Morgunblaðið - 26.03.1997, Page 8

Morgunblaðið - 26.03.1997, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ,i Príkort: Punktum safnað ÞIÐ verðið ekki lengi að éta ykkur í fríið elskurnar mínar, þetta er örstutt út I vél . . BHM reiknar út lágmarkslaun fyrir háskólamenn Þyrftu að hafa 96.000 króna lágmarkslaun AÐ MATI Bandalags háskólamanna þurfa lágmarkslaun háskólamanns með fjögurra ára háskólanám að baki að vera 96.700 kr. til hann fái sömu ævitekjur og launamaður með 70.000 krónur á mánuði. Almennt þurfí laun háskólamenntaðra manna að vera 28-49% hærri en laun ófag- lærðra starfsmanna til að réttlæta það val að hefja ekki strax störf 19 ára heldur fjárfesta í menntun á háskólastigi. Lægri ævitekjur Þessi niðurstaða byggir á skýrslu um ævitekjur og arðsemi menntun- ar, sem hagfræðingarnir Birgir Bjöm Siguijónsson og Vigdís Jóns- dóttir tóku saman og greint var frá í fjölmiðlum í síðasta mánuði. Meg- inniðurstöður skýrslunnar eru að ríkisstarfsmenn innan BHM hafí að meðaltali um fjórðungi lægri ævi- tekjur að núvirði en félagsmenn VR miðað við dagvinnulaun að te- Ummerki sprenging- ar könnuð LOFTPRESSA sprakk í stál- smiðju við Mýrargötu á sunnu- dag, þegar „heddið“ þeyttist af og stimplarnir gengu út. Svo kraftmikil var sprengingin að rúður brotnuðu i húsinu en til allrar mildi var enginn nærstadd- ur og því urðu engin meiðsli á mönnum. Nokkrar skemmdir urðu á tækjabúnaði og könnuðu starfsmenn fyrirtækisins ásamt fulltrúum lögreglu og vinnueftir- lits aðstæður í kjölfarið. knu tilliti til verðmætari lífeyrisrétt- inda ríkisstarfsmanna. Birgir Bjöm segir að í framhaldi af birtingu þessarar skýrslu hafi sú spurning vaknað hjá mörgum hver lágmarkslaun háskólamanna þyrftu að vera til þess að þau jafngiltu kröfu ófaglærðra um 70.000 kr. lágmarkslaun. Niðurstaða útreikninga um þetta atriði er, miðað við tilteknar for- sendur, að lágmarkslaun háskóla- manns með fjögurra ára háskóla- nám þurfa að vera 96.700 kr. Ef viðkomandi hefur stundað háskóla- nám í fimm ár þurfa lágmarkslaun- in að vera 102.800 og miðað við sex ára háskólanám 104.140 kr. Háskólamaður með 6 ára háskóla- nám að baki þarf að hafa 201.200 kr. í mánaðarlaun til að hafa sömu nettóævitekjur og ófaglærður starfsmaður sem hefur 150.000 kr. mánaðarlaun. Þess má geta að meðallaun í VR eru 154.229 kr. á mánuði samkvæmt könnun VR mið- að við laun í nóvember 1996. Ávinningur háskólamanna af skattatillögum BHM Miðstjórn BHM samþykkti í febr- úar sl. tillögur um skattkerfísbreyt- ingar. Meginatriði þeirra er að van- nýttur persónuafsláttur einstakl- inga verði millifæranlegur að fullu með verðbreytingum á milli tekju- ára í allt að 10 ár. Ríkisstjómin tók ekki tillit til þessa sjónarmiðs við gerð skattatillagna sem kynntar voru fyrir skömmu. Að mati BHM hefðu skattatillögur BHM skilað háskólamönnum mun meiri kjara- bótum en tillögur ríkisstjórnarinnar gera. Sem dæmi fær háskólamaður með 93.756 kr. í heildarlaun 3.964 kr. meira í laun á mánuði miðað við skattatillögur stjómvalda. Hann hefði hins vegar fengið 6.143 kr. meira ef farið hefði verið að skatta- tillögum BHM. Morgunblaðið/Jón Svavarsson IMorræni blaðamannaskólinn í Árósum Island sterkar inn í starf- semi skólans NÝLEGA tók Sigrún Stefánsdóttir form- lega við embætti skólastjóra Norræna blaða- mannaháskólans í Arósum. Starfsemi skólans er _ ekki einungis bundin við Árósa heldur eru haldin námskeið víðs vegar um Norðurlöndin og einnig í Eystrasaltsríkjun- um. Sigrún er nýkomin frá Vilnius í Litháen þar sem hún var fyrirlesari á námskeiði sem haldið var á vegum blaðamannaháskólans. - Um hvað snerist þetta námskeið? „Námskeiðið var haldið fyrir unga blaðamenn í Eyst- rasaltsríkjunum og sóttu það um 30 manns. Það snerist um siðferði í blaðamennsku og var hið fyrsta sinnar teg- undar þar um slóðir. í mínum Sigrún Stefánsdóttir fyrirlestri lagði ég megináherslu á starf blaðamanns í fámennu þjóð- félagi. Einstaklingurinn hefur óneitanlega meira vægi í sam- félögum þar sem allir þekkja alla. Ég notaði þama reynslu mína héðan og þrátt fyrir að þessi ríki séu mun ijölmennari en ísland teljast þau eigi að síður til fá- mennra ríkja. Það kom líka í ljós á námskeiðinu að þátttakendum fannst þetta sjónarhorn mjög áhugavert og eiga við aðstæður í þessum löndum. Blaðamennska er á margan hátt komin stutt á veg í Eystrasaltsríkjunum og má nefna að nýbúið er að setja saman siða- reglur blaðamanna. En þar er mikil gróska núna.“ - Hvernig tengist þessi fræðsla norræna blaðamannaháskólanum? „Þessi fræðsla er ein af nýrri hliðum starfsemi skólans, kennsla fyrir blaðamenn Eystrasaltríkj- anna og Rússlands. Síðan vorið 1991 hafa verið haldin 107 nám- skeið í Eystrasaltslöndunum og hafa yfir 2.000 þátttakendur setið þau. Námskeiðin eru að mestu leyti grunnnámskeið í blaða- mennsku, útgáfu og umbroti. Til- gangur og markmið með þessu námskeiðahaldi er tvíþætt. Annars vegar að stuðla að lýðræðislegri þróun og styðja við bakið á lýð- ræðislegum stofnunum í þessum löndum. Hins vegar er tilgangur- inn að efla samband Norðurlanda við þessi grannsvæði og endur- vekja þannig gömul tengsl sem eiga sér langa sögu.“ - Hvetjar eru helstu áherslur í starfsemi skóians í Árósum? „Skólinn er endurmenntunar- stofnun starfandi fjölmiðlafólks á Norðurlöndum. Það hefur sýnt sig í könnunum sem hafa verið gerðar að umfjöllun fjölmiðla Norður- landa á málefnum sem snerta önnur Norðurlönd er ekki mikil. Það er hægt að gera ------------------- mun betur og auka GÓð tækífæri flæði milli þjóðanna og fyrjr ís|enska ► Sigrún Stefánsdóttir fæddist árið 1947. Hún útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólan- um á Akureyri árið 1967 og hélt þá utan til Bandaríkjanna þar sem hún lagði stund á fjöl- miðlafræði í eitt ár. Sigrún lauk íþróttakennaraprófi árið 1969, stundaði nám í blaðamannahá- skóla í Noregi árin 1970-1972 og vann samtímis á dagblaðinu Verdens gang. Árið 1987 lauk hún doktorsprófi í fjölmiðlun frá Háskólanum í Minnesota og hefur kennt við Háskóla íslands frá 1986. Sigrún átvo upp- komna syni. þar kemur að hlutverki Norræna blaðamanna- háskólans, þeir blaða- menn sem fara á námskeið fá meiri áhuga og innsýn í nor- rænt samstarf. Markmið skólans er að vekja og viðhalda áhuga í norrænum fjölmiðlum fyrir nor- rænni samkennd og menningar- legum tengslum. Þetta byggist á því að mynda kjarna fjölmiðlafólks sem hefur áhuga á Norðurlöndum sem menningarlegri og stjórn- málalegri heild og miðlar þeim áhuga til landa sinna. Framboð námskeiða í skólanum miðast við umfjöllun um norrænt samfélag, blaðamenn þar menningu og stjórnmál. Á hveij- um vetri er boðið upp á eitt langt námskeið sem stendur í tvo mán- uði og fjallað er um eitthvað af- markað efni er tengist Norður- löndum. Einnig er boðið upp á ýmis styttri námskeið. Kennslan fer fram á dönsku, norsku og sænsku í þeim námskeiðum sem ætluð eru norrænum blaðamönn- um en annars á ensku. Ég tel mikilvægt að halda fast í norrænu tungumálin í starfsemi skólans því þau eru ein af stoðum norrænnar samvinnu." - Nú ert þú fyrsti íslendingur- inn sem gegnir embætti skóla- stjóra Norræna Blaðamannahá- skólans. Má vænta einhverra áherslubreytinga? „Það gerist af sjálfu sér að með íslenskum stjórnanda kemur Is- land sterkar inn í starfsemi skól- ans sem og önnur jaðarsvæði Norðurlanda, eins og Grænland og Færeyjar. Eitt af markmiðum mínum er einmitt að auka vægi og beina athygli manna að þessum löndum sem oftar en ekki falla í skugga stóru bræðranna. Hingað til hafa íslendingar lítið kennt við --------- skólann, en þar getur orðið breyting á. Skól- inn býður upp á góð tækifæri fyrir íslenska blaðamenn til þess að koma ýmsu á framfæri og um leið að kynnast nýjum hug- myndum og möguleikum. Ég vil leggja meiri áherslu á umhverfís- og jafnréttismál og auka umræðu um hópa sem lítið hafa verið í fjöl- miðlum eins og t.d. fatlaða. Ég tel að auðveldara geti verið að hefja umræðu um slík mál á fjöl- þjóðagrundvelli en á heimavelli. Auk þess stefni ég á að alnetið og þeir möguleikar sem það býður upp á í sambandi við undirbúning fyrir þátttakendur í námskeiðum skólans verði betur nýttir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.