Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 30
30 SUNNUDAGUR 1 JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
ORGELSMIÐUR OG
EYRARBAKKA-
ORGELIN TVÖ
Org-elsmíði á íslandi
NÚ ER meira en tímabært að
leggja orð í belg. Umræðan snýst
um hvort lofa á nýrri iðngrein -
orgelsmíði - að lifa á íslandi, eða
kæfa hana í fæðingu undir inn-
flutningsskriðu.
Vel að merkja: enginn krefst
verndartolla á né niðurgreiðslna,
aðeins jafnréttis við tilboð.
Gamla orgelið í
Eyrarbakkakirkju
Sem organisti Eyrarbakkakirkju
kynntist ég Björgvin Tómassyni
fyrir u.þ.b. 10 árum, þegar hann
var nýkominn heim frá námi í
Þýzkalandi, útskrifaður sem orgel-
smiður. Hann hafði þá tekið að sér
gagngera orgelviðgerð, eftir að
afstaðnar voru miklar endurbætur
á Eyrarbakkakirkju. Slæmt ástand
hússins þar á undan hafði komið
illa niður á hljóðfærinu.
Trépípur voru sprungnar, filt í
fóðringum uppþornað, útfellingar á
botnlokum, vindleki, o.fl. o.fl.
Orgelið var enskt pípuorgel frá
1948 af Multiplex-gerð. Þetta kerfi
byggir í stuttu máli á því, að sama
pípan getur hljómað á fleiri en ein-
um stað í hljómborðunum tveimur
og pedal. Tveir aðalgallar þess eru:
„Hljómgöt“ myndast,
þegar tvær nótur eiga
að hljóma, sem sama
pípan þjónar. Og ef ein
pípa óstillist, koma
falskir tónar fram á
öllum þeim stöðum
sem hún þjónar. Þrátt
fyrir þessa annmarka
var gamla Eyrar-
bakkaorgelið elskulegt
hljóðfæri sem hæfði
þessari aldargömlu
timburkirkju undravel.
Sérlega hentugt var
það við allan söng,
enda aldrei vandamál
að manna kirkjukór-
inn.
Dr. Páll ísólfsson hafði á sínum
tíma valið raddir í orgelið, og Dr.
Róbert Abraham nefndi það
„langbezta eintakið af annars lítt
merkilegri orgeltegund".
Vinnubrögð
Björgvins
Vinnuaðstaða var afleit, óskap-
lega þröng í lokuðu orgelhúsi. En
um leið og Björgvin byijaði á við-
gerðinni, dáðist ég að handbragði
hans og þeirri alúð, sem hann lagði
í þetta verkefni, sem
þó gat ekki verið allt
of eftirsóknarvert.
Hann tók allar
stóru trépípurnar með
sér á verkstæði sitt.
Þar gerði hann við
þær svo vel, að á eftir
heyrðist í fyrsta sinn
hvernig 16 fóta pedal-
rödd getur hljómað í
Eyrarbakkakirkju.
Ónýtar tappafóðr-
ingar endurnýjaði
hann með sútuðu
skinni. Nú var loks lið-
inn tími hinnar eilífu
bráðabirgðastillinga
fyrir messur, þar sem
ég hafði mátt draga tappa upp af
Gedackt-pípum og skorða með
pappírsvöðlum.
Hann lagfærði botnlokur, vakti
þegjandi pípur til lífs og þaggaði
niður í þeim vælandi.
Að lokum tókst honum meira
að segja að bæta að hluta úr slysi,
sem orðið hafði við endurnýjun
kirkjuloftsins. Hvelfíngin hafði
verið klædd með spónaplötum yfir
genheilan upprunalegan viðinn.
Var því hijómur af bæði söng og
Rut
Magnúsdóttir
orgeli orðinn nokkuð pappakassa-
kenndur. Mest bar á þessu um
miðju tónsviðsins. Tókst Björgvin
að bæta tóninn til muna, eins og
aðstæður leyfðu. Taka þarf fram,
að orgelið kom 1948 í einingum,
lauslega inntónað, frá verksmiðj-
unni, en var aldrei inntónað eftir
uppsetningu.
Eftir þessa stóru viðgerð, sem
allir voru hæst ánægðir með, sinnti
Björgvin reglulega stillingum og
eftirliti samviskusamlega í nokkur
ár. Á þeim árum byrjuðu að koma
upp hugmyndir um að gera eitt-
hvað meira í orgelmálum, jafnvel
um nýsmíði, því í ljós kom, að sá
viðkvæmi - og gjörsamlega úrelti
- rafsegulbúnaður, sem öllu
stjórnaði, var að verða ónýtur.
Tilboð
Á haustdögum 1994 kynntist ég
svo af einskærri tilviljun skriflegu
Á orgelsmiður, spyr Rut
Magnúsdóttir, að þola
takmarkalausar breyt-
ingar á hugverki sínu?
tilboði frá Bruhn & sön orgelverk-
smiðjunni í Danmörku. Fyrir milli-
göngu söngmálastjóra var Eyrar-
bakkakirkju boðið að skipta út einni
röð af málmpípum Diapason
8’/Gemshom 4’, í því skyni „að
bæta hljóm orgelsins".
Blöskraði mér þá hressilega og
tvöfalt: fyrst sú vitleysa, að farga
einmitt þeim pípum, sem nákvæm-
lega ekkert var að, og hlamma nið-
ur nýjum pípum á gjörónýtan „inn-
mat“ orgelsins. Enn meira blöskr-
aði mér, að engum virtist detta í
hug, að íslenzkur löggiltur orgel-
smiður væri á næstu grösum. Né
virtist nokkur maður muna, að ein-
mitt þessi íslenzki orgelsmiður
hefði gert orgelið upp og gjör-
þekkti auk þess kirkjuna, hljóm-
burðinn og allar aðstæður.
Var ég því minnt óþægilega á
Biblíutextann: „Yfir litlu varstu
trúr - yfir mikið vil ég“ - þó ekki
setja þig, heldur Dana. Leyfði ég
mér því að benda sóknamefndinni
á þetta í rökstuddri greinargerð,
sem var mjög vel tekið.
í kjölfar var svo leitað til Björg-
vins Tómassonar og hann beðinn
að gera tilboð í nýtt orgel.
Nýtt orgel
Björgvin kynnti hugmynd sína
að nýju orgeli rétt eftir áramót
’94-’95 á fróðlegum fundi með
sóknarnefnd, presti og organista
á orgelloftinu - raddskipan, fyrir-
komulag og kostnaðaráætlun.
Þetta átti að verða 10 radda al-
mekaniskt orgel, 2 man. og ped-
all, efra man. í svellverki. Þegar
ég las raddskipunina gat ég þegar
í huga heyrt hljóminn í algjöru
draumaorgeli fyrir Eyrarbakka-
kirkju. Hljómurinn mundi verða -
ef svo má að orði komast - gegn-
heiðarlegt listaverk. Auk þess var
röddunum svo snilldarlega fyrir
komið, að sem allra fjölbreyttust
not mundu verða af þeim, þótt
ekki væru þær fleiri.
Þar sem tilboðið þótti aðgengi-
legt í alla staði, samdi sóknarnefnd
um smíði orgelsins og Björgvin
lofaði að afhenda það til notkunar
fyrir jól.
Almennur áhugi var í söfnuðin-
um. Kirkjukórinn fór ásamt organ-
ista (eftirmanni mínum) í heim-
sókn að Blikastöðum. Hreifst fólk-
ið þar af vönduðum vinnubrögðum
og efnisgæðum. Svo skemmtilega
vildi til að smíði orgelhússins var
langt komin, en samstarfsmaður
Björgvins við þann hluta verksins
er sérlega listfengur smiður.
Á aðventu setti Björgvin upp
SÖFNUNARSJÓÐUR LÍFEYRISRÉTTINDA
UPPLÝSINGAR UM STARFSEMI Á ÁRINU 1996
Helstu niðurstöður reikninga árið 1996 í þúsundum króna
Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris árið 1996: Efnahagsreikningur 31.12.1996
Vaxtatekjur og verðbætur 988.262 Veltufjármunir:
Reiknuð gjöld vegna verðlagsbr. (1) -214.264 Bankainnistæður 44.697
Ávöxtun umfram verðbólgu 773.998 Skammtímakröfur 1.919.119
Hreint veltufé jákvætt 1.963.806
Iðgjöld 528.448
Lífeyrir -48.150 Fastafjármunir:
Rekstrarkostnaður -18.859 Veðskuldabréf sjóðfélaga (2) 250.667
Hækkun á hreinni eign án matsbr. 1.235.437 Veðskuldabréf Húsnæðisstofnunar (2) 2.686.628
Reiknuð gjöld vegna verðlagsbr. (1) 214.264 Önnur skuldabréf (2) 6.453.418
Hækkun á hreinni eign á árinu 1.449.701 Hlutabréf 201.171
Hrein eign frá fyrra ári 10.107.313 Varanlegir rekstrarfjármunir L224
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 11.557.014 Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 11.557.014
1. Verðbreytingarfærslan hækkar upp (peningalegar eignir) í samræmi við verðbólgustuðul. Útreikningurinn byggist á breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar innan ársins.
2. Með áföllnum vöxtum og verðbótum.
Kennitölur
Raunávöxtun:
Hrein raunávöxtun:
Kostnaðarhlutfall:
Kostnaðarhlutfall:
Lífeyrisgreiðslur:
Starfsmannafjöldi:
Umfram neysluverðsvísitölu
Ávöxtun að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum
Lífeyrir, sem hlutfall af iðgjöldum
Slysatryggðar vinnuvikur deilt með 52
7,34%
7,15%
0,17%
3,56%
9,11%
3
Makalífeyrir: Makalifeyrir er greiddur maka látins sjóðsfélaga í minnst 24 mánuði og lengur ef
eitt af eftirfarandi skilyrðum er uppfyllt: 1. Eftirlifandi maki er orðinn 35 ára og hjónaband staðið
í a.m.k. 5 ár og var stofnað áður en sjóðsfélagi náði 60 ára aldri. 2. Yngsta barn sjóðsfélaga er
19 ára eða yngra.3. Makinn er öryrki.
Barnalífeyrir: Börn og kjörbörn yngri en 19 ára sem sjóðsfélagi lætur eftir sig við andlát eiga
rétt á lífeyri úr sjóðnum hafi sjóðsfélagi greitt til hans í a.m.k. 6 mánuði á undanfarandi tólf
mánuðum og naut örorkulífeyris úr sjóðnum.
Tryggingafræðileg athugun
Á árinu 1996 var framkvæmd tryggingafræðileg athugun á framtíðarstöðu sjóðsins sem miðast
við árslok 1995. Helstu niðurstöður úttektarinnar, miðað við að 3,5% ávöxtun náist á eignir
sjóðsins umfram hækkun neysluverðsvísitölu næstu áratugina voru, að höfuðstóll sjóðsins og
verðmæti framtíðargjalda næmi kr. 2.800 milljónum umfram skuldbindingar.
Lífeyrisréttindi sjóðsfélaga voru þvíaukin verulega frá l.janúar 1997.
Verðtryggður lífeyrisréttur (útdráttur)
Ellilrfeyrir: Réttur til töku ellilífeyris hefst þegar sjóðsfélagi er 67 ára. Heimilt er að hefja töku
Iffeyris 65 ára, en þó með lækkun sem nemur 6% fyrir hvert ár. Einnig má fresta töku lífeyris til
70 ára og hækkar þá lífeyrinn um 6% fyrir hvert ár.
Örorkulífeyrir: Réttur til örorkulífeyris miðast við að örorkan sé a.m.k. 50% að mati trygginga-
yfirlæknis. Örorkan er miðuð við vanhæfi sjóðsfélagana til þess að gegna því starfi, sem aðild hans
að sjóðnum er tengd og að sjóðsfélagi hafi greitt iðgjöld til sjóðsins undanfarin 3 almannaksár og
a.m.k. sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum áður en orkutapið átti sér stað.
Elli-, örorku- og makalífeyrisgreiðslur eru í réttu hlutfalli við þau iðgjöld sem sjóðsfélagarnir
greiddu til sjóðsins. M.ö.o. hærri iðgjöld gefa hæni lífeyri. Allar lífeyrisgreiðslur eru fullverðtryggðar
og taka breytingum samkvæmt neysluverðsvísitölu.
Almennar upplýsingar
Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 95 frá 1980 með síðari breytingum. Er hann ætlaður
öllum starfandi mönnum sem ekki eiga sjálfsagða aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Á árinu 1996
greiddu til sjóðsins 17.536 einstaklingar. Heildarfjöldi sjóðsfélaga í árslok 1996 var 88.020.
Skrifstofa sjóðsins ertil húsa að Laugavegi 13, 2 hæð.
f stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda 1996 voru:
Magnús Pétursson formaður
Birgir B. Sigurjónsson
Hrafn Magnússon
Ragnar H. Guðmundsson
Gunnar J. Friðriksson varaformaður
Halldór Björnsson
Margeir Daníelsson
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jóhannes B. Sveinbjörnsson