Morgunblaðið - 09.12.1997, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTS
Innkaup erlendra ferðamanna 1 íslenskum verslunum
Rússarnir eyða mestu
Ljósmynd/Ástvaldur Jóhannesson
15 ára sigurvegari
í Verðbréfaleik
BANDARÍKJAMENN kaupa allra
þjóða mest í ferðalögum hingað til
lands að því er kemur fram í yfirliti
sem Europe Tax-free Shopping á
Islandi hf. hefur tekið saman yfir
verslun erlendra ferðamanna
fyrstu tíu mánuði ársins. Rússar
eyða hins vegar mestu að meðaltali
eða fyrir a.m.k. 16 þúsund krónur
hver.
Yfirlitið er unnið úr ávísunum
vegna endurgreidds virðisauka-
skatts ferðamanna, en fyrirtækið
annast milligöngu vegna þeirra.
Samkvæmt því keyptu Bandaríkja-
menn mest erlendra þjóða hérlend-
is fyrstu tíu mánuðina eða fyrir
tæpar 77 milljónir króna en Þjóð-
verjar keyptu næstmest eða fyrir
tæpa 61 milljón. Rétt er að hafa í
huga að verslunin er meiri en þess-
ar tölur gefa til kynna enda fara
ekki allir ferðamenn fram á endur-
greiðslu eða hirða ekki um það
nema keypt sé fyrir háa upphæð.
Svíar eru í þriðja sæti, Norðmenn í
fjórða, Danir í fimmta og Bretar í
sjötta.
Innkaupin eru í samræmi við
ásókn þessara
þjóða hingað en
fyrstu tíu mánuðina
komu 33.616
Bandaríkjamenn
og 31.349 Þjóðverj-
ar hingað til lands.
Hver Bandaríkja-
maður keypti varn-
ing fyrir 2.284
krónur, sem síðar
var krafist endur-
greiðslu virðisauka-
skatts á, en hver
Þjóðverji fyrir
1.940 krónur.
Rússar og Jap-
anir eyddu hins
vegar mestu ef
miðað er við eyðslu
á hvern ferðamann.
A tímabilinu komu aðeins 664 Rúss-
ar og eiga þeir 2,2% heildarsölunn-
ar. Hver þeirra eyddi að meðaltali
16.134 krónum samkvæmt könnun-
inni. Hver Japani keypti vörur fyrir
6.047 krónur.
Að meðaltali eru fjórir ferða-
menn um hverja ávísun, sem skilar
sér vegna endur-
greiðslu virðis-
aukaskatts en hver
Rússi fékk hins
vegar 1,7 ávísun
endurgreidda að
meðaltali og hver
Japani eina ávísun.
Ullin vinsælust
sem fyrr
Ullin nýtur
mestra vinsælda af
einstökum vöru-
flokkum en nær
allar þjóðir eyða
yfir 60% af heild-
arútgjöldum sínum
í ullarvöruverslun-
um samkvæmt yf-
irlitinu.
I nóvembermánuði hófust skipu-
lagðar verslunarferðir ásamt sér-
stakri kynningu á íslenskri verslun
fyrir erlenda ferðamenn. Þetta hef-
ur borið þann árangur að fjöldi
endurgreiddra VASK-ávísana jókst
um 76% milli ára, úr 1.505 í nóvem-
ber í fyrra í 2.649 í nóvember sl.
LANDSBRÉF hf. hafa veitt fyrstu
viðurkenningu til leikmanns í
Verðbréfaleik fyrirtækisins sem
hófst fyrir mánuði. Sigurvegarinn
í leiknum þennan fyrsta mánuð
heitir Frímann Örn Frímannsson
og er 15 ára gamall.
I frétt frá Landsbréfum segir
að þrátt fyrir ungan aldur hafi
Frímann fylgst með verðbréfavið-
skiptum í nokkur ár og búi greini-
lega yfir þekkingu á verðbréfa-
markaðnum. Um 4 þúsund leik-
menn hafa nú skráð sig í leikinn
eða rúmlega 15% af virkum
vefnotendum hér á landi. Sigurð-
ur Ragnarsson, ritstjdri heima-
síðu Landsbréfa, afhenti Frímanni
Erni sigurlaunin fyrir árangur-
inn.
Kínverjar
skjóta
hnöttum frá
Motorola
Peking. Reuters.
KÍNVERJAR hafa skotið tveimur
Iridium gervihnöttum og hafa samið
við bandaríska rafeindarisann
Motorola um að skjóta 20 til viðbótar
að sögn Xinhua fréttastofunnar.
Tveimur gervihnöttum í eigu
Motorola var skotið með bættri út-
gáfu af kínversku Long March 2C
eldflauginn frá Taiyuan skotsvæðinu
í Shanxi-fylki í Norður-Kína.
Gervihnettirnir tilheyra fjar-
skiptaneti Iridiums, sem býður fjar-
skiptaþjónustu af öllu tagi. Þar með
hefur verið skotið 41 Iridium hnetti,
þar af átta á jafnmörgum mánuðum.
Samningur við Motorola
Motorola hefur samið við China
Great Wall Industry Corp um að
skjóta 20 Iridium gervihnöttum til
viðbótar á næstum árum að sögn
Xinhua.
Motorola mun nota eldflaugar í
Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína
til að skjóta 66 af Iridium gervi-
hnöttum sínum á braut og verður 22
skotið frá hverju landi.
---------------
Sumitomo vill
kaupa bréf í
Yamaichi
Tdkýó. Reuter.
SUMITOMO banki í Japan kveðst
íhuga kaup á hlutabréfum í Yamaichi
International Capital Management
Co Ltd af hópi fyrirtækja, sem stóðu
að hinu gjaldþrota verðbréfafyrir-
tæki Yamaichi Securities Co Ltd.
Franska fyrirtækið Societé
Générale segir að fréttir fjölmiðla
um að það hafi samþykkt að kaupa
bréf í Yamaichi International Capital
Management Co Ltd séu ótímabær-
ar.
------++-+-----
Microsoft vill
kaupa HotMail
Menlo Park, Kaliforníu.
MICROSOFT er reiðubúið að
kaupa ókeypis tölvuþjónustu í einka-
‘eign, HotMail Corp.
Microsoft er einnig reiðubúið að
fjárfesta í fyrirtækinu ef ekki verður
hægt að semja um kaup á því sam-
kvæmt heimildarmönnum, sem hafa
fylgzt með samningaviðræðum hinna
tveggja fyrirtækja.
>
>
>
>
>
>
>
t
>
I
>
>
>
>
>