Morgunblaðið - 26.03.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 11
VMSI, Dagsbrún/Framsókn
og vinnuveitendur
Semja um við-
ræðuáætlun fyrir
næstu samninga
SAMKOMULAG var gert á milli
Verkamannasambandsins og
verkalýðsfélaganna Dagsbrúnar
og Framsóknar við vinnuveitend-
ur um viðræðuáætlun þegar kem-
ur að endurnýjun kjarasamning-
anna sem undirritaðir voru í
fyrrakvöld.
í samkomulaginu segir m.a. að
við upphaf samningaviðræðna
skuli samningsaðilar kynna hvern-
ig samninganefnd er skipuð og
fyrir hveija hún hefur samnings-
umboð.
Viðræður byrja 4 mánuðum
áður en samningar renna út
í viðræðuáætluninni er gengið
út frá að ekki síðar en fjórum
mánuðum áður en samningar
renna út skuli aðilar kynna hug-
myndir um endurnýjun samninga
og freista þess að setja viðræðun-
um sameiginleg meginmarkmið.
Þessum þætti viðræðna skal lokið
þremur mánuðum áður en samn-
ingar renna út.
Að þessu loknu verður tekið til
við sérsamninga. Eigi síðar en
tveimur mánuðum áður en samn-
ingar renna út hefjast svo viðræð-
ur um kaupliði samninga og
kostnaðaráhrif. Samningarnir
gilda til 15. febrúar þannig að við-
ræður um launamálin hefjast í síð-
asta lagi um miðjan desember
1999. Hafi samningar ekki komist
á einum mánuði áður en samning-
ar renna út, eru aðilar sammála
um að vísa málinu til sáttasemjara
nema það sé samdóma álit að gerð
samninga sé að ljúka. Takist ekki
á þeim mánuði sem sáttasemjari
stýrir viðræðum að ljúka samning-
um og viðræður reynast árangurs-
lausar er heimilt að taka ákvarðan-
ir um aðgerðir til að þrýsta á um
samningsgerðina, skv. samkomu-
laginu sem fylgir nýgerðum kjara-
samningum.
V erkamannasambandið
Samið við ríki
og sveitarfélög
NÝR kjarasamningur Verka-
mannasambandsins við ríki og
sveitarfélög var undirritaður um
kl. 3.30 í fyrrinótt og sagði Björn
Snæbjörnsson formaður þeirrar
deildar innan sambandsins sem
semur við ríki og sveitarfélög að
hann væri sambærilegur öðrum
samningum við vinnuveitendur.
„Það var ánægjulegt að geta
lokið þessu og er það allt á sömu
nótunum og aðrir samningar okk-
ar, mest hækkun hjá þeim sem eru
á lægstu töxtunum,“ sagði Björn
Snæbjörnsson.
Sú deild Verkamannasambands-
ins sem tekur til starfsmanna er
vinna hjá ríki og sveitarfélögum
er næstfjölmennasta deild sam-
bandsins. Sagði Björn Snæbjörns-
son að eftir síðustu samninga hefði
verið ákveðið að samræma alla
þessa samninga og væri þetta fyrsti
nýi samningurinn eftir hana.
„Þarna var verið að takast á við
nýtt vaktakerfi hjá Vegagerðinni
og ýmsa aðra hluti en meðal
stærstu aðila að samningnum eru
auk hennar Skógræktin og Land-
græðslan og síðan Reykjavíkurborg
þar sem samningurinn nær til
þeirra sem vinna við ræstingar í
skólum og fleira," sagði Björn.
„Mér fannst mál til komið að
ljúka þessari samningatörn því við
höfum ekki fengið frí í sjö vikur.
Síðan fer allt í gang á ný eftir
páska því bæði er eftir að kynna
samninginn og standa að atkvæða-
greiðslum og síðan eigum við eftir
sérsamninga," sagði Björn Snæ-
björnsson að lokum.
Alvarlega
slösuð eftir
árekstur
EKIÐ var á þrítuga gangandi
konu á Kringlumýrarbraut í
Reykjavík skammt frá Miklu-
braut um hálftíu í fyrrakvöld.
Konan missti meðvitund og
var talin mikið slösuð, að sögn
lögreglu, meðal annars á höfði
og hrygg. Hún var flutt á Land-
spítalann til aðhlynningar.
Hellisheiði
Ekið á veg-
faranda
EKIÐ var á mann á Hellisheiði
um hálftólfleytið í fyrrakvöld.
Maðurinn hafði stigið út úr bif-
reið sinni sem snúist hafði við á
veginum vegna slæmrar færðar.
1 þann mund kom að önnur
bifreið og ók á kyrrstæða bílinn
sem hentist á manninn. Hann var
fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi.
Skálafell
Leitað að vél-
sleðamönnum
BJ ÖRGUN ARSVEITIN Kyndill
var kölluð út í fyrrakvöld til þess
að leita að tveimur vélsleðamönn-
um á leið frá Þingvallavegi inn í
Skálafell.
Mennirnir voru á leið að KR-
skálanum og var farið að óttast
um þá klukkan 22.30 vegna
slæms veðurs og lélegs skyggnis
þegar þeir komu ekki til baka að
sækja fleiri eins og til stóð.
Björgunarsveitarmenn fundu
þá í skálanum um klukkustund
síðar heila á húfi.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór
MENGUN við Miklubraut var efst á baugi á fundi borgarstjóra með íbúum Hlíðahverfis í Reykjavík.
Ibúar við Miklubraut krefjast úrlausna vegna mengunar
*
Afellisdómur yfir
heilbrigðiseftirliti
og borgaryfirvöldum
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
A BORGARAFUNDI um
málefni Hlíða-, Túna-,
Holta- og Mýrarhverfanna
sem haldin var i Ráðhúsi
Reykjavíkur í vikunni fjöl-
menntu íbúar við Miklu-
braut og kröfðust úrlausna
til frambúðar vegna hávaða
og annarrar mengunar við
götuna. Margir kvörtuðu
yfir hægagangi borgaryfir-
valda þrátt fyrir að sannað
væri að mengunin við göt-
una væri yfir leyfilegum
mörkum og loforð um úr-
bætur. Guðlaugur Lárus-
son, sem býr við Miklubraut
13 og lengi hefur kvartað
yfir ástandi mála, sagði
nýlega skýrslu Hollustu-
vemdar vera áfellisdóm yfir
heilbrigðiseftirliti í Reykja-
vík og að ástand mála væri
smánarblettur á borginni.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri benti á
að taka þyrfti tillit til
margra þátta við úrlausn
málsins. Þar sem Mikla-
braut væri stofnbraut þyrfti
samþykki Vegagerðar ríkis-
ins fýrir framkvæmdum og
fjárframlag í vegaáætlun.
Einnig þyrfti að huga að
því að allir íbúar borgarinn-
ar hefðu not af götunni og
að hún, ásamt Sæbrautinni,
væri helsta tenging milli austur-
og vesturhluta borgarinnar.
Ingibjörg sagði að víðar í borg-
inni væri kvartað yfir umferðarháv-
aða en við Miklubraut og benti á
Hverfisgötu, Laugaveg frá Hlemmi
að mjólkurstöð og Hringbraut sem
dæmi. í athugun væri að styrkja
íbúa á þessum stöðum til þess að
gera breytingar á húsum sínum, til
dæmis á gluggum, til þess að draga
úr hávaðanum.
Ekki nóg að draga úr
hávaðainnanhúss
Gestur Bárðarson, íbúi við Miklu-
braut 46, sagði að ekki væri nóg
að draga úr hávaða innanhúss, því
ekki væri hægt að loka börnin inni.
Hann benti á þann möguleika að
takmarka þungaumferð við götuna
og beina henni til dæmis í auknum
mæli inn á Sæbraut. Einnig væri
hægt að lækka hámarkshraða úr
sextíu kílómetrum á klukkustund í
fímmtíu. Með því væri dregið úr
hávaða um 40% og álíka mikið úr
annarri mengun. Til þess að fram-
fýlgja breytingunni þyrfti að auka
eftirlit, og mætti þar beita mynda-
vélum í auknum mæli.
Borgarstjóri tók undir að draga
mætti úr hámarkshraða, en varð-
andi takmörkun þungaumferðar
benti hún á áhrif þess á atvinnu-
starfsemi i vesturborginni. Hún
sagðist ekki telja að hægt væri að
draga verulega úr hávaðanum utan-
dyra við Miklubraut.
Ingibjörg sagði að margt það sem
dregið gæti úr umferð væri utan
valdsviðs borgaryfirvalda. Til dæm-
is skipti bílaeign lands-
manna miklu máli, og hversu
mikið strætisvagnar væru
notaðir. Meðal þess sem
borgin gæti haft áhrif á, og
hefði þegar gert, væri meira
framboð á dagvistun allan
daginn og heilsdagsskóli.
Lengri stokk
Fundarmenn lýstu lítilli
hrifningu yfir áætlunum
borgaryfirvalda um að stutt-
ur kafli Miklubrautarinnar
við Miklatún verði niður-
grafinn í stokki og sögðu að
miðað við núverandi tillögur
væri réttara að kalla hann
brú. Þeir telja að stokkurinn
þurfi að vera mun lengri til
að leyst verði úr vanda allra
íbúa á svæðinu.
Stefán Hermannsson
borgarverkfræðingur út-
skýrði að við könnun á þess-
ari lausn hefði komið í Ijós
að of lítið rými væri við
Miklubrautina til að koma
við tengingum við langan
niðurgrafinn veg. Afleiðing-
in yrði sú að þeir sem væru
á leið í Hlíðarnar þyrftu að
fara miklar krókaleiðir og
umferð um íbúðargötur
myndi þar af leiðandi auk-
ast. Svar fundarmanna var
að miklu væri til fórnandi
til að ráða bug á þeim höfuðvanda
sem væri við Miklubrautina.
Auk mengunarmála við Miklu-
braut kom meðal annars ástandið
á Miklatúni til umræðu á fundinum.
Ibúar lýstu áhyggjum af því að eit-
urlyfjaneytendur hefðu aðsetur í
garðinum á sumrin og skildu meðal
annars eftir sig sprautur. Rætt var
um hvort ástæða væri til að koma
þar á eftirliti. Einnig var lýst nokkr-
um áhyggjum af aukinni umferð í
nágrenni við Kennaraháskólann og
fyrirhugaðan uppeldisháskóla.
í lok fundarins hvatti Ingibjörg
Sólrún íbúa til að koma á framfæri
athugasemdum við tillögur borgar-
yfirvalda. Þær verða kynntar opin-
berlega frá og með 2. apríl og frest-
ur til að skila inn athugasemdum
er átta vikur.