Morgunblaðið - 26.03.1997, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Það kemur að
skuldadögum
Frá Karli Ormssyni:
í FYRRI greinum mínum hef ég
fjallað lítilega um þær álögur
sem R-listagrúppan hefur lagt á
okkur síðan vorið 1994. Nú lang-
ar mig til að minnast lítilega á
þau loforð sem hann gaf kjósend-
um fyrir kosningar og hvað hefur
verið efnt af þeim. Þann 14. maí
1994 lofaði þessi grúppa á fundi
á opnum fundi á Hótel Holiday
Inn að láta byggja yfirbyggðan
íþróttakeppnisvöll fyrir alþjóð-
legar íþróttir. Hvar er þessi völl-
ur? Þau lofuðu yfirbyggðri sund-
laug fyrir alþjóðlega keppni.Hvar
er hún? Þau lofuðu að koma á
hverfastjórnum með sérstöku
sambandi við kjósendur og köll-
uðu þetta hverfalýðræði, hvar
eru þessar hverfamiðstöðvar? Á
þessum sama fundi upplýsti full-
trúi Framsóknarflokksins að
Framsóknarflokkurinn væri ekki
í framboði. Hvað segja framsókn-
armenn um það? Ég skora á
framsóknarmenn í Reykjavík að
vera ekki að styðja svokallað
R-listafólk að ári. Lofað var að
byggja yfir gervigrasvöllinn_ í
Laugardal, er búið að því? Ég
skal sleppa í bili að segja meir
af þessum fundi en það úir og
grúir af svikum og óuppfylltum
loforðum R-listans frá 1994. Það
er mjög mikill barnaskapur hjá
borgarstjóra þegar hann heldur
að hægt sé að afgreiða öll skrif
og ummæli minnihlutans, og þar
með orð oddamanns sjálfstæðis-
manna Árna Sigfússonar, með
því að þau fari með pólitísku of-
stæki að R-listafólkinu. Sann-
leikurinn er sá að Árni Sigfússon
er kurteis, hann segir sannleik-
ann og ekkert annað. R- listagr-
úppan lifir í þeirri blekkingu að
fólk sé ekki með á nótunum, það
hafi engan áhuga á pólitík en
annað á eftir að koma í ljós. í
Morgunblaðinu þann 8. mars
sýnir prófessor Gísli Jónsson
hvernig R-listinn fer að því að
halda útsvarinu niðri, þó er það
í öðru sæti á eftir Seltjarnar-
nesi. Það er aðeins ár eftir af
kjörtímabilinu og hræddur er ég
um að ekki verði gerð mikil afrek
fram að kosningum. Nú þegar
er gengið frá síðustu fjárlögum
í borginni (yfir heilt ár) og bera
þau ekki vott um sérstakan stór-
hug, mér er alveg sama hvort
það er vatnsskattur eða holræsa-
gjald sem hækkað hefur, eru það
álögur á skattborgarana,.það var
ekki það sem R-listaflokkarnir
lofuðu 14. maí 1994.
KARL ORMSSON,
deildarfulltrúi,
Huldulandi 5,
Reykjavík.
Gömul saga, sem gott
er að hafa í huga á
okkar dögum
Frá Úifi Ragnarssyni:
ÞAÐ var fyrir 2.000 árum, að
eftirfarandi saga var sögð:
Maður nokkur ríkur átti land,
er hafði borið mikinn ávöxt.
Hann hugsaði með sér: „Hvað á
ég nú að gjöra? Nú get ég hvergi
komið fyrir afurðum mínum.“
Og hann sagði: „Þetta gjöri ég:
ég ríf hlöður mínar og byggi
aðrar stærri, og þangað safna
ég öllu korni mínu og auðæfum.
Og ég segi við sálu mína: Sála
mín, nú átt þú mikinn auð til
margra ára, hvíl þig nú, et og
drekk og ver glöð.“ En Guð sagði
við hann: „Heimskingi, á þessari
nóttu verður sál þín af þér heimt-
uð; og hver fær þá það, sem þú
hefur aflað?“ Svo fer þeim er
safnar sér fé, en er ekki ríkur
hjá Guði.“
Nú vill svo til að þessa dagana
fermast mörg ungmenni. Inntak
þeirrar athafnar er einmitt að
játast undir ævilanga leiðsögn
hans, sem sagði þessa sögu. Og
sem betur fer leiða kannanir í
ljós, að mjög mikill meirihluti
þessa unga fólks vill gera hann
að leiðtoga lífs síns í fullri alvöru.
Vitanlega vonar allt heiðvirt
fólk og foreldrar ekki síst, að
þessu fólki auðnist að standa við
trúnað sinn og tryggð við hann,
sem kom fullur náðar og kær-
leika, og var sjálft Orðið holdi
klætt. Einnig vonar hið sama
fólk, að þeir sem setjast við
samningsborð til að semja um
kjör landsmanna, standi við heit-
in sem þeir gáfu, þegar þeir voru
fermdir.
Já, hvað um þá er setjast við
samningaborðið, sýna þeir
tryggð við Orðið?
ÚLFUR RAGNARSSON
læknir.
Allt efni sem birtist ( Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.