Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Færri ferðamenn með
skemm tiferðaskip um
Opin kerfí og
Hágöng kaupa
15% í Hug
Tæknival sóttist einnig eftir því
að kaupa bréfin
NOKKUR fækkun varð á fjölda er-
lendra ferðamanna sem komu hing-
að til lands með skemmtiferðaskip-
um á síðastliðnu sumri. Samkvæmt
tölum Útlendingaeftirlitsins komu
21.097 farþegar með slíkum skipum
hingað borið saman við 21.941 far-
þega árið 1996. Ferðir slíkra skipa
voru 47 talsins, en árið áður voru
ferðirnar 51 talsins.
Agúst Ágústsson, markaðsstjóri
Reykjavíkurhafnar, segir þessa
þróun í sumar fyrst og fremst mega
rekja til fækkunar Þjóðverja. Þeir
hafi verið 9.550 talsins í sumar, en
11.666 í fyrra. Á móti þessu komi að
bandarískum ferðamönnum hafi
fjölgað úr 2.495 í 3.900 milli ára og
sömuleiðis hafi orðið fjölgun á
breskum ferðamönnum.
Um horfur á næsta ári segir
Ágúst að upplýsingar liggi fyrir um
að hingað muni koma 40-50
skemmtiferðaskip. Hins vegar
bendi margt til þess að Þjóðverjum
haldi áfram að fækka, en aðrar
þjóðir eins og Bandaríkjamenn og
Bretar sækja í sig veðrið.
Kynna siglingaleið
Leifs heppna
Reykjavíkurhöfn hefur átt í
markaðssamstarfi við hafnaryfir-
völd í nágrannalöndunum sem teng-
ist árinu 2000 og miðar að því að
kynna siglingaleið Leifs heppa.
Meðal samstarfsaðila eni hafnaryf-
irvöld í Kaupmannahöfn, Þránd-
heimi, Bergen, Þórshöfn í Færeyj-
um, Nýfundnalandi og Grænlandi.
Jafnframt hefur Reykjavíkurhöfn
tekið þátt í árlegri sýningu í Miami
ásamt ^ hafnaryfirvöldum á Akur-
eyri, Isafirði, á Grænlandi og í
Færeyjum. „Þetta er sá hluti ferða-
þjónustu sem hefur vaxið hvað
hraðast á undanförnum árum og
feiknarleg gróska verið í þessu.
Reyndar er vöxturinn mestur á
Karabíska hafinu og mikið af nýjum
skipum sérsmíðuð fyrir það svæði.
Við eigum samt sem áður ákveðna
möguleika," segir Ágúst.
Farþegar með skemmtiferðaskip-
um hafa hér viðkomu í 8-10 klukku-
stundir að jafnaði og samkvæmt
könnunum sl. þrjú ár eyða þeir að
meðaltali 5.300 krónum. Þar við
bætast tekjur vegna skoðanaferða,
en langflestir þeirra fara í ferðir til
Gullfoss og Geysis eða á Langjökul.
Ágúst segir ennfremur að reynt hafi
verið að kynna möguleika á að hafa
hér snúningshöfn fyrir skemmti-
ferðaskip. I þeim tilvikum stoppa
skip hér í tvo sólarhringa og farþeg-
ar fara frá borði út á flugvöll áleiðis
til síns heima. Jafn stór hópur komi
hins vegar með sömu vél og hefji
sína ferð með skipinu hér á landi.
OPIN Kerfi hf. og Eignarfélagið
Hágöng ehf. hafa keypt 15% hlut í
Hug hf. Er hér um að ræða sama
hlut og Nýherji hafði áður selt fyr-
irtækinu sjálfu fyrr í haust.
Nákvæm skipting hlutafjár Op-
inna kerfa og Háganga hefur ekki
verið gefin upp en að sögn Gunn-
ars Ingimundarsonar, fram-
kvæmdastjóra Hugs hf., keyptu
Opin kerfi stærstan hluta þessara
hlutabi’éfa.
Tæknival með opið tilboð í
stærri hlut
Nokkur eftirspurn virðist hafa
verið eftir umræddum hlutabréf-
um því samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafði Tæknival
áður boðið í þau í síðasta mánuði,
en fyrirtækið hafði upphaflegar
falast eftir því að kaupa bréfin af
Nýherja.
Var tilboð Tæknivals talsvert
betra en sem nam upphaflegu
söluvirði bréfanna og herma sömu
heimildir að fyrirtækið hafi jafn-
framt haldið þeim möguleika opn-
um að kaupa stærri hlut en um-
rædd 15%. Tæknival á fyrir 15%
hlut í Hug hf.
„Mikil eftirspurn
endurspeglast í verði“
Aðspurður hvort jafn hagstætt
eða hagstæðara tilboð hefði borist
frá Opnum kerfum segir Gunnar
Ingimundarson, framkvæmda-
stjóri Hugs, að það hafi orðið að
samkomulagi milli samningsaðila
að kaupverð yrði ekki gert opin-
bert. „Það er hins vegar svo að
þegar mikil eftirspurn er eftir
bréfum þá endurspeglast það í
verði þeirra," segir Gunnar.
Hann segist vonast til að sátt
muni ríkja um þessa niðurstöðu í .
hluthafahóp fyrirtækisins. „Við
reyndum með þessum hætti að *
tryggja sem besta dreifingu á
eignaraðild í félaginu. Ég tel að
það hafi tekist og eignaraðild hlut-
hafa er nokkuð svipuð," segir
Gunnar.
Hann segir aðspurður að sér sé
ekki kunnugt um að aðrir hluthaf-
ar félagsins hafi gengið að tilboði
Tæknivals.
Minni viðskiptahalli, of lítill sparnaður og hækkandi verðbólga samkvæmt haustskýrslu Seðlabanka
Aukið íiðlmld þarf í ríkisfjár-
málum svo vextir geti lækkað i
SEÐLABANKI íslands telur að-
stæður í efnahagslífínu ekki gefa
tilefni til neinnar tilslökunar á pen-
ingastefnu bankans að svo stöddu.
Hagkerfi sé við efri mörk þess sem
samrýmst geti stöðugleika í verð-
lagsmálum til lengri tíma litið. Því
muni bankinn áfram fylgja að-
haldssamri peningastefnu. Þetta
kemur fram í haustskýrslu bank-
ans sem kynnt var í gær.
I skýrslunni segir að þrátt fyrir
að stefnt sé að afgangi á rekstri
ríkissjóðs á næsta ári og að skuldir
hans muni að öllum líkindum
lækka að raungildi sé meiri árang-
ur í ríkisfjármálum æskilegur til
að hamla gegn aukningu þjóðarút-
gjalda, auka þjóðhagslegan spam-
að og skapa svigrúm fyrir lægri
langtímavexti og minna aðhald í
peningamálum en ella.
Seðlabankinn sendir í skýrslu
sinni skýr skilaboð þess efnis að
hætta kunni að vera á ofhitnun
hagkerfisins og því megi ekki
vænta neinna tilslakana í peninga-
stefnu bankans. Birgir ísleifur
Gunnarsson, seðlabankastjóri,
sagðist aðspurður ekki útiloka
frekari aðhaldsaðgerðir en þegar
hefur verið gripið til. „Við fylgj-
umst með helstu hagvísum frá
degi til dags. Við erum því auðvit-
að tilbúnir til að grípa til aðhalds-
aðgerða ef við teljum nauðsyn
bera til. Við teljum það ekki nauð-
synlegt enn sem komið er en við
viljum alls ekki útiloka að til þess
þurfi að koma,“ sagði Birgir.
Viðskiptahalli mun
minni en spáð var
Spáð er að viðskiptahalli við út-
lönd verði um 17,5 milljarðar
króna eða um 3,4% af landsfram-
leiðslu á þessu ári. Þetta er um-
talsvert minni halli en gert var ráð
fyrir, en sl. vor var því spáð að við-
skiptahallinn yrði um 5% af lands-
framleiðslu á árinu, eða sem sam-
svarar um 27 milljörðum króna.
Stærstur hluti hallans stafar af
innflutningi vegna fjárfestinga í
stóriðju, en að þeim frátöldum er
gert ráð fyrir viðskiptahalla upp á
um 0,7% af landsframleiðslu.
Birgir Isleifur sagði það hins
vegar vera visst áhyggjuefni að hér
myndaðist viðskiptahalli við fjár-
festingastig sem væri ekki ýkja
hátt í sögulegu samhengi. Þessi
þróun stafaði af því að þjóðhags-
legur sparnaður væri hér of lítill.
Hann sagði það hins vegar fyrst og
fremst koma í hlut ríkisins að
bregðast við þeirri þróun, enda
væri það Ijóst að fljótlegasta að-
ferðin til að auka þjóðhagslegan
sparnað væri að auka spamað rík-
issjóðs. Lægra gengi við þessar að-
stæður væri hins vegar óæskilegt.
Minna aðhald í ríkis-
íjármálum á næsta ári
Már Gunnarsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans, benti á í
þessu samhengi að nokkuð hefði
dregið úr aðhaldi í ríkisfjármálun-
um og því mætti rekja þann af-
gang sem áætlaður væri á fjárlög-
um næsta árs nær eingöngu til
hagsveiflunnar. „Ef gengið er út
frá því að tekjur ríkissjóðs ykjust
jafn mikið og landsframleiðsla og
útgjöld jafn mikið og fólksfjöldi þá
kemur fram pínulítil slökun í ríkis-
fjármálum í ár og enn meiri á
næsta ári.“
Hann sagði hins vegar á móti
koma að með þeirri eignasölu sem
fyrirhöguð væri mundu skuldir
ríkissjóðs lækka.
Seðlabankinn spáir því að verð-
bólga verði nokkra meiri á næsta
ári, eða um 2,7% á milli áranna
1997 og 1998, samanborið við um
1,8% verðbólgu í ár. Segir í
skýrslu bankans að verðbólgu-
hraðinn muni verða meiri á fyrri
hluta ársins vegna launahækkana
um næstu áramót.
Hins vegar er bent á að verð-
lagshækkanir í tengslum við
launahækkanir á þessu ári hafi
orðið minni en spáð var. Ekki sjá-
ist enn marktækar vísbendingar
um almennt launaskrið og verð-
bólga sé enn mjög hófleg. Því væri
möguleiki að verðbólga yrði minni
á næsta ári en spáð sé, líkt og
raunin hafi verið að undanförnu.
Á móti komi þó að verði hag-
vöxtur áfram jafn mikill og verið
hefur undanfarin tvö ár, þá kunni
hann að valda spennu á vinnu-
markaði. Már segir að við aðstæð-
ur líkar þeim sem nú séu, þar sem
atvinnuleysi hafi minnkað mjög
hratt, þá kunni sveigjanleiki sem
verið hafi á vinnumarkaðnum að
minnka og launaskrið geti fylgt í
kjölfarið.
Þá geti meiri eftirspurn á vöru-
og þjónustumörkuðum aukið hætt-
una á því að atvinnurekendur velti
hærri launakostnaði út í verðlagið.
Framundan sé því nokkur óvissa.
Már benti ennfremur á að verð-
bólguvæntingar á verðbréfamark-
aði sem sjá mætti í vaxtaálagi á
óverðtryggð ríkisbréf, væru
nokkru meiri en sem næmi verð-
bólguspá Seðlabankans. Jafnframt
væru verðbólguvæntingar einstak-
linga lítillega meiri.
Bankarnir auka hlutdeild
sína í útlánum
Yngvi Örn Kristinsson, hjá |
Seðlabankanum, sagði að aukin út- |
lán í bankakerfinu hefðu valdið l
mönnum nokkram áhyggjum á ‘
þessu ári. Við nánari skoðun lána-
kerfisins í heild hefði hins vegar
komið í ljós að vöxtur útlána á
þessu ári hefði verið svipaður og á
undanförnum árum og vart um-
fram það sem teldist samrýmast
áframhaldandi stöðugleika miðað
við núverandi hagvaxtar- og verð- ,
bólgustig. Hann sagði af þessum
tölum ljóst að bankakerfíð hefði I
verið að auka hlutdeild sína í út- |
lánum á kostnað annarra útláns-
stofnana.
Yngvi Örn sagði að sú gengis-
hækkun sem varð á fyrri hluta árs-
ins hefði gengið til baka og gengi
krónunnar nú væri svipað og um
áramót. Hann sagði að útstreymi
það sem orðið hefði á gjaldeyri
upp á síðkastið mætti annars veg- j
ar rekja til hækkandi verðbólgu- |
væntinga, auk vaxandi verðbréfa- ,
kaupa innlendra aðila érlendis. »
Þar hefðii titringurinn á ei’lend-
um hlutabréfamörkuðum greini-
lega haft sín áhrif og hefðu inn-
lendir fjárfestar nýtt sér tækifærið
og aukið íjárfestingar erlendis í
kjölfar lækkana á gengi hlutabréfa
og lækkunar á gengi dollars.
Þannig hefðu fjárfestingar inn-
lendra aðila erlendis aukist um 2,3 I
milljarða króna í október og væru |
þegar orðnar talsvert meiri en áð- |
ur hefði tíðkast.
Vantar - einbýli - Kóp.
Staðgreiðsla í boði
Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbýli, rað-
eða parhúsi í vesturbæ Kópavogs eða í
austurbænum sunnan Digranesvegar.
Verðhugmynd 11—17 millj.
Valhöll fasteignasala,
Mörkinni 3, Reykjavík,
sími 588 4477.
L