Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 25 Reuters HILLARY Clinton segir sarasæri hægrimanna liggja að baki Lewin- sky-málinu. Hér hlýðir hún á stefnuræðu eiginmanns síns í fyrrinótt. SAMSÆRISKENNINGAR Ovinir tengjast ÞEGAR Hillary Rodham Clinton, eiginkona Bandaríkjaforseta, talaði í sjónvarpi í fyrradag um „víðtækt samsæri hægrimanna" gegn þeim hjónum, hafði hún sæg óvina í huga. Frá blöðum eins og The American Spectator til gulu pressunnar í Bret- landi, frá samsæriskenningasmiðum um andiát Vincents Foster (lögfræð- ings og vinar Clinton-hjónanna sem framdi sjálfsmorð 1993) til sjónvarps- prédikarans Jerrys Falwell, hafa for- setahjónin verið umsetin hægrisinn- uðum gagnrýnendum. Kenningar um samsæri hægri- manna gegn Clinton fengu nýjan byr í gær, þegar The New York Öbserver birti um það grein að íhaldssömum lögfræðingi í New York, George Conway III, hefði verið stefnt af lög- fræðingum Clintons vegna tengsla hans við mál Paulu Jones og Monicu Lewinsky. Á mánudaginn var Conway birt stefnan. Samkvæmt frásögn New York Observer kom Conway sam- starfsmönnum sínum mikið á óvart þegar hann viðurkenndi að hafa með leynilegum hætti lagt málaferlum Jo- nes lið frá árinu 1994, þar á meðal að- stoðað við að skrifa lögfræðiálit fyrir hæstarétt Bandaríkjanna, sem skar úr um hvort Clinton fengi að njóta friðhelgi á meðan hann situr í emb- ætti. Eins og kunnugt er úrskurðaði rétturinn að forsetinn nyti ekki frið- helgi og hinn 17. þessa mánaðar bar hann vitni vegna rannsóknar Jones- málsins, en það var í fyrsta sinn í sögunni sem sitjandi Bandaríkjafor- seti bar vitni í tengslum við rannsókn á sakamáli. Áróðursvél hægrimanna í greininni er Conway lýst sem mögulegum lykilmanni í samsæri hægrimanna sem standa að baki hneykslisáróðursvél sem miðar að því að flæma Clinton úr embætti. Verjendur forsetans vísa til hlut- verks Conways og annars íhaldssams lögfræðings, James A. Moody, í því skyni að renna stoðum undir fullyrð- ingar forsetafrúarinnar um samsæri hægrimanna. Telja þeir hinn sérskip- aða saksóknara, Kenneth Starr, til þátttakenda í þessu lausbeizlaða samsæri. Lögfræðingarnir tveir og Starr vísa því á bug sem helberum hugar- burði að um samsæri sé að ræða, og að hugmyndafræði eða flokkapólitík hafl nokkur áhiif á athafnir þeirra. Engar sannanir liggja fyrir sam- særisásökunum Hillary Clinton, en ljóst er að margir þeirra einstaklinga sem koma að þeim málatilbúningi sem beinist gegn forsetanum tengj- ast á ýmsan hátt innbyrðis og í gegn- um „íhaldssamar stofnanir og mál- staði“ eins og The New York Times kemst að orði. I grein New York Observer er velt vöngum yfír ýmsum mögulegum tengslum milli Conways og Lewin- sky-hneykslisins, en greinilegust eru þessi tengsl sögð milli hans og James Moody, sem mælti máli Lindu Tripp í samskiptum hennar við Kenneth St- arr. Conway mun hafa komið Tripp í samband við Moody 9. janúar sl. Þremur dögum síðar fór hún á fund Starrs og lét honum í té upptökur sem hún hafði gert á laun af samtöl- um sínum við Monicu Lewinsky. St- aiT sjálfur er repúblikani og hefur rekið dómsmál í þágu hægrisinnaðra málstaða. New York Observer rifjar upp að Moody starfaði á níunda ára- tugnum fyrir Capital Legal Founda- tion, íhaldssama lagastofnun, að málarekstri Williams Westmoreland hershöfðingja gegn sjónvarpsstöð- inni CBS vegna meintra meiðyrða, en hægrisinnaðir fjölmiðlagagn- rýnendur gerðu sér mikinn mat úr þessu máli. Kostnað þess málarekst- urs greiddi að stórum hluta Richard Mellon Scaife, auðjöfur sem hefur fjármagnað fjöldann allan af fjöl- miðlaherferðum gegn Clinton í gegn- um aðra áhrifamikla lögfræðistofnun íhaldsmanna, Landmark Legal Foundation að nafni. Moody starfaði fyrir Landmark-stofnunina að einu máli í fyrrasumar. Starr hefur líka rekið mál í þágu Landmark. Hlutur Lucianne Goldberg Verjendur Clintons vilja líka kanna hlutdeild annarrar manneskju í þessum málum, sem tengist bæði Starr, Tripp og fleiri hlutaðeigandi í Lewinsky-málinu. Þetta er Lucianne Goldberg, umboðsmaður útgáfufyrir- tækis í New York og náin vinkona Lindu Tripp. Goldberg segir sjálf að hinar leynilegu upptökur á samtölum þeirra Tripp og Lewinsky hafí verið hennar hugmynd. Goldberg hefur staðið í gróðavænlegri útgáfustarf- semi í félagi við Alfred Regnery sem er gamall vinur Kenneths Starrs. að að sb'ta sambandinu við Bleiler er hann reyndi að binda endi á það, ári eftir að það hófst. Clinton hefur leitað til fjöl- margra ráðgjafa í lögfræði, stjórn- málum og almannatengslum und- anfarna viku vegna hneykslismáls- ins. Er fullyrt að á meðal þeirra sem hann hafi snúið sér til, sé Dick Morris, sem var einn helsti ráðgjafi hans um margra ára skeið. Morris lét af stöðunni árið 1996 er upp komst um kynlífshneyksli sem hann var flæktur í. Sagt er að Clinton hafi séð mjög eftir ráðgjafanum, sem hóf störf fyrir hann er Clinton sóttist eftir því að verða ríkisstjóri í Arkansas, enda hafi Morris haft lag á því að snúa pólitískum erfíðleikum Clint- on í hag. Hafi forsetinn því leitað til hans og rætt margsinnis við hann í síma síðustu daga. Er talið nær fullvíst að Morris sé maðurinn á bak við einarða yfirlýs- ingu forsetans á mánudag, þar sem hann kallaði Lewinsky „þessa konu“, svo og samsæriskenningu forsetafrúarinnar, sem sagði í sjón- varpsþætti á þriðjudag að málið væri afsprengi „hægra-samsæris“. I viðtali við KABC-útvarpsstöð- ina í Los Angeles ýjaði Morris að samkynhneigð forsetafrúarinnar. Orðrétt sagði ráðgjafínn: „Ekkert af því sem ég segi er nauðsynlega staðreynd. En segjum sem svo að kynlíf hans með Hillary sé ekki endilega það sem talið er. Segjum sem svo að sumar ásakanirnar um að Hillary lifí ekki endilega alltaf reglubundnu kynlífí með karl- mönnum, kunni að vera sannar,“ sagði Morris og gaf þannig til kynna að Clinton kynni að hafa leitað á önnur mið. FVH fagnar 60 ára afmæli félagsins með ráðstefnu á Grand Hóteli Reykjavík, föstudaginn 13. febrúarnk., kl.13-19. Markmið með þessari ráðstefnu er að horfa fram á veginn og efna til faglegrar umræðu um framtíð íslands í samfélagi þjóðanna á nýrri öld. Dagskrá ráðstefnunnar: Skráning Setning. Kristján Jóhannsson, formaður FVH Ávarp. Davíð Oddsson, forsætisráðherra Natural Resources, Geography and Growth: The International Record. Jeffrey D. Sachs, prófessor og forstjóri Alþjóðástofnunar Harvard háskóla Áhrif alþjóðavæðingar á innlent atvinnulíf og fyrirtæki Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags íslands Kaffihlé Sjávarútvegur. Vaxtarmöguleikar á alþjóðavettvangi Friðrik Pálsson, forstjóri SH Framtíð iðnaðar á fslandi: Sókn eða vörn. Rannveig Rist, forstjóri fslenska álfélagsins Fjármálaþjónusta á nýrri öld. Bjarni Ármannsson, forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins Hagstjórn og rekstur fyrirtækja við upphaf nýrrar aldar. Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla íslands Lokaorð ráðstefnustjóra. Geir Haarde, alþingismaður Móttaka í boði FVH á Grand Hóteli Reykjavík Skráning fer fram á skrifstofu Félags viðskiptafræöinga og hagfræðinga, Kringlunni 7, pósthólf 5184, 125 Reykjavík. Sími 568 2370. Fax 568 8441. Netfang: fvh-elin@itn.is Ráðstefnugjald til félaga í FVH er 3.900 kr. ef greitt er fyrir 1. febrúar en 4.500 kr. ef greitt er eftir 1. febrúar 1998. Verð til annarra er 4.900 kr. fyrir 1. febrúar, eftir 1. febrúar 5.500 kr. Grand Hótel Reykjavík býður helgartilboð á gistingu. Tryggið ykkur aðgang að ráðstefnunni með því að skrá ykkur sem fyrst! Heimasíða ráðstefnunnar: http://www.fvh.is Afmælisráðstefna Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.