Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 48
'48 FIMMTUDAGÚR 6. FÉBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ókeypis lögfræðiaðstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator féiag laganema.
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanléika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIKORK róar gólfin niður!
í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
PP
&CO
fc». ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVIK
SÍMI553 8640 568 6100
PURA CUT frá MARBERT
Ekki lengur feita og glansandi húð
Regulating
kremið gerir
glansandi húð
matta og kemur
réttu jafnvægi á
húðina. Sérstaklega
ætlað fyrir
blandaða húð.
Balancing Gel
er sérstaklega ætlað
fyrir feitari og
óhreinni húð. Gelið
hefur þurrkandi
áhrif og mattar
húðina. Komdu
við og fáðu prufur:
Libia Mjódd. Nana Hólagarði. Holtsapótek Glæsibæ. Spes Háaleitisbraut.
Evíta Kringlunni. Brá Laugavegi. Bylgjan Kópavogi. Snyrtihöllin Garðabæ.
Sandra Hafnarfirði. Galley Förðun Kelfavík. Krisma ísafirði. Tara Akureyri.
Apótekið Húsavík. Apótek Vestmannaeyja.
PURA CUT
Regul
PURA CUT
R^gulaHng
Cream
PURA CUT
Eaonöng
Gd
Oit-rree
■
e»*t-ua,tö*r
í tilefni 25 ára stjómmálasambands
íslands og Kína verður efnt til
Kínadaga '97, sem hefjast nýársdag
skv. kínversku almanaki; 7. febrúar.
Málþing, vörusýning og
ýmsir listviðburðir
Málþing um samskipti íslands og Kína
í Perlunni föstudaginn 7. febrúar
kl. 11.30-16.25.
Efni: Samskipti á sviði vísinda, stjórnmála,
menningar og lista, fjárfestinga, ferðamála og
viðskipta; 21. öldin - öld Kína o.fl.
Aðgangseyrir kr. 5000,-
hádegisverður innifalinn,
greiðist við innganginn.
Skráning og upplýsingar í síma 588 8910
á skrifstofu FÍS, Húsi verslunarinnar, 6. hæð.
Verið velkomin á vöru-
og listsýninguna
Gerið góð kaup á kínverskum vamingi.
Ýmsar uppákomur á dagskrá alla helgina.
Opin laugardag og sunnudag frá kl. 10 til 18.
Aðgangur ókeypis.
Ath: í tilefni Kínadaga '97 verður kínverskur
áramótamatseðill á borðum í veitingahúsi
Perlunnar!
Íslensk-kínverska viðskiptaráðið
Kínversk-íslenska menningarfélagið
Utanríkisráðuneytið
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Frábær
leiksýning-
UM miðjan janúar fórum
við systumar á alveg hreint
frábæra leiksýningu á „Litlu
hafmeyjunni" í flutningi
Leikfélags Mosfellsbæjar.
Bömin okkar tvö, sem bæði
era á fjórða aldursári, voru
með okkur og skemmtu þau
bæði sér hið besta. Sýningin
hélt athygli þeirra allan tím-
ann svo og annarra í salnum
og í hvert sinn er ljósin
slokknuðu ámilli atriðaþeg-
ar skipta þurfti um leik-
mynd, óttuðust þau að allt
væri búið og fullvissuðu sig
um að það kæmi örugglega
meira. Tónlistin í sýning-
unni er ákaflega góð svo
og þýðingin á textunum.
Búningamir eru skemmti-
lega hannaðir og skrautlegir
og fórðun leikara, sem er í
höndum þeirra sjálfra, er
glitrandi og falleg. Flutning-
ur sögunnar um „Litlu haf-
meyjuna", sem við flest
þekkjum af myndinni frá
Walt Disney, kemst ágæt-
lega til skila hjá þessum
áhugamannaleikhópi og það
var ánægjulegt að staldra
við eftir sýningu og spjalla
við leikarana sem margir
hafa frábæra hæfileika til
að standa á leiksviði og
ættu svo sannarlega að
halda áfram á þeirri braut.
Að lokum viljum við
hvetja foreldra að fara með
bömin sín á þessa sýningu,
því hún situr svo sannar-
lega eftir í minningunni hjá
okkur fjórum.
Ágústa Ástráðsdóttir,
Ástríður Ástráðsdóttir.
Þakkirtil
Meistarans hf.
ÉG VIL þakka fyrir frá-
bæra þjónustu og góðan
mat, sérstakar þakkir til
unga mannsins sem kom
með kjöt til mín síðastlið-
inn laugardag.
Húsmóðir í Hafnarfirði.
Skylda að vera með
sundhettu
VEGNA slysa sem hafa
orðið í sundlaugum hér á
landi langar mig að segja
frá því að í Þýskalandi er
fólk skyldað að vera með
sundhettu í sundlaugum
og nuddpottum. Þá er eng-
in hætta á því að sítt hár
flækist í niðurföllum eða
botnlokum.. Þetta ætti að
taka upp hér á landi.
Hildegard Valdason
Stefnumót góður
þáttur
MIG LANGAR að þakka
Svanhildi Jakobsdóttur íyr-
ir þáttinn sinn Stefnumót,
sem er á dagskrá Ríkisút-
varpsins, rás 1, á mánudög-
um. Lögin hjá henni em vel
valin og hún er góður
stjómandi. Þessi þáttur er
alveg einstakur og ég vil
alls ekki missa af honum.
Sigríður Ásta
Um sundhettur
í sundlaugum
RÓSA hringdi og er hún
með þá tillögu að fólk verði
skyldað til að nota sund-
hettu, bæði til að koma í
veg fyrir slys eins og átti
sér stað í Suðurbæjarlaug
og eins hreinlætisins
vegna.
Tapað/fundið
Gullarmband
tapaðist
GULLARMBAND
tapaðist 3. febrúar,
annaðhvort í strætó, leið
2 og 3, eða í Bónus á
Suðurströnd. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 588 2580
eða 551 3579.
Ullarfrakki
tapaðist
ULLARFRAKKI, dökkur á
lit, tapaðist í Perlunni 1.
febrúar á 50 ára afmæli
F.V.F.Í. Skilvfs finnandi
vinsamlega hafið samband
á skrifstofu félagsins í
síma 562 1610.
Linsubox
fannst
LINSUBOX fannst 27.
janúar við Hótel Esju.
Upplýsingar í gestamót-
töku hótelsins.
Prjónabuxur í
Keflavík
MIÐVIKUDAGINN 22.
janúar töpuðust pijónaðar
barnabuxur, hvítar með
grænu munstri, að öllum
líkindum við Hátún 36 í
Keflavík. Annar möguy-
leiki er að þær hafi tapast
við Álftamýri 38-44 í
Reykjavík. Buxurnar eru
í miklu uppáhaldi og því
er finnandi vinsamlega
beðinn að hringja í síma
581-1891.
Pils
tapaðist
GRÆNT sítt flauelspils
tapaðist á Gus Gus-tón-
leikunum í Perlunni föstu-
daginn 31. janúar sl.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
551-9027.
Gullúr
tapaðist
KVENMANNSGULLÚR
með svartri skífu tapaðist
1. febrúar annaðhvort í
Kringlunni eða við
Snorrabraut. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringið í síma 552 8685.
Fundarlaun.
Dýrahald
Kisa fæst
gefins
SVARTUR og hvítur kettl-
ingur, kassavanur, óskar
eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar hjá Dýrleifu í síma
567 2502.
Páfagaukur
tapaðist
BLÁR og hvítur páfagauk-
ur, karlfugl, tapaðist frá
Borgarholtsbraut í Kópa-
vogi, 3. febrúar. Þeir sem
hafa orðið fuglsins varir
vinsamlega hafí samband
í síma 554 3057.
Læðu vantar
heimili
KOLSVÖRT, fimm mán-
aða gömul læða þarf að
eignast nýtt heimili vegna
ofnæmis sem kom upp á
núverandi heimili hennar.
Áhugasamir dýravinir era
beðnir að hafa samband í
síma 587 6413.
Hamstursbúr
óskast
EF einhver þarf að losna
við hamstursbúr er sá vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 587-6413.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á al-
þjóðlegu móti í Wigan í
Englandi í janúarmánuði.
Alþjóðlegi meistarinn Jon-
athan Parker (2.495)
hafði hvítt og átti leik, en
G. Quillan (2.320) var með
svart og lék síðast 34. —
Hf8—e8?? en rétt var 34. —
Dd5 og staðan er tvísýn.
Gallinn við hróksleikinn er
sá að hann tekur flóttareit
af kóngnum og leyfir mát
með glæsilegri drottningar-
fórn:
35. Dxh7+!! - Kxh7 36.
Hh2+ - Bh6 37. Hxh6+ -
Kg7 38. Hgl+ - Kf8 39.
Hf6 mát!
Fimmtudagsæfing hjá
Taflfélagi Reykjavíkur í
kvöld kl. 20 í félagsheimil-
inu Faxafeni 12.
Þröstur Þórhalls-
son, formaður TR
og fleiri hafa nú
ákveðið að endur-
vekja þessum fyrr-
um vinsælu
kvöldæfingar. í
kvöld verða engin
þátttökugjöld.
HVÍTUR mátar í
fimmta leik.
Yíkverji skrifar...
SEINT læra menn af reynsl-
unni. Aðfaranótt þriðjudagsins
gerði mikla snjókomu í höfuðborg-
inni. Umferðaröngþveiti varð víða
og gífurlegar bílaraðir mynduðust
bæði á Suðurlandsbraut og á
Kringlumýrarbraut við Bústaða-
veg. Allt var þetta vegna þess að
fólk var á vanbúnum bílum, jafn-
vel sumardekkjum og þetta fólk
komst hvergi lönd né strönd og
þvældist fyrir öðrum sem voru
betur búnir til hjólanna.
XXX
AFTUR endurtók sagan sig í
gærmorgun, allar ökuleiðir á
höfuðborgarsvæðinu urðu ófærar
og nú var ófærðin sýnu meiri,
enda snjórinn blautari og þar af
leiðandi fastari fyrir. Ekki fannst
Víkverja þó menn á sumardekkj-
um hafa verið til trafala í umferð-
inni, líklegast hafa þeir ökumenn
skilið bílana eftir heima, en þeir
sem mestum vandræðum ollu í
gærmorgun voru jeppaeigendur.
Víkveiji var að aka upp úr Foss-
vogsdal í gærmorgun og í brekk-
unni voru nokkrir bílar, sem ekki
komust áfram. Víkveiji komst
klakklaust upp úr dalnum, en varð
að bíða allmikið vegna fastra bíla.
Galdurinn var að fara ekki út fyr-
ir hjólförin. Hins vegar voru
nokkrir jeppaeigendur, sem voru
afar óþolinmóðir og reyndu að
fara fram úr, út úr hjólförunum.
Slík ævintýramennska endaði með
því að þeir stóðu á stundum þvers-
um í götunni og virtust lítt burð-
ugri en fólksbílarnir, sem tóku
ástandinu með ró, biðu og mjökuð-
ust áfram, þegar færi gafst. En
eftir að upp úr dalnum kom voru
allir erfiðleikar að baki.
xxx
EGAR slíkt ástand skapazt á
götum borgarinnar og sér-
staklega ef lögreglan útvarpar
áskorunum til fólks um að fara
nú ekki á bílum til vinnu, heldur
taka strætisvagna, er eins og æði
grípi suma vegfarendur. Það er
líkt og slík áskorun virki sem
hvatning á fólk til þess að stíga
upp í bílinn og aka út í sortann.
Ævintýramennskan kemst í al-
gleyming meðal fólks.
xxx
EN hvað sem allri ófærð líður,
geta Reykvíkingar vart
kvartað. Það eru nú allmörg ár
síðan slíka snjókomu hefur gert í
höfuðborginni, að menn hafi átt í
erfiðleikum með að komast leiðar
sinnar. Og þrátt fyrir allt er slík
snjókoma fagnaðarefni fyrir
yngstu kynslóðina, sem virkilega
nýtur þess að leika sér í snjónum.
En honum fylgja líka hættur og
snjóhús geta fallið yfir börn að
leik. Foreldrar verða því að brýna
fyrir börnum sínum að fara öllu
með gát. Stórslys geta orðið falli
snjóhús yfir börnin, sem hvorki
skynja né þekkja þá hættu sem
miklum snjó getur fylgt.