Morgunblaðið - 26.03.1997, Side 27

Morgunblaðið - 26.03.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 27 „Fríkortið“ - draumur eða veruleiki? MIKLAR umræður hafa að undanförnu verið um „fríkortið" sem fimm fyrirtæki hafa sett á markað. Neytendasamtökin hafa gagnrýnt kortið og markaðssetningu þess, en erfitt er að koma öllu fram í stuttum fréttaskeyt- um. Neytendasam- tökin geta heldur ekki keypt sér auglýsing- asíður til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri eins og fyr- irtækin gera. Því mun ég hér á eftir skýra sjónarmið Neytendasamtakanna og hvað það er sem við teljum helst vera athugavert eða gagnrýnivert við kortið og markaðsfærslu þess. „Tryggðarkerfi“ (loyalitetspro- gram) eins og hér um ræðir eru þekkt bæði hér á landi og erlend- is. Þau eru þó í flestum tilvikum þannig að þau eru útgefin af einni verslun/verslunarsamsteypu og Það er andstætt samkeppnislögum, segir Jóhannes Gunnars- son, og því telja Neytendasamtökin að samkeppnisyfirvöld eigi að grípa inn í. eingöngu nothæf þar. í staðinn hafa neytendur fengið bónus af viðskiptum sínum í formi afsláttar hjá viðkomandi seljanda eða eins og algengara er, neytendur hafa fengið afsláttinn sendan heim í formi peninga. Samkeppnissj ónarmið Það er ljóst að tilgangurinn hjá fyrirtækjum með „tryggðarkort- um“ er að styrkja stöðu sína hvað varðar eftirspurnina með meira valdi á markaðnum. Til að svo megi verða þurfa neytendur að gefa eftir af því valdi sem þeir hafa. Á fijálsum markaði, þar . sem bæði framboð og eftirspurn gegna mikilvægu hlutverki, á „tryggð“ ekki heima. Á fijálsum markaði verður viðskiptavinurinn að leita sér upplýsinga um mark- aðinn og ákvarða kaup sín miðað við þær upplýsingar. Álmennt má því segja að „tryggðarkort" dragi úr samkeppni. Rökin eru ekki síst þau að reynt er að fá neytendur til að taka mið af „punktum" í innkaupum sínum, í stað þess að hafa til hliðsjónar verð vörunnar eða þjónustunnar. Einnig draga slík kort úr verðskyni almennings þar sem afslættir eru gerðir að meginmáli en verðið er aukaatr- iði. Markaðurinn hér á landi er lítill og því hafa aðgerðir ein- stakra fyrirtækja hér miklu meiri þýðingu en á stærri mörkuðum erlendis. í því tilviki sem hér um ræðir taka sig saman fimm mjög sterk fyrirtæki, þar af eitt á einokunarmarkaði allavega að hluta, 2-3 á fákeppnismarkaði og aðeins eitt á virkum samkeppnis- markaði. Þessi fyrirtæki leitast við að beina viðskiptum hvert til annars. íslenskur markaður í allri smæð sinni stendur hreinlega ekki undir aðgerðum þessum samkeppnislega séð. Hér er ein- faldlega verið að draga úr mögu- leikum fyrirtækja sem eru í beinni samkeppni við fyrirtækin fimm og einnig mun þetta hindra ný fyrirtæki til að koma inn á þessa markaði. Það er and- stætt samkeppnislög- um og því telja Neyt- endasamtökin nauð- synlegt að samkeppn- isyfirvöld grípi hér tafarlaust inn í. Markaðssetning Markaðssetning „fríkortsins“ hefur að mörgu verið aðf- innsluverð. í auglýs- ingum hefur verið lögð mikil áhersla á að neytendur geti áunnið sér næga punkta til ferðalaga á tiltölulega skömmum tíma. Nánar verður vikið að þessu síðar í þessari grein. En það er fleira í markaðssetningu kortsins sem Neytendasamtökin gera athuga- semd við. Þar má nefna bréf og bækling sem borinn var út til allra landsmanna 18 ára og eldri með kortinu. í bæklingnum er lögð mikil áhersla á orðið „frítt“. Þannig segir á forsíðu: Vilt þú fljúga „frítt“, þú getur farið „frítt“ út að borða og farið „frítt" í leikhús. „Má bjóða þér“ stendur feitum stöfum og venjulega er það svo að þegar boðið er þá borgar sá sem býður. Markaðs- færsla af þessu tagi er óheimil. Það er einfaldlega ekki heimilt samkvæmt lögum að auglýsa að eitthvað sé „frítt", þegar neyt- andinn þarf að kaupa aðra vöru eða þjónustu til að fá viðkomandi hlut „frían“. í auglýsingu sem íslandsbanki birti í Morgunblaðinu 19. mars sl. segir m.a. að „í hvert sinn sem greitt er með debet- eða kredit- kortum frá íslandsbanka safnast punktar inn á Fríkortsreikning- inn“. Þetta er einfaldlega rangt þar sem það gerir það ekki í öll- um tilvikum, t.d. þegar greitt er í banka. Óþarft er að taka fram að í lögum segir að óheimilt sé að veita rangar upplýsingar. Samningsskilmálar í gegnum tíðina hafa Neytenda- samtökin séð ástæðu til að gera athugasemdir við fjölmarga staðl- aða samningsskilmála. Yfirleitt er fallist á sjónarmið Neytendasam- takanna. Skilmálar „fríkortsins" eru með þeim verri sem við höfum séð, því þeir eru óvenju einhliða. Versta dæmið er að á einum stað segir að leggja megi kortið hvenær sem er niður og „að fella niður alla áunna punkta korthafa“. Þó segir á öðrum stað að korthafar fái punktana eignfærða á sinn reikning. Fulltrúar þessara fyrir- tækja víla það ekki fyrir sér að heimila sjálfum sér eignaupptöku. Einnig segir að breyta megi skil- málunum án fyrii-vara og án þess að tilkynna korthöfum það sér- staklega. Þessi ákvæði bijóta tví- mælalaust gegn samningalögum. Neytendasamtökunum er kunnugt að samkeppnisyfirvöld eru með skilmálana í skoðun og bíða niður- stöðu þaðan. Punktasöfnun í auglýsingum er lögð mikil áhersla á að þú safnir punktum á skömmum tíma og að meðalfjöl- skyldan geti sent. einn fjölskyldu- meðlim til Parísar að vetri til eft- ir 15 mánuði, en í ferð til Parísar þarf fæsta punkta. Nú má alltaf deila um forsendur og Neytenda- samtökin hafa gert sína útreikn- inga og fengið aðrar niðurstöður eins og i'aunat’ ýmsir fjölmiðlar. En þetta reiknar hver út fyrir sig og kemst að raun um það sanna hvað sig viðvíkui'. Minna má þó á að í Morgunblaðinu 20. mars sl. segir Tryggvi Eiríksson, við- skiptafræðingur hjá Þjóðhags- stofnun, að fjölskylda þurfi að hafa tæplega 360.000 kr. í mán- aðartekjur til að uppfylla kröfur „fríkortsins" til Parísar. Þetta er miðað við að hún beini öllum við- skiptum sínum til þessara fimm aðila. Ljóst er að mörg láglauna- fjölskyldan getur ekki nýtt sér gylliboðin og með fjögurra ára fyrningarreglu er það enn betur tryggt. Hún borgar þó fyrir brús- ann svo fremi sem hún skiptir við fyrirtækin fimm. Punktarnir í þessu kerfi virðast einnig gefa minna til viðskipta- vina en t.d. tíðkast í sambærileg- um kerfum í Noregi. Þar er ávinn- ingur neytenda 1-3%. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Neytenda- samtökin hafa fengið frá fyrir- tækjunum sem að fríkortinu standa gefur þetta hér 0,5-3%. í fjölmiðlum hafa komið fram full- yrðingar um að þessi tala sé í raun lægri eða allt niður í 0,38% og er það vegna þess að þegar punktum er breytt í farmiða þá er miðað við flugferð á fullu far- gjaldi en ekki á Apexmiða. Skráning upplýsinga Með því að nota kort í viðskipt- um skiljum við eftir okkur elektr- ónísk spor. Starfsemi „fríkorts- ins“ hefur starfsleyfi tölvunefnd- ar sem á að gæta hagsmuna al- mennings. Og forráðamenn „frí- kortsins“ hafa sagt Neytenda- samtökunum að þeir munu ekki nýta sér upplýsingar til að taka upp það sem kalla mætti „grimma" markaðsstarfsemi. Það er hins vegar ljóst að starfsemi af þessu tagi skapar aukna mögu- leika til að fylgjast með viðskipta- venjum fastra viðskiptavina og beina markaðssókninni meira að hverjum einstökum. Ekki er úr vegi í lokin að segja sögu frá Bandaríkjunum um konu sem hætti að kaupa dömubindi í versl- uninni sinni og níu mánuðum síð- ar fékk hún senda auglýsingu um helgartilboð verslunarinnar á blei- um. Þetta má einnig segja með eftirfarandi sögu: „Hugsaðu þér að ókunnug manneskja hafi lykil að húsinu þínu. Viðkomandi er bæði traustur og áreiðanlegur. Það eina sem hann gerir er að fara inn þegar þú ert ekki heima. Hann kíkir í undirfataskúffuna, í skartgripakassann og í mat- arskápinn, en gerir aldrei neitt og segir engum hvað hann hefur séð. Myndi þér líka það?“ Eða munu neytendur kannski í fram- tíðinni leita í vaxandi raæli til verslana sem auglýsa á eftirtalinn hátt: „Komið til okkai', við skráum ekki niður upplýsingar, þú færð ekki punkta, en verðið hjá okkur et' lægra.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. ^íemantaMmið Fermingagjafir, glæsilegt úrval DEMANTAHÚSIÐ Nýju Kringlunni, sími 588 9944 Jóhannes Gunnarsson Signr eldri borgara Ágúst Einarsson ELDRI borgarar hafa undanfarna mánuði barist fyrir hagsmunum sínum. Þeir hafa m.a. krafist þess að ellilífeyrir og bætur úr almanna- tryggingakerfinu miðist við launabreyt- ingar eins og var lög- bundið hér á árum áður. Það eru um 65.000 manns yfir 50 ára hérlendis og 27.000 yfir 67 ára. Þetta fólk man tímana tvenna og hefur byggt upp þau lífskjör sem við búum nú við. Það er samfélagsleg skylda stjórnmálamanna að veita öldruð- um öryggi og gott viðurværi í ellinni. Það er skammarlegt að það skuli vera ástæða fyrir aldr- aða að fyllast réttmætri gremju gagnvart stjórnvöldum. Þessi hópur á ekki margra kosta völ við að þrýsta á stjórn- völd til að leiðrétta kjör sín. Þetta fólk hefur skilað því margföldu til þjóðfélagsins sem rennur til þeirra á síðari hluta ævi þeirra. Baráttan á Alþingi Ríkisstjórnin afnam tengingu ellilífeyris og bóta úr almanna- tryggingakerfinu við launabreyt- ingar haustið 1995 þrátt fyrir hörð mótmæli stjórnarandstöð- unnar. í desember 1996 var aftur tekist á um þessi mál á Alþingi. Þá bar ríkisstjórnin fram tillögu um að ellilífeyrir og bætur úr al- mannatryggingakerfinu myndu aðeins hækka um 2% í ár. Þetta hefði þýtt mikla kjaraskerðingu hjá eldra fólki árið 1997. Stjórnarandstaðan mótmælti enn og undir forystu jafnaðar- manna var lögð fram tillaga á þingi um að tekin yrði aftur upp tenging við væntanlegar launa- breytingar. Stjórnarmeirihlutinn felldi þá tillögu, m.a. með atkvæð- um Davíðs Oddssonar, Friðriks Sophussonar og Ingibjargar Pálmadóttur, hinn 20. des. 1996. Baráttunni var haldið áfram á Alþingi og Félag eldri borgara og aðgerðahópur aldraðra hófu her- ferð í fjölmiðlum. Nú fór ríkis- stjórnin að gefa eftir. Ingibjörg heilbrigðisráðherra lýsti á fundi með eldri borgurum 21. feb. sl. á Hótel Borg að hún væri hlynnt því að ellilífeyrir væri tengdur launabreytingum, sama Ingibjörg og hafði greitt atkvæði gegn slíkri tillögu tveimur mánuðum áður. Hinn 27. febrúar sl. var utan- dagskrárumræða á Alþingi að frumkvæði jafnaðarmanna um þessi mál, en þá neitaði Friðrik Sophusson enn einu sinni að taka aftur upp tengingu við laun, en opnaði á tengingu við almennar verðlagsbreytingar. Sigur vannst að lokum Þegar skattapakki ríkis- stjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana var kynntur gafst stjórn- in loksins upp og lýsti því yfir að ellilífeyrir og bætur úr almanna- tryggingakerfinu fyr- ir árið 1997 yrðu hækkaðar til sam- ræmis við þær launa- breytingar sem semst um í yfirstandandi kjarasamningum. Þetta sýnir að það er hægt að breyta ákvörðun stjórnvalda með þrotlausri bar- áttu innan þings og utan. Ríkisstjórnin sá að vísu ekki sanngirnina og rétt- lætið heldur varð hún hrædd við andstöðu hjá eldra fólki í flokkum sínum. Eldra fólk var lítilsvirt af ríkisstjórninni og hún óttaðist að það kæmi niður á stjórnarflokk- unum í kosningum. Stórhugur þeirra var ekki meiri en það. Þeir ætla ekki að lögfesta þessa tengingu, en í ár verður þetta í Ríkisstjórnin, segir Agúst Einarsson, ber ekki fyrir brjósti hag þeirra sem minna mega sín. lagi. Sama barátta mun þvi byija aftur í haust því að ríkisstjórnin hefur ekki breytt um stefnu held- ur aðeins hörfað á einu sviði. Það hefur skýrt komið fram að ríkisstjórnin ber ekki fyrir bijósti hag þeirra sem minna mega sín. Þannig er staða aldr- aðra, öryrkja og sjúkra lakari nú en þegar stjórnin tók við. Eldri borgarar voru með ýmsar aðrar óskir, sem ekki var orðið við, eins og að fá að koma að vinnu um' endursl oðun skatta- laga, minnkun tekjutengingar í almannatryggingakerfinu og end- urbætur á fyrirkomulagi heimilis- uppbóta. Það er hægt að læra af þessu. Það er hægt að ná fram sann- gjörnum kröfum ef fólk berst sjálft fyrir hagsmunum sínum eins og eldri borgarar gerðu í þessu máli. Höfundur er alþingismaður í Þingflokki jafnaðarmanna. Vantar þig VIN að tala við? VINALÍNAN 561 6464 • 800 6464 öll kvöld 20 - 23 Elizabeth Arden Kynning íTop Class, Laugarvegi 45, í dag, miðvikudaginn 26. mars. Snyrtifræðingur veitir ráðgjöf 15% kynningarafsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.