Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 49
I DAG
BRIDS
Umsjðn Guðmundur Páll
Arnarson
SPIL dagsins er frá leik
Dana og Indónesa í undan-
úrslitum ÓL á Ródos. Öðru
megin spiluðu Danir 4
hjörtu í AV og fengu 10
slagi eftir tígulútspil. A hinu
borðinu var meiri barátta í
sögnum:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ ÁD864
? 86
♦ K64
♦ G107
Vestur Austur
♦ 2 ♦ G10953
♦ ÁKD10953 IIIIH f G42
♦ ÁD3 111111 ♦ 8
+ 98 * D532
Suður
♦ K7
r 7
♦ G109752
♦ ÁK64
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 tígull
4 hjörtu 4 spaðar Dobl 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass Pass
Dobl Allir pass
í AV voru Eddy Manoppo
og Henky Lasut, sem hafa
langt árabil verið þekktustu
spilarar Indónesa. Lasut í
vestur kom út með einspilið
í spaða. Lítið úr borði og
Manoppo lét gosann, sem
var óvenjuleg tilraun til að
benda á styrk í hjarta frek-
ar en laufi!
Suður spilaði tígulgosa í
öðrum slag og hitti á að
svína fyrir drottninguna.
Hann spilaði aftur tígli, ás-
inn í vestur og hjartatvistur
frá austri, sem sýnir staka
tölu samkvæmt þeirra að-
ferðum. Lasut velti vöngum
nokkra hríð, en fann svo
lykilvörnina — spilaði und-
an ÁKD í hjarta yfir á gosa
austurs og fékk þriðja slag-
inn á spaðastungu. Frábær
vörn, en samt sem áður 8
IMPa tap.
Með morgun-
kaffinu
Arnað heilla
O rÁRA afmæli. Áttatíu
OtJog fimm ára er í dag,
fímmtudaginn 6. febrúar,
Petrína Jónsdóttir frá
Kirkjubæ við Skutuls-
fjörð. Heimili hennar er
Safamýri 48, Reykjavík.
r/\ÁRA afmæli. í dag,
Ovrfimmtudaginn 6.
febrúar, er fimmtug Særún
Sigurjónsdóttir, Holtaseli
28, Reykjavík. Eiginmað-
ur hennar er Ólafur Sig-
mundsson, framkvæmda-
stjóri hjá Formax. Þau eru
stödd erlendis.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Sextíu ára hjúskaparafmæli
áttu 30. janúar sl. hjónin Guðrún Bryrvjólfsdóttir og
Bergþór Guðjónsson, fyrrverandi útgerðarmaður,
Skólabraut 31, Akranesi. Þau voru gefin saman af sr.
Þorsteini Briem í Kirkjuhvoli á Akranesi. Guðrún og Berg-
þór eignuðust þijú börn og eru tvö þeirra á lífí. Barna-
böm þeirra eru flögur talsins.
Morgunblaðið/Kristján
VINKONURNAR Ásgerður Klara Gunnarsdóttir og
Birna Helena Clausen héldu hlutaveltu á dögunum
við verslunina Kaupang. Þær söfnuðu 3.457 krónum
sem Jjær hafa komið í söfnun til styrktar Sophiu Hans-
en. A hlutaveltunni voru eingöngu vörur sem verslan-
ir í grenndinni höfðu gefið.
HÖGNIHREKKVÍSI
STJÖRNUSPA
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert orðheppinn oghefur
góða kímnigáfu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sjáifstraust þitt eykst á
komandi mánuðum og gaml-
ir draumar verða að veru-
leika.
Naut
(20. apríl - 20. mai)
Þú notar orku þína á næst-
unni í þágu góðs málefnis.
Eyddu kvöldinu í góðra vina
hópi.
Tvíburar
(21.maí-20.júní) í»
Þú ert í veisluhugleiðingum
þessa dagana. Eitthvað
gengur erfiðlega í vinnunni
en þeim mun betur í einkalíf-
inu. Njóttu þess.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Persónuleiki þinn nýtur sín
til fulls þessa dagana og þér
gengur vel í vinnunni. Ef þú
einbeitir þér of mikið verður
þú eirðarlaus.
Ljón
(23. júll — 22. ágúst)
Einbeittu þér að vinnunni
fyrir hádegi, og vertu ekki
of kröfuharður við sjálfan
þig. Reyndu að slaka á.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú ættir að vera einn með
sjálfum þér í dag eða með
börnum og forðast neikvæð-
ar manneskjur.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Forðastu að deila við ætt-
ingja. Þér gæti gengið erfið-
lega að ná til fólks í vinn-
unni, en taktu því með ró.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Reyndu að hafa stjóm á
skapi þínu í dag og gleymdu
ekki kímnigáfunni, þá farn-
ast þér vel.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember)
Þér tekst að snúa aðstæðum
þér í vil. Þó vel gangi í vinn-
unni veldur verkefni þar þér
heilabrotum.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þú ert spenntur fyrir hug-
mynd sem þú vilt koma í
framkvæmd en þú skalt ekki
taka fjárhagslega áhættu.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) éh
Þú átt velgengni að fagna í,
vinnunni og skalt hafa aug-
un opin fyrir nýjum tækifær-
um. Fjölskyldumeðiimur vill
einveru í dag.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Ltm
Þú færð gott boð frá vini
þínum. Þú ert ekki ánægður
með árangur erfiðis þíns í
vinnunni um þessar mundir.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hvernig gæludýr
mundir þú fá þér
ef þú ynnir rúmlega
44 milljónir í
V I K I N G A
iMrm
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrir kl. 17.00.