Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1 JÚNÍ 1997 31 SKOÐUN orgelið í Eyrarbakkakirkju með mönnum sínum. Pípurnar lágu í skipulögðum röðum til taks og biðu uppsetningar. Undraðist ég mjög að sjá þar pípuraðir, hverra lögun bar greini- lega með sér að þær áttu ekkert erindi í þetta orgel. Hvernig stóð á þessu? Jú - söngmálastjórinn hafði ráðlagt nokkrar smábreytingar. Nokkrum röddum var skipt út. Öðrum var bætt við. Orgelið var nú orðið 13 radda, að viðbættum tremulanti. Einmitt það. og þar með var draumurinn búinn,“ söng sveitastrákurinn, sem missti af dísinni. Dæmi Áður en ég kem að aðalatriðinu - hvernig bregðast á við aðför að hugverki manns - vil ég sýna, að 13 raddir í tilviljunarkenndri sam- setningu, gefa færri möguleika en þær 10 sem þaulhugsaðar voru, hver á sínum stað. Eitt dæmi: Sólórödd - Dulcian - var aukið við svellverkið. Nú vill svo til, að allar til mótleiks við sóló- röddina brúklegu raddirnar eru líka í svellverkinu. Svo nú verður að leita upp mótleiksrödd í 1. man. - þar sem raddir eru allt annars eðl- is. En sjá - einn umskiptingur finnst þar líka, Spissgamba 8’. Og þó að hún hafi ekki aðra kosti í hlutverkið að bera, þá hljómar hún a.m.k. nógu veikt. Læt ég þá organistum eftir að dæma blönd- una. Að sjálfsögðu er allt hægt, þegar smekkur manns er annars vegar. Þá má líka borða vínarbrauð með sinnepi. Um hugverk manns Nú spyr ég: á orgelsmiðurinn að þola takmarkalausar breytingar á hugverki sínu - vegna þess að hann má hreinlega ekki við því að missa umsamið verkefni úr hönd- um sér? Embætti söngmálastjórans er „yfir og allt um kring“, og getur sáð frækorni vísbendinga sinna - án ábyrgðar - í eyru (næstum) allra organista landsins. Orgelsmiðurinn stendur einn. Hann verður að sanna sig í gegnum verk sitt. Það getur hann aðeins í gegnum óspillt verk sitt. Með nafni sínu og opus-nr. sem hann setur á spilaborðið, ábyrgist smiðurinn verk sitt í heild - og þar með allar breytingarnar líka, því þeirra höf- undur helst nafnlaus. Hugsi nú menn um það. Lokaorð Eftir athöfn eina spurði ég konu úr kórnum, hvernig þeim líkaði við nýja orgelið. Hún ljómaði: „Það er svo gaman að syngja undir þess- um björtu tónum.“ Og ég hafði tekið eftir - ekki í fyrsta sinn - að eftirmaður minn á orgelbekkn- um hafði að langmestu leyti haldið sig við „Björgvins-raddir" í athöfn- inni. Að það sem eftir er af upphaf- legri raddskipan hans í þessu org- eli myndar ennþá heilsteypt lista- verk sýnir bezt hvers af honum mætti vænta. Fæstir vita, að Björg^vin hefur aukalega lokið tónmenntakenn- aranámi. Hann syngur í einum virtasta kór landsins, Mótettukór Hallgrímskirkju, ásamt kammer- kór, sem fæst við kröfuhörðustu kórverk kirkjutónlistar. Öllum hljóta að vera ljós áhrif alls þessa á störf hans við hljóðfærahönnun og smíði! Björgvin Tómasson orgelsmiður gæti lagt íslenzku þjóðinni til ein- stök menningarverðmæti - alís- lenzka orgelhönnun. En til þess þarf hann að fá tækifæri og vinnu- frið. Vakni nú þeir sem málið er skylt - þeir eru víst ekki svo fáir - og taki afstöðu. Höfundur var organisti Eyrarbakkakirkju 1964-92 og hefur kantorspróf B frá kirkjutónlistarskóla í Hannover. BUTASAUMUR Hin þekkta bútasaumskona og hönnuður, Linnet Jensen frá Thimbleberries, er væntanleg til landsins 19. águst. Hún heldur námskeið í Virku 20., 21. og 22. ágúst. Námskeiðið er l dagur frá kl. 10.00 -16.00. Kostnaður á dag er 6.000 kr. og er innifalið snið og snarl í hádegi. Greiða þarf 3.000 kr. staðfestingargjald við innritun, fyrir 15. júní. thimbleberries VIRKA bjóðum við hagstæðustu verð sumarsins til Benidorm í eina eða tvær vikur .■28665 28665 1 vika 4 í íbúð, 2 börn og 2 fullorðnir kr. 2 í íbúð kr. 38200 Gisting á Gemelos II í hjarta bæjarins - Stutt í alla þjónustu 2 vikur 4 í íbúð, 2 böm og 2 fullorðnir kr. 35^^ 2 í íbúð kr. Gisting á Gemelos II eða Maryciel - Báðir gististaðir eru staðsaðsettir í hjarta bæjaríns - Stutt I alla þjónustu Innifalið: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis - íslensk fararstjórn og allir skattar Viðbótarafsláttur lcr. 4000.- þegar þú notar EURO/ATLAS ávísunina þína. Hafðu samband við okkur, því nú er tæki færið til að komast ódýrt í sólina Pantið í síma 552 3200 FERÐASKRIFSTOFA 0?REYKJAVIKUR LsJ Aðalstræti 16 - sími 552-3200 | Bíleigendur eiga erindi í Fjöbrina PÚSTKERFI, BODDÍHLUTIR, ÖKULJÓS, HÖGGDEYFAR, DRÁTTARBEISLI, FJAÐRABÚNAÐUR, TOPPGRINDUR, SKÍÐABOGAR, AUKAHLUTIR, LJÓSAHLÍFAR, PÚSTKERFASMÍÐI. Bílavörubúðin FJÖDRIN -ífararbroddi SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550 Amerískar fléttimottur Lokað á laugardögum frá 1. júní -1. sept. VIRKA Mörkinni 3, s. 568 7477 897 5523 g'jg* 'IdllrUM-.LI.l L fe Jff.Wðt.WHri RAÐGREIÐSLUR TIL 36 MANAÐA I Aníiksyn ing Sölusýning á einstaklega fallegum munum; m.a. húsgögnum, teppum, postulíni, silfri o.fl. verður haldin dagana 31. maí til 3. júní á Grand Hótel, Reykjavík, Sigtúni. Opið daglega kl. 14-22. Tökum góða hluti í umboðssölu. óviðjafnanlegt verð miðað við gseliL Klapparstíg 40, sími 552 7977 HÓTEl REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.