Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 42
»42 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þorlákur Jón Jónsson rafverk- taki fæddist á Suður- eyri við Súganda- íjörð 23. desember 1907. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 22. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón Ein- arsson, f. 9. júm' 1873, útgerðarmað- ur á Suðureyri, d. 22. september 1939, og kona hans Kristín Kristjánsdóttir, f. 24. júní 1874, húsmóðir, d. 25. janúar 1931. Systkini Þor- láks eru: Þóra J. Hjartar, f. 19. desember 1896, d. 31. desember 1982, Sturla, f. 24. ágúst 1902, d. 2. október 1996, Kristjana Guð- rún, f. 7. nóvember 1909, og Jó- hannes Þórður, f. 20. janúar 1916. Hinn 25. nóvember 1933 kvæntist Þorlákur Krisljönu Júl- íu Örnólfsdóttur húsmóður frá Suðureyri, f. 2. júlí 1909, d. 21. mars 1969. Foreldrar hennar voru Örnólfur Jóhannesson og kona hans Margrét Guðnadóttir. Börn Þorláks og Kristjönu eru: 1) Páll rafverktaki, f. 6. septem- ber 1934, d. 28. maí 1986, kvænt- ur Ásthildi Pétursdóttur, f. 11. júní 1934, d. 4. desember 1997. Þeirra börn eru: Björgvin og Margrét. 2) Jón Kristinn, raf- virki, f. 28. maí 1939, d. 5. júlí 1983, kvæntur Margot Holdt Þorláksson, f. 3. ágúst 1932. 3) Gunnar Aðalsteinn, skrifstofu- stjóri, f. 4. desember 1943, ~ kvæntur Kolbrúnu Hauksdóttur bankafulltrúa, f. 25. júlí 1944. Þeirra börn eru: Kristín Þóra, Lilja, Aðalsteinn og María. Dóttir Þorláks með Magneu Einarsdótt- ur, f. 5. maí 1904, er Auður, f. 26. október 1930, d. 29. júní 1993, gift Gunnari Má Torfasyni, f. 26. júní 1924. Þeirra börn eru: Har- aldur Rafn, Gerður María, Ár- sæll Már, Magnea Þóra, Olga og Auður. Fósturdóttir Þorláks og Kristjönu er Guðfinna Ríkey Ein- arsdóttir, handavinnukennari, f. 16. janúar 1945, gift Magnúsi Gunnlaugssyni, íþróttakennara, f. 10. nóvember 1939. Þeirra börn eru: Kristjana Ríkey, Guð- björg og Halla. Þorlákur bjó nokkur seinni ár með Matthildi Andlát tengdafóður míns, Þor- láks Jónssonar, kom ekki á óvart og trúlega var það honum alls ekki á móti skapi að kveðja þennan heim miðað við þven-andi þrek og lélega heilsu að undanfómu. Hann sem sjálfur sagðist ekki skilja að honum, sem í 89 ár hefði verið við fullkomna heilsu, yrði eitt ár, þetta síðasta, honum svona erfitt eftir að meinið fannst og sjúkdóm- urinn tók að ágerast. En hann setti sér það takmark á síðasta ári að ná því að verða níræður, og það tókst Jfconum á Þorláksmessu með glæsi- legri afmælisveislu með miklum fjölda gesta. Þar var hann hrókur alls fagnaðar, hélt ræðu, flutti gam- anmál, spilaði á harmonikku og þrátt fyrir þreytu gat enginn séð að svo fljótt yrði hann allur. Hann meira að segja fór með okkur á síð- asta nýársfagnað Komið og dansið og dansaði nokkra rólega dansa við dömur sem biðu þess í röðum að fá að dansa við hann, enda Þorlákur afburðadansari gegnum tíðina. Ég ræddi við hann nokkrum dögum áð- ur en hann lést og sagðist hann þá fullkomlega sáttur við lífið og vildi miklu heldur fara en lifa áfram við litla eða enga heilsu. Það var mér sem 16 ára ungri stúlku mikils virði að kynnast vænt- anlegum tengdaforeldrum mínum Þorláki og Kristjönu, og fínna þá hlýju og umhyggju sem ætíð síðan mætti mér af þeirra hálfu. Við Tíunnar hófum búskap í húsi þeirra Guðmundsdóttur frá Bæ, f. 11. júlí 1905, d. 3. desember 1986, og síðar með Lydíu Guðmundsdóttur f. 17. október 1920, d. 23. maí 1993. Þorlákur ólst upp á Suðureyri við Súg- andafjörð og byrjaði snemma að sækja sjóinn, og fullgildur háseti talinn strax eftir fermingu. Hann fluttist til Reykjavík- ur 1928 og vann í Sjókiæðagerð Reykjavíkur þar til hann hóf nám í rafvirkjaiðn hjá Eiríki Hjartarsyni árið 1929. Þorlákur lauk sveinsprófi í rafvirkjun árið 1933 og fékk meistarabréf 1937. Hann rak verslun og vinnustofu fyrst með Eiríki Iijartarsyni og Sigurði Magnússyni og frá 1944 með Sigmundi Kornelíussyni til 1952. Þorlákur rak raftækja- vinnustofu undir sínu nafni og sfðar ásamt Páli syni sínum árin 1951-1972 og starfaði um tíma hjá rafvirkjadeild Sameinaðra verktaka á Keflavíkurflugvelli. Þorlákur starfaði síðan hjá Páli í Raffelli hf. í Kópavogi fram til ársins 1986. Þorlákur útskrifaði alls 15 rafvirkjasveina á starfs- ferli sínum. Þorlákur sat í ákvæðisnefnd rafvirkja, vara- maður og endurskoðandi Lands- sambands íslenskra rafverktaka, í prófnefnd rafverktaka 1938- 1941. Varamaður í stjórn Raf- virkjadeildarinnar hf. Heiðursfé- lagi og einn af stofnendum Súg- firðingafélagsins í Reykjavík, heiðursfélagi í st. Einingunni nr. 14, heiðursfélagi Stórstúku Is- lands, gjaldkeri Þingstúku Reykjavíkur og í húsráði Templ- arahallar Reykjavíkur um árabil og formaður skemmtifélags góð- templara í aldarfjórðung. Hann var félags- og stjórnarmaður f Vestfírðingafélaginu í Reykjavík um árabil, félagi í Iðnaðar- mannafélagi Reykjavíkur, heið- ursfélagi Bindindisfélags öku- manna, auk fleiri félaga sem ekki verða talin upp hér. Þorlák- ur bjó síðustu árin í fbúðum aldr- aðra í Lönguhlíð 3. Utför Þorláks verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. á Grettisgötu 6 aðeins 18 ára að aldri, og því fylgdi mikil gæfa og forréttindi að vera í nálægð þeirra fyrstu búskaparárin. Það var okkur og börnum okkar mikill stuðningur að vera í návist þeirra örugga um- hverfis. Það var gott að leita til þeirra og þrátt fyrir stórt og gest- kvæmt heimili gáfu þau sér tíma til að létta undir og gæta barna. Það var Þorláki erfiður tími þegar Kristjana lést árið 1969. Það var mildð lán hvað við feng- um að vera mikið með þeim og sam- leið í félagsskap góðtemplara var einkar ánægjuleg. Þorlákur sýndi þar sem annars staðar vel hverr mann hann hafði að geyma. Reglu- samur, duglegur, traustur og vel liðinn hvar sem hann fór og trúnað- ur við hvert það verk sem honum var falið. Þorlákur kunni að skemmta bæði sér og öðrum, og fyrirmynd var hann góð í leik og starfi. Engum manni hefi ég kynnst sem ávallt bjó yfir jafn miklu jafnaðar- geði og jákvæðum huga til sam- ferðamanna, og viljinn til að gleðja aðra og að öðrum Iiði vel var hans aðalsmerki. Lífið er sjaldnast áfallalaust og ótímabær fráföll tveggja sona, dótt- ur og tengdadóttur varð honum þung raun, svo og tveggja sambúð- araðila, þeirra ágætu kvenna Matt- hildar Guðmundsdóttur og Lydíu Guðmundsdóttur. Það segir sig sjálft að náin samferð um nærri fjörutíu ára skeið leiðir til kynna sem seint gleymast. Það var mikið lán að kynnast slíkum manni og þakklát er ég fyrir þessi ár og hvað hann var mér og fjölskyldu minni. Það er mitt að þakka ef ég hef getað endurgoldið honum einhverja þjón- ustu, enda ávallt auðvelt að gera honum til hæfis og hann var maður sem kunni að þakka fyrir sig. Hann var listamaður af guðs náð og lag- hentur með afbrigðum. Hann tók ríkan þátt í félagslífi aldraðra og náði ótrúlega góðum árangri í gerð glerlistaverka. Myndin sem hann færði mér á fimmtugsafmæli mínu þykh- framúrskarandi falleg og vel unnin. Börnum mínum og barnabörnum vai' hann mikils virði, og undrum sætti hve vel hann fylgdist með vexti þeirra og viðgangi. Hann kunni að laða fram það besta í öðr- um og hafði gott lag á að leyfa öðr- um að njóta sín. Hann var öllum góð fyrirmynd með jákvæðu hugarfari og einstakri hlýju. Fyrir þetta vil ég þakka og veit að hann mun áfram láta gott af sér leiða. Kolbrún Hauksdóttir. Á Suðureyri við Súgandafjörð var á öðrum og þriðja áratug þessarar aldar lífsbaráttan hörð og fóru ung- lingar þar eins og annars staðar á þeim tíma að sinna daglegum störf- um svo fljótt sem auðið var. Sjósókn og fiskvinnsla voru und- irstaða lífsafkomu fólksins á Suður- eyri, einkum mun smábátaútgerð hafa verið mikilvægur þáttur í at- vinnulífinu. Þrátt fyrir harða lífsbaráttu á Suðureyri á þessum árum var þar gróskumikið mannlíf, samheldni íbúanna mikil og félagslíf öflugt og gott. I þessu umhverfí ólst tengdafaðir minn, Þorlákur J. Jónsson raf- virkjameistari, upp og tel ég að það hafi á margan hátt mótað lífsskoðun hans en dugnaður, samviskusemi og mikil þátttaka í félagsmálum voru ríkjandi þættir í fari hans. Á þeim vettvangi sem og öðrum taldi hann að helst ætti að gera í gær það sem þó auðveldlega mátti bíða til morg- uns. Um fermingu byrjaði Þorlákur sjómennsku á mótorbát og stundaði síðan sjómennsku til 21 árs aldurs er hann hóf nám í rafvirkjun hjá Ei- ríki Hjartarsyni rafvirkjameistara. Sú iðn varð síðan að farsælu ævi- starfi hans. Eins og áður hefur komið fram starfaði Þorlákur mikið að félags- málum og ber þar hæst störf hans í Góðtemplarareglunni, Átthagafé- lagi Súgfirðinga í Reykjavík og Fé- lagi íslenskra raíverktaka. Þar sem ég tel víst að aðrir geri félagsstörf- um Þorláks skil mun ég ekki fjalla frekar um þau hér. Hinn 25. nóv. 1933 kvæntist Þor- lákur Kristjönu Júlíu Örnólfsdóttur frá Suðureyri og hófu þau búskap á Grettisgötu 6 sem átti eftir að verða heimili Þorláks allt til ársins 1991. Var heimili þeirra einstaklega hlý- legt en án mikils íburðar. Gestrisni var þeim hjónum í blóð borin og nutu vinir og vandamenn hennar, ekki síst yngri kynslóðin á hverjum tíma. Þorlákur og Kristjana eignuðust þrjá syni: Pál, Jón Kristin og Gunn- ar Aðalstein. Þá ólu þau upp frá 3ja vikna aldri sem dóttur sína, systur- dóttur Kristjönu, Guðfmnu Ríkeyju Einarsdóttur, eiginkonu þess er þetta skrifar, en móðir hennar, Rík- ey, lést við fæðingu hennar frá fimm ungum börnum. Dótturina Auði eignaðist Þorlákur íyrir hjóna- band. Var ætíð litið á Auði sem eina úr fjölskyldunni. Á langri ævi fer ekki hjá því að fólk verði fyrir ýmsum áfóllum og fór Þorlákur ekki varhluta af þeim. Kristjana lést árið 1969 og þrjú bama hans, þau Jón Kristinn, Páll og Auður féllu öll frá á besta aldri og nú i byrjun desember sl. lést einnig Ásthildur tengdadóttir hans. Þessum áfóllum öllum tók Þorlákur af miklu æðruleysi. Skömmu eftir lát Kristjönu réð Þorlákur til sín ráðskonu, Matthildi Guðmundsdóttur frá Bæ í Stein- grímsfirði. Reyndist þessi ákvörðun mikil gæfa fyrir hann. Héldu Þor- lákur og Matthildur saman heimili allt þar til Matthildur féll frá árið 1986 en hún og hennar fjölskylda reyndust honum eins og best varð á kosið. Eftir að Þorlákur fluttist af Grettisgötunni bjó hann um tíma með Lydiu Guðmundsdóttur uns hann fluttist í íbúðir aldraðra 1 Lönguhlíð 3 þar sem hann undi hag sínum vel við glerlist, spil og síðast en ekki síst dansinn sem hann stundaði gegnum árin af miklum áhuga og krafti allt fram á síðasta æviár. Nú við leiðarlok hugsar Ríkey til fósturföður síns með innilegu þakk- læti fyrir alla þá ástúð, hlýju og um- hyggju sem hún hefur ávallt notið frá hans hendi. Enn fremur þökkum við hér í Vogatungunni fyrir allar þær mörgu ánægjustundir sem við höfum átt með honum bæði hér á heimili okkar, Grettisgötunni og víðar. Þar sem Þorlákur er nú kominn á æðra tilverustig er ég þess fullviss að í fyllingu tímans tekur hann þar dansandi á móti okkur og með bros á vör. Magnús Gunnlaugsson. Okkur langar í fáum orðum að minnast afa okkar, Þorláks Jóns Jónssonar, sem í dag er til moldar borinn. Þrátt fyrir háan aldur var afi fyrirmynd allra með lífsgleði sinni og kátínu. Kristjönu ömmu okkar kynntumst við ekki en ráðs- kona afa, Matthildur, sem var ein- staklega ljúf og viðmótshlý, var okkur nánast eins og amma. Varla kom afi svo í heimsókn að ekki væri Matthildur með í för og ætíð tók hún okkur opnum örmum á Grettis- götunni. Það var alltaf mikil tilhlökkun að fara í heimsókn á Grettisgötuna og ekki síst á Þorláksmessu þegar jólaspenningurinn náði hámarki en það var eins og jólin væru gengin í garð á afmælisdegi afa. Það var fastur liður þennan dag að fjöl- skyldan safnaðist saman í afmælis- kaffi. Þar tók afi gjarnan upp nikk- una og spilaði fyrir barnabörnin og aðra gesti. Þetta gerði hann nú síð- ast á níræðisafmælinu sínu sem hann hlakkaði svo til að halda upp á þrátt fyrir að veikindi væru farin að setja mark sitt á hann. Eitt af því sem stendur upp úr heimsókn- unum á Grettisgötuna eru „bíósýn- ingarnar" hjá afa en hann átti kvik- myndavél sem hann var duglegur að nota þegar við barnabörnin vor- um að vaxa úr grasi og sýndi hann afraksturinn á tyllidögum. Einnig eru ófáir kassarnir af skyggnum frá alls kyns ferðalögum og mynd- um af fjölskyldunni. Afi hafði alltaf í mörgu að snúast enda félagsmaður mikill. Hann stundaði dansinn af mikilli elju og ófáar voru laxveiðiferðirnar með til- heyrandi veiðisögum þegar heim var komið. Eftir að hann flutti í Lönguhlíðina fann hann sér nýtt áhugamál til viðbótar við hin en það var glerskurður og liggja ófá gler- verk eftir hann. Hvar sem afi var staddur var andrúmsloftið fyllt glettni og gleði og alltaf sá hann spaugilegar hliðar á málunum. Eitt sinn lenti hann í árekstri þegar rúta keyrði aftan á hann en þá þótti honum einna verst að hatturinn hans (sem hann skildi sjaldnast við sig) skyldi skjótast í aftursætið. Eins þótti honum und- arlegt þegar Selma Líf, langafabam hans, var skírð að presturinn skyldi hafa látið foreldrana fá logandi kerti í hönd. Honum fannst „praktískara“ að afhenda þeim vasaljós til að komast hjá heitu kertavaxinu. Síðasta ár þegar veik- indin voru farin að hrjá hann var heldur ekki langt í skopskynið þeg- ar hann tilkynnti að nú væri hann kominn út í fyrirsætubransann og átti hann þar við síendurteknar röntgenmyndatökur. Með kærleika og vináttu veitti hann fjölskyldu sinni og samferða- mönnum gleði og gott veganesti í dagsins önnum. Við kveðjum hann með söknuði og þökkum fyrir ein- ÞORLAKUR JÓNSSON staklega ánægjulegar samveru- stundir í gegnum árin. Kristjana, Guðbjörg og Halla. Hann Þorlákur móðurbróðir minn hefur alltaf verið minn uppá- haldsfrændi. Ég minnist hans sem gleðigjafa þegar hann kom í heim- sókn til foreldra minna í Botni í Súgandafirði. Heimsóknir mínar til Reykjavíkur, fyrst með foreldrum mínum og síðar ég ein, voru alltaf tengdar Grettisgötu 6, alltaf var tekið þar á móti af kærleik og gest- risni, aldrei kom annað til greina en að gista á Grettisgötunni. Síðar er ég flutti suður fékk ég leigt her- bergi á loftinu hjá Láka og þar uppi byrjuðum við Baldur okkar búskap. Heimili Láka var okkur alltaf opið og mér og fjölskyldu minni tekið opnum örmum. Hann Þorlákur var alls staðar gleðigjafi, traustur og trúr, sama hvað hann tók sér fyrir hendur. í öllu félagsstarfi var hann virkur, t.d. hafði hann aldrei látið sig vanta á árshátíðir hjá Súgfirðingafélag- inu. Hann var mikill dansmaður og okkar síðasti dans var á árshátíð- inni í nóvember, þó hann yrði að hægja aðeins á sér vegna veikind- anna. Ég minnist þakklætis hans að fá að vera hjá mömmu í hennar síð- ustu heimsókn suður fyrir tveimur árum, meðan ég fór í vinnu, þar var stóri bróðir að gæta litlu systur, aldursmunurinn heil tvö ár. Frændi var búin að ákveða að halda stórveislu þegar hann yrði 90 ára og við það stóð hann, þótt veik- ur væri, stóð sig með glæsibrag og naut þess í ríkum mæli að svo margir komu og heiðruðu hann, en kraftamir vora búnir og stutt í hans síðasta dag. Marga ástvini hafði hann misst og það beygði hann en braut ekki, en að lokum var hann búirm að fá nóg. Ég og fjölskylda mín munum minnast frænda með þakklæti, hlý- hug og gleði yfir að hafa þekkt slík- an mann og sú minning verður ekki frá okkur tekin. Með þessu minningabroti læt ég fylgja brot úr ljóði eftir fóður minn. I dagsins önn hún drap á gluggann minn ég dró við mig að bjóða henni inn. Ég hafði ennþá ótal mörgu að sinna, sem ógert beið og mér bar enn að vinna. En ellikerling hló og hafði að mér gaman - haustið er komið, taktu þig nú saman - þú átt aðeins eina leið - með mér. Og ekki bíð ég lengur eftir þér. (Friðbert Pétursson) Kristín Friðbertsdóttir. Þegar vinur okkar og félagi, Þor- lákur Jónsson, er kvaddur hinstu kveðju, vakna hjá okkur Einingar- félögum innan vébanda góðtempl- ara margar góðar minningar og þakklæti til hans fyrir langa vináttu og samfylgd hans í félagslegu starfi. Þorlákur var í hópi starfsömustu og tryggustu félaga bindindishreyf- ingarinnar með ötulu starfi um langt skeið í ýmsum þáttum IOGT- starfsins, enda gegndi hann þar ýmsum trúnaðarstörfum um lengri eða skemmri tíma. Hann var m.a. æðstitemplar í st. Einingunni, um langt skeið gjaldkeri í þingstúkunni, átti sæti í húsráði Templarahallar- innar, og var um árabil formaður Skemmtifélags templara svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess lagði hann starfinu í Galtalækjarskógi í tengsl- um við bindindismótin og fleiru lið svo um munaði. Þorlákur var heiðr- aður á sínum tíma fyrir hans mikla og góða framlag með kjöri sem heiðursfélagi bæði í stúku sinni, Einingunni, og hjá Stórstúku ís- lands, IOGT. Þorlákur Jón, eins og hann hét fullu nafni, var vel gerður maður. Hann var ljúfur og hafði létta lund. Hann vann af fórnfýsi og óeigin- girni starf í þágu hinna jákvæðu gilda, sem hann hafði gengið ungur á hönd. Hann átti að jafnaði manna auðveldast með að starfa með öðru fólki, enda var hann einkar vinsæll í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.