Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 V MORGUNBLAÐIÐ I 1 AKUREYRI Sérleyfishafar með skoðanakönnun í fólksflutningabflunum Mikil samkeppni við einkabfl- inn og flugið SERLEYFISHAFAR sem aka á sérleiðum til og frá Akureyri, eru að fara af stað með skoðanakönnum í fólksflutningabílum sínum. Tilgang- urinn er að leita eftir upplýsingum um með hvaða hætti þeir geta bætt þjónustu við farþega sína. Spurt er um bifreiðina, aðbúnað í henni, ferðatíðni og ferðafjölda á þeim leið- um sem viðkomandi ferðast á, verð- lagningu, þjónustu og fleira. könnun þrisvar á næstu mánuðum. í næstu viku verður farið af stað með þá fyrstu, svo aftur um páskana og loks næsta sumai-, á þeim tíma sem erlendir ferðamenn eru hvað fyr- irferðamestir í fólksflutningabílunum. Farþegum hefur fækkar á ílestuni leiðum Sigmar Ólafsson, framkvæmda- stjóri Bifreiðastöðvar Norðurlands segir að sérleyfishafar séu í mikilli samkeppni við bæði einkabílinn og flugið. Farþegum í fólksflutninga- bílum hafi fækkað á nær öllum leið- um á árinu og mest á lengstu leið- unum. Til að fá meiri breidd í svörin er stefnt að því að gera skoðana- Haldin á Oddfellowhúsinu á Akureyri, laugadaginn 15. nóvember 1997. Fundarstjóri: Ásgeir Magnússon — Skrifstofu atvinnulífsins, Akureyri. Dagskrá 9.15 Skráning — Morgunkaffi og meðlæti. 9.45 Setning — Trausti Þorsteinsson RHA 9.50 Ávarp — Halldór Blöndal, samgönguráðherra. Inneangserindi 10.00 Tæknimenn á landinu — hvar starfa þeir og við hvað? — Bergur Steingrímsson, verkfræðingur VN. Staðan í dag 10.20 Landsbyggð — tækni, afstaða þjóðarsálar — Dr. Haraldur Bessason HA. 10.40 Aðsókn í verk — tæknifræðinám og fallegt umhverfi tæknimanna á landsbyggðinni — Guðbrandur Steinþórsson TÍ. 11.00 Rannsóknarverkefni Pósts og síma — Þór J. Þórisson, Póstur og sími hf. 11.20 Tæknimenn í þjónustu siglinga — Jón Leví Hilmarsson, Siglingamálastofnun ríkisins. 11.40 Sveitarfélögin — hlutverk og stefna gagnvart umhverfi tæknimanna — Kristján Kristjánsson, Vegagerð ríkisins, ísafirði. 12.00 Hádegishlé. 13.15 Ráðgjöf á landsbyggðinni — Haraldur Sveinbjörnsson, VST. Breytingar á starfsumhverfi með upplvsineatœkni 13.40 Upplýsingasamfélagið — vaxtarbroddur allsstaðar á íslandi — B jarni Kristinsson , IE. 14.05 Opinber þjónustufyrirtæki og tæknimenn — Tryggvi Haraldsson, RARIK. 14.30 Fyrirtækjanet — Hafsteinn Helgason, Línuhönnun. 14.50 Kaffihlé. Hvert stefnir? 15.15 Orkumannvirki og stóriðja — NN. 15.40 Samgöngukerfi í ljósi krafna ESB — Rögnvaldur Jónsson Vg. 16.05 Matvælaiðnaður: Er þörf tæknimenntunar? — Helgi Jóhannesson, kjötiðnaðarstöð KEA. 16.35 Panelumræður og fyrirspumir. 17.00 Ráðstefnuslit, móttaka í boði ráðherra. Þátttaka tilkynnist ísíma 463 0900, fax 463 0999, netfang: marla.is Ekki ekið til Egilsstaða á veturna Norðurleið er með sérleyfi á leið- inni Reykjavík-Akureyri og segir Sigmar að vöruflutningar félagsins á þeirri leið hafi aukist um tæp 20% en farþegum hafi hins vegar fækkað umtalsvert. Sérleyfisbflar Akureyrar hafa verið með daglegar ferðir til Egilsstaða yfir sumartímann og þrjár ferðir á dag í Mývatnssveit. Gunnar M. Guðmunds- son, framkvæmdastjóri, segir ekki grundvöll fyrir akstri tfl Egilsstaða yfir vetrartímann og var síðasta ferð þangað á þessu hausti um miðjan Morgunblaðið/Kristján GUNNAR M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sérleyfisbfla Akureyr- ar, Sigmar Ólafsson, framkvæmdastjóri Bifreiðastöðvar Norðurlands, og Bjarni S. Aðalgeirsson, bflstjóri hjá BSH, ræða málin um borð í Húsavíkurrútunni. október. Hins vegar eru farnar fjórar ferðir á viku í Mývatnssveit á veturna. Gunnar segist einnig bjóða upp á skoðunarferðir með leiðsögn á Mý- vatn og hafi verið óvenju mikið um slíkar ferðir að undanfömu og þá aðal- lega með útlendinga. Björn Sigurðsson sérleyfishafi á Húsavík er með 13 ferðir á viku milli Akureyrar og Húsavíkur. Bjarni S. Aðalgeirsson, bílstjóri hjá BSH, segir að farþegar séu mjög fá- ir nema á föstudögum og sunnudög- um. Þá eru ferðir á vegum BSH frá Akureyri til Þórshafnar alla virka daga í tengslum við póstflutninga. Sigmar segh' að á leiðinni til Dal- víkur og Olafsfjarðar hafi orðið aukning í flutningum á milli ára og það tengist m.a. Hríseyjarferjunni og Grímseyjarferjunni sem nú siglir frá Dalvík. „Við verðum hins vegar ekki varir við ferðafólk á leið til Grímseyjar á þessum tíma árs.“ Veður og færð hefur einnig mikið að segja og segir Gunnar að í hálku og ófærð fjölgi í fólksflutningabflun- um. Sérleyfishafar séu líka undir nokkumi pressu með að halda sinni áætlun milli staða. Morgunblaðið/Kristján Húsi skáldsins færðar bækur að gjöf HUSI skáldsins á Sigurhæðum á Akureyri hafa borist bækur að gjöf. Gefandinn er Guðrún Anna Kristjánsdóttir, dótturdóttir Egg- erts, bróður Matthíasar Jochums- sonar. Erlingur Sigurðarson, for- stöðumaður Sigurhæða, veitti gjöfinni viðtöku og sagði hana sýna góðan liug til safnsins og hússins. Erlingur sagði að þessi bókagjöf gæti verið stofn að bókasafni hússins. Guðrún Anna fæddist að Bás- um í Grímsey en flutti ung að ár- um úr eynni og hefur búið á Akureyri síðustu 30 ár. 11. nóv- ember er fæðingardagur Matthí- asar og þann dag á Willard Fiske, velgjörðarmaður Grímsey- inga, einnig afmæli. Guðrúnu Önnu þótti því vel við hæfi að af- henda bókagjöfina í gær, 11. nóv- ember. Á myndinni eru Erlingur Sig- urðarson, Guðrún Anna Krist- jánsdóttir og barnabörn hennar, systurnar Helga Þóra og Jónína Björg Helgadætur. Fundur stjornar Neytendafélagsins Fullur stuðningur við Vilhjálm Inga STJÓRN Neytendafélags Akureyr- ar og nágrennis, NAN, lýsti á fundi í fyrrakvöld yfir fullum stuðningi við störf Vilhjálms Inga Amasonar fyrrverandi starfsmanns Neytenda- samtakanna á Akureyri, en honum var nýlega vikið frá störfum. Lýsir stjómin furðu sinni á þeim vinnubrögðum framkvæmdastjóra og formanns Neytendasamtakanna að refsa starfsmanninum Vilhjálmi Inga fyrir aðfinnslur hans sem stjómarmanns við innra starf Neyt- endasamtakanna. Þá mótmælir stjómin því að nú í annað sinn á einu ári skuli sam- starfssamningur NAN og Neyt- endasamtakanna vera brotinn jafn- gróflega og raun ber vitni. „Það er alvarlegt mál ef starfsaðferðir for- ráðamanna Neytendasamtakanna em með þeim hætti að ekki er treystandi á að þeir stai-fi sam- kvæmt skuldbindingum sínum við neytendafélögin úti á landi,“ segir í yfirlýsingu frá stóm NAN. Stjórnin krefst þess að hið fyrsta verði ráðinn annar starfsmaður í stað Vilhjálms Inga sem ekki hefur hug á að vera starfsmaður Neyt- endasamtakanna en ætlar að starfa undir merkjum Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, þannig að halda megi í heiðri þann samstarfs- samning sem í gildi er en svo frek- lega hefur verið brotinn með lokun skrifstofu samtakanna á Akureyri, fyrirvaralaust og án vitundar stjóm- ar NAN, segir í yfirlýsingu stjómar- innar. Dómur fallinn í Möðrufellsmálinu í Eyjafjarðarsveit Kröfum hrepps- nefndar hafnað KRÖFU hreppsnefndar Eyjafjarð- arsveitar um að ógiltur verði með dómi úrskurður landbúnaðarráðu- neytisins frá í október sl., hefur verið hafnað í Héraðsdómi Reykja- víkur. I úrskurði sínum hafði ráðu- neytið fellt úr gildi ákvörðun hreppsnefndar um að neyta for- kaupsréttar að jörðinni Möðrufelli í Eyjafjarðarsveit. Jafnframt var í úrskurði ráðu- neytisins viðurkennt að hrepps- nefnd hefði glatað rétti sínum til að neyta forkaupsréttar að jörð- inni. Hreppsnefnd gerði kröfu fyr- ir dómi að sú viðurkenning yrði ógilt en því var einnig hafnað í Héraðsdómi. Þá var kröfu hrepps- nefndar um að staðfest yrði að ákvörðun hreppsnefndar frá í ágúst sl. um að neyta forkaups- réttar að jörðinni stæði óhögguð, einnig hafnað. Hreppsnefnd Eyjafjarðarsveit- ar stefndi kaupendum Möðrufells, Matthíasi Eiðssyni og Hermínu Valgarðsdóttur, seljendum jarðar- innar Ragnheiði Austfjörð og Bjarna Guðmundssyni, svo og landbúnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisins. Málið sem fékk flýtimeð- ferð, var dómtekið 5. nóvember sl. en dómur var kveðinn upp í gær. I dómsorði Héraðsdóms Reykja- víkur er kröfu hreppsnefndar á hendur landbúnaðarráðherra vísað frá. Hreppsnefnd var hins vegar gert að greiða Matthíasi og Hermínu kr. 300.000 í málskostn- að, að viðbættum virðisaukaskatti. ♦ ♦♦ I Ijósaskiptunum Danskur dagur ■♦♦♦ Glerárkirkja Erindi um Matthías hjá eldri borgurum DANSKAR bókmenntir verða í há- vegum hafðar á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, miðvikudag, á nor- rænu bókasafnsvikunni sem nú stendur yfir. Elínborg Sturlaugsdóttir les á norrænni sögustund kl. 10.30. Sýndar verða myndirnar Lilja í garði listmálara á dönsku og Krummarnir með íslensku tali kl. 15. Flutt verður dönsk tónlist og vísnasöngur og þær Lis Mogensen og Steinunn S. Sigurðardóttir lesa upp úr H.C. Andersen á dönsku og íslensku kl. 17. Danska spennu- myndin Nætui-vaktin verður sýnd í Borgarbíói kl. 18.30 og er aðgang- ur ókeypis. ERLINGUR Sigurðarson for- stöðumaður Húss skáldsins á Sig- urhæðum er gestur samverustund- ar eldri borgara í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 13. nóvem- ber en hún hefst kl. 15. Erlingur flytur hugleiðingu um sr. Matthías Jochumson. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja nokkur lög undir stjórn Hjartar Stein- bergssonar og þá verður boðið upp á kaffiveitingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.