Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjörn Jensson himinlifandi með árangurinn
„Eg er stoltur
af strákunum“
Rússar og Svíar í úrslit
RÚSSAR mæta Svíum í úrslitaleik HM í dag, unnu Frakka í fram-
lengdum spennuleik í gær, 25:24. Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 21:21, en þájöfnuðu Frakkar er tíu sek. voru til leiksloka, eftir
að Rússar voru yfir 21:19. Frakkar voru yfir í framlengingu 24:23,
Rússar jöfnuðu, Lavrov varði frá Frökkum þegar 40 sek. voru eftir
og Pogorolov skoraði sigurmarkið er tíu sek. voru eftir; 25:24. Svíar
sigruðu Ungveija í hinum undanúrslitaleiknum 31:19. Úrslitaleikur-
inn verður sýndur beint í Sjónvarpinu. Hann hefst kl. 7 árdegis.
Spánveijar urðu í sjöunda sæti á HM. Þeir sigruðu Suður-Kóreu-
búa 33:26 í gær. Talant Dujshebaev og Esquer voru markahæstir
Spánveija með 6 og Garralda og Peres gerðu 5 hvor. Markakóngur-
inn, Kyung-shin Yoon, gerði 9 mörk og Choi 5 fyrir Suður-Kóreu.
„ÞEGAR viljinn er fyrir hendi
getur allt gengið upp. Strák-
arnir voru ákveðnir að ná
fimmta sætinu og með bar-
áttu og dugnaði tókst þeim
það. Ég er stoltur af þeim -
það er mikill heiður fyrir mig
að fá að þjálfa þá,“ sagði
Þorbjörn Jensson landsliðs-
þjálfari sem var skælbros-
andi eftir leikinn gegn Egypt-
um.
Þóroddur
Bjamason
skrifar frá
Kumamoto
Eg er mjög ánægður með leik
liðsins í keppninni. Við höfum
einungis tapað einum leik, gert
eitt jafntefli en unnið alla aðra
leiki,“ sagði Þor-
björn. Hann sagðist
hafa vitað að
egypska liðið væri
sterkt. „Við byijuð-
um illa og þurftum tíma til að
komast inn í leikinn. Þetta var sig-
ur liðsheildarinnar," sagði Þor-
björn, sem sagði að pressuvörn
Egypta, sem þeir byijuðu að leika
í seinni hálfleik hefði ekki verið
vandamál - „þeir náðu ekki að slá
okkur út af laginu. Við erum komn-
ir með reynslu í að leika gegn
þannig vörn, lékum tvo leiki gegn
Egyptum heima fyrr á árinu.“
Þorbjöm sagði að keppnin hér
í Kumamoto væri búin að vera
stríð. „Það tekur á að leika níu
landsleiki á aðeins fjórtán dögum.
Það er komin þreyta í mína menn
- ég efast um að við hefðum get-
að leikið einn leik til viðbótar,"
sagði Þorbjöm og brosti.
Spánveijinn Javier Garcia Cu-
esta, þjálfari Egyptalands, var
daufur í dálkinn. „Við gerðum
mörg mistök í seinni hálfleiknum
og misstum stjóm á leiknum. ís-
lenska liðið var einfaldlega sterk-
ara í þessum leik.“
Morgunblaðið/Einar Falur
ÍSLENSKI landsliðshópurinn fagnar með tilþrlfum í Park-Dome höllinnl í Kumamoto eftlr öruggan og glæsilegan sigur á Egyptum.
Valdimar í heimsliðið
VALDIMAR Grímsson handknáttleiksmaður hefur verið valinn í heims-
liðið í handknattleik sem mætir danska landsliðinu í tilefni 50 ára afmæl-
is danska handknattleikssambandsins í Kaupmannahöfn 4. ágúst. Það
var þjálfaranefnd Alþjóða handknattleikssambandsins sem valdi heimsl-
iðið. Valdimar Grímsson hefur einu sinni áður verið valinn í heimsliðið.
Þá er vert að geta þess að Ólafur Stefánsson er í hópi góðra manna
á lista yfír þá sem hafa átt flestar stoðsendingar á móti. Þrír eru með
afgerandi forystu á þessu sviði; Ólafur er í þriðja sæti, með 41 send-
ingu sem gefið hefur mark og efstir og jafnir á listanum eru Svíinn
Staffan „Faxi“ Olsson og spænski snillingurinn Talant Dujshebaev með
42 stoðsendingar.
Atli ræddi
við leikmenn
ATLI Hilmarsson, þjálfari KA,
ræddi við ungverska leikmanninn
Zsigmond, sem leikur með Fotex
Veszprem, í gærmorgun og einnig
við Kóreumanninn Beumayun Cho,
sem leikur með japanska liðinu
Nakamura Niyaki. „Við munum
ræða við þá eftir að ég kem heim,“
sagði Atli,
Morgunblaðið/Einar Falur
PATREKUR Jóhannesson, sem hér hefur brotist I gegnum
varnarmúr Egypta, var frábær í leiknum og gerði níu mörk.
FRJALSIÞROTTIR
byijun
Jóns Amars
Jón Amar Magnússon, tugþraut-
armaður úr Tindastóli, setti
íslandsmet í 100 m hlaupi í fyrstu
grein tugþrautarmótsins í Götzis í
Austurríki í gærmorgun. Jón hljóp
á 10,56 sek. og bætti fyrra íslands-
met um 1/100 úr sekúndu. Það
var í eigu Vilmundar Vilhjálmsson-
ar, KR, frá árinu 1977 ogÁrmenn-
ingsins Einars Einarssonar í Ósló
1991.
Besti tími Jóns til þessa í 100
m hlaupi í tugþraut var 10,65 sek.
frá því Evrópubikarkeppninni í
tugþraut í Reykjavík sumarið
1995. Jón varð annar í hlaupinu,
en Erki Nool, Eistlandi, var fyrstur
á 10,50 sek. Fyrir þess grein fékk
Jón 961 stig.
í annarri grein, langstökki, varð
Jón í þriðja sæti, stökk 7,66 m og
fékk að launum 975 stig. Jón hef-
ur aðeins einu sinni stokkið lengra
í langstökki í tugþraut en það var
í Talence í september 1995, 7,67
m. Hann varð í þriðja sæti í grein-
inni, en Nool stökk lengst, 7,90 m
og Thomas Dvorak, Tékklandi,
7,76 m. Að lokinni tveimur grein-
um var Jón í þriðja sæti með 1.936
stig, Dvorak var annar, hafði feng-
ið 1.945 stig og Nool fyrstur með
2.10 stig.
Kúluvarpið var þriðja grein og
þar kastaði Jón lengst 15,31 sem
gefur 803 stig. Best á hann 15,88
m í tuþgraut frá því Talence sl.
haust. Eftir þijár greinar var Jón
í fjórða sæti með 2.745 stig, Edu-
ard Hámlálnen frá Finnlandi var
með einu stigi fleira í 3. sæti.
Dvorak var í 1. sæti með 2.789
stig og Nool annar með 2.777 stig.
Þetta er besta byijun Jóns í tug-
þraut; en þess má geta að er hann
setti Islandsmetið í Atlanta í fyrra
var hann kominn með 2.648 stig
eftir þijár greinar.
Bergsveinn
meiddist
BERGSVEINN Bergsveinsson,
markvörður, meiddist í upphitun
og gat ekki ieikið gegn Egypt-
um. „Égtognaði á nára,“ sagði
Bergsveinn. Þegar ljóst var að
Bergsteinn gæti ekki leikið, fóru
menn að leita að Reyni Þór
Reynissyni út um allt, innan og
utanhúss. Þá var nafn hans kall-
að upp í hátalarakerfi Dome
Park-hallarinnar - hann beðinn
að koma strax að bekk íslend-
inga. Reynir Þór fannst i sólbaði
á grasfleti fyrir utan höllina.
„Maður fékk ekki frið til að sóla
sig,“ sagði Reynir Þór eftir leik-
inn, en hann var eini leikmaður-
inn sem hafði ekki leikið á HM.
Svíar neituðu
að leika íTókýó
FYRIR undanúrslitaleikina í
gær var ljóst að Svíar myndu
ekki taka þátt í fjögurra þjóða
móti, sem fer fram í Tókýó um
næstu helgi. Þijár efstu þjóðim-
ar á HM, ásamt gestgjöfum,
taka þátt í mótinu. Það var til-
kynnt í gærmorgun, að Ungveij-
ar, Rússar og Frakkar myndu
taka þátt í mótinu, ásamt landsl-
iði Japans. „Ég hefði verið tilbú-
inn að keppa í Tókýó,“ sagði
Patrekur Jóhannesson.
Rögnvaldur og
Stefán farnir
RÖGNVALD Erlingsson og
Stefán Arnaldsson stóðu sig frá-
bærlega þegar þeir dæmdu und-
anúrslitaleik Svía og Ungveija
í gær og fengu góða dóma. Svíar
unnu leikinn örugglega 31:19,
eftir að hafa komist í 21:9.
Rögnvald og Stefán luku þar
með verkefni sínu á HM og
héldu heim til íslands í nótt.