Morgunblaðið - 05.07.1997, Side 14
14 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Landsþingsfulltrúar frá Svíþjóð gróðursetja tré við Sjúkrahús Suðurlands
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SÆNSKIR landsþingsfulltrúar voru duglegir við gróðursetningu í Gestaskógi við Sjúkrahús Suðurlands
Selfossi - 25 fulltrúar frá landsþingum í Sví-
þjóð heimsóttu Sjúkrahús Suðurlands og
gróðursettu þeir tré í Gestaskógi sjúkrahúss-
ins. Gestaskógur er í umsjón starfsmanna
Sjúkrahúss Suðurlands og er fyrirhugað að
þeir gestir sem koma í opinberar heimsóknir
á sjúkrahúsið gróðursetji tré í þessum tilvon-
andi skógi.
Fulltrúarnir 25 frá Svíþjóð voru þeir fyrstu
til þess að gróðursetja í skóginum og settu
Gestaskógur
verðurað
veruleika
þeir niður 25 bjarkir. Að sögn Bjarna Arth-
úrssonar er hér um mjög skemmtilegt fram-
tak að ræða og var hann ánægður með hversu
gaman frændur okkar Svíarnir höfðu af
verkinu.
Fulltrúarnir frá Svíþjóð eru frá svonefnd-
um landsþingum í Svíþjóð sem eru eigin
stjórnkerfi einstakra héraða eða léna og
vinnur hvert landsþing að sameiginlegum
málum innan héraðs.
Sláttur haf-
inn í V-Hún
Hvammstanga - Sláttur hófst í vik-
unni á nokkrum bæjum á innanverðu
Vatnsnesi og í Hrútafirði. Að sögn
Gunnars Þórarinssonar, ráðunauts
Búnaðarsambands Vestur-Húna-
vatnssýslu, má búast við að sláttur
hefjist að marki næstu viku. Hins
vegar er spretta misjöfn og veldur
þar afar kaldur seinnihluti maí og
mestallur júnímánuður. Þar sem
gróður kom seint í úthaga urðu
bændur að hafa sauðfé á túnum
lengur en venja er. Kalskemmdir eru
sem betur fer óverulegar í héraðinu.
Segja má að gróður sé 2-3 vikum
seinni á ferð en í meðalári.
Nú líður að upprekstri sauðfjár á
vesturhúnvetnsk heiðarlönd. Gróð-
urfar á heiðum var skoðað á síðustu
dögum og var mat manna a_ð leyfa
mætti upprekstur í vikunni. í reynd
keyra flestir bændur allt fé að heið-
argirðingum en rekstrarnir löngu
aflagðir nema frá innstu bæjum í
Víðidal. Laxeiði er dræm í Miðfirði
og í Víðidal og virðist sem lítill lax
hafi gengið í ámar í júnímánuði.
Hins vegar hefur nú hlýnað og úr-
felli aukist. Má því búast við auknu
lífi í og við ámar.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
GESTIR og heimamenn að koma úr grillveislu í Hellisfirði.
Vinabæja-
mót í Nes-
kaupstað
Neskaupstað - Nýlega heimsóttu
Neskaupstað fulltrúar frá vinabæj-
um Neskaupstaðar á Norðurlönd-
um. Gestirnir sem voru um 50
komu frá Eskilstuna í Svíþjóð,
Stavanger í Noregi, Esbjerg í Dan-
mörku og Jyváskylá í Finnlandi.
Fulltrúarnir dvöldu hér í þrjá
daga og réðu ráðum sínum með
heimamönnum og gerðu sér ýmis-
legt til skemmtunar. Veðri, sem
verið hefur frekar leiðinlegt hér
það sem af er sumri, brá til hins
betra meðan á heimsókninni stóð
og sýndi sínar bestu hliðar og voru
gestirnir, sem fæstir hafa komið
til íslands áður, mjög ánægðir með
dvölina.
Svona vinabæjamót eru haldin
annað hvert ár til skiptis í bæjun-
um.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
HLUTI aðstandenda og dagskrárgerðarmanna Útvarps Suðurlands
samankominn í útsendingarherbergi stöðvarinnar.
Útvarp Suðurland sendir út í sumar
Selfossi - Útvarp Suðurland hóf
útsendingar þann 26. júní síðastlið-
inn og er ætlunin að senda út til
15. júlí næstkomandi. Útvarpað er
allan sólarhringinn og hefur mikil
vinna verið lögð í vandaða dag-
skrárgerð frá morgni til kvölds.
Efni dagsins er síðan endurtekið
um nóttina.
Það er auglýsingastofan “ís-
lenskir erum vér“ sem stendur að
rekstri útvarpsins ásamt nokkrum
samstarfsaðilum. Að sögn aðstand-
enda þá er tilgangurinn með rekstr-
inum að auka á þjónustu við ferða-
menn, sem eru fjölmargir á Suður-
landi á þessum tíma. Útvarpið er
mjög ferðavænt og er uppistaða
efnisins ætluð ferðamönnum sem
leið eiga í gegnum útsendingar-
svæði stöðvarinnar.
Útvarp Suðurland er sent út á
tíðninni fm 105,1 Útsendingar út-
varps Suðurlands má heyra á Sel-
fossi, Hveragerði, Þorlákshöfn,
Eyrarbakka, Stokkseyri og í næstu
nágrannasveitum.
Guðnabakarí á Selfossi 25 ára
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
GUÐNI Andreasen og Björg Óskarsdóttir, kona hans, fyrir utan
Guðnabakarí ásamt tveimur afgreiðslustúlkum úr bakaríinu.
Bæjarbúum boðið
upp á 1000 manna
afmælistertu
Selfossi - Guðnabakarí á Selfossi
heldur upp á 25 ára afmæli sitt um
þessar mundir.
Guðni Andreasen bakarameistari
og kona hans Björg Óskarsdóttir
hófu starfsemi bakarísins 1. júlí
1972 í 50 fermetra húsnæði en eru
núna í stóru húsi við Austurveg á
Selfossi og er starfsemin þar orðin
mjög umfangsmikil. Frain til 5. júlí
verða ýmis tilboð í gangi á fram-
leiðsluvörum úr bakaríinu þar á
meðal litlar afmælistertur. Laugar-
daginn 5. júlí verður Selfyssingum
boðið til afmælisveislu við Guðna-
bakarí klukkan 13-16 svo lengi sem
afmælistertan endist.
Afmælistertan er hönnuð af Jóni
Rúnari, Íslandsmeistara í tertu-
skreytingu, og er hugsuð fyrir 1000
manns. Þegar fyrirtækið varð 10 ára
komu 700 manns í afmælistertuna
og Guðni Andreasen bakari býst við
góðum hópi á laugardag.
Brauðbyltingin eftirminnileg
Guðni segir mun meiri samkeppni
í dag en á fyrstu árum bakarísins
og meiri harka í samkeppninni. Hins
vegar segir hann brauðbyltinguna
það eftirminnilegasta og stórkost-
legasta sem gerðist á þessum árum
þegar menn voru að bijótast undan
vísitölubrauðunum. Þá jókst neysla
fólks á brauðum til mikilla muna
enda kominn kostur sem fólkið kunni
að meta.
„Það er stórkostlegt umhverfi á
Selfossi fyrir svona fyrirtæki. Hér
er jöfn og góð vinna hjá fólki og
mikið af ferðafólki sem kemur hér
við og svo draga skólarnir að mikið
fólk og allir þurfa sitt daglega brauð.
Það er gott fólk sem byggir þetta
svæði," sagði Guðni Andreasen bak-
arameistari á Selfossi í afmælis-
skapi.
Guðni er þekktur fyrir dijúgan
stuðning við íþróttafólk og köku-
veislur hans á Landsmótum ung-
mennafélaganna eftirminnilegar
mörgum Skarphéðinsmönnum af
Suðurlandi sem fagnað hafa sigri á
Landsmótum og margir bílar fóru
hlaðnir brauði og kökum frá Sel-
fossi á Landsmótið í Borgarnesi.