Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 34
34 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar og
móður,
HILDIGUNNAR HALLSDÓTTUR,
Skólastíg 17,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir til St. Fransiskussystra og
starfsfólks St. Fransiskusspítalans fyrir
einstaka umönnun.
Bjarni Lárusson
Eygló Bjarnadóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ARNDÍSAR STEFÁNSDÓTTUR,
Laugateigi 4,
Reykjavík.
Fríða Sigurðardóttir,
Richard Ásgrímsson, Guðlaug Björgvinsdóttir,
Stefán Ásgrímsson, Hulda Halldórsdóttir,
Benedikt G. Ásgrímsson, Sólrún Höskuldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát
LILJU TRYGGVADÓTTUR.
Valdimar Jónasson,
Jónas Valdimarsson, Rósa Viggósdóttir,
Bjarni Valdimarsson, Eva Strizova,
Ragnheiður Valdimarsdóttir, Níels S. Olgeirsson,
Valdimar Jónasson, Kristín Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
ÁMUNDA JÓHANNSSONAR,
Drekavogi 12,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna María Ámundadóttir,
Jóhann Ámundason,
Steinunn Ámundadóttir,
Sigmundur Ámundason,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir og afi,
VALDIMAR JÓHANNESSON
bóndi
í Helguhvammi,
sem andaðist mánudaginn 26. maí, verður
jarðsunginn frá Flvammstangakirkju miðviku-
daginn 4. júní kl. 14.00.
Guðrún Bjarnadóttir,
börn og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL GEORG ÞORLEIFSSON
loftskeytamaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 3. júní kl. 13.30.
Katrín Karlsdóttir, Sigurbjörn Víðir Eggertsson,
Kristján E. Karlsson, Lilja ívarsdóttir
og barnaböm.
SARA
KRISTINSDÓTTIR
+ Sara Kristins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 10. maí
1978. Hún andaðist
á heimili sínu i
Hafnarfirði 23. maí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 30. maí.
Það var sem ísköld
hönd nísti hjarta mitt
þegar Stína vinkona
mín hringdi í okkur
hjónin sl. föstudag og
tilkynnti okkur að Sara
dóttir hennar hefði látist þá um
nóttina. Hún Sara sem ég hafði
hitt aðeins fáum dögum áður, geisl-
andi af lífsorku og fjöri, nýbúin í
prófunum og ævintýri sumarsins
framundan. Þetta var svo ótrúlegt
og óskiljanlegt. Sara þessi hrausta
og duglega stúlka sem aldrei hafði
orðið misdægurt um dagana.
Ég kynntist Söru og fjölskyldu
hennar fyrir 16 árum þegar Jóhann
maðurinn minn kynnti mig fyrir
vinum sínum, Didda og Stínu og
litlu stúlkunum þeirra tveimur Söru
þriggja ára og Mörtu eins árs. Sara
var þá strax farin að sýna það sem
í henni bjó, skarpgreind og ákveðin
ung dama, hlý og einlæg.
Eg fór ekki varhluta af hlýju
hennar og það leið ekki á löngu að
hún settist í fangið á mér umfaðm-
aði mig og vildi spjalla því ekki var
hún feimin stúlkan. Allar götur síð-
an var samband okkar opið og ein-
lægt. Þær systur uxu úr grasi við
mikið ástríki foreldra sinna og
seinna bættist bróðir í hópinn, Fróði
sem nú er tíu ára.
Ég hef fýlgst með Söru vaxa og
dafna og verða að glæsilegri ungri
stúlku brosleitri og hvers manns
hugljúfi. Sara var hörkudugleg og
vann alla tíð með skólnum. Eg furð-
aði mig oft á eljuseminni í henni
og hvað námið sóttist henni vel
þrátt fyrir mikið annríki.
Hún var vinmörg sem við urðum
áþreifanlega vör við þegar við kom-
um í heimsókn, síminn síhringjandi
og vinir að koma og fara. Vinir
hennar sóttu mikið í að koma heim
til hennar enda voru þeir ávallt
velkomnir þangað. Samband Söru
við mömmu sína var ákaflega náið
og gat Sara leitað til hennar með
öll sín mál.
Elsku Stína, Diddi, Marta og
Fróði. Þið hafið mikið misst en
minningarnar um elskulega dóttur
og systur munu fylgja ykkur um
ókomin ár.
Vertu sæl að sinni, elsku Sara
mín, og Guð geymi þig.
Bergþóra og
Jóhann.
Það var rigning þeg-
ar þú kvaddir þennan
heim en það rigndi enn
meira í hjarta okkar.
Þú birtist okkur sem
sólargeisli og hvarfst
aftur svo snöggt. Með
® fáeinum orðum viljum
við fá að kveðja þig,
elsku Sara. Aldrei
hefði okkur dottið í hug
að við þyrftum að
kveðja þig svo fljótt. Það er sárt
að hugsa til þess að við munum
ekki hittast hressar og kátar í vinn-
unni eins og við erum búnar að
gera undanfarin ár. Það var svo
sætt og verður okkur ávallt minnis-
stætt að sjá þig koma brosandi út
í annað og blikka svo með öðru
auganu, alltaf svo full af gleði. Við
erum svo lánsamar að hafa fengið
að kynnast þér, þú varst okkur öll-
um svo kær. Minning þín mun ávallt
lifa í hjörtum okkar.
Elsku Marta og fjölskylda, við
biðjum góðan Guð um að styrkja
ykkur í sorginni.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgr.Pét.)
Þínir vinnufélagar.
Hanna, Elísabet,
Berglind og Sigríður.
í dag kveðjum við svo ofsalega
góða vinkonu, Söru Kristinsdóttur.
Þetta er svo óskiljanlegt, ég sit hér
og er ekki enn búin að grípa þetta.
Ótal minningar hafa flogið gegnum
hugann og alltaf sé ég brosið henn-
ar Söru fyrir mér. Við gátum setið
og hlegið að engu tímunum saman.
Ég man einu sinni þegar við höfð-
um tekið upp fyndnar fjölskyldu-
myndir og horfðum á sama atriðið
ábyggilega 20 sinnum og grenjuð-
t
Móðir okkar,
VILBORG HELGADÓTTIR,
Eystra Súlunesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 28. maí.
Guðlaug Bergþórsdóttir,
Helgi Bergþórsson,
Unnur Bergþórsdóttir.
t
Fljartkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERNA GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR
(STELLA)
Hagamel 47,
andaðist á heimili sfnu aðfararnótt 31. maí.
Hörður Þormar,
Kristján Ingi Einarsson, Ásdfs Lilja Emilsdóttir,
Hildur Einarsdóttir, Sigmundur Hannesson,
Ásdís Hrund Einarsdóttir, Erling K. Nesse
og barnabörn.
um úr hlátri. Og þegar við skrópuð-
um í eðlisfræði til að fara heim að
búa til karamellur. Við upplifðum
margt samn á gelgjuárunum, en
fórum svo að þroskast hvor í sina
áttina.
Ég byijaði að vera með strák og
fluttist út á land og síðan til Dan-
merkur. En það breytti engu um
það að alltaf þegar við hittumst
voru öskur, læti og faðmlög. Síðast
þegar við hittumst var á Gauki á
Stöng þegar ég kom hingað til lands
um jólin. Þá dróstu mig upp að
dansa og við töluðum um að við
yrðum að hittast bráðlega, en ekk-
ert varð úr því og ég fór út aftur.
Daginn sem hún dó hafði ég
ákveðið að heimsækja hana því ég
hafði frétt að hún væri að fara til
Spánar að vinna á mánudeginum,
en þá var hringt í mig og mér færð-
ar þessar sorgarfréttir: Sara var
dáin.
Það er svo erfitt að meðtaka
það. Erfitt að sætta sig við það.
Elsku Sara, ég vildi óska að ég
gæti hitt þig einu sinni enn til að
kveðja þig. En ég veit að við hitt-
umst aftur seinna þegar ég kem til
þín.
Bless, elsku vinkona, haltu
vemdarhendi yfir fjölskyldu þinni
og ástvinum og vemdaðu þau í
þessari miklu sorg.
Elsku Kristinn, Kristín, Marta
og Fróði, Guð standi með ykkur og
gefí ykkur allan sinn styrk í þessum
mikla missi.
Sigrún Ósk.
Elsku Sara. Nú ert þú horfin úr
okkar heimi. Við stöndum uppi með
söknuð og trega, en samtímis þakk-
læti og gleði yfír að hafa fengið
að kynnast þér og deila með þér
eftirminnilegum og góðum stund-
um. Við minnumst fallega brossins
þíns og hlýju, sem við vomm svo
heppnar að fá að njóta.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess
sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.)
Við vottum vinum og ættingjum
okkar dýpstu samúð á þessum erf-
iðu tímum.
Halldóra Björkj Hildur,
Petra og Bára Ósk.
Elsku Sara. Ég minnist þess dags
er ég hitti þig fyrst. Þú varst nýbytj-
uð á sama vinnustað og ég og upp
frá því hófst vinátta okkar. Strák-
arnir vom alltaf að tala um nýju
stelpuna, hvað *hún væri sæt og
skemmtileg. Ekki leið á löngu þar
til þeir voru farnir að senda þér
blóm og semja ijóð um þig. Það
voru ófá skiptin þar sem þú komst
með mér í heimsókn til vina minna
og þá var alltaf spurt hver þessi
vinkona mín væri og hvort sá hinn
sami gæti fengið símanúmerið hjá
henni.
Þú heillaðir alla upp úr skónum.
Þú varst alltaf brosandi og mjög
lífsglöð. Faðmlög og kossa fékk
maður í hvert skipti sem maður
hitti þig. Þetta er allt saman svo
skrýtið. Hugsunin um það að hvorki
sjá þig né heyra frá þér í þessu lífi
er óbærileg.
Ég held ég hafi aldrei sagt þér
hversu mikið mér þykir vænt um
þig-
Elsku Sara, ég á eftir að sakna
þín meira en orð fá lýst en þú átt
alltaf hlut í mínu hjarta.
Elsku Stína, Kristinn, Marta og
Fróði, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð í þessari miklu sorg. Megi
Guð vera með ykkur.
Eva Hlín.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.