Morgunblaðið - 26.03.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ríkið fær Fæð- ingarheimili Reykjavíkur MEIRIHLUTI Reykjavíkurlistans í borgarráði hefur samþykkt maka- skipti við ríkið á Fæðingarheimilinu við Þorfinnsgötu og leikskóla Ríkis- spítalanna við Engihlíð. Minnihluti Sjálfstæðisflokks greiddi atkvæði á móti tillögunni en lagði jafnframt fram tillögu um að söluverðmæti eignarinnar, 62 milljónir króna, yrði nýtt til tækja- kaupa og stofnframlaga á Sjúkra- húsi Reykjavíkur. Borgarráðsfull- trúar Reykjavíkurlista lögðu fram frávísunartillögu, þar sem segir að sala Fæðingarheimilisins sé ekki frábrugðin annarri sölu borgar- eigna og að heimilið hafi ekki verið keypt sérstaklega fyrir Borgarspít- alann. Frávísunartillagan var sam- þykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Sinnuleysi í bókun Sjálfstæðisflokks er Reykjavíkurlistinn harðlega gagn- rýndur fyrir sinnuleysi við að tryggja að húsnæði Fæðingarheim- ilisins yrði notað í þágu fæðandi Ný stjórn Gunnars- húss BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra hefur skipað nýja stjórn yfir Gunnarshús á Skriðuklaustri til tveggja ára. Fyrsta verkefni stjómar er að semja drög að reglum um Gunnarshús og leggja fyrir menntamálaráðuneytið. Menntamálaráðherra segir að í drögum að reglugerð eigi að koma fram hlutverk stofnunarinnar, helstu starfshættir, rekstrartilhög- un og forstaða. Tillögumar eigi að miða við að í húsinu verði aðstaða fyrir lista- og fræðimenn, en einnig önnur starfsemi sem fellur að hlut- verki þess og samræmist gjafabréfi Gunnars Gunnarssonar skálds og konu hans. Gert sé ráð fyrir sérstök- um úthlutunarreglum vegna gesta- íbúðar. Miða eigi starfsemina við að húsið verði aðgengilegt almenn- ingi. Bjöm segir að þegar mennta- málaráðuneytið hafi samþykkt nýjar reglur fyrir Gunnarshús verði stjóminni sett frekari erindisbréf. Stjórnin er skipuð heimamönn- um, en þeir eru Helgi Gíslason, Helgafelli, sem er formaður, Gutt- ormur V. Þormar, Geitagerði, og Sigríður Sigmundsdóttir, Hús- stjórnarskólanum á Hallormsstað. kvenna eins og samþykkt hafi verið þegar Ríkisspítalar tóku við rekstr- inum. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur, borgarráð og borgar- stjórn hafi sett það sem skilyrði fyrir því að Ríkisspítalar fengju afnot af húsnæðinu. Loforð hafi verið brotin og með framkomu sinni undanfarin þtjú ár hafi Reykjavík- urlistinn ekki fylgt málinu eftir. Yfirlýsing flokkanna þegar þeir hafi verið í minnihluta, hafi reynst blekkingar. Ráðherrar heilbrigðis- HALLINN á Víkartindi hélst óbreyttur þrátt fyrir háflóð og brim í fyrrinótt, eða í um 35 til 38 gráð- mála hafi komið úr hópi flokka Reykjavíkurlistans án þess að þar hafi verið áhugi á að fylgja málinu eftir við þá eða Ríkisspítala. Afsal á forræði í bókun Reykjavíkurlistans er bent á að fyrir afgreiðslu fjárlaga 1992 hafi orðið að samkomulagi milli stjórnenda Borgarspítala og Landspítala að rekstur heimilisins skyldi flytjast frá Borgarspítala yfir á Landspítala. Formaður stjómar um í átt til sjávar. Gámar á þilfari fóm af stað í gærmorgun en þeir fóm ekki fyrir borð, utan gáms sem hékk í festingum við síðu skipsins. Guðmundur Bjamason umhverfis- ráðherra segir þolinmæði allra vera að bresta vegna þeirra tafa sem orðið hafa á hreinsun eftir strandið. í fyrradag var haldinn fundur með fulltrúum dómsmálaráðuneyt- is, umhverfisráðuneytis, skipafé- lags og tryggingafélags og íslensk- um lögmönnum þeirra. „Þar var ákveðið að hreinsun drægist ekki frekar og reynt yrði að ýta á að farið yrði í það af meiri krafti að ná farminum ef hann yrði þá ekki allur farinn í sjóinn áður en veðri slotar aftur,“ segir Guðmundur. Hann segir að enn hafi ekki verið teknar ákvarðanir um inngrip af hálfu stjórnvalda en greinilegt sé að allir séu orðnir afar óþolinmóðir. Fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins á Suðurlandi héldu áfram í gær að hreinsa úr fjörunni lyfjaglös og annan hættulegan reka úr skipinu, auk þess að koma lóðabelgjum og tunnum sem ultu í flæðarmálinu í skjól. í gær var háflóð skömmu fyrir klukkan 19 og áttu menn von á meiri hreyfingu á skipinu og farmi þess í gærkvöldi og í nótt, að sögn Gils Jóhannssonar lögreglumanns frá Hvolsvelli, sem var á vakt við skipið í gærkvöld. Ekki í sundurí bráð „Það skellur mikið á skipinu en ég held samt að það liðist ekki í sundur í bráð. Mér finnst hins veg- ar líklegt að gámar haldi áfram sjúkrastofnana hafi verið Árni Sig- fússon. Með þeim flutningi hafi borgin afsalað sér forræði á rekstri heimilisins og um leið allri stefnu- mörkun í þjónustu við fæðandi kon- ur. Þáverandi heilbrigðisráðherra hafi upplýst á Alþingi að fækka ætti stöðugildum og spara um 28 millj. á ári en þá þegar hafi legið fyrir að það nægði ekki til að reka heimilið. Síðan hafi dregið verulega úr rekstri og hafi heimilið verið opið í samtals 13 og hálfan mánuð síðustu fimm ár. Bent er á að sjálfstæðismenn hafi gert heiðursmannasamkomu- lag fyrir borgarstjórnarkosningar á 30 ára afmæli heimilisins um að tryggður yrði áframhaldandi óbreyttur rekstur. Það loforð hafi verið svikið tveimur árum síðar. í ljósi þess þjóni engum tilgangi að halda lengur í eignina en standi vilji til þess hjá sjálfstæðismönnum að standa við gefin loforð þá sé forsætisráðherra og fjármálaráð- herra í lófa lagið að tryggja fjár- muni til rekstursins. að falla frá borði,“ segir hann. Menn frá hollenska fyrirtækinu sem dælt hefur olíu úr skipinu fóru um borð í skipið í gærmorgun en aðhöfðust ekkert frekar, utan þess að koma búnaði sínum í öruggt skjól. Vinna lá raunar að mestu leyti niðri á sandinum í gær, en þar var suðvestanátt og gekk á með skúrum, mikið brim og nokkur gola. Von var á hreinsunarflokki frá Egilsstöðum í gær að sögn Gils en hann var ekki kominn til starfa síð- degis. Ólafur Briem skipaverkfræð- ingur hjá Skipatækni hf. sem hefur yfirumsjón með hreinsistarfi fyrir tryggingafélag útgerðar Víkar- tinds, segir að dráttur sá sem orðið hefur á hreinsunarstarfi skýrist meðal annars af töfum á að finna undirverktaka til að annast um- rædda hreinsun. Tímafrek leit og samningar „Allt tekur tíma og við höfum auglýst að undanfömu eftir verk- taka fyrir hreinsunina og þegar það var frágengið, þurfti að ganga frá samningi um hvemig að verkinu verður staðið. Það er ekki auðvelt að skilgreina hvenær hreinsun er lokið og ekki auðveldar það verkið að dæmi um sambærilegt strand em fá. Mér finnst aðalatriðið að hreins- unin takist vel og sá árangur sem menn stefna að náist,“ segir Ólafur. Hann kveðst ekki vilja tjá sig um kvartanir þær sem bomar hafa ver- ið fram opinberlega um óeðlilegan seinagang á hreinsun, og vísar al- farið á fulltrúa tryggingafélagsins í því sambandi. Umtals- verð aukn- ing í fragt- flugi vegna verkfalls UMTALSVERÐ aukning varð í fragtflugi vegna verkfalls Dagsbrúnarmanna í uppskip- un, segir Þórarinn Kjartans- son, framkvæmdastjóri Flug- flutninga hf. Bókanir jukust í áætlunarferðir og einnig voru fengnar tvær aukavélar til þess að flytja 250 tonn til og frá landinu að hans sögn. Fyrirtækið hefur umboð fyrir Cargolux. Margrét Hauksdóttir, deildarstjóri í upplýsingadeild Flugleiða, segir að vart hafi orðið við örlitla aukningu í fragtflugi hjá félaginu en erf- itt sé að meta hvort hún eigi rætur að rekja til verkfalls því meiri umsvif fyrir páska séu árviss viðburður. Þórarinn Kjartansson segir að meira hafi verið bókað í áætlunarferðir en fyrirtækið hafi getað annað. „Við tókum því inn Boeing 747 fragtvél til inn- og útflutnings frá Lúxemborg fyrir um 150 tonn og leiguvél frá Bandaríkjun- um sem fiutti 100 tonn fram og til baka. Það er greinileg afleiðing verkfallsins,“ segir hann. 300 tonnum meira? Þórarinn segir ennfremur að vélar í eigu félagsins hafi flutt 50 tonnum meira að undanförnum og því megi gera ráð fyrir 300 tonna heild- araukningu. Um er að ræða vélbúnað, varahluti, ávexti, grænmeti og fisk og tæki til björgunarstarfa vegna strands Víkartinds. Hann seg- ir loks að þótt alltaf sé aukn- ing í útflutningi á físki til neyslu austan hafs og vestan fyrir páska sé greinilegt að félagið hafi verið að flytja að undanförnu fragt sem annars er flutt í gámum. Gísli Sigurgeirsson hjá BM-flutningum tekur í sama steng og segist hafa orðið var við aukningu fragtflutninga með flugi vegna verkfallsins. Valgeir Guðbjartsson, deildarstjóri hjá TVG Zimsen, segir ennfremur að engin sjófragt hafi borist Tollvöru- geymslunni í verkfallinu og að meiri eftirspurn hafi verið eftir flugfragt. Átta sækja um Iðnó ÁTTA aðilar hafa lýst yfir áhuga á að koma inn í rekst- ur Iðnó, að sögn Þórarins Magnússonar, formanns end- urbyggingarnefndar. Þórarinn sagði að umsókn- irnar væru svipaðar. „Menn eru að tala um að hafa bland- aða starfsemi, list og veit- ingahússrekstur,“ sagði hann. „Þeir sem sækja um eru lista- menn og veitingamenn og virðast þeir vera með sömu hugmyndir en þó er mismun- andi áhersla Iögð á listgrein- arnar.“ Umsóknirnar verða kynntar í endurbygging- amefndinni, sem síðan mun væntanlega leggja fram um- sögn um hver komi helst til greina. Sagðist Þórarinn eiga von á að í næsta mánuði yrði ráðið hver yrði fyrir valinu. Sophia Hansen móðir ársins 1997 í Tyrklandi * „Eg þakka þetta íslensku þjóðinni“ SOPHIA Hansen hefur verið útnefnd móðir ársins 1997 af hálfu Tyrklandsdeildar al- þjóðlegu kvennasamtakanna The Internationai Womens Solidarity Association. Hún mun veita titlinum viðtöku við hátíðlega athöfn í Istanbúl 10. maí næstkomandi. „Auðvitað er það stórkost- legur heiður fyrir mig að vera kosin móðir ársins. Ég þakka þetta íslensku þjóðinni, Hall- dóri Asgrímssyni utanríkis- ráðherra og hans fólki, sem hefur stutt svo vel við bakið á mér. Þannig að þetta er ekki bara minn sigur persónu- lega heldur lika sigur fyrir þjóðina sem hefur átt mikinn hlut í þessu öllu,“ segir Sop- hia í samtali við Morgunblað- ið. Eftir að Sophia, Halim A1 og dætur þeirra, Dagbjört Vesile og Rúna Aysegul, komu fram í tyrkneska sjónvarps- þættinum Arena fyrir tæplega hálfum mánuði hafa fjölmiðl- ar í Tyrklandi sýnt máli þeirra mikinn áhuga og Sophia verið í fjölda viðtala þess vegna. Annað kvöld verður Sophia aftur í þættinum Arena og á föstudagsmorgun verður sýndur annar sjónvarpsþáttur þar sem fjallað er um málið og talað við Sophiu. Sam- kvæmt áhorfskönnunum frá því í janúar sl. fylgjast um 35 milljónir manna í Tyrklandi með þeim þætti. Lítil vinna við Víkartind í gær Morgunblaðið/Rax BRIMIÐ skellur á skipinu og búast menn við að fleiri gámar losni og skolist útbyrðis næstu daga. Ráðherra segir þolin- mæðina vera að bresta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.