Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
Halló?
Hl,5ALL'('..THIð
15 PATRICIAJ'M
CALLIN6 A0OUT A
5CH00L PANCE..
I DON't SUPP05E
CHUCK WOULD 60
LUITH ME.WOULD HE?
NO, I 5UPP05E NOT..
ANYUJATTELL
HIM I WA5
THINKIN6
OF HIM..
YOU ALM05T UÍENT
TOA5CHOOLPANCE..
Hæ, Sallý... Ég býst ekki við því að Hvað um það,
þetta er Kata ... Kalli vilji koma með segðu honum
ég hringi vegna mér, eða hvað? Nei, að ég hafi haft
skðlaballs ... ég geri ekki ráð fyrir hann í huga ...
því...
Þú varst næstum þvf farinn
á skólaball...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Sfmbréf 569 1329
V ettvangur víns
eða friðar?
Frá Guðbimi Jónssyni:
EKKI hefur farið framhjá manni
hálffurðuleg einræða forstöðumanns
Friðar 2000 um tilraunir hans til að
koma á menntasetri í Reykholti í
Borgarfirði, sem hann hefur nefnt
Friðarháskóla. Sérkennilegt er að
viðkomandi stjórnvöld skuli víkja sér
undan að kynna fyrir okkur, eigend-
um þessa mennignarseturs þjóðar-
innar, um hvað þessi deila snýst og á
hvaða forsendum umsókn um áfram-
haldandi menningarsetur í Reykholti
er látið víkja íyrir hóteli og veitinga-
sölu. Sé grundvöllur fyrir rekstri
Friðarháskóla á þessum stað tryggir
að því leyti að við, eigendur staðar-
ins, getum fengið eðlilegt afgjald fyr-
ir leiguna greitt skilvíslega, finnst
mér þjóðinni meiri sómi að Friðarhá-
skóla í Reykholti en sölu vínveitinga
og hótelgistingar. Samkvæmt úttekt
sem Samband veitinga- og gistihúsa
lét gera fyrir sig um rekstur hótela á
landinu nokkur undanfarin ár, er
ekki sjáanlegur markaður íyrir þetta
hótel á þessu svæði, nema því aðeins
að rekstrargrundvelli sé kippt undan
öðrum hótelum á sama svæði. Vart
getur það talist vettvangur stjórn-
valda að stuðla með slíkum hætti að
erfiðleikum í þessari atvinnugrein,
séu valkostir á öðru. Mér er afar
minnisstætt úr viðræðum um kjara-
samninga starfsfólks á veitinga- og
gistihúsum sl. vetur og vor að for-
svarsmenn Vinnuveitendasambands
Islands og Sambands veitinga- og
gistihúseigenda voru algjörlega sam-
mála um að rekstrarafkoma þeirrar
starfsemi sem þá var til staðar í
landinu, gæti alls ekki borið uppi
neinar launahækkanir vegna þess
hve reksturinn væri erfiður. Einnig
má benda á að samráðshópur hótel-
rekenda á landsbyggðinni hefur
barist hart fyrir að fá aukna rekstr-
arstyrki, svo þeim væri gert fært að
reka hótelin á ársgrundvelli. Flest
eru þessi hótel þó í eða við þéttbýli
og geta þar með aukið tekjur sínar
verulega yfir daufasta tíma ársins
með sölu matar til þeirra sem vilja
bregða sér út að borða, sem og til
ýmissa aðila sem eiga erindi tíl við-
komandi þéttbýlisstaða. Fátt af
þessu stæði rekstraraðila hótels í
Reykholti til boða. Ég hlýt þvi að
gera alvarlegar athugasemdir við að
virðulegt menningarsetur, sem fram
til þessa hefur verið eitt af helstu
stoltum þjóðarinnar, verði dregið
niður í subbuskap rekstrarumhverfis
sem ekki á sér rekstrarlegar for-
sendur tO að geta greitt eðlOegt af-
gjald tO þjóðarinnar fyrir afnotarétt-
inn. Ég tel það skyldu stjórnvalda að
gefa okkur skynsamlega skýringa á
því hvers vegna þessi starfsemi er
látin setjast þama að en Friðarhá-
skóla hafnað með dónalegri þögn.
Slík framkoma er ekki einungis
dónaskapur gagnvart Friði 2000 og
þeim aðilum sem forstöðumaður
þeirra samtaka segir að séu í sam-
starfi með honum, heldur er þetta
einnig grófur dónaskapur gagnvart
okkur, eigendum staðarins. Enginn
vafi virðist heldur á að þögn stjóm-
valda og skortur á svöram muni vera
gróft brot á stjómsýslulögum. Ég sé
fyrir mér svipinn á hinum tignu
þjóðhöfðingjum, sem heimsótt hafa
Reykholt sem eitt helsta menningar-
setur þjóðarinnar og veitt þangað
mikla fjármuni vegna menningarlegs
gOdis staðarins fyrir þjóð okkar,
þegar þeir frétta að það sé farið að
reka þar vonlausa starfsemi sem
ekki muni geta farið að íslenskum
lögum, eigi hún ekki að fara á haus-
inn á afar skömmum tíma. Að lokum
vil ég skora á íslenska fjölmiðla að
upplýsa okkur um reksti’arlegar for-
sendur Friðarháskólans, þ.e. hvemig
hann ætlar sér að tryggja þjóðinni
eðlilegt leiguafgjald fyrir staðinn og
birta einnig rekstrarspá rekstrai’að-
ila hótel- og veitingasölu, svo við,
eigendur staðarins, getum á grand-
velli hagsmuna okkar mótað okkur
skoðun um þau sjónarmið sem
stjórnvöld virðast ekki þora að opin-
bera okkur.
GUÐBJÖRN JÓNSSON,
Hjarðarhaga 26, Reykjavík.
Loks lögð áhersla
á Breiðholtið
Frá Aðalheiði Frantzdóttur:
ÉG HEF búið og starfað í Breiðholt-
inu í fjölda ára og þekki hverfið mjög
vel. Mér hefur fundist sem það væri
á margan hátt gleymda hverfið í
borginni því svo lítil áhersla hefur
verið lögð á að gera þar fallegt eða
gera góð leiksvæði fyrir börnin.
Á undanfómum þremur áram hef-
ur þó orðið gjörbylting. Sérstaklega
má sjá breytingu til batnaðar í efra
Breiðholti. Á milli hárra blokkar-
múra og sundlaugar- og skólasvæðis-
ins, þar sem óteljandi böm og full-
orðnir fara um daglega, er stórt og
mikið svæði sem plantað var í á sín-
um tíma en síðan ekki söguna meir.
Þama var risastórt autt malarsvæði
sem nú er búið að breyta í grænt og
skemmtilegt leiksvæði fyrir smáböm
og unglinga. Auk þess sem þarna era
komnir bekkir. Búið er að taka í gegn
gamla og úr sér gengna leikvelli bæði
í efra og neðra Breiðholti, setja upp
leiktæki á útivistarsvæðinu í Selja-
hverfi og búið er að taka í gegn
nokkrar af lóðum við leiguíbúðir
borgarinnar. Einnig er búið að planta
heilmiklu af trjágróðri þama sem
ekki veitti af. Þama er mjög mikið af
risastóram blokkarbyggingum og ef
plantað hefði verið miklu af trjám
sem verða hávaxin á sama tíma og
hverfið byggðist þá væra þessar
blokkarbyggingar ekki eins áberandi
og kuldalegar í umhverfinu.
Ég forvitnaðist um það hvort
halda ætti áfram á þessu ári með að
gera Breiðholtið fallegra og fékk
þær upplýsingar að planta ætti tals-
vert miklu, m.a. við blokkarbyggðina
við Skógarsel-Öldusel og halda ætti
áfram með stóra miðsvæðið í efra
Breiðholti.
Það er umhverfismálaráð Reykja-
víkur sem ákveður hvar fegrað er og
betrumbætt á þennan hátt í hverfum
borgarinnar og sem hverfisbúi vil ég
þakka umhverfismálaráði fyrir að
loks skuli hafa verið lögð áhersla á
Breiðholtið og vona bara að svo verði
áfram.
AÐALHEIÐUR FRANTZDÓTTIR,
Mýrarseli 11, Reykjavík.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.