Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 33 ARNIBALDUR BALD VINSSON þess að ekki verður auðveldlega komið auga á hið rökrétta sam- hengi. Einhver, mjög svo tilvilj- unarkennd, hugmynd varð til þess að árátta mín til rannsókna dró mig til Fjallanna, í þann mund er störfum mínum í þágu þess opin- bera var að ljúka. Það tel ég að verið hafi mín heillaspor því þau leiddu mig, hátt í áratug, um dýrðlega fjallasali ofar byggðum og þau leiddu mig heim að Þorvaldseyri. Mér er í minni þegar ég fyrst hitti Eggert einn sólfagran sumardag. Það var áliðið dags og ég líklega orðinn nokkuð göngumóður. Eggert tók mér með þeirri látlausu alúð, sem honum var svo eiginleg. Mér var boðið í bæinn, veitingar fram born- ar og úr varð gisting. Þær urðu með árunum fleiri og úr varð per- sónuleg vinátta, sem entist til hinstu stundar þessa frábæra manns. Slík vinátta er auður, sem ekk- ert grandar og gott er að una við þótt leiðir skilji. Það sem ég fann og dáði í fari Eggerts var hans skýra, rökfasta hugsun, hans virð- ing fyrir náttúrunni, mikilleik hennar og fegurð í stóru og smáu, trú hans á landið og möguleika þess að gefa arð og skapa gleði við störf. Hann þekkti landið og hafði næman skilning á möguleik- um þess og honum auðnaðist í verki að geta sýnt frammá hvað það getur gefið sé rétt að staðið. Hann gerðist forgöngumaður um enduruppvakningu kornræktar á íslandi af því að hann þekkti sitt land og skildi möguleika þess. Eggert var maður gróandans og framfara, traustur eins og núp- urinn mikli, sem gnæfir yfir byggð hans og sem hann svo oft leit upp til í fögnuði morgunsólar. Hugmynd um nýtingu jarðhita hafði blundað lengi vel með þeim feðgum Eggerti og Ólafi syni hans, en nokkrir þeir eru voru taldir og jafnvel töldu sig vita, töldu svæðið kalt og lítla von um árangur. Ekki létu þeir feðgar það á sig fá, vissu að stundum getur verið allmikið bil á milli þess sem menn telja sig vita og hins sem þeir vita. Þeir fóru að engu óðslega, hugleiddu og gerðu smá tilraunir, sem leiddu til alvöruframkvæmda, sem sýndu að kalda svæðið hafði að geyma yfir 100 stiga hita og Þorvaldseyri fékk fyrstu hitaveituna undir Eyja- fjöllum. Mér er í minni áhugi þeirra og eldmóður í sambandi við þessa framkvæmd en jafnframt trú þeirra á fullkominn árangur og skilningur á því að aðeins var um eina leið að ræða til þess að fá endanlegt svar. Kona Eggerts er Ingibjörg, norsk að ætt og uppruna úr há- fjallabyggð Noregs, en nokkrir aðrir góðir landnámsmenn íslands munu þaðan ættaðir. Hún er mikil- hæf kona, sem verið hefur Eggerti hamingjustjarna og heillaríkur lífs- förunautur. Það er of lítið sagt að heimili þeirra hafi smekklegt verið. Það var fagurt, þar sem allt utan húss sem innan ber vott um háþró- að fegurðarskin og smekkvísi. Mér fannst þau Eggert og Ingibjörg bókstaflega vera eitt. Fyrir mörg- um árum var ungur íslendingur við störf í Noregi. Það atvikaðist svo að einhver vina hans bauð hon- um með sér í heimsókn norskrar fjölskyldu. Þegar húsráðendur fengu að vita að þar fór íslending- ur, var honum tekið sem væri hann sonur í húsinu og vildu ekki af honum sjá. Þetta sýndi sig vera Nyhagen, fjölskylda Ingibjargar. Þetta lýsir nokkuð rótum hús- freyjunnar á Þorvaldseyri. Það var því ekki undarlegt þótt svo færi að „blómstur tvenn bindi saman rætur“ því milli þeirra Eggerts var jafnræði mikið. Glæsibragur heim- ilis þeirra er sjaldséður á íslandi. Svo hafa þau Eggert um búið að þótt nú verði þáttaskil með þeim sárindum og söknuði, sem því fylg- ir þá verða hér engin kynslóðabil. Traustir hlekkir tengjast, framtíðin er björt og bjart verður ætíð um minningu Eggerts á Þorvaldseyri. Jón Jónsson. + Árni Baldur Baldvinsson var fæddur á Húsavík 7. ágúst 1925. Hann lést aðfaranótt sunnudagsins 25. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Baldvin (Skáldi) Jónatans- son frá Víðaseli, fæddur 30. sept- ember 1860, dáinn 28. október _ 1944, og Elinóra Ágústa Símonardóttir, fædd 1. ágúst 1892, dáin 8. desember 1984. Baldvin og Elinóra eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Baldur, f. 17. otóber 1916, d. 12. maí 1924. 2) Áki, f. 21. september 1918, d. 31. ágúst 1994. Hann bjó á Húsavík. 3) Árni, f. 13. janúar 1921, d. 20. maí 1924. 4) Nanna, f. 20. júlí 1924. Hún dvelur nú á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík. Auk þess átti Elinóra dóttur, Þóru Krist- insdóttur, f. 25. janúar 1915, d. 14. ágúst 1992. Hún bjó á Lækj- armóti, Köldukinn, S-Þing. Kona Árna var Þorgerður Með þessum orðum vil ég minn- ast tengdaföður míns, sem varð bráðkvaddur aðfaranótt 25. maí sl. Árni var fæddur á Húsavík og voru foreldrar hans Baldvin (Skáldi) Jónatansson og Elinóra Ágústa Símonardóttir. Þau hjón voru um margt ólík. Baldvin var hagmæltur og gat kastað fram vísum af minnsta tilefni og var því aufúsugestur alls staðar, það átti betur við hann en að strita í sveita síns andlits. En Elinóra var hörku- dugleg til allrar vinnu. Hún var formaður á bátum og vann sem verkstjóri á síldarplönum. Við þessar aðstæður ólst Árni upp ásamt þrem systkinum sínum, Áka, Nönnu og Þóru. Þegar Árni var á níunda ári skilja foreldrar hans og hann flyst ásamt móður sinni að Heiðarhöfn á Langanesi. Þar bjó hann, þar til að hann hóf búskap á Þórshöfn með Þorgerði Lárusdóttur frá Heiði, Langanesi. Á Þórshöfn vann hann við ýmis störf, þó aðllega sjósókn, og á tímabili gerði hann út stærsta bát- inn á Þórshöfn í félagi við annan mann. Þorgerði og Árna varð sex barna auðið sem öll lifa og í dag eru bamabörnin orðin þrettán og barnabarnabörnin þrjú. Þorgerður lést 30. mars 1990. Ég minnist Árna fyrst og fremst fyrir hlýjuna í fari hans. Hann ávarpaði mig aldrei öðravísi en Guðrún mín, elsku tengdadóttir eða jæja elskan. Kurteisi og snyrtimennska voru honum í blóð borin og voru börn hans og barnabörn hans helsta stolt. Aldrei hallmælti hann nokkr- um manni og dró sig í hlé ef slíkt bar á góma. Árna hitti ég fyrst árið 1975, þegar ég kynntist Þráni syni hans. Sambandið var ekki mikið í fyrstu, en breyting varð á því þegar við fluttum í Grafarvoginn, þá var hann tíður gestur hjá okkur og hluti af tilverunni. Það var ljúft að hafa hann, því þannig kynntust börnin okkar afa sínum betur og síðustu árin kom hann aðra hvora helgi og gisti. Eitt það skemmtileg- asta sem hann gerði var að horfa á íþróttir og voru þá boltaíþróttir efstar á blaði, nema hvað þetta ljúfmenni tók upp á því að horfa á hnefaleika og fannst það spenn- andi. Árni upplifði miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi, sá það breyt- ast frá fátæku bændasamfélagi í Lárusdóttir frá Heiði, Langanesi, f. 5. maí 1927, d. 30. mars 1990. Börn þeirra eru: 1) Grét- ar, f. 6. október 1946. Maki Þórdís Herbertsdóttir. Þau búa í Keflavík. Grét- ar á tvær dætur og tvö barnabörn. 2) Þráinn, f. 30. sept- ember 1948. Maki Guðrún Jónsdóttir. Þau búa í Reyjavík. Þráinn á þrjú börn. 3) Petrína Bára, f. 4. mai 1950, maki Örn Randrup. Þau búa í Keflavík. Þau eiga tvö börn. 4) Hrönn, f. 22. mars 1951. Hún er búsett í Keflavík og hún á einn son. 5) Elinóra Ágústa, f. 28. maí 1957. Maki Charles Conway. Þau búa á Flórída. Elínóra á fjögur börn. 6) Arn- þrúður Berglind, f. 6. mars 1965. Maki Oskar B. Ingason. Þau búa í Reykjavík og eiga eitt barn. Útför Árna Baldurs fer fram frá Grafarvogskirkju mánudag- inn 2. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. nútíma, tæknivætt samfélag. Einu sinni spurði ég hann hvað hefði breytt mestu í lífi hans. „Þegar ég eignaðist stígvél, þá var ég ekki lengur blautur í fæturna.“ Hóg- vært svar, eins og alltaf. Undir lokin sáum við að honum leið ekki vel. Þegar við spurðum um líðan hans, þá sagði hann að allt væri í góðu lagi með sig. Við máttum alls ekki hafa áhyggjur af honum. Þegar við kvöddumst kvöldið fyrir andlátið þá brosti hann til okkar, þótt hann væri þjáður. Ekkert nema tillitssemin í okkar garð. Ég kem til með að sakna hans. Hvíl þú í friði, elsku vinur. Þín tengdadóttir Guðrún. Á morgun kveð ég elskulegan tengdaföður minn, Árna Baldur Baldvinsson. Kynni mín af honum stóð í rúm þijú ár og áttum við góðar stundir saman þennan stutta tíma. Hann var hjartahlýr og elskulegur tengdafaðir, þannig mun ég minn- ast hans. Árni var mjög félagslynd- ur og átti auðvelt með að kynnast öðru fólki og brjóta ísinn með umræðum, ef til þurfti. Ég veit að Árni hafði hlakkað mikið til þessa sumars, en kallið bar fljótt að. Árni var stoltur af fjölskyldu sinni, sem var honum allt í öllu. Hann verður alltaf hjá okkur og nálægur. Blessuð sé minning hans. Óskar. Elsku afi. Nú ertu horfinn á braut, en ég veit þó að þú munt ávallt vaka yfir mér. Ég man alltaf þegar pabbi náði í þig og þegar þú komst í dyragættina fylltist maður hlýju °g öryggi, sem ég fann alltaf í návist þinni. Ég man einnig eftir því að þú varst oftast hjá okkur í Fannafoldinni yfir jól og áramót, sem gerði þau enn skemmtilegri. Ég vil þakka þér fyrir áhuga þinn á mér og mínum áhugamál- um. Þú studdir mig alltaf í fótbolt- anum og spurðir alltaf hvernig gengi í skólanum. Þeir voru ófáir fótboltaleikirnir sem við horfðum á saman, þann síðasta laugardag- inn 24. maí. Bless, afi minn. Þú munt ætíð vera í huga mínum. Jón Halldór Þráinsson. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GESTUR HANNESSON pípulagningameistari, Jöldugróf 16 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 3. júní kl. 13.30. Hilmar Gestsson, Hanna Kristinsdóttir, Gyða Gestsdóttir, Ingibjörg Axelsdóttir, Viðar Gestsson, Halldóra Karlsdóttir, Erla Gestsdóttir, Skarphéðinn Njálsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMARS STEFÁNSSONAR, fyrrv. sérleyfishafa, Ásvegi 11. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á deild A4, Hrafnistu, Reykjavík. Þórunn Sigurðardóttir, Helga Guðmarsdóttir, Sigfús Sumarliðason, Sigurður Guðmarsson, Árdís Guðmarsdóttir, Einar Jónasson, börn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar sonar okkar og bróður, ÁRNAPÉTURSLUND, Urriðakvísl 21, Reykjavík. Maríus Lund, Ásdís Karlsdóttir, Bergþór Lund, Karl Lund. + Faðir okkar, bróðir, mágur, afi og langafi, SIGURÐUR S. HÁKONARSON, Bergþórugötu 51, Reykjavik, er lést þriðjudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 3. júní kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Jens og Ottó Sigurðarsynir, börn og barnabörn, Sigfrið Hákonardóttir, Guðmundur Jónsson. + RÚTH HERMANNS, f. 11.08.'13 d. 29.05. '97 „In liebe die Schwestern.“ Beatrice Simmat fædd Hermanns Esther Sieveking fædd Hermanns Jarðarförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 2. júní kl. 13.30. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, JENSINU MARÍU KARLSDÓTTUR, Framkaupstað, Eskifirði. Helgi Garðarsson, Herdís Hallbjörnsdóttir, Ágústa Garðarsdóttir, Helgi Hálfdánarson, Jónína Garðarsdóttir, Svavar Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.