Morgunblaðið - 05.07.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1997 37
PALL
ÓLAFSSON
+ Páll Ólafsson
fæddist á Arn-
gerðareyri í Naut-
eyrarhreppi í Norð-
ur-ísafjarðarsýslu
9. nóvember 1911.
Hann lést á dvalar-
heimilinu Seljahlíð í
Reykjavík 15. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Fossvogskirkju 27.
júní.
Föðurbróðir minn
Páll Ólafsson, M.S.,
efnaverkfræðingur, er
látinn, á 86. aldursári. Páll var elst-
ur þeirra bræðra og næstelstur
systkinanna. Foreldrar þeirra voru
Olafur Pálsson, kaupmaður og fram-
kvæmdastjóri á ísafirði, síðar lögg-
iltur endurskoðandi í Reykjavík, 01-
afssonar prests í Vatnsfirði við Djúp
og f.k.h. Asthildur S. Sigurðardóttir,
Guðmundssonar, kaupmanns á
ísafirði. Hún lést fyrir aldur fram
haustið 1919, frá börnum þeirra
ungum, það elsta 10 ára, Páli rétt
átta ára en Árni faðir minn, yngstur
nýfæddur. Af börnum þeirra sjö féll
Sigurður frá fyrir sextugt en hin
hafa öll náð háum aldri. Fjögur
þeirra eru nú fallin frá en eftir
standa Arndís, á 83. aldursári, Theó-
dór og faðir minn, svo og Ásthildur
dóttir Ólafs og síðari konu hans
Helgu Björnsdóttur, öll hátt á átt-
ræðisaldri. Páll hefur líklega hvað
best þeirra systkina kynnst afa
þeirra og ömmu í Vatnsfirði. Hjá
þeim var Páll í sveit mörg sumur
og minntist þeirra með mikilli hlýju.
Þau héldu stórt og fjölmennt heim-
ili, enda Vatnsfjörður þá mjög góð
jörð með umtalsverð hlunnindi, þó
ekki henti þeir kostir búskaparhátt-
um nútímans. Þau voru sr. Páll Ól-
afsson (1850-1928), prestur og pró-
fastur, á Prestbakka í Hrútafirði frá
1880, þá einnig alþingismaður
Strandamanna, og í Vatnsfirði frá
1900 til 1928 og k.h. Arndís Péturs-
dóttir Eggerz (1858-1937). Foreldr-
ar hans voru sr. Ólafur Pálsson
(1814-1876), dómkirkjuprestur í
Reykjavík og síðar á Melstað í Mið-
firði og k.h. Guðrún Ólafsdóttir
Stephensen (1820-1889), sekretera
og jústisráðs í Viðey. Foreldrar
Arndísar voru Pétur Friðriksson
Eggerz (1831-1892), mikill athafna-
og framfaramaður í landbúnaði og
verslun, bjó í Akureyjum og síðar á
Borðeyri þar sem hann stýrði versl-
unarfélagi bænda, Gránufélaginu og
k.h. Jakobína J. S. Pálsdóttir Mel-
steð (1831-1870). Þau sr. Páll og
Arndís eignuðust þrettán börn og
vestra voru afkomendur þeirra
nefndir Vatnsfjarðarættin. Fimm
synir þeirra settust að við Djúp, þar
af tveir í Vatnsfjarðardal og í Þúfum
var hún síðast í skjóli Páls sonar
þeirra sem þar bjó alla tíð.
Páll hefur verið framúrskarandi
námsmaður, því á öllum prófum
hlaut hann fyrstu einkunn. Eftir
skólanám á ísafirði fór hann 1927
í Gagnfræðaskólann á Akureyri og
lauk þar gagnfræðaprófi á 2 árum.
Hugði hann á nám við stærðfræði-
deild MR en hafði ekki tök á því og
lauk stúdentsprófi frá máladeild MA.
Honum varð Sigurður Guðmundsson
skólameistari mjög minnisstæður og
þótti mikils vert um veganesti hans.
Þá las Páll stærðfræðideildarná-
msefni við MR ásamt heimspeki við
Háskóla íslands og lauk prófi að
vori, en hlaut síðan styrk mennta-
málaráðs til fjögurra ára náms við
Hafnarháskóla, sem honum þótti
ávallt mikið hnoss. Hann fór utan
þá um haustið 1933 til náms í stærð-
fræði og eðlisfræði og lauk fyrri
hluta prófi í þeim ásamt efnafræði
og stjarnfræði vorið 1936. Næsta
haust hóf hann, fyrstur manna við
Hafnarháskóla, nám í lífefnafræði
og lauk magisterprófi (mag. scient.)
í þeirri grein ásamt lífrænni og fys-
iskri efnafræði vorið 1940. Páll var
sjö ár við Hafnarháskóla og stund-
aði nám og rannsóknir hjá mörgum
víðfrægum vísinda- og fræðimönn-
um. Meðal námsverk-
efna vegna M.S. prófs-
ins voru vítamín K
rannsóknir hjá dr. H.
Dam sem síðar hlaut
Nobelsverðlaun og
meðal námsefnis eitt
misserið voru fyrirlestr-
ar um „atomfysik" og
þýðingu niðurstaða
þeirrar greinar, sem
fjölluðu um undirstöðu-
þekkingu nútíma nátt-
úruvísinda. Haustið
1940 kom Páll heim um
Petsamo, en árið eftir
hlaut hann námsstyrk
British Council fyrir næsta vetur.
Veturinn 1941-42 var hann svo við
rannsóknir í lífefnafræði í Oxford
við University Museum, Department
of Biochemistry, undir stjórn pró-
fessors R. A. Peters, og um skeið
við rannsóknir í fituefnafræði hjá
prófessor Hilditch í Liverpool. Fáum
árum eftir heimkomuna hóf Páll svo
bréflegt framhaldsnám í efnaverk-
fræði við The Technological Institute
of Great Britain í London og lauk
því.
Meðan Páll stundaði nám á Akur-
eyri vann hann á sumrin í Verslun
Sigurðar Guðmundssonar á ísafirði
sem þá var rekin af föður hans og
móðurbróður, Ólafi Sigurðssyni, og
að hluta ásamt náminu á Akureyri.
Eftir að hann hóf nám í Höfn starf-
aði hann á sumrin á Sigiufirði, m.a.
við byggingu verksmiðju S.R. Sum-
arið 1937 réðst hann til rannsóknar-
stofu S.R. og veitti henni forstöðu
frá 1938. Hann var fastráðinn efna-
verkfræðingur S.R. frá 1942. Þar
starfaði hann á annan áratug að því
sem í dag kallast gæðamál og gæða-
stjórnun, og fór m.a. til Bandaríkj-
anna 1946-47 til að kynnast fiskiðn-
aði og skyldum iðnrekstri þar í landi,
og tók þátt í alþjóðlegum þingum
síldariðnfræðinga sem haldin hafa
verið að tilhlutan F.A.O. og S.Þ.
Árið 1956 flutti Páll suður til
Reykjavíkur með fjölskyldu sína þar
sem hann tók við forstöðu rann-
sóknastofu Lýsis hf. í Reykjavík, en
1966 réðst hann til Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins þar sem hann
starfaði til 1981 að hann lét af starfi
fyrir aldurs sakir. Auk rannsókna-
starfa á Rf var hann jafnframt ráðu-
nautur Lýsis hf. og dótturfyrirtækis
þess Hydrol um gæðamál og vöru-
þróun. Páll hefur skrifað nokkrar
ritgerðir og greinar um þær rann-
sóknir sem hann stundaði og stýrði,
m.a. varðandi mjölframleiðslu og
lýsis- og fituvinnslu, og hafa þær
birst í fagtímaritum s.s. blaði Verk-
fræðingafélags íslands.
Páll var maður hlédrægur og
fékkst ekki mikið til þátttöku í fé-
lagsmálum en reyndist vel liðtækur
þar sem hann fékkst til liðs. Hann
starfaði í Rótaryklúbbi Siglufjarðar
frá 1945 og var forseti hans
1949-50, gekk til liðs við Frímúrara-
regluna árið 1953, en í Reykjavík
tók hann lítinn eða ekki þátt í störf-
um þeirra. Hann fékkst til starfa
fyrir Verkfræðingafélag íslands, var
í stjórn þess um árabil og m.a. vara-
formaður þess um hríð, og starfaði
einnig í stjórn Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga um árabil.
Sumarið 1944 gekk Páll að eiga
Björgu Hólmfríði Björnsdóttur, Jós-
efssonar læknis á Húsavík og sett-
ust þau að á Siglufirði. Börn þeirra
eru Sigríður Ásthildur, f. 19. sept-
ember 1945, og Ólafur, f. 20. mars
1947, bæði búsett í Reykjavík. Eig-
inmaður Ásthildar er Leifur Bene-
diktsson verkfræðingur og eiga þau
þrjár dætur.
Þegar við systkin vorum að vaxa
úr grasi kynntumst við einungis Ól-
afi af föðursystkinum okkar, önnur
bjuggu ekki á ísafirði. Annað föður-
fólk okkar heima var fjölskylda Sig-
urðar Sigurðssonar, kennari
(Súdda), móðurbróður pabba, og
fjölskyldan í Björnshúsi, ættingjar
þeirra. Var samband okkar við fjöl-
skyldu Óla frænda alltaf mikið og
mjög náið. Sumarið 1956 fluttum
við suður og þá tókst strax mikill
samgangur við fjölskyldur hinna
systkina þeirra enda höfðu þau
fylgst vel hvert með öðru þó langt
hafí verið milli þeirra um árabil.
Páli frænda og fjölskyldu hans
kynntist ég fyrst þegar ég í hópi
drengja í knattspyrnufélaginu Herði
á Isafirði kom keppnisferð til Siglu-
fjarðar nokkra daga, líklega sumarið
1955. Ekki kom til mála annað en
að ég gisti heima hjá þeim hjónum
og börnum þeirra og skemmst frá
að segja hafði ég aldrei fyrr notið
slíkrar athygli og velgjörða. Þó fót-
boltinn hafi þá tekið huga manns
allan, er samt svo að þessar góðu
móttökur sitja lengst í minni, ásamt
því að hafa fengið kynnisferð inn á
rannsóknastofu frænda hjá S.R.
Páll frændi var afskaplega ljúfur
maður og hægur, hvers manns hug-
ljúfi. Hann var orðinn aldraður og
hrumur og fær vonandi góða heim-
komu í kærleiksríki föðurins. Hans
er sárt saknað, og þó sárast af ást-
kærri eiginkonu sem lifir eiginmann
sinn í hárri elli. Þau hafa bæði átt
við mikla vanheilsu að stríða á síð-
ari árum og við þær aðstæður er
enn erfiðara en ella að una slíkum
missi. Ég veit að börn þeirra hjóna
taka fráfalli hans af yfirvegun og
væntanlega afastúlkurnar hans líka.
Að leiðarlokum þakka ég honum og
fjölskyidu hans allri góða frændsemi
og hlýju. _
Árni Ragnar Árnason.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
iangafi
SNORRI ÓLAFSSON
fyrrv. yfirlæknír,
sem lést þriðjudaginn 1. júlí, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 9. júlí
kl. 13.30.
Valgerður Björnsdóttir
og fjölskylda.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
hjartkærrar móður okkar,
GUÐRÚNAR DAVÍÐSDÓTTUR,
Gunnlaugsgötu 2,
Borgarnesi,
Sigríður Héðinsdóttir, Hólmfríður Héðinsdóttir,
og fjölskyldur.
t
Ástkær móðir mín og fósturmóðir,
SIGURVEIG BJÖRNSDÓTTIR
frá Völlum,
Hvassaleiti 6,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju mánudaginn 7. júlí kl.13.30.
Rannveig Magnúsdóttir.
Dómhildur Glassford.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR,
Ásólfsstöðum,
Þjórsárdal,
verður jarðsungin frá Stóra-Núpskirkju í dag,
laugardaginn 5. júlí, kl. 14.00.
Margrét Ásólfsdóttir, Þorsteinn Hallgrímsson,
Guðný Ásólfsdóttir,
Sigurður Páll Ásólfsson, Hrafnhildur Jóhannesdóttir,
Gestur Ásólfsson, Þórunn Hjaltadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR HELGASONAR
húsasmíðameistara,
Smáratúni 5,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima,
Selfossi.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Guðmundsdóttir,
Ólöf Guðmundsdóttir, Kristján Gíslason,
Helga Guðrún Guðmundsdóttir, Jón Gunnlaugsson,
Helgi Guðmundsson, Susan A. Faull,
Guðmundur Guðmundsson, Katrín Bjarnadóttir,
Edda Guðmundsdóttir, Karl H. Hillers,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
sambýlismanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
ÞORKELS ÁSMUNDSSONAR
húsasmíðameistara,
Seljahlíð,
Hjailaseli 55,
áður til heimilis á Grettisgötu 84.
Anna Kristinsdóttir,
Guðbjörg Þorkelsdóttir,
Ásmundur Kr. Þorkelsson,
Ellen Þorkelsdóttir,
Kristín E. Þorkelsdóttir,
Helga I. Þorkelsdóttir,
Guðmundur V. Þorkelsson,
Páll Guðjónsson,
Hrafnhildur Kristinsdóttir,
Gunnar B. Kristinsson,
Kristján B. Samúelsson,
Guðmundur H. Haraldsson,
Jóna S. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför, sambýlismanns míns, föður okkar, fóst-
urföður og afa,
EINARSJAKOBS ÓLAFSSONAR
múrarameistara
frá Siglufirði,
Snælandi 3,
Reykjavik.
Helga Sigtryggsdóttir,
Ólafur Óskar Einarsson,
Sigríður Einarsdóttir,
Garðar Einarsson,
Sigurður Stefánsson
og barnabörn.