Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ fþróttamaður Selfoss 1997 Morgunblaðið/Sig. Fannar AFREKSMENN deilda UMF Selfoss ásamt ungum og efnilegum arftökum á hófi sem íþrótta- og tómstunda- ráð Selfossbæjar hélt á dögunum. Ingólfur Snorrason valinn annað árið í röð Selfossi - íþrótta- og tómstunda- ráð Selfossbæjar hélt á dögunum hóf tileinkað þeim íþróttamönnum á Selfossi sem sýnt hafa góðan ár- angur á árinu. Ungir og efnilegir íþróttamenn voru einnig verð- launaðir fyrir góðan árangur í íþrótt sinni. Það var Ingólfur Snorrason karatemaður sem var valinn íþróttamaður Selfoss árið 1997. Þetta er annað árið í röð sem Ingólfur er valinn. Ingólfur er vel að titlinum kominn og í umsögn um kappann segir að hann sé góð fyrirmynd allra íþróttamanna, reglumaður með mikinn sjálfsaga. Ingólfur var að vonum ánægður með tilnefninguna. Hann vildi óska öðrum þeim sem tilnefndir voru til hamingju. „Ég veit að svona tilnefningu fylglr mikil ábyrgð og menn gera kröfur til mín í kjölfarið en ég er staðráðinn í að standa undir þeim vænting- um.“ Ingólfur vill tileinka tilnefning- una ungum íþróttamönnum. „Unga fólkið er framtíðin og þau verða að gera sér grein fyrir mik- ilvægi íþróttanna, stunda reglu- samt og heilbrigt lífemi og sýna sjálfsaga í öllu sem það tekur sér fyrir hendur,“ segir Ingólfur. Árið 1998 verður annasamt hjá Ingólfi og nú þegar eru á dag- skránni 15 mót á eriendri grundu. Ingólfur er þó hvergi banginn og er staðráðinn í að bæta sig í íþrótt sinni. INGÓLFUR Snorrason ásamt unnustu sinni Guðfinnu H. Jónasdóttur. ^ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson NÝR leikskóli verður vígður á Isafirði á laugardag. Nýr leikskóli vígð- ur á Torfunesi ísafirði - Formleg vígsla nýs leik- skóla á Torfunesi á Isafirði verður laugardaginn 31. janúar kl. 13. Leik- skólinn er um 725 m2 og er heildar- kostnaður við bygginguna áætlaður 81 milljón kr., sem svarar til 108 þús. kr. á hvern frn, ef frá er talinn kostn- aður við lóð, sem var um 9 millj. kr. I skólanum verða tvær heilsdags- og tvær hálfsdagsdeildir með sveigj- anlegri vist fyrir allt að 132 börn, að hámarki 88 börn samtímis. Gert er ráð fyrir 22 stöðugildum. Framkvæmdum við húsið er að mestu lokið en ráðgert er að ljúka því sem upp á vantar fyrir sumarið. Þá er gert ráð fyrir að fullbúinni lóð verði skilað um mitt sumar. Það var í apríl á síðasta ári sem bygging leikskólans var boðin út samkvæmt útboði. Tilboð voru opnuð 6. júni og reyndist hag- stæðasta tilboðið vera frá Eiríki og Einari Val hf. Undirbúningur verks- ins hófst um miðjan júní og er hönn- unar- og framkvæmdatími því alls um níu mánuðir. Arkitekt hússins er Elísabet Gunn- arsdóttir á ísafirði. Hornið hf. kaupir Pizza 67 Selfossi - Hornið hf., sem er mat- vöruverslun á Selfossi í eigu Gunn- ars B. Guðmundssonar og fjöl- skyldu, hefur keypt rekstur veit- ingastaðarins Pizza 67, en veitinga- staðurinn er í sama húsnæði og Hornið hf. á Tryggvagötu á Sel- fossi. Nýr framkvæmdastjóri Pizza 67 á Selfossi er Elvar Gunnarsson og tekur hann formlega við rekstrinum um næstu mánaðamót. Að sögn El- vars mun hann fara varlega í allar breytingar en knattspyrnuaðdáend- ur munu kætast því hann hyggst leggja aukna áherslu á þjónustu í kringum beinar útsendingar í fót- bolta. ELVAR Gunnarsson, nýr fram- kvæmdastjóri Pizza 67 á Sel- fossi, ásamt unnustu sinni, Maríu Örlygsdóttur. Skipasmiðastöðin hf. á fsafírði Þriðja nýsmíða- verkefnið í höfn Isafirði - Skipasmíðastöðin hf. á ísa- firði, hefur gengið frá smíðasamningi við Stapavík ehf. á Akranesi um smíði á 30 tonna stálskipi sem ráð- gert er að gera út á dragnótaveiðar. Hið nýja skip verður svipað og Sand- vík, sem fyrirtækið smíðaði á síðasta ári, en þó örlítið breiðara og dýpra. „Skipið verður 4,80 m á breidd, 2,80 m á dýpt og 15 m að lengd. Smíðin hefst fljótlega en samkvæmt samningi eigum við að skila skipinu fullbúnu í júlí í sumar,“ sagði Sigurð- ur Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvarinnar, í samtali við fréttaritara. „Við erum bjartsýnir á að geta náð í fleiri verkefni og við stefnum að því að hafa næg verkefni allt árið,“ sagði Sigurður. OSTRIrJ PLUS Austurlenska perlan í dagsíns önn. Japanska ostruþykkníð gefur þér fjölbreytt og uppbyggjandí bætíefní. * Bætt orka * Betra jafnvægi * Aukin einbeiting * Bara ein á dag Nú á kr. 1 .990. Sendum í póstkröfu. Skipagötu 6, Akureyri. Sfmi/fax 4621889. GRÍMUR Marinó Steindórsson með frummyndina af Súlunum, sem prýða haus hafnargarðsins á Hörgaeyri í Eyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson EITT verkanna sem Grímur Marinó gaf, mynd af föður hans. Grímur Marinó færir Listasafninu í Eyjum gjöf Vestmannaeyjum - Grímur Mar- inó Steindórsson, myndlistar- maður, færði Listasafni Vest- mannaeyja að gjöf 25 málverk sem hann hefur málað og gaf hann myndirnar í tilefni af björgun Vestmannaeyinga er jarðeldarnir brutust út fyrir 25 árum. Grímur Marinó er fæddur í Vestmanneyjum árið 1933 og sleit barnsskónum í Eyjum. Hann lærði járniðn og stundaði fag sitt um árabil. Hann nam síðan málaralist og höggmynda- gerð við Myndlistaskólann í Reykjavík og hefur stundað list sína um árabil. Listaverk Gríms Marinós sem eru staðsett víða um land eru margvísleg. Hann hannaði m.a. vitann á Hörgaeyr- argarði í Vestmannaeyjum, Súl- urnar, sem vfsar skipum leiðina inn höfnina í Eyjum. Grímur Marinó hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir listaverk sín. Hann hlaut m.a. 1. verðlaun í samkeppni sem haldin var eftir leiðtoga- fund Gorbatsjovs og Reagans í Höfða árið 1986 og einnig hlaut hann 2. verðlaun í samkeppni Listahátíðar 1987. Grímur Marinó hefur verið út- nefndur Bæjarlistamaður Kópa- vogs en í Kópavogi hefur hann búið um árabil. Myndirnar sem Grímur Mar- inó gaf Listasafni Vestmanna- eyja eru nú til sýnis í anddyri Safnahússins og verður sýningin opin til 10. febrúar. I I í > I r i i > [ i i I t i > > > > » p
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.