Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Winnie var
„ósnertanlegu
Jóhannesarborg. Reuters.
Færeyingar reiðir vegna danskrar tillögu um bankamálið
Ekki orð um bætur
WINNIE Mandela, fyrrverandi eig-
inkona Nelsons Mandela, var talin
„ósnertanleg" á síðustu árum að-
skilnaðarstefnunnar, að því er fyrr-
verandi lögreglumaður tjáði sann-
leiksnefnd Suður-Afríku í gær.
Lögreglumaðurinn sagði að þá-
verandi dómsmálaráðherra hefði
verið tregur til að lögsækja Winnie
fyrir landráð, þrátt fyrir að hann
segði grundvöll hafa verið til þess,
og lögreglan hefði ennfremur vikið
frá venjulegum aðferðum með því að
yfírheyra hana ekki.
Hlutverk sannleiksnefndarinnar
er að grafast fyrir um gróf mann-
réttindabrot bæði af hálfu hvítra og
svartra á síðustu árum aðskilnaðar-
stefnunnar. Winnie Mandela hefur
verið ásökuð um að hafa staðið að
baki morðum og pyntingum í
Soweto, skammt frá Jóhannesar-
borg, á níunda áratugnum.
Þórshöfn. Morgunblaðið.
MIKILLAR reiði og óánægju er
tekið að gæta meðal færeyskra
stjórnmálamanna vegna þingsá-
lyktunartillögu er danska þingið
samþykkti í gær um rannsókn
bankamálsins. I tillögunni var
hvergi minnst á bætur til Færey-
inga vegna þess milljarða króna
taps er þeir urðu fyrir við kaupin á
Færeyjabanka af Den Danske
Bank.
Danska stjómin hafði sagt, eftir
að niðurstöður rannsóknar á
bankamálinu voru gerðar opinber-
ar, að dönsk stjórnvöld væru
reiðubúin að greiða Færeyingum
bætur vegna bankakaupanna. For-
maður allsherjarnefndar færeyska
lögþingsins, Björn á Heygum, sem
er þingmaður Sambandsflokksins,
sem er hliðhollur Dönum, sagði
það óviðunandi að ekki væri
minnst á bætur í tillögunni. Hann
lét ennfremur í ljósi óánægju sína
með það sem hann gaf í skyn að
væri stefnubreyting danskra
stjórnvalda.
Hann segir að nú sé orðið ljóst
að færeysk stjómvöld hafi verið
afvegaleidd í bankamálinu, og því
sé óviðunandi að Danir skuli af
sinni hálfu ekki nefna bætur.
„Dönsk stjórnvöld hafa haft okkur
að ginningarfíflum,“ sagði Björn.
„Maður á ekki að víkja sér undan
ábyrgð með þessum hætti.“
Undirbúa
bótakröfu
Færeyska landstjórnin og lög-
þingið leggja mikla áherslu á að
eindrægni ríki í bankamálinu,
komi til þess að krafa verði gerð á
hendur Dönum um bætur. Hefur
nú verið skipuð nefnd sem í eiga
sæti fulltrúar allra flokka á lög-
þinginu til þess að fylgja eftir
hugsanlegi’i bótakröfu.
„Það er ákaflega mikilvægt að
við séum einróma og ekki verði
flokkadrættir er kemur að Færey-
ingum að láta til sín taka,“ sagði
Björn á Heygum. Líklegt er talið
að ef Færeyingar leggi fram bóta-
kröfu verði það í þessari viku.
fhh
Hflpf- frý'
BREITLING Orbiter-2 stígur upp frá svissneska alpaþorpinu Chateau d’Oex í gærmorgun.
Reuters
Hægt miðar belgfari
Chateau d’Oex. Reuters.
ÞRÍR Evrópumenn lögðu af stað í
belgflug í gær frá svissnesku alpa-
þorpi og er tilgangurinn að freista
þess að verða fyrstir til þess að
fljúga umhverfis jörðina í loftbelg
án viðkomu á leiðinni.
Loftbelgurinn, Breitling Orbiter-
2, hófst til flugs um klukkan 9 að
íslenskum tíma í gærmorgun en
miklar stillur yfir Mið-Evrópu
gerðu það að verkum að hann fór
mjög hægt yfir, eða innan við 20
km á klukkustund. Var ekki búist
við að hann kæmi suður að Mið-
jarðarhafsströndum fyrr en í dag.
Þaðan er ætlunin að svífa suður á
bóginn til Egyptalands og freista
þess að komast þar upp í skot-
vindakerfi háloftanna sem ætlað er
að fleyta belgfarinu umhverfís
jörðina.
Að sögn Bertrands Piccards leið-
angursstjóra var sú leið valin að
fljúga suður á bóginn áður en farið
verður upp í skotvindana til þess
að belgfarið berist ekki inn yfír
Kína en leiðangursmenn hafa ekki
fengið heimild til að fljúga f kín-
verskri lofthelgi.
Kappflug á leiðinni
Breski auðkýfíngurinn Richard
Branson liyggst einnig freista þess
að komast umhverfis jörðina í belg-
fari en tvær tilraunir hans til þess
hafa mistekist. Hyggst hann reyna
flugtak um helgina frá Marokkó og
miðað við gang Breitlinger-farsins
gæti því svo farið að tvö belgför,
sem skammt verður á milli, verði
samtímis á lofti í þeim tilgangi að
ná hinu eftirsótta takmarki.
Stjórnmálamenn
„leiðinlegir“
London. The Daily Telegraph.
BRESKA ríkisútvarpið, BBC,
hefur sent þau boð til stjómmála-
flokka að það vilji fækka útvarps-
og sjónvarpsviðtölum við stjórn-
málamenn vegna þess að almenn-
ingi þyki þeir leiðinlegir.
Tony Hall, framkvæmdastjóri
frétta- og dægurmáladeildar, tjáði
fulltrúum stóm stjómmálaflokk-
anna þriggja að snubbóttar full-
yrðingar stjómmálamanna færa í
taugarnar á fólki. Dagskrárstjór-
ar hjá BBC telja æskilegra að
rætt sé við sérfræðinga utan
þingsins, þar sem rannsóknir hafi
leitt í ljós að 90% Breta telja að
stjórnmálamenn svari ekki spurn-
ingum.
Stjórnmálamenn hafa brugðist
illa við og sagt að þeir séu einung-
is að láta undan þrýstingi fjöl-
miðla, sem vilji snubbóttar full-
yrðingar, sem auðvelt sé að slá
upp.
Cook gagn-
rýndur fyrir að
reka ritara
London. Reuters, The Daily Telegraph.
ROBIN Cook, utanrík-
isráðherra Bretlands,
sætti í gær harðri gagn-
rýni af hálfu breskra
blaða, og drógu tvö
þeirra í efa að hann ætti
framtíð fyrir sér í
stjórnmálum. Cook
sagði í fyrradag alls
ekkert hæft í ásökunum
um að hann hafí vikið
úr starfi „fyrirmynd-
arembættismanni" til
að starf losnaði handa
unnustu hans, Gaynor
Regan.
Oliver Letwin, þing-
maður Ihaldsflokksins,
mun leggja fram fyrirspurn, næst-
komandi miðvikudag, um fullyrð-
ingar þess efnis að Cook hafi vikið
Anne Bullen úr starfi ritara síns til
þess að Regan gæti fengið starfið.
Því er ennfremur haldið fram að
Regan hafi ekki þegið starfið vegna
þess að háttsettur embættismaður
hafi bent Cook á að breytingin
kynni að teljast „óviðeigandi", þar
eð hún væri unnusta hans. Þessu
neitaði Cook einnig í fyrradag.
Nánir vinir Bullen fullyrtu að
hún hefði verið rekin eftir fjögurra
ára starf í utanríkisráðuneytinu til
þess að koma Regan
að. Átta mánuðir eru
liðnir síðan Bullen
hætti og er hún enn að
leita sér að vinnu. Full-
trúi ráðuneytisins sagði
að Bullen hefði hætt
störfum „samkvæmt
samkomulagi" og hygði
á frama í einkageiran-
um.
Bullen kvaðst „ekk-
ert mega segja um
þetta mál“. Heimildir
herma að Cook hafí
greitt henni hálfs árs
laun er henni var sagt
upp, þrem vikum eftir
kosningarnar, 1. maí. Hún hafi gef-
ið skriflegt loforð um að ræða málið
ekki við fjölmiðla.
Haft hefur verið eftir Cook að
ástæða brottvikningar Bullen hafi
verið sú, að hún hafi verið „ómögu-
leg“ í samstarfi. Blaðið Daily Mirr-
or hafði eftir vini Bullen að hún hafi
sagt að Cook væri „hrokafullur
ruddi og stuttur í spuna“.
„Valdhroki kemur jafnan í ljós
hjá háttsettum ráðherrum, en í til-
felli Cooks hefur þetta gerst
snemma,“ sagði í London Evening
Standard í gær.
Robin Cook
"Lx
__/ýStlÆm
ÉÉ
1.200
drepnir
á föstunni
í Alsír
SVEITIR ofsatrúarmanna í
Alsír myrtu 34 manns í of-
beldisaðgerðum í þremur
þorpum í fyrrinótt, að sögn
alsírskra öryggissveita.
Föstumánuðinum, ramádan,
er nú að ljúka en í honum
hafa a.m.k. 1.200 menn, konur
og börn týnt lífi í nafni trú-
arofbeldis í landinu. Tals-
menn stjórnvalda sögðu að
Sheikh Ahmed, einn af for-
ingjum morðsveitanna, hafi
verið felldur í fyrradag.
Hætta búin
af fíkn lækna
FIMMTÁNDI hver breskur
læknir misnotar áfengi eða lyf
og stafar sjúklingum hætta af
þessum læknum, að sögn
bresku _ læknasamtakanna
(BMA). í skýrslu um lyfja-
neyslu- og áfengisvanda
breskra lækna segir að hann
sé flókinn og ekki á honum
tekið svo viðunandi geti talist.
Vandinn er hvorki bundinn
við ákveðnar læknastétth’ né
annað kynið.
Drottningar-
móðir á fætur
ELÍSABET drottningarmóð-
ir fór á fætur í gær í fyrsta
sinn frá því settur var í hana
gerviliður í mjöðm á sunnu-
dag. Er hún sögð á góðum
batavegi þrátt fyrir háan ald-
ur, en hún er 97 ára.
Páfi vonast
eftir umbótum
á Kúbu
JÓHANNES Páll páfi annar
sagðist i gær vona að nýaf-
staðin heimsókn hans til
Kúbu myndi bera samskonar
ávöxt og heimsókn hans til
Póllands 1979 sem átti sinn
þátt í því að völd kommúnista
liðu undir lok þar í landi. Að
mati sagnfræðinga varð Pól-
landsferð páfa 1979 til þess að
veita landsmönnum kjark til
þess að stofna Samstöðu,
óháðu verkalýðssamtökin,
sem að nokkru marki var
undanfari þróunarinnar er
leiddi til hruns kommúnism-
ans í Austur-Evrópu áratug
seinna.
Ritstjóri
dæmdur til
dauða
ÍRANSKUR dómari tilkynnti
í gær, að Morteza Firoozi, rit-
stjóri hófsams blaðs, sem
talið var endurspegla afstöðu
utanríkisráðuneytisins í
Teheran, hefði verið dæmdur
til dauða fyiár njósnir. Ekki
var getið í þágu hverra en
hann þótti í skrifum sínum
hófsamari í garð Bandaríkj-
anna en klerkastjórninni
hugnaðist. Er þetta hið
fyrsta, sem yfii’völd láta frá
sér fara um mál Firoozi, frá
því hann var handtekinn í maí
í fyrra.
ai^V STUTT
>