Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dæmdur í fimm og hálfs árs
fangelsi fyrir fíkniefnasmygl
„Kosið“ á
Netinu
ÞEIM, sem heimsækja Kosn-
ingavef Morgunblaðsins, gefst
nú kostur á að láta í ljós skoðun
sína á framboðslistunum, sem
eru í framboði í þeirra sveitarfé-
lagi, með því að „kjósa“ á Net-
inu.
Netkosningin fer fram með
því að fyrst er valið sveitarfélag-
ið, þar sem viðkomandi vill
kjósa, og síðan framboðslistinn, í
ramma vinstra megin á sveitar-
félagssíðunni. Súlurit sýnir jafn-
óðum hvemig „atkvæði“ netnot-
enda hafa fallið.
Hver og einn getur kosið eins
oft og hann vill, en aðeins síðasta
atkvæðið gildir.
Þetta er að sjálfsögðu ein-
göngu til gamans gert.
Komast má inn á Kosningavef-
inn frá Fréttavef Morgunblaðs-
ins eða með því að slá inn slóðina
httpy/www.mbl.is/kosningar/.
HOLLENSKUR karlmaður var í
gærmorgun dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til fimm og hálfs árs
fangelsisvistar fyrir að hafa í desem-
ber síðastíiðnum smyglað E-töflum,
amfetamíni og kókaíni til landsins
frá Amsterdam.
Maðurinn, Anthonius Gerardus
Verborg, sem er 38 ára gamall, var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli 11.
desember síðastliðinn þegar hann
kom þangað með flugi frá Amster-
dam og við leit á honum fundust
samtals 901 E-tafla, 376,4 grömm af
amfetamíni og 85,1 gramm af kóka-
íni. Við rannsókn málsins og meðferð
þess viðurkenndi maðurinn að hann
hefði flutt fíkniefnin til landsins, en
þau kvaðst hann hafa fengið í hendur
10. desember sl. hjá manni í Amster-
dam og fengið greidd 10.000 hollensk
gyllini í þóknun fyrir að flytja efnin
til landsins. Við komuna hingað til
lands hefði hann átt að hringja til
Hollands og fá nánari upplýsingar og
fyrirmæli um hvað hann ætti að gera
við efnin, en hann kvaðst hafa gert
ráð fyrir að selja ætti efnin hér á
landi. Þáttur sinn hefði hins vegar
einvörðungu falist í því að flytja efn-
in til landsins.
í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
kemur fram að Hollendingurinn hafi
viðurkennt að sér hafi verið það Ijóst
að selja ætti efnin hér á landi til
íjölda manna gegn verulegu gjaldi,
en hins vegar hafi hann ekki vitað
hversu hátt markaðsgjald efnanna
væri hérlendis. Fyrir dómi kvaðst
hann ekki vita hvað gera hefði átt við
efnin, en sig hefði grunað að þau
væru ætluð til dreifingar hér á landi.
Við rannsókn málsins sagði maður-
inn að sér hefði verið ljóst um hvaða
efni væri að ræða, en við meðferð
þess kvaðst hann hafa vitað um
fjölda E-taflnanna og amfetamínið,
en talið að kókaínið væri amfetamín.
Dæmdur í Sviss fyrir
fíkniefnasmygl
í dómsniðurstöðu segir að
Hollendingurinn hafi í meginatriðum
játað sakargiftir og fyrir liggi að
hann tók að sér að flytja efnin til
landsins gegn gjaldi. Fyllilega þyki
sannað að maðurinn hafi gerst sekur
um þá háttsemi sem hann var ákærð-
ur fyrir. Fram kemur að hinn 14.
mars 1996 hafi maðurinn verið
dæmdur í Sviss til þriggja og hálfs
árs fangelsisvistar fyrir stórfelldan
innflutning og dreifingu hættulegra
fíkniefna. Við refsingu mannsins leit
dómurinn til þess mikla magns
hættulegra fíkniefna er hann flutti til
landsins í ágóðaskyni svo og þess að
hann hefur áður gerst sekur um stór-
felldan innflutning og dreifingu
hættulegra fíkniefiia. Þótti refsing
hans hæfilega ákveðin fangelsi í 5 ár
og 6 mánuði, að frádregnu gæslu-
varðhaldi hans frá og með 12. desem-
ber 1997, samtals 151 dag. Þá var
maðurinn dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað, þar með talin saksókn-
aralaun í ríkissjóð, 60 þúsund krónur,
og réttargæslu- og málsvamarlaun
skipaðs verjanda síns, Brynjars Ní-
elssonar.
Ragnheiður Harðardóttir saksókn-
ari flutti málið fyrir hönd ákæru-
valdsins, en dóminn kvað upp Ingi-
björg Benediktsdóttir héraðsdómari.
Morgunblaðið/Ásdís
Borgin í betri búning
ÞETTA er sá árstími þegar
borgin breytir um svip og klæð-
ist betri búningnum. Borgarbú-
ar ráðast í vorhreingerningu í
görðum sínum, borgarstarfs-
menn dytta að, þrífa, gróður-
setja og fegra umhverfið hvað
best þeir geta. Þessir starfs-
menn frá garðyrkjudeild
Reykjavíkurborgar voru að
gróðursetja tré við gatnamót
Hringbrautar og Suðurgötu í
gær þegar ijósmyndara Morgun
blaðsins bar að.
Islenskt frí-
merki falsað
ÍSLENSKT frímerki frá 1882, yfir-
prentað á árunum 1902-1903, sem til
stóð að bjóða upp á frímerkjauppboði
í Málmey í Svíþjóð nýlega, reyndist
vera falsað. Búið var að ákveða að
byrjunarverð á frímerkinu yrði 75
þúsund sænskar krónur, um 750 þús-
und ÍSK.
Frímerkið er fíntakkað 6 aura,
með svartri yfirprentun, f gildi 02-03.
Það kom úr dánarbúi hér á landi en
var keypt árið 1952 í Kjobenhavns
Frimærke Klub, að því er fram kem-
ur í dagblaðinu Jyllands Posten, sem
gi'eindi frá þessu.
í fréttinni segir að þetta hafi verið
eina eintakið í heiminum og vakti það
því mikla eftirvæntingu meðal frí-
merkjasafnara þegar tilkynnt var að
það yrði boðið upp hjá Postiljonens-
frímerkjauppboðinu í Málmey. Af ör-
yggisástæðum lét fyrirtækið gera
rannsókn á frímerkinu og niðurstöð-
urnar voru þær að yfirprentunin
væri fölsuð og var frímerkið dregið
til baka.
Jón Aðalsteinn Jónsson, sem skrif-
ar um frímerki í Morgunblaðið, segir
að vissulega sé hér um mikil tíðindi
að ræða í frímerkjaheiminum þar
sem þetta frímerki hefur verið skráð
á verðlistum sem eina þekkta eintak-
ið.
Jón Aðalsteinn segir að merkið
hafi upphaflega átt að vera gróftakk-
að með rauðri yfirprentun, I gildi, og
Listaháskóli
innan seilingar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gærmorgun tillögu
menntamálaráðherra um stofnun
Listaháskóla íslands. Innan tíðar
tekur til starfa stjórn skólans skip-
uð tveimur fulltrúum menntamála-
ráðherra og þremur fulltrúum Fé-
lags um listaháskóla sem kjörnir
voru á aðalfundi félagsins í gær-
kvöldi.
Listaháskóli íslands á að taka til
náms sem nú er stundað í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, Leiklistar-
skóla íslands og Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Meðal fyrstu
verkefna stjórnarinnar verður að
ráða rektor til skólans og ganga frá
skipulagi hans svo starfsemi geti
hafist en skólinn verður til húsa í
svonefndu SS-húsi 1 Laugarnesi.
Bráðabirgðastjórn skólans skipuð
fulltrúum menntamálaráðherra,
Reykjavíkurborgar og Félags um
listaháskóla hefur undanfarna mán-
uði unnið tillögur að rekstrarfyrir-
komulagi skólans. Reykjavíkurborg
mun ekki eiga fulltrúa í stjórn skól-
ans.
Menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, segir það undir stjórn-
endum skólans komið hvenær hægt
verði að útskrifa fyrstu nemendur í
listnámi með háskólagráðu, fagleg-
ar forsendur séu þegar fyrir hendi
hjá ráðuneytinu til að viðurkenna
listnám á háskólastigi. Hann sagðist
síðdegis í gær mundu skýra frá því
hverjir fulltrúar sínir yrðu í tilvon-
andi stjórn þegar Félag um listahá-
skóla hefði kosið sína fulltrúa.
ÍSLENSKA frímerkið sem
rannsóknir leiddu í ljós að var
með falsaðri yfirprentun.
einnig sé þekkt gróftakkað með
svartri yfirprentun. Fíntakkaða
merkið með svartri yfirprentun, sem
var talið það eina sinnar tegundar, er
hins vegar falsað, samkvæmt rann-
sóknum.
María Ell-
ingsen í
bandarískri
kvikmynd
MARÍA EHingsen Ieikkona mun
leika í bandarísku kvikmyndinni
„Virtuoso“ eftir Alexander Bur-
avsky. Myndin sem tekin verður
upp í Eistlandi gerist á stríðsárun-
um og fjallar um Ameríkana sem
fer til Evrópu. María mun leika
„vondu þýsku konuna“, og sagði
hún í viðtali við Morgunblaðið að
þegar framleiðendur sáu prufuna
sem hún gerði hafi þeim þótt hún
sem fædd í hlutverkið.
María hefúr umboðsmenn í New
York og Los Angeles, en hlutverkið
fékk hún í gegnum þriðja umboðs-
manninn sem er í London. Hann
hefúr nýverið tekið við Maríu, og er
þetta annað hlutverkið sem hann
býður henni í sama mánuðinum.
Kosningar
19 9 8
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
► Veiðistofn þorsksins fer nú stækkandi, en nýliðun
er enn óhagstæð. Stefnt er að rannsóknum á út-
breiðslu túnfisks og mikill samdráttur hefur orðið í
útflutningi sjávarafurða.
Myndaeögur
'Í3VAnhy£i\í Þrautlr
4 SÍDUR
rWCmfn
IÞRDfflR
Titov búinn
að semja
við Framara
Þórður sá
besti í
Belgíu
Jansen
hefði verið
sagt upp
asleuR
ð í dag
€ SfellB