Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 21

Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MAIMNLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 B 21 Ji Hagfræói/ Hver erpunkturinnf ÞAÐ getur borgað sig að bera saman verð og gæði þegar verslað er. Verrí er hálf flugferð en engin GEFÐU manni hálfa flugferð og hann mun kaupa hinn hlutann á tvöföldu verði - og sennilega vel ríflega það. Þetta kann að virðast undarleg hagfræði en einhverra hluta vegna virðast forsvarsmenn nokkurra helstu stórfyrirtækja landsins trúa henni. Það getur meira að segja verið að þeir hafi rétt fyrir sér. að hefur varla farið fram hjá neinum að nokkur íslensk fyrirtæki hafa tekið það upp hjá sér að hætta að selja þær vörur sem þau hafa boðið neytendum til þessa. Þannig er til dæmis Hag- kaup hætt að selja mjólk, Hans Pet- ersen hætt að bjóða framköllun og Toyota-umboð- ið hætt að selja bíla. Hagkaup sel- ur reyndar vöru sem svipar nokkuð til mjólkur, nefnilega blöndu af mjólk og pínu- litlu broti af ferð til útlanda eða kannski í leikhús. En mjólk eina og sér getur enginn keypt í Hag- kaupi, ekki einu sinni þeir sem hafa vottorð upp á að þá langi hvorki til útlanda né í leikhús. kjörum fólks alveg nægilega mikill þótt við komum ekki upp þeim að- stæðum hér að fólk verði að liggja án viðunandi læknishjálpar og deyja drottni sínum ef það einhverra hluta vegna býr við fátækt. Mér sýnist að niðurskurðurinn í heilbrigðiskerf- inu sé orðinn slíkur að hættumerki séu farin að sjást víða. Vegna fámennis era aðstæður allt aðrar hér en í stóram löndum, í slíku návígi sem hér ríkir myndi það vera í ýmsum skilningi blóðtaka fyrir alla ef sumir ættu að njóta heilbrigðisþjónustu en aðrir ekki, þjóðin er of skyld og tengd til þess að hinir efnaðri gætu horft upp á hina fátækari þjást og deyja af því að þeir ættu ekki fyrir læknisþjón- ustu. Sumum finnst þetta kannski stórt upp í sig tekið en svona gæti þetta eigi að síður farið ef ekki er spymt við fótum í tíma. Þeir sem búið hafa í litlum sveitarfélögum, þar sem íbúum hefur fækkað jafnt og þétt, þeir hafa séð hvemig þjón- ustunni hrakar æ meira vegna sí- vaxandi peningaleysis þar til hún er allt í einu kominn á þann punkt að henni verður ekki bjargað. Eftir það fer allt í upplausn og engum er vært í viðkomandi sveit. Mér heyrist landsmenn yfirleitt ekki vera á því að láta þannig fara fyrir heil- brigðiskerfinu okkar. Við ættum þess vegna að huga að hættumerkj- unum í tíma og ganga ekki of nærri því kerfí sem hefur reynst okkur vel fram að þessu. Ekkert frekar en hægt er að kaupa framköllun hjá Hans Petersen, þar bjóða menn hins vegar saman í pakka framkallanir og ferðir sem kannski verða aldrei farnar. Svona viðskiptahættir eru ekki íslensk uppfmning, hliðstæð dæmi er að finna í útlöndum. Meginá- vinningurinn frá sjónarhóli kaup- mannanna er tvíþættur. Annars vegar tekst vonandi að rugla við- skiptavinina þannig að þeim verður síður ljóst hvort þeir geta gert betri kaup annars staðar. Hins vegar er ætlunin að pranga inn á þá hálfum vörum en það er vitaskuld trygging fyrir frekari viðskiptum - það þarf að kaupa síðari helminginn ein- hvers staðar. Fæstir eiga í miklum erfiðleikum með að meta hvort það eru betri kaup í pakka af morgunkorni í Hagkaupi eða Nóatúni. Ef pakk- arnir eru eins þá era betri kaup í þeirri verslun sem selur pakkann við lægra verði. Það er hins vegar mun flóknara að bera saman ann- ars vegar pakka af morgunkorni í Nóatúni og hins vegar blöndu af morgunkorni og agnarlitlu broti úr flugferð í Hagkaupi. Samanburður- inn verður þó fyrst verulega erfiður ef neytandinn hefur þegar keypt nokkur brot úr flugferð og vantar bara smáræði upp á tii að vera kominn með heila flugferð (hann þarf að kaupa því sem næst skipsf- arm af morgunkorni í Hagkaupi til að fá heila flugferð út á það eitt svo að væntanlega hefur hann komið víðar við með kortið sitt). Málið er þó ákaflega einfalt ef kaupin hafa tekið svo langan tíma að áður keypt brot eru farin að skemmast, þá fyllir neytandinn hugsunarlítið kerruna af morgun- korni í Hagkaupi þangað til komið er nóg fyrir heilli flug- eða leikhús- ferð. Vegna þessa er það lykilatriði að vörumar hálfu, punktarnir, renni út eftir ákveðinn tíma og að ekki sé hægt að framselja þær eða fá endurgreiddar. Ef frammistaða verslunar á ís- landi er metin eftir því hve ódýrt henni tekst að útvega neytendum þær vörur sem þeir vilja er ljóst að þróun undanfarinna mánaða er skref aftur á bak. Gallarnir eru augljósir, kostnaður við verslun eykst því að við bætist að halda þarf utan um umsvifamikið punkta- kerfi, útskýra það og auglýsa og örlítið lengri tíma tekur að afgreiða viðskiptavini. Verra er þó að neyt- endur eru nánast neyddir til að kaupa aðrar vörur en þeir vilja. Því eru þó takmörk sett hversu stórt skref aftur á bak þetta er, einkum vegna þess að það er enn hægt að kaupa mjólk, t.d. í Nóa- túni eða 10-11, og fílmur, þær verða bara að vera frá Fuji en ekki Kodak. Oft gildir meira að segja að það er hægt að spara talsvert með því. Ástæðan er að líkt og reynslan er víðast hvar erlendis þá eru það ekki þau fyrirtæki sem reyna að draga til sín viðskiptavini með því að vera með lægsta verðið sem taka upp einhvers konar punktakerfi. Þau sem bjóða punkta eru að reyna að halda í viðskipta- vini eða laða til sín nýja þótt þau séu ekki með lægstu álagninguna. í mörgum tilfellum er þetta aug- ljóst, þannig létu forsvarsmenn Hagkaups og Bónuss einungis Hagkaupsverslanirnar taka upp punktakerfið. Á sama hátt er Ork- an utan punktakerfisins en Skelj- ungur með. Fuji-umboðið er fyrir utan en Hans Petersen með, Ikea með en Rúmfatalagerinn ekki, Bif- reiðaskoðun íslands með en ekki Aðalskoðun. Þeir neytendur sem halda stífast um budduna geta því í raun fagnað punktakerfunum, fyrirtæki sem auglýsa punkta veita mikilvægar upplýsingar - um að það sé sennilega hægt að gera betri kaup annars staðar. m i ztjn BtaumaBtsin min? Pu ert... Hlv ífasi, með qóða kímnigáfú. Romantísk.jákvasðog brosmil Ábilinu 27-39 ára. Mig langar til að kynnast þér. Ég hefhijóðritað kveðju til fn'n meðfrekariupplýsingum um sjálfan mig. Vinsamlegasthringdu í neðangreint símanúmer. Kveðja, Petér 570-7769 Éger... Rómantískur, háttvís, glaðlyndur. Stjórnarformaðurog eigardi að storu útgáfufyrirtaeld. Búsettur í Santa Barbara, California en með annað heimili á Hawaii. YfiHltsmyna, Sjnta Barbara eftir Gylfa Magnússon e c c o

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.