Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 21 LISTIR RÚRÍ: Square Metre, 1995. Parsifal á föstudaginn langa hve þau séu gagnhugsuð og skýr í útfærslu. Vangaveltur um algildi og afstæði Á sýningunni eru sex verk unnin á árunum 1995-1997 og öll eiga þau það sameiginlegt að uppistaðan í þeim eru gulir tommustokkar úr trefjaefni. Hver um sig er metri á lengd, en í einu verkanna er tommu- stokkurinn felldur í kubb úr íslensku blágrýti. Rúrí segir vangavelturnar að baki verkanna snúast um gildi, hvort þau séu algild eða afstæð. Þessar afstæðisvangaveltur hennar eru engin ný bóla, heldur hefur hún gruflað yfir þeim um langa hríð. Húm velti hugmyndunum fyrir sér í mörg ár áður en hún byrjaði að vinna þær í efni. Þannig hélt hún 1991 sýninguna Mjöt í Nýlistasafni, „Values“ 1994 í Helsinki og 1996 kallaðist sýning hennar í Ingólfs- stræti 8 Gildi. Sýninguna nú setti hún upp í galleríinu á sama hátt og hún hefur gert undanfarið. Hver sýning er mið- uð við það rými sem hún fær til afnota, svo það er ekki að- eins um það að ræða að stilla verkunum upp, heldur að þau myndi heild með rýminu. „Ég lít á rýmið sem eina heild og set verkin upp þannig að þau myndi spennu innan rýmisins og það lifni við.“ Það er heldur engin tilviljun að hún notast við tom- mustokkinn og mælieiningar í um- fjöllun sinni um gildin og afstæði þeirra, því eins og hún bendir sjálf á eru mælieiningar það sem við not- um til að skrá og setja í kerfi þá þekkingu, sem aflað er. Hún veltir því fyrir sér hvort fundin gildi haldi og segist sannfærð um að hlutirnir séu flóknari en þeir virðist. Og með hliðsjón af verkum Rúríar er auð- velt að trúa henni, því blágrýtiskubb- urinn með metranum í heitir „Cubic Metre“, sem er ljóslega rétt sam- kvæmt formúlunni, þó stærð kubbs- ins mæld eftir hefðbundnum leiðum sé ekki sú sem búast mætti við af verki með þennan titil. Samhengi hugtaka - ólíkar birtingarmyndir En samhengið í verkum Rúríar er ekki aðeins bundið við hvetja sýn- ingu fyrir sig. Á sýningunni í Gal- erie Bossky liggur einnig frammi bókverk, þar sem listakonan hefur safnað saman myndum og heimild- um um fyrri verk og flokkað þau saman undir heitunum Tími, Inni- verk, Útiverk, Regnbogar, Mjöt- Cosmos, Afstæði og Hugleiðingar, auk þess sem starfsferill fylgir. Hugleiðingarnar eru heimspekilegar vangaveltur listakonunnar og hug- leiðingar til grundvallar verkunum. Bæði Mjöt og Cosmos eru hugtök, sem hún hefur notað sem nöfn á sýningar sínar. Bókverkið segist hún hafa unnið í tólf eintökum í veikind- um, sem hindruðu hana í að stunda verklega vinnu. En af því henni læt- ur illa að vera aðgerðalaus, þá greip hún í þessa vinnu og segir glettnis- lega að fátt sé svo með öllu illt . . . Og það má til sanns vegar færa að bókverkið sé hið mesta þarfaþing og góð heimild um verk Rúríar. Það segir meira en mörg orð um það samhengi sem er í verkum Rúríar og væri í raun kjörin undirstaða bókar um verk hennar. Þó þau hafi á sér ýmsar birtingarmyndir og efni- viður hennar geti verið steinn, stein- steypa, gler, viður, járn og trefjar er efniviðurinn aðeins mismunandi birtingarmyndir þeirra grundvallar- hugmynda, sem Rúrí veltir svo gjörla fyrir sér. Efniviðurinn er margvís- legur, en hugmyndirnar fáar og lýst- ar upp á marga vegu. Fyrir þann sem gleðst í hvert skipti sem hann lítur Regnboga Rúríar við Keflavík- urvöll þá geymir mappan góða með- al annars hugmyndasögu þess margslungna verks. Um áratug áður en Regnboginn hennar tók á sig hið mjög svo áþreifanlega form hafði hún reist annan og óvaranlegri regn- boga úr bambus og lituðu efni við Korpúlfsstaði og brennt hann í gjörningi. Hún brennir varla verkin í Galerie Bossky og þau eiga vísast eftir að rísa í nýju samhengi á nýjum stöðum og hugmyndirnar klæddar öðru efni, en samhengislaus verða þau ekki. RICHARD Wagner-félagið á ís- landi mun sýna óperuna Parsifal af myndbandi (geisladisk) á föstu- daginn langa kl. 13. Sýningin verð- ur í Safnaðarheimili Dómkirkjunn- ar í Lækjargötu 14a, 3. hæð. Sig- urður Örn Steingrímsson prófessor mun flytja inngangsorð. „Parsifal var frumsýndur í Bay- reuth 26. júlí 1882 og er eina óp- era Wagners sem skrifuð er sér- staklega fyrir Festspielhaus, eftir að það var byggt, og jafnframt síðasta stórvirki tónskáldsins. Wagner kallaði Parsifal ekki óperu heldur Búhnenweihfestspiel, sem útleggja má sem hátíðarleik til vígslu leikhúss. Það var upphaf- lega ásetningur hans að verkið yrði einungis flutt í eitt skipti og aðeins fyrir útvalda áheyrendur, en hugmyndir hans þróuðust á þann veg að Parsifal skyldi endur- fluttur á þriggja ára fresti, en ein- INGIBJÖRG Rán Guðmundsdóttir myndlistarmaður opnar á skírdag sýningu á andlitsmyndum í Kaffí Lefolii og Húsinu á Eyrarbakka. Sýningin ber yfirskriftina Hvar eru hetjurnar? Sýningin stendur frá skírdegi 27. mars til loka apríl. Afgreiðslutími KaffiLefolii er kl. 12-24 virka daga og 12-02 um helgar. Afgreiðslutími í Húsinu er kl. 14-17 frá skírdegi til annars páskadags og laugardaga og sunnudaga allan aprílmánuð. göngu í Bayreuth,“ segir í kynn- ingu. Segir þar ennfremur: „Bann Wagners við að flytja Parsifal utan Bayreuth var fljótt virt að vettugi og reið Metropolitan-óperan í New York á vaðið með sýningu sinni árið 1903 og var frumsýningin þar á aðfangadag. Þetta vakti mikla reiði Cosimu Wagner, en upp frá þessu var farið að sýna Parsifal víðar og varð það m.a. venja margra þýskra óperuhúsa að sýna hann árlega á föstudaginn langa. Þennan sið hyggst Richard Wagn- er-félagið taka upp með árlegum myndbandssýningum. “ Sýnd verður upptaka frá Deutsche Staatsoper í Berlín árið 1993. Hljómsveitarstjóri er Daniel Barenboim og leikstjóri Harry Kupfer. í helstu hlutverkum Poul Elming, Falk Struckmann, John Tomlinson og Waltraud Meier. Ingibjörg Rán Guðmundsdóttir hefur verið búsett í Kaupmanna- höfn í 20 ár. Hún lauk námi í Billede-skolen á Jagt-vej í Kaup- mannahöfn árið 1995. Hún hélt fyrstu einkasýningu á KaffiGest árið 1986 í tilefni af 200 ára af- mæli Reykjavíkur en þetta er fyrsta einkasýning Ingibjargar utan Reykjavíkur. Hún sýnir nú hefð- bundin olíuportrett. Ingibjörg mun mála portrett-myndir i Húsinu eftir pöntun. Hvar eru hetjurnar? (jCxi ef hann er of kaldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.