Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 55
FOLK I FRETTUM
Hverjir voru hvar? Hvað er í boði? - á skemmtistöðum
ÞAÐ VAR líf og fjör á dansgólfinu.
röð fyrir utan Sjallann, einkum þeg-
ar vinsælar hljómsveitir troða upp.
Blaðamaður lenti ekki í neinum
ryskingum þetta kvöld, en honum
brá þegar hann mætti alblóðugum
gesti. Stóð hálft bjórglas út úr and-
litinu á honum. Ekki var laust við að
það vekti endurminningar frá
sveitaböllum í gamla daga þar sem
allt var logandi í slagsmálum.
Fyrst sveitaböll ber á góma má
geta þess að oft er tónlistin og
stemmningin eins og á gömlu sveita-
böllunum. Þá vakti það athygli að
gestir koma greinilega hvaðanæva
frá landinu. Þarna er fólk á öllum
aldri og engin ein tíska ráðandi,
hvorki í klæðnaði né dansstíl. Meiri-
hluti gesta var þó í kringum tvítugt.
Aberandi er þegar Reykvíkingar
leggja leið sína norður að þeir
sleppa gjörsamlega fram af sér
beislinu í Sjallanum. ímyndin, sem
hefur verið svo vandlega fínpússuð
og niðurnjörvuð í höfuðborginni,
hverfur fyrir lítið í ölæði og gassa-
gangi hringiðu baligesta. Hefur ver-
ið haft á orði að þeir séu þá „alveg á
Sjallanum."
SJALLINN
GEISLAGÖTU AKUREYRI
# Sjaliinn var opnaður á vegum
sjálfstaeðisfélaganna á Akureyri
5. júlí árið 1963 og nefndist þá
Sjálfstæðishúsið.
# „I dag verður veglegasti sam-
komusalur og veitingastaður á
Norðurlandi tekinn í notkun er
sá salur er til húsa á 2. hæð hins
nýja og glæsilega Sjálfstæðishúss
á Akureyri," stóð í Vísi þann
daginn.
# Helsti hvatamaður að bygg-
ingu Sjallans var Karl Friðriks-
son vegaverksljóri og frammá-
maður í sjálfstæðisflokknum.
# Boðið er upp á mat í Sjallanum
við hátíðleg tilefni eða þegar
hópar leigja aðstöðuna undir árs-
hátíðir eða aðrar uppákomur. Er
það þá gjaman þríréttaður
veislumatur og ekki undan neinu
að kvarta.
#20. desember árið 1981 var
svartur dagur í sögu Sjallans en
þá varð staðurinn eldi að bráð.
# Þegar Sjallinn var opnaður
aftur 25. júní 1982 höfðu farið
fram töluverðar endurbætur.
# Hálfs lítra bjór kostar 550
krónur. Einfaldur af algengu
sterku víni í gosi kostar 470
krónur og tvöfaldur í gosi 750
krónur.
# Boðið er upp á um 25 tegundir
af flöskubjór.
# Vinsælast á barnum er að fá
sér bjór eða Captain Morgan í
kók, að sögn barþjóna sem blaða-
maður gaf sig á tal við.
HLJÓMSVEITIN Sóldögg lék í Sjallanum síðastliðið laugardagskvöld.
MACLEAN systurnar skemmta
á Fógetanum fimmtudagskvöld.
laugardagskvöld, auk sérréttaseðils.
Marion Herrera frá Frakklandi leikur
matartónlist á hörpu.
■ NAUSTKJALLARINN er opinn fóstu-
dags- og laugardagskvöld. Lifandi tón-
list bæði kvöldin. Hljómsveitin Gammel
Dansk leikur fóstudags- og laugardags-
kvöld.
■ NÆTURGALINN Á fimmtudagskvöld
verður kántrýkvöld með Viðari Jónssyni
frá kl. 21—01. Á fóstudags- og laugar-
dagskvöld leikur Galabandið ásamt
Önnu Vilhjálms. Á sunnudagskvöld leik-
ur Hljómsveit Hjördísar Geirs gömlu og
nýju dansana frá kl. 22-1.
■ REYKJAVÍKURSTOFAN við Vestur-
götu. Bjór- og koníaksstofa í rómantísk-
um stfl. Opið fóstudags- og laugardags-
kvöld til kl. 3.
■ RÚNAR ÞÓR leikur á Blúsbarnum
föstudagskvöld og á Venus Borgarnesi
laugardagskvöld.
GALABANDIÐ ásamt Önnu Vilhjálms leikur danstónlist við flestra
hæfi á Næturgalanum fóstudags- og laugardagskvöld.
FÆREYSKA hljómsveitin
Bergmenn leikur fyrir dansi á
Fjörukránni um helgina.
■ SIR OLIVER Trúbadorinn Ingvar
leikur fimmtudagskvöld. Opið um helg-
ina frá kl. 18-3.
■ SJALLINN AKUREYRI Hljómsveitin
Land og synir leika laugardagskvöld.
Mannabreytingar hafa orðið í hljóm-
sveitinni og er skipan þessi: Hreimur
Örn Heimisson, söngur, Jón Guðfmns-
son, bassi, Birgir Nielsen, trommur,
Gunnar Þ. Eggertsson, gítar og Hjördfs
Elín Lárusdóttir, hljómborð. Þess má
geta að hljómsveitin er að hefja upptök-
ur á sinni fyrstu breiðskífu sem væntan-
leg er næsta sumar.
■ SÓL DÖGG leikur á Gauki á Stöng
fimmtudagskvöld.
■ TILKYNNINGAR í skemmtanara-
mmann þurfa að berast í síðasta lagi á
þriðjudögum. Skila skal tilkynningum til
Kolbrúnar í bréfsíma 569 1181 eða á net-
fang frettþmbl.is.
Á DANSGÓLFINU er rúm fyrir leikfimiæfingar gesta og myndast
gjarnan rífandi stemmning. Stundum troða hljómsveitir upp á sviðinu
en plötusnúðar fá einnig að spreyta sig og er þá gjarnan slögurum frá
ni'unda áratugnum blandað saman við léttsaltaða gelgjutónlist.
Kerfi I
Fyrir þær sein vilja ganga að tímanum sfnum vísum. Lokaðir
llokkar, engin ös, allir saman frá byrjun. 7. vikna námskeið.
Upplagt fyrir þær sem er að byrja.' Innritun hafut.
Kerfi II
Alhliða tímar. Teygjur-þrek-vaxtamótandi æfingar.
Opnir tfmar - þegar ]>ér hentar
KerfiHI Bamapössun
Ilér tökum við hraustlega á. GO mfn.Púl-teygjur-þrek og þol.
Opnir tímar þegar þér hentar.
Fastakúnnar kynnið ykkur JSB kortin!
Jsb giðu
taðurfyrir konur!
I
T/AFFl
REYáIAVIK
REST AUR4NT f B A k
Hin frábæra stuðhljómsveit
leikur fyrir dansi fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld.
Láttu þig ekki vanta í stuðið
Kaffi Reykjavík — þar sem stuðið er!