Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 41
BREF TIL BLAÐSIIMS
„Sem aldrei gleymist,
meðan lífs ég er“
Sigurður
V. Demetz
Frá Sigurði Demetz:
EKKERT er eins stórkostlegt og
íslenska vorið, það er ekki bara að
gróðurinn vaknar og dagurinn leng-
ist heldur er það líka uppskerutími
tónlistarfólks eftir annasaman vet-
ur. Þetta sést best á óendanlegu
framboði tónleika
allt frá nemendum
upp í heimsfræga
listamenn svo að
oft stendur maður
alveg ruglaður og
getur ekki valið á
miili. Af þessum
ástæðum og öðr-
um gat ég því mið-
ur ekki mætt á
alla þá tónleika
sem mig langaði til að hlusta á en
þeir siðustu voru einstaklega vel
heppnaðir tónleikar Hönnu Dóru
Sturludóttur og Jónasar Ingimund-
arsonar 11. maí í Gerðarsafni. Jón-
asi getum við verið sérstaklega
þakklát fyrir allt sem hann hefur
gert fyrir íslenskt tónlistarlíf á
starfsferli sínum en það vita von-
andi allir landsmenn. Hann hefur
hvatt og hjálpað mörgum söngvur-
um sem nú eru orðnir þekktir lista-
menn.
Hanna Dóra er ein af þeim sem
fengið hafa tækifæri til að sýna
hvað í þeim býr og þann glæsilega
árangur sem þeir hafa náð með
námi sínu, enda hefur hún hlotið
góða gagnrýni í þýskum dagblöðum
eins og t.d. Berliner Zeitung. Hrifn-
ing og gleði áheyrenda á þessum
Ekki staðið
við loforðið
Frá Guðvarði Jónssyni:
HELDUR fínnst mér ríkisstjómin
hafa farið faglega framhjá gefnu
loforði um að lífeyrir ellilífeyrisþega
og öryrkja skyldi hækka í samræmi
við hækkun taxta lægstu launa.
Eins og ríkisstjóminni er kunnugt
hækkuðu taxtar fýrir neðan 70 þús.
ekki um 4% heldur vom gerðar á
þeim taxta tilfærslur sem skiluðu
12-13% hækkun og allt upp í yfír
20%. En samt komust þessir laun-
þegar ekki upp í 70 þús. kr. mark-
ið. Þessi aðferð var notuð vegna
þess að prósentuhækkun skilaði
þessu fólki of stutt áleiðis að 70
þús. kr. markinu. Þetta vissi ríkis-
stjómin, þess vegna er hækkun á
elli- og örorkulífeyri um 4% óheiðar-
leg. Ef ætti að hækka lífeyri sem
nú er 45 þús. á mánuði upp í 65
þús. yrði að hækka 45 þús. kr. um
50%, af þessu geta menn séð hvað
4% hækkun yfír heildina er fáránleg.
Alþingismenn sem sitja í ríkis-
stjórn og einnig þeir sem setið hafa
í ríkisstjórn á undanförnum áratug-
um, hefðu mátt gera sér það ljóst
að sú þjónusta við atvinnurekendur,
að þróa launakerfið niður fýrir
framfærslu eins og nú er orðið,
myndi leiða til þess að þegar ekki
væri hægt að komast neðar þá
þyrfti að taka allverulegt stökk upp
á við, sem gæti reynst erfítt fyrir
bæði ríkisvaídið og atvinnurekstur-
inn. Til þess að leysa þetta mál
þurfa allir alþingismenn að samein-
ast um að leysa málið, og atvinnu-
rekendur þurfa einnig að gera sér
það Ijóst að þeir reka sinn atvinnu-
rekstur i íslensku þjóðfélagi með
aðstöðu frá þjóðfélaginu og hafa
því skyldur við þjóðfélagið. Þeir
þurfa einnig að átta sig á því að
launþegar eru ekki bara að þjón-
usta atvinnurekendur þegar þeir
vinna fyrir þá, heldur er launþeginn
að vinna fyrir sér og sínum og einn-
ig til þess að geta greitt sitt til
uppbyggingar þess velferðarkerfis
sem við viljum lifa í.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
tónleikum segja mér að hún hafí
unnið hug þeirra og hjörtu að fullu
en ég hefí alltaf sagt að þegar við-
tökur eru slíkar er veganestið frá-
bært og ekkert annað. Auðvitað er
hún að byija feril sinn og leiðin á
toppinn er Iöng en ég er viss um
að þangað kemst hún. Minningu
minni um þessa tónleika verður
best lýst með síðustu setningu text:
ans í lagi Karls O. Runólfssonar „í
fjarlægð“, „sem aldrei gleymist,
meðan lífs ég er“.
SIGURÐUR V. DEMETZ,
söngkennari.
Nýjir bátarafgeymar
TUDOR hefur hannað nýja línu bátarafgeyma
sem hafa ýmsa kosti yfir eldri gerðir
• Lokaöar sellur - mega halla 90°
• Eitt útöndunarop - má tengja slöngu
• Fljótari aö hlaðast upp en aðrar gerðir
• Meiri startkraftur en fyrr
• Margfalt hristingsþol miðað við aðra
• Ein gerð bæði fyrir start og neyslu
msmm
BÍLDSHÖFÐA12 • 112 REYKJAVÍK
SlMI 577 1516 • FAX 577 1517