ið að hugsa um velferð þjóðarinnar.
Þar býr alviskan í áfengismálum.
Allt þetta og margt fleira þurfa
húsbóndahollir stjórnarmenn að
kunna.
Og svo náttúrulega að beija
hausnum við steininn.
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6, Reykjavík.
Schubert
í Sjónvarpinu
Frá Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur.
ÉG VIL taka undir orð Baldurs Sím-
onarsonar sem birtust í Morgunblað-
inu í dag, sunnudaginn 2. febrúar,
varðandi hátíðarhöld Ríkissjónvarps-
ins vegna 200 ára afmælis Franz
Schuberts (1797-1828). Þ.e.a.s.
skort á hátíðarhöldum. Hátíðarvönt-
un. Þann 31. janúar, á afmælisdag-
inn sjálfan, var hið eina sem minnti
á Schubert það, að í Dagsljós komu
tveir ágætir listamenn og fluttu eitt
laga hans og kynntu tónleika sína í
leiðinni. Frumkvæði listadeildar
Sjónvarpsins var sem sé ekkert.
Vart þarf að taka fram að ekki skort-
ir áhugann hér á landi, hvorki á
tónlist Schuberts né klassískri tónlist
yfirleitt. Máli mínu til stuðnings
bendi ég á þrenna Schubert-tónleika
sem haldnir voru í Reykjavík,
Garðabæ og Kópavogi í janúar en
þar var alls staðar fullt hús. Hvergi
kom þar Sjónvarpið nærri og væri
þó ástæða til að leyfa landsbyggðar-
fólki að njóta, svo. og öðrum þeim
sem af ýmsum ástæðum hafa ekki
tök á að sækja tónleikana.
Látum nú svo vera að þetta af-
mæli hafi farið framhjá listrænum
stjórnendum Sjónvarps. En það er
þessi viðvarandi skortur á metnaði
og vilja til að koma til móts við þenn-
an breiða hóp tónlistarunnenda um
allt land sem varð tilefni þessa bréfs.
Tökum dæmi um efni sem ekki er
lengur keypt eða sem aldrei hefur
ratað til Islands: Ég minnist söng-
keppninnar í Cardiff sem við fengum
að fylgjast með til skamms tíma,
keppni sem vekur athygli víða um
heim enda afskaplega vel framreidd
af sjónvarpinu í Wales. Píanókeppn-
in í Leeds er ein sú þekktasta í heimi
og þeir sem dvalið hafa í Bretlandi
vita að áhorfendur BBC geta fylgst
með öllum stigum keppninnar. Sama
má segja um valið á tónlistarmanni
ársins af yngri kynslóðinni (Young
musician of the year), þeirri tónlist-
arveislu eru gerð góð skil hjá BBC.
Fjölmargir þættir hafa verið gerðir
um tónskáld og tónlistarmenn lífs
og liðna. Ég minnist frábærs þáttar
um Leonard Bernstein, hljómsveit-
arstjóra og píanóleikara.
Upptaka frá nýárstónleikum
Vínarfílharmóníunnar gladdi unn-
endur Vínartónlistar í byijun hvers
árs en einnig þeir hafa horfið af
dagskrá hér. Miðað við aðsókn að
Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands má þó glöggt sjá að áhug-
inn er mikill: uppselt var á ferna
tónleika í janúar (4.000 sæti alls)
og langt er komið með að selja á
jafnmarga tónleika árið 1998.
Árið 1997 er nýbyijað. Vonandi
á Sjónvarpið einhveija gullmola í
handraðanum.
P.s. til að vera viss um að gæta
sanngirni las ég sjónvarpsdagskrána
vel, en á sunnudagseftirmiðdögum
er stundum að finna efni fyrir tón-
listaráhugafólk. í dag, 2. febrúar,
er dagskrá fram að fréttum þessi,
fyrir utan barnaefnið: íslandsmót í
atskák; íslandsmót í badminton og
vestri frá 1950.
ANNA GUÐNÝ
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Leirutanga 49, Mosfellsbæ.
■ ■ ,
Tveir góðir í
sttióintt:
Og líttu á verðið
SUZUKIVITARA JLX, 5-dyra: aðeins
1.940.000 KR.
BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins
1.580.000,-kr.
BALENO
1BALENO WAGON 4WD
rSUZUKIX
AFL oc;
v ÖRYGGI
Prufukeyrðu Suzuki í dag.
Taktu nokkrar beygjur, fvnndu þœgilegan gír.
Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf.
Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
ISLENSKIR Jtg
OSTAR^