Morgunblaðið - 05.07.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ viKi m fl LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 23
-- - -
J
IlitJU 111L
F
segja að túbubox sé ömissanai í
vopnabúri veiðimanna. Hitstúban er
einnig nýjung, er varð til á tann-
læknastofu hjá Bretanum Tony Se-
are fyrir 5-6 árum. Hann hafði hits-
að mikið á Langá, en var óánægður
með hve marga fiska hann missti á
litlar flugur með hitshnútnum. Þá
datt honum í hug það snjallræði að
bora gat á plastlegginn í léttri túbu
og stinga girninu inn um gatið og út
um endann. Þríkrækjan
var síðan hnýtt á og þegar
túbunni er kastað stendur
örlítill hluti hennar upp og
myndar gáruna og þar
með hitsið.
*rá því að ég byrjaði
•að nota hitstúbur
man ég ekki eftir að
hafa misst á hana lax.
Hins vegar hef ég misst
æði marga á hitsflugu og
á sl. ári setti Ragnheiður. _______
Sara, konan mín, í fimm
laxa í beit á Eyrinni í Norðurá á
hitsaða Langá Fancy nr. 12 og
missti þá alla. Henni var til allra
hamingju alveg sama, því hún var
búin að fá fimm tökur á klukkutíma
og lét sér það nægja. Hætt er við að
ekki hefðu allir tekið þessu svona
vel, eða spurt hvers vegna ég setti
ekki hitstúbu á hjá henni, bara hjá
mér.
Sumir segja að túbutíminn sé
aðallega á vorin og haustin. Þetta er
alrangt, því ég hef heyrt um all-
marga veiðimenn, sem eingöngu
veiða á túbur. Menn haga einfald-
lega vali á stærð og lit eftir vatns-
ástandinu. Þegar komið er fram á
sumar og árnar orðnar vatnslitlar
minnka menn flugurnar og svo öfugt
er þær eru í leysingum eða flóðum.
Eg upplifði það á Stokkhylsbrotinu í
Norðurá um daginn hve stærð flug-
unnar er mikilvæg. þetta var að
morgni 9. júní í iok NA-hretsins. Við
Magnús E. Kristjánsson vorum að
veiða saman og höfðum verið að
kasta túbum á sökkvandi línuenda
Túbu-
veiði á
sér
ianga
sögu hér
á landi
vongóðir. Þá allt í einu kom þetta
töfraaugnablik, og datt á dúnalogn.
Spegill á hylnum varpaði til okkar
ægimynd hamranna á austurbakk-
anum og sólin vermdi kalda vanga.
Eg brast á fætur, upp í hlíðina til að
skyggna og viti menn, á hvítu skell-
unum bókstaflega við fæturnar á
okkur lágu 6 laxar, þar af 5 fullorðn-
ir. Eg leiðbeindi Magnúsi með
köstin og illu heilli héld-
um við áfram áfram með
túbuna, því að um leið og
hún féll í vatnið 2-3 metr-
um ofan og utan við 3 laxa
í hóp, var eins og
sprengju hefði verið varp-
að og þeir hurfu í sömu
andrá. Án þess að hægt sé
að fullyrða það, hefði nett
fluga eða túba á flotlínu
verið vænlegri til árang-
urs. Um þetta leyti tók
Gísli Vilhjálmsson tann-
læknir einmitt tvo laxa á flugu í
Myrkhylnum, rétt fyrir ofan okkur.
ér hefur í þessum grein-
um orðið dálítið tíðrætt
um Snældu, sem Grímur
Jónsson járn- og þúsundþjalasmið-
ur hannaði. Þetta er líklega
merkasta og veiðnasta nýjungin í
túbuveiðum frá því Geir Birgir
smíðaði Þingeying. Nafnið Snælda
segir sitt því hún er hnýtt í svolitl-
um snúningi og fer á einhvern hátt í
vatni þannig að það ertir fiskinn til
dúndurtöku, algerar neglingar.
Þannig negldi veiðihópur Bjarna í
Brauðbæ 40 laxa á Snældu á Fjall-
inu í Langá 23.-26. ágúst í fyrra á
þrjár stangir af 60 laxa veiði og alls
gaf hún um 60 laxa til viðbótar til
vertíðarloka. Þá veit ég að Snældan
hefur gefið vel í vorveiðinni í ár og
á áreiðanlega eftir að verða jafn
ómissandi í flugboxum og Frances.
En að túbuveiði sé eitthvað sem
hægt er að kalla maðkaveiði flugu-
mannsins er álíka viturlegt og segja
jörðina flata.
ivn^inu
IVI
MEÐ merku leikjum síðasta
árs var hrannvígahátíðin Qu-
ake. Flestir þekkja skotleik-
ina sem fylgt hafa í kjölfarið
á Wolfenstein, sælla minn-
inga, en Quake var hápunkt-
urinn.Þrátt fyrir frábæra
grafík, yfirburða hljóðrás og
skemmtilega útfærslu urðu
þeir allra kröfuhörðustu fyrir
vonbrigðum með Quake,
þótti leikurinn ekki það risa-
skref inn í framtíðina sem
vænst var. Það sem gerst
hefur eftir að Quake kom út
hefur aftur á móti rennt stoð-
um undir þá fullyrðingu að
Quake sé með merkustu
leikjum áratugarins, ef ekki
sá merkasti
Flestir muna eflaust eftir
Doom, en í kringum þann
merka leik spratt mikið líf
amatöra sem hönnuðu nýj-
ar drápsbrautir og viðbæt-
ur ýmsar. Þegar Qu-
ake kom á
markað
var bein-
línis boðið
upp á það,
því útgef-
andinn gerði
hverjum sem
er kleift að
þróa eigin
borð, bæta við ófreskjum og vopnum
að vild, með því að nota QuakeC for-
ritunarmálið. Það eina sem þurfti
var grunnkunnátta í forritun, en eft-
ir því sem fram hefur liðið hafa kom-
ið á markað tól sem auðvelda alla
Á síðasta árí
kom út leikurinn
Quake og þótti
ekki síst merki-
legur fyrir að
vekja ógn og
ótta með þeim
sem lék. Arni
Matthíasson
segir Quake
merkasta leik
áratugarins.
slíka iðju til muna.
Þannig er tiltölulega
einfalt að setja saman
borð, til að mynda
byggð á raunveruleg-
um byggingum (sé
fyrir mér borð byggt
á Seðlabankanum) og
hlaða inn á það
ófreskjum úr ýmsum
áttum. Ekki leið á
löngu að komnar
voru á markað við-
bætur með til að
mynda orrustuflugvél
og skriðdreka, ýmis-
leg vopn nýstárleg
eins og eldvörpur,
jarðsprengjur, klasa-
sprengjuvörpur,
eltiflaugar, hunda-
byssu, sem skýtur
lifandi Doberman-
hundum og svo
mætti telja. Sumt
sem Quake-
vinir hafa hannað hefur síðan skilað
sér í opinberar viðbætur við Quake,
en þrjár slíkar að minnsta kosti eru
til.
Af þeim er Qzone síst, enda ekki
gerð með vitund og vilja útgefanda
Quake, reyndar heldur ómerkileg
viðbót með óspennandi viðbótar-
vopnum og ófreskjum. Öllu betri eru
hinar tvær, Scourge of Armagon og
Dissolution of Eternity. í þeirri fyrri
er meðal merkilegra viðbóta Þórs-
hamar sem nota má til að drepa
marga í einu, því þegar honum er
slengt til jarðar lýstur eldingum í all-
ar áttir. Tvær ófreskjur eru nýjar,
önnur illúðlegir púkar sem ræna
vopnum. Öllu verra er að eiga við
brynvarinn risasporðdreka sem
vopnaður er tveimur naglabyssu..
Dissolution of Eternity er líka sitt-
hvað um nýjungar, þar á meðal
plasmabyssa, fjölsprengjuvarpa og -
byssa, svipað þeirri sem getið er, og
hraunnaglabyssa, sem kemur oft í
góðar þarfir. Nýju ófreskjurnar í
Dissolution of Etemity ei-u verri
viðureignar í hinum fyrri leik, þar á
meðal ósýnilegir sverðabaldrar, ban-
vænir hrökkálar, ýmislegir öflugir
hertogar hins illa og loks ógurlegur
ormur sem er ekk heiglum hent að
nema fjörvi.
Vissulega verður Quake þreyt-
andi þegar lengi er leikð, en viðbæt-
ur sem þessar kveikja aftur spenn-
inginn í brjósti þess sem leikur. Vert
er að geta þess að til þess að leika
Scourge of Armagon og Dissolution
of Eternity þarf að vera fyrir á tölv-
unni full útgáfa af Quake. Þeir sem
áhuga hafa á viðbótunum geta síðan
leitað fyrir sér á slóðunum
http://www.stomped.com eða
http://www.quakehole.com eða
ftp.cdrom.com/pub/quake til að
byrja með, en fjölmargar aðrar slóð-
ir eru helgaðar Quake á netinu.
Dorítos snokk
og 0,51 nppelsín
Inndmnn kolngríll
v/i/in frípunktnr
Engjnþykkni
Júmbó-samlokur
Nizza
Ferðabók
Gunna og Felix
fylgir með knssa
af Hi-C
Matvara - sérvara
50 fríkortspunktar
fyrir hverjar 1000 kr.
Shellstöövarnar
/!§f| £msáíi
ÍÁ 9fi "
•tfir "JQJS0'
i ^sgm