Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 44
. 44 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
PUqætir
saPnað
sparigrisum
- og fyllt þá alla!
í kvöld er dregiö í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 17 í dag.
25
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
forvitnast um samtök sem
heita „Fólk með fullu viti“,
hvaða samtök þetta eru og
hvar þau eru til húsa.
í stórhættu af
völdum
lögreglunnar
SUNNUDAGINN 9. nóv-
ember voru við hjónin að
aka eftir Miklubrautinni í
vesturátt og þá kom bíll á
fleygiferð á eftir okkur og
skaust ’á milli akreina. Síð-
an komu 7-8 lögreglubílar
með blikkandi ljós og sír-
enu á þessari líka miklu
ferð og við fórum náttúru-
lega að hugsa um hvað
hefði komið fyrir. Hvaða
ástæðu hafði lögreglan til
að leggja líf fjölda manns
í hættu með því að elta
þennan bíl á þessum
hraða? Síðan komu frétt-
irnar í morgun að þetta
hafi verið þekktir smá-
krimmar sem lögreglan
hafði haft eftirlit með og
vil ég spyrja hvort það sé
forsvaranlegt að lögreglan
leggi líf fjöida fólks í
hættu. Það var ekki lög-
reglunni að þakka að það
varð ekki stórslys. Undir
hvaða kringumstæðum
getur lögreglan gert
svona?
Birna Lárusdóttir.
Illa upplýst
gatnamót
SL. laugardag birtist í
Velvakanda pistill frá
vegfaranda um iila upplýst
gatnamót. Vegna mistaka
var talað um gatnamótin
Ármúli-Suðurlandsbraut
en þar var að sjálfsögðu
verið að tala um gatnamót-
in Álfheimar-Suðurlands-
braut. Vill vegfarandi
einnig taka það fram að
mikið myrkur er í kringum
Glæsibæ.
Þakklæti fyrir góða
þjónustu hjá
Fjárfestingu
ÉG VIL koma á framfæri
þakklæti til fasteignasöl-
unnar Fjárfestingar. Ég
bý erlendis og átti við-
skipti við þessa fasteigna-
sölu. Var að ganga frá
kaupum á íbúð þegar ég
varð að hætta við kaupin
vegna óviðráðanlegra að-
stæðna. Vil ég sérstaklega
þakka Hilmari Óskarssyni
og öðru starfsfólki fast-
eignasölunnar fyrir frá-
bæra lipurð og góða þjón-
ustu en það gerði mjög vel
við mig og gekk frá málun-
um þannig að allir eru sátt-
ir. Vil ég sérstaklega
þakka fyrir svona heiðar-
leg viðskipti.
Eiður Smári
Guðjohnsen.
Dýrahald
Ronja litla týndist
RONJÁ er sex mánaða
gömul læða, norskur skóg-
arköttur. Hún týndist sl.
laugardag úr Laugarnes-
hverfl. Hún er ómerkt.-
Þeir sem hafa séð Ronju
hafi samband í síma
588 4884.
Hefur þú séð Nölu?
KISAN okkar, Nala, týnd-
ist frá Bólstaðarhlíð fyrir
u.þ.b. mánuði. Hún er
svört, hvít og ljósbrún.
Hún er ekki vön að vera
úti og er ekki merkt. Ef
þið hafið séð hana, vinsam-
lega hringið í Önnu í síma
588 4284.
„Mús“ er týndur
SVARTUR högni með
hvítt í enda á skottinu,
týndist frá miðbænum sl.
föstudag. Hann er með
rauða demantsól. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 552 9600
eða 562 4510.
SKÁK
kvöld kl. 20 í félagsheimili
Hellis, Þönglabakka 1 í
Mjódd. Öllum er heimil þátt-
taka. Mótið er reiknað til
alþjóðlegra skákstiga FIDE.
Atskákmót öðlinga (40 ára
og eldri) hefst í kvöld kl. 20
í félagsheimili Taflfélags
llmsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp á
heimsmeistaramóti lands-
liða í Luzern
í Sviss um
mánaðamót-
in. Rússinn
Sergei
Rublevsky
(2.650) var
með hvítt og
átti leik gegn
J. Becerrra—
Rivero
(2.495) frá
Kúbu.
31. Hxh6! -
Hc5? (Svart-
ur varð að
leika 31. —
Kxh6 32.
Hh2+ - Kg7
33. Hh7+ -
Kg8 34. Hh8+! - Kg7! 35.
Hxc8 — Re5 þótt hvítur
standi auðvitað mun betur)
32. Hh7+ - Kg8 33. g7!
og svartur gafst upp.
Meistaramót Hellis hefst í
HVITUR á leik.
Reykjavíkur, Faxafeni 12.
Hvort sem menn eru að
tefla af metnaði til að
hækka á stigum, eða íyrst
og fremst sér til ánægju, fá
þeir mót við sitt hæfi!
BRIPS
Umsjón Guðmundur Páil
Arnarson
I ÚRSLITALEIK Frakka og
Bandaríkjamanna á HM,
hélt Christian Mari á spilum
norðurs hér að neðan, og
átti út gegn sex laufum
þeirra Nickells og Freemans.
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 107632
V 986
♦ Á872
♦ 6
Vestur Norður Austur Suður
Nickell Mari Freeman Levy
Pass
1 lauf Pass 1 hjarta Pass
2 lauf Pass 4 tíglar * Pass
4 hjörtu Pass 6 lauf Allir pass
Nickell og Freeman spila
Standard að grunni til,
þannig að Nickell sýnir
venjulega opnun og langt
lauf með tveimur laufum.
Stökk Freemans í fjóra tígla
er spurning um lykilspil, og
svarið á fjórum hjörtum lof-
ar einum „ás“ af fimm.
Hvar myndi lesandinn
koma út?
Mari valdi lítinn tígul í
þeirri von að blindur kæmi
upp með KG og makker
ætti drottninguna. Hann
var ekki á skotskónum:
Norður
♦ 107632
¥ 986
♦ Á872
♦ 6
Vestur Austur
♦ G8 ♦ Á9
V K5 IIIIH + Á1074
♦ 96 111111 ♦ KDG
+ ÁD108752 ♦ KG43
Suður
♦ KD54
▼ DG32
♦ 10543
♦ 9
Aðeins útkoma í spaða
hnekkir slemmunni.
Á hinu borðinu voru Perr-
on og Chemla einnig á leið-
inni í slemmu, en Chemla
hætti við þegar Hamman
gat doblað fyrirstöðusögn
hans í spaða:
Vestur Norður Austur Suður
Perron Wolff Chemla Hamman
- .. Pass
1 lauf Pass 1 hjarta Pass
2 lauf Pass 2 tíglar * Pass
3 lauf Pass 4 lauf Pass
4 hjörtu Pass 4 spaðar Dobl
Pass Pass 5 lauf Allir pass
Víkveiji skrifar...
RÉTTARHÖLDIN yfír bresku
barnapíunni Louise Wood-
ward í Boston hafa verið í heims-
fréttunum alveg frá því að þau
hófust. Mörgum var brugðið þegar
kviðdómurinn úrskurðaði að stúlk-
an væri sek um morð af yfirlögðu
ráði og ákvörðunar dómarans var
því beðið af mikilli eftirvæntingu.
Augljóst var í fyrradag, að mörgum
létti mjög þegar dómarinn ákvað
að breyta sakargiftum, á þann veg,
að stúlkan væri sek um manndráp
af gáleysi. Og enn meiri virtist létt-
irinn vera, þegar dómarinn kvað
upp dóm sinn í fyrrakvöld, á þann
veg að hún hefði þegar afplánað
þá refsingu sem hann ákvað, 279
daga fangelsi. Það hefur verið deg-
inum ljósara í fréttaflutningi af rétt-
arhöldunum að samúð almennings
hefur verið með barnapíunni, sem
á margan hátt hefur verið skiljan-
legt, að mati Víkveija. Víkverja
hefur þó þótt nokkuð undarlegt, að
aðalfórnarlömb þessa harmleiks,
foreldrar litla drengsins og drengur-
inn sjálfur, virðast hafa orðið undir
í samkeppninni um samúð almenn-
ings - sú hefur alla vega verið
myndin sem blasað hefur við þeim
sem fylgst hefur með fréttum
bresku sjónvarpsstöðvarinnar Sky.
xxx
MEÐ sameiningu nokkurra
sveitahreppa á Fljótsdalshér-
aði við Egilsstaði á næstunni er
hætt við að gömlu nöfnin Eiðaþing-
há og Hjaltastaðaþinghá falli með
öllu í gleymskunnar dá. Þau eru
reyndar ekki á hvers manns vörum
en hafa þó til þessa verið töm Aust-
firðingum og sérstaklega Hér-
aðsbúum.
Atlaga var gerð að þessum
ágætu heitum þegar póstáritun var
breytt með númerum þannig að
fólk á bæjum í Eiðaþinghá fékk
póstinn áritaðan með bæjarnafninu
og síðan 705 Eiðar, sem er beinlín-
is hallærislegt, og heitið Eiðaþinghá
hvarf í utanáskrift. Skrifara dags-
ins finnst ástæða til að halda í þessi
nöfn, en þeim kynntist hann í
sveitadvöl sinni austur þar fyrir
margt löngu, og vonandi geta íbúar
þessara byggðarlaga áfram átt
heima í Hjaltastaðaþinghá og Eiða-
þinghá.
XXX
VIMLEITT er að sjá stafsetn-
ingarvillur í augiýsingum.
Með breyttri vinnsluaðferð koma
þær æ oftar tilbúnar frá auglýsend-
um, líka þær auglýsingar sem eru
aðeins texti. Þannig voru þrjár vill-
ur í starfsauglýsingum frá tveimur
ráðningarstofum í Morgunblaðinu
sunnudaginn 9. nóvember sl. Þetta
voru ekki innsláttarvillur heldur
villur á borð við „og öðrum skildum
vörum“ þar sem skyldum er auðvit-
að réttara; „starfið fellst í...“ í stað
felst og í þriðja lagi „í vinnslu þess-
arra upplýsinga" í stað þessara.
Slíkar villur eru óþarfí og hlýtur
að mega gera þá kröfu til starfs-
fólks ráðningarstofa að það kunni
íslenska stafsetningu.