Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hjartans bestu þakkir til barnanna minna, tengdabarna og
„stelpnanna minna“ fyrir framlag og hjálp, sem þau veittu mér
hinn 22.febrúar si, á 90 ára afmœlinu mínu. Einnig hjartans
þakkir til forstöðukonu og starfsfólks Lönguhlíðar 3.
Hjartans bestu þakkir til ykkar allra sem heiðruðu mig þennan
dag, með heimsóknum, gjöfum, bréfum og heillaóskaskeytum og
gerðu mérþennan dag ógleymanlegan.
Guð og gœfan sé með ykkur.
Dóróthea Fr. Ólafsdóttir,
Lönguhtíð 3, Rvík.
Kynning í Hafnarfjarðarapóteki
í dag kl. 14-18
Skemmtileg sumartaska með þremur lúxusprufum
fylgir kaupum á nýja kreminu Lift Activ eða
ef keypt er fyrir kr. 2000 eða meira *
VICHYI
uioutemi
HEILSULIND HÚOARINNAft
f .v'vl t'int’óufju i .vpótekiim
Léttir
meöfærilegir
viöhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi.
A undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Góó varahlutaþjónusta.
cD Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla
29, simi 38640
FYRIRLIGGJINDI: GÖLFSLlPIVfLIR - RIPPER WÖPPUR - DJELUR
- STEYPUSAGIR - HRJERIVELAR - SAGARDLÖÐ - Villll franlellsla.
ÍDAG
SKAK
Umsjðn Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
mótinu í Cannes í Frakk-
landi í mars. Fyrrverandi
heimsmeistari kvenna, kín-
verska stúlkan Xie Jun
(2.515), hafði hvítt og átti
leik, en Króatinn V. Bukal
(2.395) hafði svart og lék
síðast 28. - Dc7-c3?
sem leiddi beinustu leið
til taps:
29. Hacl! og svartur
gafst upp. Þar sem
hann má ekki drepa
hvítu drottninguna og
verður mát eftir 29. -
Dxd2? 30. Hc8, þá fell-
ur hans eigin drottn-
ing.
Xie Jun sigraði í
Cannes ásamt þeim
Godena, Italíu, Ser-
mek, Slóveníu og
Spraggett, Frakklandi.
Þau hlutu öll 672 v.
af 9 mögulegum. ítalinn var
úrskurðaður sigurvegari á
stigum.
og vinnur.
COSPER
ÞAÐ er nú gott fyrir fjármál heimilisins að búðir skuli
ekki vera opnar lengur á daginn.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Ábending til
leiðsögnmanna
EGILL hringdi og vildi
hann koma því á
framfæri að hann hefur
heyrt það frá erlendu
fólki sem ferðast á
Islandi að það telur að
leiðsögumenn tali of
mikið, það sé eins og
þeir fái greitt fyrir hvert
talað orð á mínútu. Þeir
gefi sér ekki tíma til að
svara spumingum. Þeir
hangi alltof mikið í
sagnfræðinni, í for-
tíðinni, en ekki í nú-
tímanum. Hann vildi
koma þessari ábendingu
til leiðsögumanna.
Tapað/fundið
Barnasæng fannst
BARNASÆNG, með
handmáluðu munstri, í
plastpoka fannst sunnu-
daginn 23. mars hjá
brúnni milli Breiðholts
og Árbæjar. Uppl. í síma
551-0838.
GSM-sími fannst
GSM-sími fannst á laug-
ardagskvöld, 22. mars, í
Unufelli. Uppl. í síma
587-5363.
Gleraugu fundust
BRÚN, sporöskjulöguð
gleraugu fundust á Bar-.
ónsstíg föstudaginn 21.
mars. Uppl. í síma
551-3584.
Pennavinir
ÞÝSK 39 ára kona sem
safnar frímerkjum, sím-
kortum og hefur áhuga á
ferðalögum, gæludýrum
o.fl.:
Elke Harz,
Kiebitzweg 32,
28844 Weyhe,
Germany.
FIMMTÁN ára bandarísk
stúlka með margvísleg
áhugamál:
Amanda Pluff,
361 Dwight,
Trenton,
Michigan 48183,
USA.
PORTÚGALSKUR sím-
korta- og frímerkjasafn-
ari, sem safnar einungis
merkjum evrópska póst-
sambandsins:
Antonio Gomes
Fernandes,
Rua do Campo
Lindo, 267-1,
4200 Porto,
Portugal.
ÁTJÁN ára austurrískur
meimtaskólanemi með ís-
landsáhuga:
Marc Diensthuber,
Siebenhauserstrasse 3,
A-2544 Leobersdorf,
Austurríki.
SPÆNSK hjón, 25 og 32
ára, langar að eignast ís-
lenska pennavini. Áhuga-
málin sund, bókmenntir,
tónlist, ferðalög o.fl.:
Hana and Felix,
Apartado de Correos
1454,
Palma 07080,
Mallorca.
TUTTUGU og eins árs
argentínskur piltur með
áhuga á ferðalögum, frí-
merkjum, póstkortum,
bréfskriftum, tónlist og
íþróttum:
Sebastian C. Salvati
erra,
Av.Saenz 717, 3A,
1437 Buenos Aires,
Argentina.
TÓLF ára bandarísk stúlka
með margvísleg áhugamál
vill skrifast á við jafnaldra
og jafnöldrur:
Deanna Loyd,
816 Airdustrial Way
SE,
Tumwater,
WA 98501,
USA.
ÞRÍTUG bandarísk
blökkukona sem reykir
hvorki né drekkur vill
skrifast á við karlmenn:
Karla Kincade,
1327 Lincoln Ave.
505,
San Rafael,
California,
94901-2152 USA.
Víkveqi skrifar...
JÓLABOÐI japanska sendiherr-
ans í Líma í Perú var enn
ekki lokið, þegar þetta var skrifað
í gær, en inn í það ruddust
hermdarverkamenn, sem síðan
hafa haldið rúmlega 70 gestum í
gíslingu þar innan dyra í þrjá
mánuði. Nú standa vonir til að
unnt verði að Ijúka jólaboðinu og
hermdarverkamennirnir fljúgi
áleiðis til Kúbu.
Það hlýtur að hafa verið algjör
martröð fyrir fólkið, sem prúðbúið
mætti í jólaboðið og hefur ekki
komizt heim til sín í þijá mánuði.
Getuleysi yfirvalda til þess að semja
um lausn gíslanna hefur verið al-
gjört, en nú virðist svo sem mar-
tröð jólaboðsgestanna geti loks
verið á enda. Betur ef satt væri.
Þetta mun vera ein lengsta fjölda-
gíslataka á síðari árum.
xxx
STRAX eftir páska eða hinn 1.
apríl, geta silungsveiðimenn
farið að renna fyrir silung í ám og
vötnum, því að þá er fyrsti dagur-
inn, sem leyfilegt er að veiða sil-
unga á árinu.
Areiðanlegt er að þeir sem mest-
an hafa áhugann fara nú að huga
að veiðiáhöldum sínum um pásk-
ana, smyija hjólin og lagfæra
stengurnar. Að baki er skemmtileg-
ur tími fluguhnýtinga, þar sem
margur maðurinn er áreiðanlega
búinn að margsegja hverja veiði-
söguna af annarri. Enn mega þó
laxveiðimennirnir bíða og sjálfsagt
halda þeir áfram að hnýta og segja
hver öðrum sögur. En eitt er víst
að nú fer væntanlega að vora og
nátturan að vakna af vetrardvala.
xxx
INGMENN Reykjaneskjör-
dæmis hafa lagt fram á Al-
þingi þingsályktunartillögu um tvö-
földun Reykjanesbrautar frá Hafn-
arfirði og suður að Leifsstöð. Þetta
er löngu tímabær tillaga og er það
í raun furðulegt, að ekki skuli hafa
verið lögð önnur akbraut með
gamla veginum, sem er frá sjöunda
áratugnum, svo mikið öryggisatriði
sem það er að skipta umferðinni
norður og suður á tvær akbrautir.
Með tillögu þingmannanna
fylgja töflur, sem sýna að mesta
umferð á sólarhring er hátt á átt-
unda þúsund bíla á dag. Núverandi
vegur er það góður, að flestir aka
á hámarkshraða, sem þýðir að
skelli bílar framan á hvor annan
er eins og ekið sé á 180 km hraða
á steinvegg. Hámarkshraðinn er
90 km á klukkustund, sem er um
það bil tveimur kílómetrum hraðari
akstur en leyfður er sem hámarks-
hraði í flestum ríkjum Bandaríkj-
anna. Þar aftur á móti mætir veg-
farandi aldrei bíl á sömu akbraut,
því að tvær eru við lýði fyrir um-
ferð hvor í sína áttina. Nándin við
bílana, sem koma á móti, á núver-
andi Reykjanesbraut er allt of mik-
il.
Af þessum sökum er það bráð-
nauðsynlegt að Reykjanesbrautin
verði tvöfölduð. Hagkvæmni þess
fyrir þjóðarbúið hlýtur að vera svo
mikil að ekki sé áhorfsmál að leggja
nú þegar í þessa framkvæmd.