Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 43

Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 43 félagshópnum sakir góðra mann- kosta sinna. Svo mun einnig hafa verið hjá öðrum samtökum, sem hann helgaði krafta sína, eins og átthagafélögum Súgfirðinga og Vestfirðinga, auk stéttarfélags raf- virkja. Eg minnist sérstaklega hins fjölmenna hóps, er samfagnaði hon- um á 90 ára afmælinu í desember sl., og hversu samfylgd hans hefði verið góð. Þá verður eftirminnileg seinasta kveðja hans í ávarpi sem hann flutti gestum í hófinu. A langri ævi lifa menn við skin og skúrir. Vissulega mátti Þorlákur taka á sig þung áfóll við fráfall sinna nánustu sem dóu í blóma lífsins. En lífið hélt áfram þótt sorg og ljúfsár- ar minningar fylgdu á lífsbrautinni. Þorlákur sjálfur átti því láni að fagna að vera heilsuhraustur lengst af, en átti við vanheilsu að stríða hin seinustu ár, enda aldurinn orðinn hár, en sálarstyrkur hans heill. Að lokum viljum við Einingarfé- lagar senda Gunnari og Ríkeyju og öðrum ástvinum Þorláks innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þorláks J. Jónssonar. Einar Hannesson. Aldinn heiðursmaður, Þorlákur Jónsson rafvirkjameistari, er lát- inn. Stjórn Vestfirðingafélagsins í Reykjavík þykir hlýða að minnast hans með nokkrum orðum, þar sem hann vann mikið og fórnfús starf fyrir félagið um langt árabil. Árið 1928 fluttist Þorlákur til Reykjavíkur og hóf skömmu seinna nám í rafvirkjun. Lauk hann sveinsprófi 1933 og fékk meistara- bréf í iðninni fjórum árum seinna. Starfaði hann síðan við iðn sína un nær hálfrar aldar skeið, fyrst með öðram aðilum en frá 1951 rak hann eigin raftækjavinnustofu ásamt Páli syni sínum til ársins 1972. Eft- ir það vann hann hjá Páli í Raffelli hf. í Kópavogi til 1986. Um skeið átti hann sæti í stjórn Landssam- bands íslenskra rafverktaka, enda var hann gæddur þeim hæfileikum, sem gera menn eftirsótta til trún- aðarstarfa. Þorlákur var fremur lágvaxinn maður en snarlegur og kvikur í hreyfingum fram á elliár. Hann var þekktur dansmaður og þurfti ekki á áfengi að halda til að vera manna glaðastur í góðum hópi. Reyndar var hann stakur bindindismaður og stjórnaði dansleikjum fyrir góð- templara. Hann var og formaður skemmtifélags þeiri-a frá 1968 um langt árabil. Þorlákur tók ríkulegan þátt í störfum Vestfirðingafélagsins í Reykjavík, sem stofnað var árið 1940. Var hann kosinn gjaldkeri ár- ið 1973, en hafði áður verið ritari. Öll störf sín fyrir félagið vann Þor- lákur af alúð og ósérplægni um ára- tugaskeið og var í viðurkenningar- skyni kjörinn heiðursfélagi þess. I lífi manna skiptast á skin og skúrir, og það mátti Þorlákur reyna eins og svo margir aðrir. Hann missti konu sína árið 1969. Það var mikið áfall, en þau urðu fleiri, því báðir eldri synir hans féllu frá með skömmu millibili, Jón Kristinn árið 1983 og Páll 1986, sem báðir voru á besta aldursskeiði. Slíkir atburðir taka á taugarnar. En Þorlákur tók þessu mótlæti með karlmennsku og rósemi. Skömmu eftir að hann varð ekkjumaður, árið 1969, réð hann Matthildi Guðmundsdóttur til sín sem ráðskonu. Þessi ráðstöfun reyndist vel og tóku þau Þorlákur og Matthildur upp sambúð, þótt ekki kæmi til hjúskapar. Þeir sem til þekkja vita, að Matthildur tók drjúgan þátt í störfum Vestfirð- ingafélagsins, en hún hugsaði þó fyrst og fremst um að búa Þorláki gott heimili og vera hans stoð og stytta meðan henni entist líf og heilsa. Það varð Þorláki því mikill missir er Matthildur veiktist og dó í desembermánuði árið 1986. En öll þessi áföll stóð Þorlákur af sér og hélt reisn sinni og glaðværð til hinstu stundar. Vestfirðingafélagið í Reykjavík þakkar Þorláki vel unnin störf í þágu þess. Blessuð sé minning hans. Ættingjum Þorláks og ástvin- um sendum við innilegar samúðar- kveðjur. F.h. stjórnar Vestfirðingafélags- ins, Torfi Guðbrandsson. Kveðja frá rafverktökum Með örfáum orðum viljum við kveðja einn af okkar dyggustu fé- lögum, Þorlák Jón Jónsson rafverk- taka. Þorlákur sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Landssamband íslenski-a rafverktaka og Félag lög- giltra rafverktaka. Hann sýndi sam- tökum okkar einstaka ræktarsemi og sótti manna best félagsfundi, skemmtanir og ferðalög sem sam- tökin stóðu fyrir, allt fram á síðasta dag. Á sjötíu ára afmælishátíð FLR sem haldin var 15. nóvember sl. var hann heiðraður sérstaklega ásamt nokkram eldri félögum. Aðstandendum Þorláks sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Omar Hannesson, formaður Landssambands fslenskra rafverktaka. Ólafur Sigurðs- son, formaður Félags löggiltra rafverktaka. Ég veró að fara, ferjan þokast nær og framorðið á stundaglasi mínu sumarið með geislagliti sínu hjá garði farið, svalur fjallablær af heiðum ofan, hrynja lauf af greinum og horfrnn dagur gefur byr frá landi. (Davíð Stefánsson) Þegar mér barst lát Þorláks föður- bróður míns til eyrna get ég ekki sagt að það hafí komið mér á óvart. Hann hafði átt við veikindi að stríða að undanfömu enda orðinn aldrað- ur maður. Öll eram við þakklát fyrir að hafa átt með honum ógleymanlegt kvöld er hann hélt upp á 90 ára afmæli sitt á Þorláksmessu. Það var glæsi- legt afmæli þar sem hann var hrók- ur alls fagnaðar. Hélt hann þar ræðu og spilaði á hannonikku eins og honum einum var lagið. Þorlákur var mikill Súgfirðingur í sér og hélt ætíð mikilli tryggð við átthagana. Hann var einn af stofn- endum Súgfirðingafélagsins í Reykjavík og heiðursfélagi þess. Hann sótti allar samkomur félags- ins, félagsfundi, árshátíðir, gróður- setningarferðir í reit félagsins í Heiðmörk, messukaffi og jólatrés- skemmtanir. Oftar en einu sinni var hann kosinn formaður félags- ins og gegndi því starfi til margra ára. Hann var hrókur alls fagnaðar þegar burtfluttir Súgfirðingar hittust enda sí ungur og hægt er að segja að hann hafi dansað fram í andlátið. Við Þorlákur áttum líka samleið í stúkunni Einingunni. Þar var hann alla tíð virkur félagi og vel látinn af öllum. Heimili Þorláks og Kristjönu á Grettisgötu 6 var fallegt og mynd- arlegt og þar áttu ættingjar og vin- ir að vestan ætíð athvarf. Eftir lát Kristjönu kom til hans ráðskona, Matthildur Guðmunds- dóttir frá Bæ. Hún reyndist honum góður félagi og áttu þau góð ár saman. Matthildur vai- hagmælt og eru margir skemmtilegir bragir til sem hún orti til „stráksins Láka“ og era mér minnisstæðar vísur sem hún orti í tilefni af 75 ára afmæli hans. Þar dregur hún upp mynd af honum sem félagsveru og manni sem ekki kunni að segja néi við bón fólks um greiða, smellnar og gam- ansamar vísur. Við systkinin, makar okkar og börn þökkum Láka frænda sam- fylgdina og allt það sem hann var okkur og vottum börnum hans og barnabörnum samúð. Hann hefði vafalaust viljað taka undir með verkamanninum sem kvað eitt sinn: Þegar nálgast stundin stríð stend ég fljóts á bökkum. Kveðja viléglandogiýð og lífið sjálft með þökkum. Sigrún Sturludóttir frá Súgandafirði. Hver af öðrum hverfa þeir af sjónarsviðinú framkvöðlar bindind- ismótanna og starfsins í Galtalækj- arskógi. Nú hefur öðlingurinn og ljúfmennið Þorlákur verið kallaður til æðri heima. Hann var ötull liðs- maður Góðtemplarahreyfingarinn- ar, ekki síst við uppbygginguna í Galtalækjarskógi þar sem hann sat lengi í stjórn sumarheimilisins. Þorlákur sá um rafvæðingu staðar- ins auk annarra starfa er til féllu. Galtalækjarskógur væri ekki sú paradís sem hann er í dag ef ekki hefði notið manna eins og Þorláks sem lögðu fram kraj'ta sína af áhuga og óeigingirni. Áram saman sá Þorlákur um rekstur rafstöðva til orkuframleiðslu fyrir staðinn og allar lagnir sem til þurfti. Þeim fækkar sem muna notalegt hljóðið í rafstöðinni, að vísu lagði maður gjarnan við hlustir hvort ekki væri örugglega allt með felldu, sérstak- lega þegar mótin stóðu yfir. Sífellt þurfti að vaka yfir vélunum svo allt gengi upp, ef þær þögnuðu var við- búið að álagið hefði farið úr hófi fram og þá var eins gott að vera viðbúinn að kippa vöfflujárnunum úr sambandi, það var fyrsta boðorð ef rafmagnið fór að flökta, þau tóku mikla orku og voru þeim sem komu nálægt rafmagnsmálunum nokkur þyrnir í augum þó vöfflur væru annars vel þegnar. Stundum nægði að taka eitt eða tvö úr sambandi til að jafna rafmagnsálagið. Með árun- um jókst orkuþörfin jafnt og þétt, hljómsveitir og skemmtikraftar þurftu sífellt meira rafmagn fyi-ir tæki sín og tól, oft var brugðið á það ráð að fá leigða rafstöð til við- bótar þeiiri sem var á staðnum. Þegar veiturafmagn kom á staðinn kom sér vel að Þorlákur hafði lagt rafmagnið í Merkihvol með fram- tíðina í huga þó engum hefði dottið í hug að hægt yrði að ráðast í þá framkvæmd svo fljótt sem raun varð á. Vasamir hans Þorláks þurftu að vera margir og sterkir því í þeim geymdi hann flest það er nota þurfti, þeir vora hans verk- færataska. Hann var því yfirleitt fljótur að leysa vanda þess sem vantaði skrúfu eða smáverkfæri, hann stakk hendi í vasa sinn og ef hluturinn sem vantaði kom ekki í fyrsta hali þá var kafað dýpra eða í annan vasa og oftar en ekki hafði hann það sem þurfti. Þorlákur stóð ekki einn því fjöl- skyldan var með honum og hefur Gunnar sonur hans ásamt konu og börnum verið mikilvirkur í starfl fyrir Góðtemplararegluna. Öll hafa þau innt af hendi mikla vinnu við margvísleg verkefni bæði fyrir bindindismótin og staðinn í heild. Gaman er að geta þess að undan- farin ár hafa gjarnan verið fjórir ættliðir fjölskyldunnar við störf og leik í skóginum. Margs er að minnast þó fátt eitt sé nefnt hér. Við kveðjum Þorlák með söknuði og sendum fjölskyldunni samúðar- kveðjur en eftir lifir minningin um góðan mann. Stjórn Sumarheimilis templara. BlómabwðiM om v/ PoSSVOCJsl<lVÍ<jttCj|«P*ð ‘ ShWu 554 0500 " yrxxixiimi^ H H H H H H H H H H Erfidrykkjur M H H H M M M M M M ^ Sími 562 0200 ,, riiTxxxxxxxil + Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Heiðarseli 13, lést á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudags- ins 27. janúar. Loftur B. Hauksson, Helga Jónsdóttir, Jóhann B. Loftsson, Anna Sigurgeirsdóttir, Haukur Loftsson, Vordís Þorvaldsdóttir, Helgi Þ. Loftsson og barnabörn. + Móðir okkar, RAGNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 26. janúar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Lilja E.A. Torp, Ólafía Auðunsdóttir. + Frændi minn og fósturbróðir, ÞORLEIFUR GUÐMUNDSSON, DENNI, frá Dagsbrún, Neskaupstað, sem lést fimmtudaginn 22. janúar sl., verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 30. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rósa Eiríksdóttir. + Útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, STEFÁNS E. JÓNSSONAR, fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 30. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð hjúkrunarheimilisins Eirar. Halldór Stefánsson, Hjálmfríður Þórðardóttir, Ásdís Björk Stefánsdóttir, Sigurður Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Efstaleiti 12, Reykjavík, lést að morgni fimmtudagsins 22. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 30. janúar, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Minningarsjóð Hjarta- verndar. Guðrún Tómasdóttir. Halldóra Þorvaldsdóttir, Magni Guðmundsson, Guðrún Þorvaldsdóttir, Magnús Siguroddsson, Þorsteinn Þorvaldsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir, Tómas Þorvaldsson, Helga Norland, barnabörn og barnabarnabörn. (legsteinar) stórgiæsileg vara. Vinnum ijósmyndir á nýja og eldri legsteina. Rammar f/ljósmyndir, margar stærðir. íslensk framíeiðsla. Okfcar markmið ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.