Morgunblaðið - 19.08.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.08.1997, Blaðsíða 16
16 C ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðid/Amaldur ANNA M. Pétursdóttir og Páll Kristjánsson fyrir framan hús þeirra að Einihlíð 12 í Hafnarfírði. Húsið er steypt upp í einangrunarmótum. Það er 145 ferm. að stærð með 40 ferm. bflskúr, sem er frístandandi. Húsið er á einni hæð en hátt til lofts. Nýjar byggingaraðferðir ryðia sér til rúms Við Einihlíð í Hafnarfirði er rísið hús, sem steypt er upp í einangrunarmótum, fflfs og blikkstoðir eru notaðar í innveggi, rör-í-rör kerfí er fyrir neyzluvatn og hitakerfið er lagt í ^ólfín með plastslöngum. Magnús Sigurðsson kynnti sér húsið. ISLENZK byggingarhefð hefur verið býsna íhaldssöm. Litlar breytingar hafi orðið í bygging- araðferðum á undanfomum ára- tugum. Nokkrar athyglisverðar tilraunir hafa þó verið gerðar með árangri á síðustu árum. Þar má nefna permaformíbúðimar og hús byggð með einangrunarmótum úr plasti. Þessar húsagerðir hafa það sammerkt, að í þeim er einangrun- in flutt út fyrir burðarvirkið. Með því er steypan varin að utan. Þetta skiptir miklu máli í veðurfari eins og okkar. Veðrabrigði em mikil og ör hér á • landi eins og allir þekkja. Um há- vetur getur skollið á rok og rign- ing, þar sem útveggir húsanna rennblotna. Daginn eftir, ef ekki á sama sólarhring, er svo komið hörkufrost. Svo snögg veðrabrigði þolir steypan illa og sennilega má rekja hinar tíðu steypuskemmdir að miklu leyti til þeirra. Að Einihlíð 12 í Hafnarfirði er risið einbýlishús, þar sem notaðar em nýjustu byggingaraðferðir. Húsið er steypt upp í einangrun- armótum, gips og blikkstoðir koma f í stað múrverks á innveggjum, svoköUuð rör-í-rör aðferð er notuð við neyzluvatnslagnir og hitakerfið er lagt í gólfið með plastlögnum. Þama em að verki hjónin Páll Kristjánsson og Anna M. Péturs- dóttir. Sjálfur er Páll vélfræðing- ur, en hann er framkvæmdastjóri og annar eigandi fyrirtækisins * Víking-Hús ehf., sem hefur aðset- ÞESSI mynd er tekin inni f húsinu. Veggimir hafa þá fíngerðu áferð, sem einkennir gifsið. ur að Vagnhöfða 17 í Reykjavík og framleiðir einangmnarmót fyrir hús. Húsið að Einihlíð 12 er hannað af AgU Guðmundssyni arkitekt. Það er 145 ferm. að stærð með 40 ferm. bílskúr, sem er frístandandi. Húsið er á einni hæð en mjög hátt er til lofts, einkum í stofunni, sem MILLIVEGGIRNIR í húsinu eru úr blikkstoðum og gifsplötum. Mynd þessi var tekin, á meðan húsið var ( smfðum. er með stóram gluggum, þannig að birtan á greiða leið inn í eldhús, borðkrók og stofu. I herbergjum má koma fyrir milliioftum vegna hæðarinnar og nota þau fyrir svefnloft, ef viU. Jarðvinna hófst í október í fyrra. Framkvæmdir hafa gengið vel og er Páll þegar fluttur inn ásamt fjölskyldu sinni. Einangrun að utan Einangmnarmótin em þannig gerð, að bæði ytra og innra byrði mótanna era úr einangmnarplasti, en mótin era hlaðin upp úr plast- kubbum, sem em 25 cm á breidd og metri á lengd og raðað upp eins og múrsteinum. Síðan er steypt í mótin með flotsteypu. Mjög auðvelt er að setja mótin upp og hægt að beygja veggina að vUd á tUtölulega héfðbundinn hátt. Ytra og innra byrði mótanna em tengd með tengjum úr harðplasti, sem steypt era inn í bæði byrðin og gefa þannig hverri einingu nægan styrkt til að þola þrýsting- inn frá óharðnari steypu. Jáma- lögnum er svo komið fyrir í mótun- um, áður en steypt er. Mótin em ekki tekin utan af steypunni, heldur verða þau hluti af húsbyggingunni. Húsin em því vel varin að utan. Venjulega em húsin samt múmð á hefðbundin hátt. Sökum þess, að ekki er þörf á sérstakri veðmnarkápu, þarf minni steypu en annars og af því hlýzt talsverður spamaður. Þessi einangrunarmót em framleidd hér á landi, en hugmyndin á bak við þau er upphaflega svissnesk. En einangranin er líka að innan. Því má koma fyrir öllum raflögnum og pípulögnum í henni og þar sem einangmnin er fyrir innan steypt- an vegg, eiga lagnimar ekki að tærast af utanaðkomandi völdum. Annar mikilvægur ávinningur við þessa byggingaraðferð er stuttur byggingartími, en mjög skamman tíma tekur að hlaða hús- in, eftir að sökkullinn er kominn. Þetta dregur að sjálfsögðu úr fjár- magnskostnaði. Vemlegur hita- spamaður fæst líka með þessari byggingaraðferð, en vegna mikils einangmnargildis mótanna þarf minni hita til þess að halda húsun- um hlýjum. Allt í gifsi að innanverðu Notkun einangmnarmótanna hefur aukizt vemlega á undanföm- um ámm og þeim húsum fer ört fjölgandi, sem byggð em með þeim. „Það er stöðugt unnið að endurbótum og nýjungum í notkun einangmnarmótanna,“ segir Páll Kristjánsson. „I húsi mínu við Einihlíð 12 em settar gifsplötur beint á plastmótin inni í húsinu í stað múmingar, en það hefur ekki verið gert áður. Milliveggimir em úr blikkstoðum og gifsplötum. Gifsplötumar em léttar en sterk- ar og hafa þá fíngerðu áferð, sem einkennir gifsið. Plötumar em skrúfaðar beint á veggina og þeir verða því rennisléttir og fallegir. Á eftir þarf aðeins að sparsla þar sem gifsplötumar koma saman. Gifs hefur jafnframt marga aðra kosti. Það er t. d. afar heilnæmt og vistvænt efni, sem skiptir miklu máli í landi eins og okkar, en við Islendingar dveljum meira innan- dyra en flestar aðrar þjóðir vegna loftslagsins. Þá er gifsið mjög hljóðeinangr- andi. Þau hús, þar sem gips er not- að að einhverju marki, em ekki nándar nærri eins hljóðbær og ella. Gifs er jafhframt mjög ódýrt, en fermetrinn af því kostar ekki nema um 500 kr. kominn á vegg. Þetta er því miklu ódýrari aðferð en að múra. Notkun á gifsi hefur því verið að aukast f byggingum hér á landi á undanfömum árum, en víða um lönd hefur gifs lengi verið notað afar mikið bæði í íbúð- arbyggingar og atvinnuhúsnæði. Þar að auki er gifs auðvelt í meðfömm og ömgglega á færi margra að setja það á sjálfir, en gifsplötumar má skera til með góðum hníf. Síðan em þær skrúf- aðar á veggina með sérstökum skrúfum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.