Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 56

Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJlg>MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Ámi Sæberg Goslistaverkið UNNIÐ er við það þessa dagana að leggja nauðsynlegar leiðslur og undirstöður fyrir væntanlegt gos- j^Jistaverk í Öskjuhlíð. Starfsmenn Hitaveitu Reykjavíkur annast tilbúið í janúar lagningu leiðslna og undirstaðna og verktakar lokafrágang með hellulögn og fleiru. Listaverkinu er ætlað að gjósa og ættu gos þess að geta hafist í janúar. Samningar um lögsögumörk undirritaðir Aðeins Hvalbaks- deilan óleyst UTANRIKISRAÐHERRAR Is- '"'"'lands, Noregs og Danmerkur og formaður grænlenzku landstjórnar- innar undirrituðu í Helsinki í gær samninga um afmörkun fískveiði- lögsögu milli landanna þriggja. Eina óleysta deilan um mörk ís- lenzku fiskveiðilögsögunnar er nú deila íslands við Færeyjar, sem við- urkenna ekki klettaskerið Hvalbak sem grunnpunkt íslenzku lögsög- unnar. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra, Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Jonathan Motzfeldt, formaður land- stjómar Grænlands, undirrituðu samning sem tilgreinir nákvæmlega í sjálfheldu á Ólafsvik. Morgunblaðið. Á ANNAN tug kinda bíða nú dauða síns á hamrastöllum Mýrarhyrnu vestan við Grundarfjörð. Gróðursælt er í fjallinu og tælir það féð niður í hamrana ofanfrá. Fara kindurnar stall af stalli og enda svo líf sitt með því að hrapa eða svelta til bana. Fyrir nokkrum árum bar þó svo við að grákrúnótt ær sem nefnd var Stjarna kom fram heil á húfi á góu eftir dvöl í þessum ægihömrum. Höfðu þá bæði lömb hennar hrapað og í eitt skipti fyrir öll legu miðlínu milli Islands og Grænlands. Þá und- irrituðu Halldór, Helveg Petersen og Knut Vollebæk, utanríkisráð- herra Noregs, tvíhliða bókanir um endanlega afmörkun hafsvæðisins þar sem lögsögumörk Islands, Grænlands og Jan Mayen skerast. Nýlega féllu brezk stjórnvöld frá kröfu sinni til 200 mílna lögsögu við klettinn Rockall, sem skaraðist við 200 mílna lögsögu Islands. Ein- göngu Færeyingar gera þá kröfu til einhvers hluta þess svæðis, sem til- greint er sem fiskveiðilögsaga ís- lands í íslenzkum lögum. ■ ísland/11 hamrastöllum og fleira fé fórst þennan vetur. Þær kindur sem nú eru á fjallinu eru tald- ar vera frá ýmsum bæjum, þar á meðal tvær tvílembur frá Mávahlíð á Snæfellsnesi. Utilokað er að skjóta féð neðan af jafnsléttu, bæði vegna hæðar fjalls- ins og svo vegna þess að féð hverfur úr sjónlínu þegar nær er komið. Hugsanlegt er að síga í fjallið, en með sanni má segja að til kindanna nái enginn nema fuglinn fljúgandi. Fundur í Atlantsálshópnum til að móta endanlega stefnu Skoða hugmyndir um hærra orkuverð ATLANTSÁLSHÓPURINN, sem áformað hefur að byggja álver á Keilisnesi, hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort viðræðum um framkvæmdir verður haldið áfram. Landsvirkjun hefur sent hópnum nýjar tillögur um raforkuverð, sem fela í sér nokkra hækkun frá því verði sem upphaflega var rætt um. Fyrirtækin í Atlantsálshópnum, Alumax, Hoogovens og Granges, áformuðu að byggja 240 þúsund tonna álver á Keilisnesi, en áformunum var skotið á frest 1991 vegna óhagstæðrar verðþróunar á áli. Vegna samninga sem Lands- virkjun hefur gert við ISAL, Norð- urál og íslenska jámblendifélagið telur Landsvirkjun sig ekki geta boðið Atlantsáli jafnhagstætt raf- orkuverð og gert var ráð fyrir í upphaflegum samningum. Fyrir- tækjunum hefur verið gerð grein fyrir þessu, en jafnframt hefur Landsvirkjun kynnt þeim nýjar hugmyndir um mismunandi stærð- ir á álverum og mismunandi bygg- ingarhraða. Fundur áformaður í Atlantsálhópnum Hans Van der Ros, fram- kvæmdastjóri Hoogovens í Hollandi, sagði að fyrirtækin hefðu verið með þessar tillögur til skoð- unar að undanfömu, en engin nið- urstaða væri fengin. Fyrirtækin þyrftu að ræða saman innbyrðis og áformað væri að fulltrúar þeirra kæmu saman til fundar til að móta endanlega stefnu. Þessar vikumar væm forráðamenn lyrirtækjanna önnum kafnir við gerð fjárhags- áætlana fyrir næsta ár og þess vegna hefði mönnum ekki tekist að koma fundi fyrirtækjanna um byggingu álvers á Keilisnesi á dag- skrá. „Við gemm okkur grein fyrir breyttum aðstæðum á íslandi. Ver- ið er að byggja nýjar verksmiðjur og þar er ekld lengur offramboð á raforku. Við emm því í nýrri stöðu sem við þurfum að taka tillit til. Þær hugmyndir um raforkuverð sem Landsvirkjun hefur nú sett fram em þó ekki fjarri þeim hug- myndum sem unnið var með fyrir nokkrum ámm,“ sagði Van der Ros. Hann vildi ekki svara því beint hvort hækkað raforkuverð yrði til þess að Atlantsál hætti endanlega við að byggja álver á Keilisnesi. „Orkuverðið er að sjálfsögðu meg- inatriðið í viðræðum við Lands- virkjun og við þurfum að gera upp við okkur hvað við viljum í þeim efnum.“ & s H 1 ■ MJ Morgunblaðið/Ásdís Börn að leik BÖRNIN í Tjarnarborg í Reykjavík röðuðu sér upp í virk- inu sínu og voru þess albúin að mæta hverju sem var. Þau geta búist við sólríku veðri í dag í norðaustan golu eða kalda en á Vestur- og Norðurlandi er búist við slyddu og rigningu eystra. I gæslu vegna 'Viðskiptahallinn 10 millj- örðum minni en spáð var VIÐSKIPTAHALLI við útlönd verður að lík- indum um 10 milljörðum króna minni en spáð var fyrr á þessu ári, að því er fram kemur í haustskýrslu Seðlabanka Islands sem kynnt var . j gær. Segir þar að viðskiptahallinn í ár stefni í ?um 17,5 milljarða króna, eða um 3,4% af lands- framleiðslu, en ekki 27 milljarða eins og spáð var fyrr á þessu ári. Stærstur hluti þessa halla stafar af fjárfestingu í stóriðju. I skýrslu bankans kemur jafnframt fram að sá hagvöxtur sem verið hafi hér á undangengn- um tveimur árum hafi tekið allan slaka úr ís- lensku efnahagslífi og nú sé svo komið að vöxtur gp^liagkerfisins sé nálægt þeim mörkum sem sam- rýmst geti til lengdar stöðugleika í verðlagsmál- Seðlabankinn telur aukið aðhald þurfa í ríkis- fjármálum svo að vextir geti lækkað um. Því muni Seðlabankinn áfram viðhalda að- haldssamri peningastefnu. títilokar ekki frekari aðhaldsaðgerðir Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri sagði ekki þörf á vaxtahækkunum að svo stöddu en útilokaði ekki að bankinn myndi grípa til frekari aðhaldsaðgerða ef þess þyrfti með. Hann sagði það jafnframt vera áhyggjuefni að hér myndaðist viðskiptahalli á sama tíma og fjárfesting væri ekki mikil í sögulegu samhengi. Sagði hann skýringuna vera lítinn þjóðhagsleg- an sparnað og þar þyrfti ríkið að ganga á undan með auknu aðhaldi. Betri árangur í ríkisfjármálum myndi hamla gegn mikilli aukningu þjóðarútgjalda, auka þjóðhagslegan spamað og skapa svigrúm til lægri langtímavaxta og minna aðhalds í pen- ingamálum en ella. ■ Aukið aöhald/17 fíkniefna LÖGREGLAN í Reykjavík handtók fyrir nokki-u mann með á sjötta hundrað E-töflur, 660 g af am- fetamíni og lítils háttar af hassi og marjjúana. Var maðurinn tekinn með hluta af fíkniefnunum og fann lögreglan síðan meira af efnunum við framhaldsrannsókn málsins. Maðurinn, sem er rúmlega tvítug- ur, var handtekinn að kvöldi 28. október síðastliðinn og úrskurðaður strax í gæsluvarðhald tO 17. nóvem- ber næstkomandi eða í þrjár vikur. Ómar Smári Ármannsson aðstoðai-- yfirlögregluþjónn segir að maðurinn hafi verið handtekinn með á sjötta hundrað E-töflur og um það bil 160 grömm af amfetamíni auk lítilshátt- ar af hassi og marijúana. Við fram- haldsrannsókn hafi verið lagt hald á 500 g af amfetamíni til viðbótar. Lögreglan hefur varist allra frétta af málinu þar til nú að rannsókn þess er langt á veg komin og er ráðgert að gefa út ákæru fljótlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.