Morgunblaðið - 05.07.1997, Side 52
52 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Útgönguversið sungið
í Hong Kong
ÞAÐ vekur athygli hve mikillar
hrifningar gætir hjá íslensku fjöl-
miðlunum út af ýmsu niðurlagi
Vesturlanda undanfarna daga að
viðbættri sögulegri upprifjun frá
BBC um Watergate-málið. Ekki
þarf nema áratug til baka til að
sjá, að þá hefði verið tekið nokkuð
öðruvísi á þeim málum, eins og
afhendingu Hong Kong, sem nú
er fagnað með lúðrablæstri og
söng. Kyrrahafslöndin og eyjar
þess eiga að vísu að vera til um-
ráða fyrir þá sem löndin byggja.
En lítið er gert af því að tryggja
viðunandi stjómarfar. Og er þó
hvergi kvartað nema helst út af
Austur-Tímor, sem sætir ekki
meiri nauðgun en fjöldi annarra
smásvæða.
Þegar undirritaður var á ferð
í Kína á fyrra helmingi sjötta tug-
arins, svöruðu menn því aðspurðir
að bæði Hong Kong og Taiwan
(Formosa) væru kínversk en und-
ir stjórn og áhrifum heimsvalda-
sinna. Þessi svæði yrðu bæði tek-
in innan skamms og með hervaldi
ef þau fengjust ekki afhent öðru-
vísi. Nú rúmum fjörutíu árum síð-
ar hefur Hong Kong verið afhent,
og fáar fjaðrir eftir, sem Bretar
geta skreytt sig með. Þetta var
svolítið öðruvísi á dögum Rudy-
ards Kipling og Cecil Rhodes. En
samkvæmt sjónvarpsfréttum á
íslandi ber að samfagna Hong
Kong-búum.
Mikið efamál er að Hong Kong
verði eins blómlegur staður og
hann var vegna þess að kommún-
istar fara heldur á hausinn en
græða peninga eigi þeir á tvennu
völ. Skyrta sem seld er í Florida,
gott ef ekki merkt Christian Dior,
kostar kannski fjörutíu dollara.
Frá þessari skyrtu er gengið í
Hong Kong. Hún er eitt af dæ-
munum um söluvarning á Vestur-
löndum, sem bæði þau og þó sér-
staklega Hong Kong græddu á,
en varla nokkur von til að nýir
landsstjórar leyfi slíkt svínarí.
Skyrtan var saumuð í suðurhluta
SJÓNVARP Á
LAUGARDEGI
Kína og kostaði í Hong Kong þrjá
dollara. Þeim í Hong Kong varð
nefnilega allt að peningum. Nú
er sú tíð liðin.
Stöð 2 hefur verið að sýna
okkur þætti um Watergate-málið,
sem gerðir voru af BBC. Fram-
leiðendur eru virtir á sínu sviði
og maður hefði búist við að kafað
hefði verið dýpra í forsendur og
tíðaranda þeirra daga, sem málið
þróaðist í stjórnkerfinu. í upp-
hafi leit Watergate-málið út eins
og farsi. En það endaði eftir mik-
ið streð með þeirri dauðans al-
vöru, að forseti Bandaríkjanna
varð að víkja. Nokkru áður varð
varaforsetinn að fara vegna þess
vana síns að þiggja mútur. Ger-
ald Ford var þá skipaður varafor-
seti, en um hann sagði Lyndon
B. Johnson, að hann gæti ekki
tuggið tyggigúmmí og gengið
niður stiga samtímis. Þá dytti
hann. Bretum þykir henta að rifja
þessi mál upp. Okkur varð meira
um þegar Tyson beit í eyrun á
Holyfield.
Sannleikurinn er sá að eftir að
Sovétríkin liðu undir lok hefur
vegur sósíalismans vaxið að mun
í Evrópu. Hann þykir góður að
taka við eftir að öðrum hefur
ekki tekist að gera allt fyrir alla.
Stundum hafa átökin milli vinstri
og hægri borið keim af trúar-
bragðastríðum. Þáttur um skæru-
hernað í Ríkissjónvarpinu sýndi
þrjú slík tilfelli. Sýnt var m.a.
hvernig Castro og félagar tóku
Kúbu, en New York Times skrif-
aði vinsamlega um hreyfinguna á
þeim tíma. Seinna vöknuðu
Bandaríkjamenn við andstæðing
á þröskuldinum.
Þeir róttæku gáfu sér ákveðna
formúlu fyrir sigurstranglegum
hernaði. Þeir áttu að vera eins og
fískar í vatni. Þannig þurfti sigur-
stranglegur skæruliði að samlag-
ast þjóðfélaginu og fá það til liðs
við sig. Che Guevara gaf út bækl-
ing um þetta; fór svo í annað land
til að framkvæma kenninguna,
en þá dugði hún ekki. Á þriðju-
dagskvöld var sýnd kvikmynd á
Stöð 2 um eina af hetjum Amer-
íku. Þetta var Geronimo, Indíána-
höfðinginn, sem var margsvikinn
og beittur brögðum. Norðuramer-
ískir Indíánar biðu mikið afhroð
við landnámið og óafsakanlegt,
einnig vísundarnir. Nú eru skóg-
arnir til meðferðar hjá hvítum
ofurmennum.
Indriði G. Þorsteinsson.
Skrítið
umhverfi
SKEMMTILEGA ofhlaðið útlit
er einkenni þeirra mynda sem
Bo Welch kemur nálægt. „Be-
etlejuice", „Edward Scissor-
hands“, „Batman Returns", „The
Birdcage", og „A Little Princess"
eru t.d. myndir þar sem hann
hefur haft umsjón með útliti
umhverfisins. „Sumt fólk segir
að allar myndirnar sem ég vinni
við líti eins út en þetta lið er ein-
faldlega öfundsjúkt," segir
Welch. Hann getur líka látið sér
fátt um finnast um smá gagnrýni
þar sem hann er eftirsóttur út-
litshönnuður. Ef íslenskir bíó-
húsagestir hafa áhuga á að skoða
handbragð Welch geta þeir skellt
sér á „Men in Biack“ en Welch
lagði til hugmyndir að umhverfi
svartklæddu mannanna, Will
Smith og Tommy Lee Jones.
Konungur illmennanna
ANDREAS Deja er sérfræðingur
í ilimennum. Hann er ekki af-
brotafræðingur
heldur teiknari
hjá Walt Disney
fyrirtækinu.
Deja teiknaði
fyrstu útgáfurn-
ar af Gaston í
Fríða og dýrið,
Jafar í Aladdin,
og Skara frænda
í Konungi Ijónanna. Deja ber
samt ekki ábyrgð á konungi und-
irheimanna, Hades, í nýjustu Dis-
neyteiknimyndinni um Herkúles.
Teiknarinn afþakkaði illmennið
í þetta skiptið og fékk að teikna
aðalhetjuna sjálfa.
Þó að upprunalega hugmyndin
að persónu komi frá Deja sér
hann ekki um að teikna hana út
í gegnum allar myndina. „Mér
fyndist yndislegt að fá að teikna
hvert einasta atriði en þá tæki
mörg ár að fullgera myndina,"
segir Deja. í staðinn fyrir halda
á blýantinum sjálfur stýrir hann
hverju striki í hópi teiknara sem
vinna undir hans stjórn. Því þrátt
fyrir að tölvutækni sé nú notuð
við gerð teiknimynda Disney er
undirstaðan alltaf blaðahrúgur
af teikningum.
Deja snýr sér aftur að illmenni
í næstu Disneymyndinni „The
Kingdom of the Sun“. Hann á
að sjá um útlit illrar Inka hof-
gyðju sem vill endurheimta æsku
sína. Söngkonan Eartha Kitt
leggur til röddina fyrir persón-
una.
MYMPBÖIMD
Meðalmennska
Freistingin snýr aftur
(Poison Ivy: The New Seduction)
E g g j a n d i spcnnu-
m y n d
★
FRAMLEIÐANDI: Cinetel. Leik-
stjóri: Kurt Voss. Handritshöfundur:
Karen Kelly. Kvikmyndataka: Feliks
Pamell. Tónlist: Reg Powell. Aðal-
hlutverk: Michael
Des Barres, Megan
Edwards, Greg
Vaughan og Jaime
Pressly. 95 mín.
Bandaríkin. New
Line Home
Video/Myndform
1997. Myndin er
bönnuð bömum
innan 16 ára. Vio-
let er ung kona sem snýr aftur til
fjölskyldunnar sem móðir hennar
vann fyrir þegar hún var bam. Hún
hyggur á hefndir þar sem móðir
hennar var rekin. Það er ósköp lítið
að segja um þessa mynd. Ung stúlka
virðist vera í hefndarhug, en af hveiju
er hins vegar heldur óljóst. Hún not-
ar sér fegurð sína og er ansi slungin
stúlka. Hér reyna lélegir kvikmynda-
gerðarmenn að höfða til meðaláhorf-
andans sem vill kynæsingu, smá of-
beldi, fallegt fólk, slatta af spennu
og illsku. Ur því kemur B-mynd, sem
fólk ætti ekki að eyða tíma sínum
né peningum í að horfa á.
Hildur Loftsdóttir.
Hvorki fugl
né fískur
Svefngenglar
(Sleepers)
Spcnnumynd
★ '/i
Framleiðandi: Propaganda
Films/Baltimore Pictures. Leik-
stjóri og handritahöfundur: Barry
Levinson. Handrit byggt á bók eft-
ir Lorenzo Carcaterra. Kvikmynda-
taka: Michael Ballhaus. Tónlist:
Allan Mason. Aðalhlutverk: Kevin
Bacon, Robert De Niro, Dustin
Hoffman, Brad Pitt, Jason Patrick,
Bruno Kirby, Brad Renfo og Minnie
Driver. 141 mín. Bandaríkin. Pol-
ygram/Háskólabíó 1997. Myndin er
bönnuð börnum innan 16 ára.
FJÓRIR ungir félagar halda sig
meiri menn en þeir í raun eru. Eitt
prakkarastrikið þeirra endar illa,
og lenda þeir á
betrunarheimili.
Þar er þeim mis-
þyrmt andlega og
líkamlega en
þurfa að bíða full-
orðinsáranna til
að hefna sín.
Barry Levinson
virðist vera orðinn
mjög þreyttur,
karlinn. í þessari mynd er ekkert
nýtt né frumlegt að finna. Honum
hefur þó tekist að sanka að sér frá-
bærum leikurum. Af þeim eru það
alls ekki stóru stjömurnar sem
skara fram úr. Robert De Niro leik-
ur prest af ítölskum uppruna (nema
hvað!) sem hefur mikla þýðingu
fyrir þá félaga. Robbi karlinn hefur
oft sýnt okkur þennan leik áður.
Hefði hann vandað sig betur hefði
hann vel getað gert áhugaverðari
persónu úr prestinum en raun bar
vitni. Ron Eldard lék einn vinanna
•fullorðinn, og var hann álitlegastur.
Joe Perrino lék einn þeirra á barns-
aldri og stóð hann sig mjög vel.
Bruno Kirby lék föður hans og
skapaði hann ansi skemmtilega og
miður geðslega föðurímynd. Minnie
Driver er fínasta leikkona á upp-
leið, en hlutverk hennar er ekki
bitastætt, og auk þess óþarft sög-
unni með öllu. Myndin er alltof löng
og væmin í þokkabót. Allt samband
drengjanna við prestinn er ósmekk-
lega gott. Það hefði átt að vera
sterkt og áhrifaríkt, og þá hefði
myndin virkað betur. Með lang-
dregnum og hallærislegum atriðum
lippast þessi vinátta niður í tilfinn-
ingavellu, sem lætur áhorfandann
ósjálfrátt ýta á framspólunartakk-
ann á fjarstýringunni, þessari
elsku. Umfjöllunarefnið hélt ég að
ætti að snúast um misnotkun
barna. Drengirnir eru misnotaðir,
en það er engan veginn tekið á því
máli. Þeir segjast ætla að hefna
sín rækilega og taka kerfið í nefið,
en svo var myndin skyndilega búin.
Hættu þeir við? Alla vegana varð
þessi hefnd að engu. Myndin er
því í rauninni ekki um neitt. Þessi
leikstjóri hefur auk þess engan
myndrænan stíl. I myndinni má
hins vegar sjá áhrif frá öðrum
góðum leikstjórum sem hann hefur
fært sér í nyt. Óspennandi mynd
með klisjum á öllum vígstöðvum.
Auk þess of langdregin til þess að
mæla með henni sem afþreyingu.
Hildur Loftsdóttir.