Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 35
SIGRIÐUR KOL-
BEINSDÓTTIR
+ Sigríður Kristín Kolbeins-
dóttir fæddist í Æðey við
ísafjarðartyúp hinn 10. ágúst
1900. Hún lést á Dvalarheimil-
inu Vinahlíð í Reykjavík hinn
20. maí síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Fossvogs-
kirkju 30. mai.
Elsti einstaklingurinn í okkar
samfélagi er nú látinn. í gegnum
tíðina höfum við ætíð litið upp til
Sigríðar, bæði vegna þess að hún
var elst í samfélagi heyrnarlausra
og naut einnig mikillar sérstöðu
þar. Sérstaða hennar fólst í því að
í fjölskyldu hennar eru margir
heyrnarlausir, sem er einstakt hér
á landi. Heyrnarlausir, þar á meðal
ég, litum til hennar með aðdáun.
Fyrir nokkrum árum síðan fór
ég á alþjóðlega ráðstefnu á vegum
„World Confederation of the Deaf“.
Þar hitti ég Svía sem er fyrrver-
andi forseti alþjóðlega sambands-
ins. Hann sagði mér sögu frá því
þegar hann kom til íslands í ársbyrj-
un 1950. Hann sigldi frá Svíþjóð
áleiðis til Bandaríkjanna með við-
komu hér á íslandi. Þegar hann var
kominn til landsins fór hann að leita
að Félagi heyrnarlausra, en komst
að því að á þessum tíma var ekkert
slíkt starfandi hérlendis. Hann fór
því í Heymleysingjaskólann og hitti
þar þáverandi skólastjóra, Brand
Jónsson. Hann spurði Brand hvar
hann gæti hitt heyrnarlausa og
Brandur fylgdi honum heim til Sig-
ríðar. Þá höfðu heyrnarlausir þann
háttinn á að safnast saman heima
hjá henni. Þar var því starfrækt
einskonar Félag heyrnarlausra.
Hann mundi mjög vel eftir þessum
aðstæðum þar sem heyrnarlausir
sátu og spjölluðu saman og sagði
að þetta væri svipað í mörgum
Evrópulöndum þar sem ekki væru
starfrækt Félög heyrnarlausra.
Þessar aðstæður voru mikilvægur
grunnur að Félagi heyrnarlausra,
en þeim fylgdi jafnframt mikið álag
á fjölskyldu og heimili gestgjaf-
anna.
Heyrnarlausir voru ávallt vel-
komnir inn á heimili Sigríðar og
eiginmanns hennar. Þetta var afar
mikilvægt fyrir menningu heyrnar-
lausra, jafnframt því að vera hluti
af uppbyggingu og aðdrangandi að
stofnun Félags heyrnarlausra.
Félag heyrnarlausra vill koma á
framfæri þakklæti til Sigríðar fyrir
stuðning hennar við félagið, því í
gegnum árin sýndi hún starfsem-
inni áhuga.
Ég vil votta fjölskyldu hennar
samúð mina fyrir hönd Félags
heyrnarlausra.
Berglind Stefánsdóttir, for-
maður Félags heyrnarlausra.
+ Karl Finnboga-
son var fæddur
í Skarfanesi á Landi
árið 1917. Hann lést
21. janúar síðastlið-
inn. Hann var sonur
Elísabetar Þórðar-
dóttur og Finnboga
Höskuldssonar.
Hann var yngstur
tíu systkina.
Ungur að aldri
kvæntist Karl Svan-
fríði Guðjónsdóttur,
f. 2.11. 1921, og
eignuðust þau þrjú
börn: Elísabetu, f.
21.5. 1940, búsett í
Bandaríkjunum, Steinar, f. 26.1.
1942, d. 10.9.1989, og Jón Pálma
f. 16.3. 1944. Astkær seinni eig-
inkona Karls hét Guðríður
Gestsdóttir f. 18.2. 1918, d. 1.8.
1979, þau eignuðust eina dóttur,
Laufeyju, f. 22.5. 1962.
Útför Karls fór fram frá
Kópavogskirkju 27. janúar.
Afi minn, Karl Finnbogason, lést
í janúar síðastliðnum á nítugasta
aldursári. Afi ólst upp í Skarfanesi
á Landi í torfbæ. Man
ég svo vel eftir að hann
minntist á kuldann í
bænum á veturná og
að hann hafi fengið
fótabólgu af kulda.
Þessar hugsanir
streyma að, því afi var
alltaf með svo gott
minni og sífellt að
minna mann á gæðin
sem við höfum í dag
og hvað ungt fólk hef-
ur mikið frelsi. Þá átti
hann líka við menntun-
ina sem ungu fólki
stendur til boða, en
þegar afi var ungur var skóla-
ganga nær engin og lærðu systkin-
in að lesa hjá móður en faðirinn
kenndi börnunum reikning.
Hann afi hugðist fara í Iðnskól-
ann í Reykjavík á árunum rétt
fyrir stríð að læra til málara, en
þá þurfti samþykki iðnráðs. Þeir
ákváðu hvað margir nemendur
væru teknir inn. Þá var iðnaðar-
stétt orðin til í Reykjavík, sem
gætti hagsmuna sinna og alls ekki
mátti verða offramboð á málurum;
ég man hann sagði að kapítalism-
inn hafi verið grimmur í þá daga.
Afi lærði nú samt til málara að
lokum og starfaði við það fyrri
hluta ævi sinnar, en seinni árin sem
bifreiðastjóri.
Afi var farinn út í hinn stóra
heim að ferðast óvenju ungur - en
í þá daga fóru bara námsmenn
utan - og meðan hann hafði heilsu
hélt hann ótrauður út á vit ferða-
laganna og voru þau oftast umtals-
efnið; opnaði hann landabréfabók-
ina í tíma og ótíma. Það vildi svo
til að við vorum mikið búin að ferð-
ast á sömu slóðunum og gátum
talað í margar klukkustundir,
þrætt göturnar í París í huganum,
sagt sögur til skiptis og Iátið okk-
ur dreyma.
Það var gott að leita til hans
afa eftir fróðleik og útskýringum,
hann var alltaf svo vel upplýstur
um alla skapaða hluti og þakka
ég vel fyrir leiðsögnina og hjálpina
við fyrstu ritgerðina mína í Iðnskó-
lanum um lífskjör kynslóða og fyr-
ir að hafa fengið að kynnst honum
svo náið.
Ég á eftir að sakna þín, elsku
afi, mér finnst ég hafa misst svo
góðan vin. Megi Guð geyma þig.
Hrafnhildur Steinarsdóttir.
KARL
FINNBOGASON
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Símí 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - eínmg um helgar.
Skrcytingar íyrir öll tílefm.
RAGNAR
SKARPHÉÐINN
JÓHANNSSON
+ Ragnar Skarphéðinn Jó-
hannsson fæddist í Reykja-
vík 2. október 1993. Hann lést
af slysförum á Barðaströnd 20.
maí síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Brjánslækjar-
kirkju 28. maí.
Það er þriðjudagur 20. maí, sól-
in skín, ilmur gróðursins sem er
að vakna eftir vetrarsvefn fyllir
vitin, fuglarnir flögra syngjandi
allt um kring uppteknir við að búa
í haginn fyrir ungana sína sem
senn líta dagsins ljós. Fullkomið
jafnvægi og friður er yfir öllu. En
í einu vetfangi breytist allt. Fugl-
arnir hætta söng sínum og sólin
missir birtu sína, öll veröldin verð-
ur grá. Lítill drengur hefur verið
kallaður burt úr þessari jarðvist í
hörmulegu bílslysi. Það er erfitt
að lýsa því hvað gerist innra með
manni við slíka helfregn. Tryllt
reiði, sorg, vanmáttarkennd og
sársauki fyllir mann og um stund
missir maður fótfestuna. Ragnar
Skarphéðinn var einstaklega fall-
egur drengur og vel af Guði gerð-
ur, bjartur, hreinn og einstaklega
vel gefin og þroskaður, sannkallað-
ur sólargeisli hvar sem hann fór.
Hann ólst upp við mikið ástríki
foreldra sinna ásamt bróður slnum
Markúsi. Greiðan aðgang átti hann
að ömmu sinni og afa og það leyndi
sér ekki að þar fór stolt þeirra.
Ragnar Skarphéðinn var kominn
af stórbrotnu, sterku og heil-
steyptu fólki, fólki sem ekki brotn-
ar þótt á það blási, fólki sem hefur
alltaf pláss og tíma fyrir aðra. Það
að hafa alist upp við göfug gildi,
ásamt því að hafa fengið í vöggug-
jöf einstakan persónuleika þá var
maður sannfærður um að við þenn-
an litla dreng mátti binda miklar
vonir er fram liðu tímar. Ragnars
Skarphéðins verður sárt saknað.
Elsku Hadda, Jói og Markús,
Ragnar, Rósa og föðurafi og amma
ásamt öllum ástvinum Ragnars
litla, í hönd fara erfiðir tímar, tímar
saknaðar og sorgar. Hvaða þrek
þarf til að ganga þau spor skilur
enginn nema sá sem hefur gengið
þau og svo Guð almáttugur. Við
biðjum Hann um styrk ykkur til
handa. Um tíma eruð þið aðskilin
frá litla drengnum ykkar en ekki
um eilífð. Að leiðarlokum fáið þið
aftur að vefja örmum yndislegan
son, bróður og ástvin. Én þangað
til mun minningin um lítinn sólar-
geisla ylja og verma öll ykkar spor
þar til þið hittist á ný. Þangað til
mun góður Guð geyma hann ör-
uggan og sælan í faðmi sínum.
Guð geymi ykkur öll og styrki.
Fjöískyldan í
Stóra-Krossholti.
! sumarnámskeið ffyrir börn 9-11 ára
Námskeiðin eru eetluð 9-11 ára bömum JL
og byggjast upp á fraðslu um starfsemi
Rauða krossins, vettvangsferðum, útiveru og leikjum.
i
I
I
B
I
I
I
I
Hvert námskeið stendur ífimm virka daga frá kl. 9:00-16:00.
► 9.-13. júní
► 16.-21. júní
► 23.-27. júní
► 30.júní-4. júlí
► 7.-11. júlí
* 14.-18. júlí
Reykjavík, Þverholti 15.
Kópavogur, Snælandsskóli.
Garðabær, Garðaflöt 16-18.
Hafnarfjörður, Bæjarhrauni 2.
Bessastaðahreppur.
Reykjavík, Þverholt 15.
Námskeiðsgjald er 5000 kr.
Upplýsingar á skrifitoju URKÍ
alla virka daga í stma 552 2230.
Ungmennahreyfing Rauða kross íslands
<
—
- kjarni málsins!