Morgunblaðið - 19.08.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1997 C 17
±
TIL vinstri er rör-í-rör kerfi fyrir neyzluvatn, bæði heitt og kalt. Til
hægri er dreifikista fyrir gólfhitann.
ENGIR ofnar eru í húsinu, en allt hitakerfið er lagt í gólfin líkt og snjó-
bræðsla. Síðan er steypan lögð yfir.
Sú skoðun er býsna útbreidd,
að gifs sé svo viðkvæmt, að illa
gangi að hengja upp málverk,
myndir og skraut á gifsveggi, þar
sem gifsinu hætti til við að
springa. „Með því að nota sérstak-
ar skrúfur, sem eru bæði auðfáan-
legar og handhægar, er hægt að
hengja þung málverk og annað af
því tagi á gifsplöturnar, án þess að
nokkur hætta sé á, að þær
skemmist af þeim sökum,“ segir
Páll.
Engir ofnar
Á undanfornum árum hafa kom-
ið í ljós miklai’ og vaxandi bilanir í
vatnslögnum í húsum hér á landi,
sem í mörgum eða flestum tilfell-
um má rekja til ryðskemmda.
Lagnirnar ryðga í sundur vegna
raka í umhverfinu og fara að leka
og valda þannig vatnstjónfyNærri
lætur, að fimmtándi hver Islend-
ingur lendi í vatnstjóni á hverju ári
og að vatnstjón kosti þjóðfélagið
um einn milljarð kr. árlega.
Því hefur ákaft verið leitað leiða
til þess að koma í veg fyrir vatns-
tjón, þar á meðal með nýjum
lagnaaðferðum. Ein sú helzta er
svokölluð rör-í-rör aðferð. Notuð
eru tvöfóld plaströr. og þau lögð
inn í veggina líkt og rafmagnsrör.
Fyrst er lagt fóðurrör og síðan er
annað rör dregið í gegnum það.
Þetta era því tvö plaströr, annað
inni í hinu. í sjálfu vatnsrörinu er
plastefni, sem hefur meira hita og
þrýstiþol en önnur plastefni.
Ef bilun verður í rör-í-rör kerfi,
þarf ekki að brjóta steypuna upp,
heldur er nýtt plaströr þrætt í
staðinn fyrir það gamla. í húsinu
að Einihlíð 12 era allar vatnslagnir
úr plaströram. Allt neyzluvatns-
kerfið er rör-í-rörkerfi, bæði kalda
og heita vatnið.
Það sem meira er, allt hitakerf-
ið er lagt í gólfin með plaströrum
en engir ofnar era í húsinu. „Kost-
urinn við plaströrin er sá, að þau
ryðga ekki,“ segir Páll. „Hitakerfið
er lagt í gólfið eftir ákveðinni for-
múlu líkt og snjóbræðsla, sem er
mjög auðvelt verk. Síðan er steyp-
an lögð yfir.
Plastslöngumar era lagðar í
slaufu í gólfið inn í hvert herbergi
og til baka aftur. Vatnið inn er um
35 stiga heitt en um 25 stig, þegar
það fer út. Vatnið fyrir gólfhitann
og neyzluvatnið er keyrt í gegnum
varmaskipti, sem auðveldar mjög
stillingu á hitanum og á sérstökum
mæli má sjá, hver nýtingin á vatn-
inu er, en hún er mjög góð. Að
sögn Páls er hún jafnvel 30% betri
með þessari aðferð en með venju-
legri hitalögn. Hvert herbergi hef-
ur sér hitastilli, en hitakerfið og
stýrikerfið era hönnuð af verk-
fræðistofu Stefáns og Björns.
Páll var spurður að því, hvað
gera ætti, ef lögn í gólfi bilaði.
„Það verður engin bilun,“ sagði
hann þá. „Það era hvergi sam-
skeyti og 100 ára ábyrgð er á
slöngunum frá framleiðanda.“
Að sögn Páls er þetta alþekkt
aðferð erlendis t. d. í Danmörku.
„Þetta er ekki með öllu ný aðferð
hér á landi,“ segir hann. „Fyrst
var farið að leggja rörin í forstofur
og baðherbergi og síðan sem
varmagjafa fyi'ir allt húsið að
nokkra leyti, þannig að það var
hitað upp að hluta með ofnum en
að hluta með þessari aðferð. En
þeir era fáir, sem hafa stigið skref-
ið til fulls og nota þetta hitakerfi
alfarið fyrir allt húsið.
Kannski felst tortryggni fólks
gagnvart þessu hitakerfi í því, að
mörgum hættir til þess að bera
það saman við svokallaða geislahit-
un, sem tíðkaðist hér áður fyrr og
fyrirfinnst raunar enn. Þá vora
járnrör lögð í loftin og svo rann
heita vatnið eftir þeim.
í þessu húsi kemur hitinn hins
vegar úr gólfinu. Hann er þægileg-
ur og fyrir neðan líkamshita,
þannig að fólk finnur ekki fyrir
gólfhita.
Húsið hitnar samt vel, því að hit-
inn stígur upp á breiðum fleti, en í
gólfum hússins liggja 800 metrar
af slöngum á 145 fermetra gólf-
fleti.
Marmarasalli að utan
Svokallað stallajám er í þaki húss-
ins, en að utan verður húsið múrað
og settur á það marmarasalli. „Það
er afar vinsæl aðferð nú, segir
Páll. „Marmarasallann er hægt að
blanda í hvaða lit sem er, en það
sem meira skiptir er þó, að á þenn-
an hátt á húsið að verða nær við-
haldsfrítt að utan.“
Páll segir það ekki erfiðara að
hanna hús, sem byggð era með
einangranarmótum, ef vitað er
fyrir fram, að byggja á með þeim.
„Það má hlaða veggi í þessum hús-
um bæði beina og bogna og mjög
auðvelt er að móta boga við hurðir
og glugga, skáskurð á ris, úrtök
undir og yfir glugga, svo að nokk-
uð sé nefnt af því tagi,“ segir hann.
Að sögn Páls er notkun ein-
angranarmótanna stöðugt að
verða útbreiddari. „Húsasmiðjan
tók að sér sölu þeirra og salan hef-
ur stóraukizt," segir hann að lok-
um. „Eins og er, þá önnum við
ekki eftirspuminni. Áður fyrr vora
einangrunarmótin fyrst og fremst
notuð í einbýlishús og raðhús á
einni hæð. Nú er einnig farið að
nota þau í miklum mæli í tveggja
hæða hús og bráðlega verða byggð
tvö fjölbýlishús í Kópavogi með
þessum mótum, annað upp á þrjár
hæðir en hitt verður fimm hæðir.“
4.
LAUFAS
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
SÍMI: 533 * 1111
FAX: 533 *1 115
Magnús Axelsson, fasteignasali.
Opið virka daga
frá kl. 9-18.
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
Föst verðtilboð - leitið
upplýsinga.
2ja herbergja
GRETTISGATA V. 5,5 M.
Lækkað verð. 2ja herbergja 59
fm mikið endurnýjuð íbúð á 2.
hæð í þríbýlishúsi. Parket og
flísar á gólfum. Nýleg eldhúsin-
nrétting. Nýlegt rafmagn. Óin-
nréttað ris yfir allri íbúðinni.
Ekkert greiðslumat.
Möguleiki ð að taka bíl upp í
kaupverðið. Áhvílandi ca 2,6
millj. í hagstæðum lánum.
SAMTENGDSÖLUS^RÁ
ÁSBYRGI LAUFÁS
Ivsteif’fiasiiLi
rma
.«5331115
VÍKURÁS V. 5,6 M Mjög falleg 2ja
herbergja, 58 fm íbúð á þriðju hæð,
með bílastæði í bílastæðahúsi. Suður-
svalir og suðurgluggar með frábæru
útsýni. Falleg Ijós eik og Ijósar flísar á
gólfum. Fallegur Ijós eikarspónn á öll-
um skápum og hurðum. Sameiginlegt
þurrkherbergi og geymsla í sameign á
hæðinni og þvottahús á hæðinni fyrir
neðan. Áhvílandi 1,3 millj. Bygginga-
sjóðslán.
Blikahólar. V. 4,9 m.
Brekkustígur. V. 6,5 m.
Furugrund. Góð lán. V. 5,9 m.
Laugarnesvegur. V. 4,9 m.
3ja herbergja
BARÐAVOGUR V. 8,4 M. Reglulega
góð 80 fm ibúð á aðalhæð í þríbýlis-
húsi . Nýleg eldhúsinnrétting og inni-
hurðir. Nýtt gler og póstar í flestum
gluggum. 30 fm bílskúr fylgir íbúðinni.
Áhvílandi 4,4 millj.
ENGJASEL V. 6,2 M. 77 fm íbúð á
fjórðu hæð með bílastæði í bílastæða-
húsi. Suðursvalir og suðurgluggar
með frábæru útsýni. Þvottahús inni í
íbúðinni. Leyfi fyrir að stækka íbúðina
um 25 fm. Hús og stigahús nýmálað.
Áhvílandi 4,1 millj.
VINDÁS V. 6,9 M. Tæplega 80 fm,
mjög falleg íbúð á þriðju hæð. 2 svefn-
herbergi, eldhús, stofa og bað. Parket á
gólfum. Mikið skápapláss. Bilskýli.
Sameign í sérflokki. Snjóbræðsla í
gangstigum. Glæsilegt útsýni til
sudurs. Áhvilandi 2,2 millj. Hagstæð
lán.
Ásgarður. M/bílskúr. V. 6,6 m.
Seilugrandi. V. 7,6 m.
□
LEIRUBAKKI V. 5,5 M. Falleg og
rúmgóð 2ja herbergja ibúð á 2. hæð
í mjög góðu fjölbýlishúsi. Ibúðin
skiptist i forstofu, rúmgott svefnher-
bergi og stofu með vestursvölum,
eldhús með góðri innréttingu, bað-
herbergi allt nýflísalagt. Húsið að ut-
an í mjög góðu standi, gott leiksvæði
fyrir börn.
VALLARÁS V. 3,7 M. íbúð í failegu
fjölbýlishúsi. Alrými með eldhúsinn-
réttngu, svefnkrókur og baðherbergi.
Vestursvalir með góðu útsýni.
Áhvílandi kr. ca. 1,7 millj. Bygginga-
sjóðslán.
4ra herbergja og stærri
HRAUNBÆR V. 6,8 M. Rúmgóð fjög-
urra herbergja íbúð á góðum stað í Ár-
bænum. Franskar svalir eru i hjónaher-
bergi svo og plássgott fataherbergi.
Stofa snýr í suður og er þar frábært út-
sýni. Stutt í alla þjónustu, verslun,
skóla og i sundlaugina. Áhvílandi hag-
stæð lán 3,6 millj.
HVAMMAR V.9.9M. Aldeilis Ijóm-
andi góð 5 herbergja íbúð á efstu hæð
í 8 íbúða stigahúsi við Hvammabraut í
Hafnarfirði. Ibúðin er á tveimur hæð-
um. 3 svefnherbergi, stofa, sjónvarps-
herbergi og stórar svalir. Frábært út-
sýni. Vandaðar innréttingar og parket á
öllum gólfum. Sérstaklega gott
verð. Áhvílandi ca 4,0 millj.
JORFABAKKI V. 7,4 M. Þessi er í
einu fallegasta stigahúsinu í Breiðholt-
inu. Mjög falleg 4ra herbergja, ca 100
fm endaíbúð með ágætu útsýni. íbúð-
in er á efstu hæð. Rúmgóð stofa. Suð-
ursvalir. Gott þvottahús í ibúðinni.
(búðinni fylgir herbergi í kjallara.
LAUFRIMI V. 7,4 M. Mjög falleg 4ra
herbergja íbúð á 2. (efri) hæð í fjórbýli.
Sérinngangur. Örstutt í alla þjónustu
og skóla. Utsýni svo um munar. Áhvíl--
andi eru hagstæð lán rúmlega 5,5
milljónir.
Dunhagi. M/bílskúr. V. 7,9 m.
Hlíðarhjalli. M/bílskúr. V. 10,4 m.
Ofanleiti. M/bílskúr. V. 10,2 m.
Sérhæðir
ALMH0LT V.8.8M. Mjög skemmti-
leg 86 fm björt sérhæð, sem skiptist í
stofu, 2 svefnherbergi, eldhús og bað-
herbergi. Snyrtileg innrétting í eldhúsi.
Búr og þvottahús á hæðinni. Stór
steypt verönd og fallegur gróinn garð-
ur. Möguleg skipti á 2ja herbergja
íbúð. Áhvílandi ca 3,6 millj. í hagstæð-
um lánum.
BARMAHLÍÐ V. 8,9 M. Þessi er al-
deilis ágæt, en barn síns tima. 4ra her-
bergja vel umgengin neðri hæð á
þessum eftirsótta stað. Nýlegir glugg-
ar og gler. Endurnýjað rafmagn. Sér-
inngangur og sérhiti. Fallegur garður.
JÖKLAFOLD V. 8.990 Þ. Glæsileg og
vel innréttuð 116 fm neðri sérhæð í tví-
býlishúsi. Þrjú svefnherbergi með
góðu skápaplássi. Sér útigeymsla.
Ræktuð lóð. Frábært útsýni í austur.
Góð eign á góðum stað.
KVISTHAGI V. 9,7 M. 4ra herbergja
hæð ca 100 fm + sameign og 30 fm bíl-
skúr í góðu húsi á stórri lóð sem er vel
ræktuð. íbúðin skiptist þannig, tvö
svefnherbergi, tvöföld stofa, rúmgott
eldhús og baðherbergi, skúrinn stend-
ur sér á lóðinni, þvottahús í sameign,
nýtt þak. Skipti á tveggja ibúða húsi
möguleg. Áhvílandi rúmlega 2,0 millj-
ónir.
ÚTHLÍÐ V. 12,5 M. Rúmgóð fimm
herbergja efri hæð i einu fallegasta
húsinu í Úthlíðinni. Húsið er nýlega
endurnýjað að utan. (búðin skiptist í 2
- 3 svefnherbergi og 2 - 3 stofur. Gesta-
snyrting, fataherbergi, mjög stórt eld-
hús, þrennar svalir. Bílskúr.
SELÁSBRAUT Fallegt fullbúiö raðhús,
ca 176fm á tveimur hæðum, ásamt bíl-
skúr. 4 svefnherbergi, tvöföld stofa og
sjónvarpshol. Glæsilegt útsýni í vestur
átt.
VOGAGERÐI V0GUM Mikið endur-
nýjað járnklætt einbýlishús, ca 90 fm
sem skiptist þannig, forstofa, eldhús,
rúmgóð stofa, borðstofa, baðherbergi,
geymsla og þvottahús á jarðhæð.
Kjallari undir húsinu. Svefnherbergi og
sjónvarpsherbergi á efri hæð. Húsið
stendur á ca 800 fm eignarlóð.
Flúðasel. Endaraðhús V. 10,9 m.
Hverafold. Einb. á einni hæð. V. 13.9 m.
IMýbyggingar
BOLLAGARÐAR Einbýli. Afhendist
fullklárað að utan.
GULLENGI 6 íbúða hús. Sér inn-
gangur i allar ib. Afhendist fullbúið að
utan sem innan, án gólfefna.
VÆTTAB0RGIR Raðhús. Gott verð:
11.060.000 fullbúin, tilbúin til innr. 9,4
m. og rúml. fokheld á 8,6 m.
Atvinnuhúsnæði
Lóðir
a
a
ASLAND Lóð undir einbýlishus. Öll
gjöld greidd.
Sumarbústaðir/Lóðir
HUSAFELL Sumarbústaðalóðir á
þessum frábær stað. Samningar til 99
ára. Nánari upplýsingar og bæklingar á
skrifstofu.
L0ÐIR í GRÍMSNESINU
Raðhús - Einbýli
ASH0LTV. 12,9 M. Eitt besta, ef ekki
besta húsið í Ásholtinu er komið í
sölu. Sannkallað lúxushús. Glerskáli,
frábærar sólarsvalir, stæði í bílskýli.
Nú er tækifæri til að eignast glæsilegt
sérbýli í hjarta borgarinnar.
Til leigu
VATNAGARÐAR Rúmlega 100 fm
glæsilegt skrifstofuhúsnæði til leigu
fyrir traustan aðila. Húsnæðið skiptist í
sal, skrifstofu, eldhús og eldtrausta
geymslu. Verð aðeins kr. 70.000 á
mánuði. Hitakostnaður og ræsting á
sameign er innifalin. ,
iV LÁTTU OKKUR VINNA FYRIR ÞIG if" Sendum söluyfirlit í faxi (f
W Komdu með eignina þina til okkar. Við vinn- eða pósti
\ um og finnum það rétta fyrir þig. Hringið - Komið - Fáið upplýsingar