Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ „En á meðan við getum boðið gæða vöru á góðu verði eru kaup- menn tilbúnir að hleypa okkur að. Það er fy rsta skref ið í að ná fót- festu á markaðn- um.H 1 í | í \ EYÞÓR Jósepsson, framkvæmdastjóri Kexsmiðjunnar á Akureyri. Kexið að norðan VIÐSKIPn AIVINNULÍF ÁSUNNUDEGI ►Kexsmiðjan á Akureyri var stofnsett í júlímánuði 1996. Fyrirtækið er í eigu Upphafs ehf. að 75% hluta og Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna að 25% hluta. Upphaf ehf. er í eigu þriggja Akureyringa og á félagið einnig 50% hlut í plastverksmiðjunni Akoplast á Akureyri á móti Plastprenti hf. í Reykjavík. Verksmiðjan er í um 860 fermetra leiguhús- næði í eigu Upphafs að Hvannavöllum 12. Framkvæmda- sljóri er Eyþór Jósepsson, einn eigenda Upphafs ehf. Ey- Jjór er á 35. aldursári, menntaður vélstjóri frá Vélskóla Islands og stundaði hann sjómennsku á árum áður m.a. á togurum Utgerðarfélags Akureyringa hf. og Samherja hf. Eyþór er giftur Stellu Gestsdóttur og á 6 ára fósturdótt- ur, Söndru Friðriksdóttur, og 11 ára son, Tómas Örn, úr fyrri sambúð. eftir Kristján Kristjánsson AÐDRAGANDINN að stofnun Kexsmiðjunnar var nokkuð langur og áður höfðu verið skoðað- ir ýmsir möguleikar við leit að nýj- um atvinnutækifærum. Upp úr ára- mótunum 1996 voru eigendur Upp- hafs komnir að þeirri niðurstöðu að setja á stofn kexverksmiðju í bænum. Gífurleg undirbúnings- vinna lá að baki þeirri ákvörðun en hér er um að ræða fjárfestingu upp á annað hundrað milljónir króna. Vélar og tæki til framleiðslunnar voru keyptar notaðar frá fjórum Evrópulöndum, auk þess sem leitað var ráðgjafar hjá sænskum og dönskum aðilum. Húsnæðið að Hvannavöllum 12, sem áður hýsti lager efnaverksmiðjunnar Sjafnar var endurbætt og innréttað eftir ströngustu kröfum í samræmi við reglur GÁMES. Ingólfur Gíslason, bakarameistari hjá Brauðgerð KEA, var ráðinn til að hafa yfirum- sjón með bakstrinum og sá hann um undirbúningsvinnuna með Ey- þóri. Framleiðslan hófst í október á síðasta ári og í upphafi voru bak- aðar 6 tegundir af smákökum á jólamarkaðinn. Áður hafði farið fram umfangsmikill tilraunabakst- ur á smákökum og kexi. Viðtökur á markaðnum voru mjög góðar o g runnu smákökurnar út úr verksmiðjunni jafn óðum og þær voru bakaðar. Margir prófa framleiðsluna í febrúar á þessu ári hófst bakst- ur á kanilsnúðum og í kjölfarið hefur tegundum fjölgað jafnt og þétt. „Við framleiðum 9 tegundir í dag og bætum við einni til eftir um viku. Þá erum við með fjórar teg- undir til viðbótar á teikniborðinu," segir Eyþór og bætir við að tíminn frá þvi að tilraunabakstur hefst og þar til varan fer á markað sé mjög langur. „Það koma margir að því að prófa framleiðsluna áður en hún fer á markað og við höfum fengið Hag- vang, Rannsóknarstofnun fiskiðn- aðarins og Strýtu í lið með okkur. Eins hafa sjómenn Samheija, starfsmenn þeirra fyrirtækja sem unnið hafa fyrir okkur og fjölskyld- ur þeirra og fleiri hópar bragðað á framleiðslunni. Við erum innlendir kexframleiðendur og teljum okkur ekki vera í samkeppni við aðra inn- lenda framleiðslu heldur fyrst og fremst innflutning. Við bjóðum upp á ferska og góða vöru með heimilis- legu bragði og í vönduðum umbúð- um. Okkar markmið er að fá al- menning til að prófa vöruna og þá kaupa hana ef hún er sambærileg í verði og gæðum við erlenda fram- leiðslu." Eyþór segir að í áætlunum fyrir- tækisins hafi sá þröskuldur að kom- ast inn í verslanir verið vanmetinn og um síðustu áramót hafi þurft að vinna nýja markaðs- og sölu- áætlun. „Kaupmenn hafa séð að við ætlum að standa okkur og hefur hljóðið í þeim batnað mikið að und- anförnu og við komist inn í fjölda verslana. Að mínu viti er ísland tvö markaðssvæði, annars vegar lands- byggðin og hins vegar höfuðborgar- svæðið. Landsbyggðin tók okkur strax mjög vel en hlutimir eru þyngri í vöfum á höfuðborgarsvæð- inu. Þar eru svo stórar og miklar verslanir að þetta er allt í mjög föstum skorðum og við þurft að hafa töluvert fyrir því að sanna okkur. Við höfum verið inni í Nóa- túnsverslunum og Fjarðarkaupum frá því fyrir jól, í síðustu viku fórum við inn í 10/11-verslanirnar og nú erum við að fara með okkar vöru inn í Hagkaup. Einnig hefur okkar framleiðsla verið á boðstólum í KEA-verslununum frá upphafi." Harður slagur um gólfpláss Slagurinn um gólfpláss í verslun- um er mjög harður að sögn Eyþórs og í þeim öllum sé plássið fullnýtt, þannig að til að komast að þurfi einhver annar að víkja. „En á meðan við getum boðið gæða vöru á góðu verði eru kaupmenn tilbúnir að hleypa okkur að. Það er fyrsta skref- ið í að ná fótfestu á markaðnum." Fastir starfsmenn eru .15 og er Kexsmiðjan með tvo sölumenn í Reykjavík og stefnir að því að ráða þann þriðja þar. Þá er einn sölumað- ur fyrir norðan, sem fer um lands- byggðina og einnig snýst starfs Eyþórs að miklu leyti um sölu- og markaðsmál. Nemendur í rekstrar- fræði við Háskólann á Akureyri hafa undir leiðsögn kennara aðstoð- að fyrirtækið við að kanna markað- inn. „Þá fengum við til liðs við okk- ur markaðsráðgjafastofuna Hug- tök, sem hannar m.a. fyrir okkur umbúðir, lógó og auglýsingar. Sam- starfið hefur gengið vel og skilað góðum árangri að mínu mati.“ Eftir ýmsar uppákomur í upphafi segir Eyþór að framleiðslan sé kom- in í fullan gang og líki vel. Einnig hafí þær áætlanir sem gerðar voru í upphafi staðist. Hann er því sáttur við stöðu mála og farinn að leyfa sér að brosa út í annað. „Fyrirtæk- ið er ekki komið á lygnan sjó en ég er mjög bjartsýnn á framtíðina og að neytendur haldi áfram að taka okkar vöru vel.“ Akoplast keypt Eyþór keypti söluturninn ísbúð- ina ásamt fyrrum sambýliskonu sinni, Lindu Tómasdóttur, eftir að hann hætti á sjónum árið 1989. Þau ráku verslunina saman í tvö ár, en þá keypti Eyþór hlut Lindu og rak hann Isbúðina einn í tæpt ár til viðbótar en hætti svo afskiptum af verslunarrekstri. Árið 1991 keypti hann við fimmta mann, plastverk- smiðju Akoplasts af Sjálfsbjörgu á Akureyri. Áð kaupunum með Ey- þóri stóðu Jóhann Oddgeirsson vél- stjóri, Daníel Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri á Þórshöfn, Steinþór Ólafsson, starfsmaður Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar og Ómar bróðir Eyþórs. Þeir tóku við rekstrinum 1. mars árið 1991 og Eyþór, Jóhann og Daniel hófu strax að vinna hjá fyrirtækinu. „Akoplast var til húsa í húsnæði Sjálfsbjargar við Bugðusíðu og framleiddi mest stóra sorppoka, haldapoka og heimilispoka af ýms- um gerðum. Okkar markmið frá fyrsta degi var að huga einnig að framleiðslu fyrir sjávarútveginn og fleiri stærri notendur. Það reyndist gæfuspor fyrir okkur því þar var vaxtarbroddurinn. Starfsfólkið sem fyrir var vann með okkur við fram- leiðsluna í byijun en aðeins einn starfsmaður hefur þó fylgt okkur til dagsins í dag. Prentsmiðja bætist við Þetta var mjög skemmtilegur tími og fyrirtækið fór að vaxa og dafna og því kom fljótlega til þess að við þyrftum að koma starfseminni í stærra húsnæði. Á þeim tíma var nokkuð af húsnæði á lausu, m.a. á Gleráreyrum þar sem fyrirtæki höfðu lent í erfíðleikum. Við áttum viðræður við Landsbankann vegna málsins og þar innanhúss kom upp sú hugmynd hvort ekki væri rétt að við keyptum prentsmiðju og hús- næði POB við Tryggvabraut, sem bankinn hafði eignast við gjaldþrot fyrirtækisins. Við hlógum nú að þessari hugmynd í byijun en fórum svo að skoða það mál fyrir alvöru og endirinn varð sá að við keyptum prentsmiðjuna og húsnæðið, sem einnig hentaði vel fyrir Akoplast. Þetta var i júlí árið 1992. Þarna vorum við því farnir að takast á við hluti öðru sinni sem við höfðum ekkert vit á, tveir vélstjór- ar, ég og Jóhann, og Daníel fisk- tæknir með verslunarpróf. Það voru margir sem höfðu litla sem enga trú á þessari ákvörðun okkar og fólk hreinlega vorkenndi okkur. En eins og þegar við komum að rekstri Akoplasts vorum við heppnir með starfsfólk í POB og það var tilbúið að ganga í lið með okkur. Því var farið í að sameina rekstur þessara tveggja fyrirtækja undir einni kenni- tölu. Verkaskipting okkar þriggja var ákveðin strax eftir að við keypt- um Akoplast, Daníel varð fram- kvæmdastjóri, Jóhann sá um fram- leiðsluna í plastinu og ég um söiu- Fótaaðgerðastofan Sólheimum 1 Hugsaðu um þína fætur áður en vandræði koma upp. Býð upp á margs konár aðgerðir til dæmis: • Heil-fótaaðgerð með fótanuddi. • Klippi neglur • Tek burtu líkþom ef annars er ekki þörf • Silikon-meðferð • Spangar-meðferð Hef góða þekkingu og kunnáttu í meðhöndlun á sykursjúkum. Gef góðar ráðleggingar til sjálfshjálpar. Verð við allra hæfi. Ellilífeyris- og örorkuafsláttur. íþróttamenn ath. panti fleiri en þrír er afsláttur meiri. Tímapantanir alla virka daga frá kl. 9-18 í síma 553 6775. Get gefið tíma á kvöldin og á laugardögum ef með þarf. Verið velkomin. Rakel Ólafsdóttir Löggiltur fótafræðingur. Geymið auglýsinguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.