Morgunblaðið - 13.05.1998, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
BLÓÐRIFS (Ribes sanguineum). Fjölga má mörgum rifsteg-
undum með vetrargræðlingum.
MEÐFERÐ
VETRARGRÆL-
INGA II
Jarðvegsundirbúningur og stunga
VETRARGRÆÐ-
LINGAR eru
klipptir að vetri til,
búntaðir og geymdir
í kæli þar til frost er
farið úr jörðu.
Venjulega er hægt
að stinga vetrar-
græðlingum niður í
lok maí - byrjun
júní. Mjög auðvelt
er að fjölga ösp og
víðitegundum með
vetrargræðlingum
og hefur margur
sumarbústaðaeig-
andinn sparað sér
drjúgan skilding
með því að rækta
sínar eigin plöntur. A móti kem-
ur að ræktunin tekur tíma, tvö
til þrjú ár og þetta er talsvert
puð...
Nokkrum dögum áður en
stinga á græðlingunum niður eru
þeir teknir úr kælinum eða
frystinum eftir því sem við á. Ef
græðlingamir eru írosnir verður
að láta þá þiðna hægt og rólega
til að þeir skemmist ekki. Tveim-
ur tii þremur dögum fyrir stung-
una er ágætt að raða búntunum í
bala þannig að þau standi upp á
endann, oddmjói endinn á bru-
munum á að vísa upp. Því næst
er sett vatn í balann og það látið
ná vel upp fyrir miðjuna á
græðlingunum. Þeir eru látnir
standa í vatninu í tvo til þrjá
daga. Á þeim tíma ná þeir að
drekka upp vatn og byggja upp
safaspennu sem nýtist þeim á
meðan þeir eru að mynda rætur.
Ekki er gott að láta græðlingana
mynda rætur í vatninu því þær
rætur eru mjög stökkar og
brotna nær undantekningarlaust
af þegar græðlingunum er
stungið í mold. Rætur sem
myndast í mold verða miklu
seigari og þola betur hnjask.
Á meðan græðlingamir eru í
baði er gott að undirbúa jarðveg-
inn fyrir græðlingastunguna.
Fyrst þarf að fjarlægja allt ill-
gresi úr beðinu og svo þarf að
stinga það upp. Stungugaffall er
einkar heppilegt verkfæri íyrir
flesta en einnig eru til ýmsar
gerðir af litlum handtæturum.
Víðir og ösp þurfa frekar raka-
heldinn og frjósaman jarðveg til
að þau nái að vaxa eitthvað af
viti. Þegar búið er að grófvinna
beðið er gott að dreifa kalki og
húsdýraáburði ofan á það og
blanda saman við jarðveginn.
Sýnt hefur verið fram á það að
græðlingar sem stungið er í
gegnum svart plast mynda fyrr
rætur og dafna betur en
græðlingar sem ekki fá slíkan
munað. Svarta plastið hylur
jarðveginn þannig að rakinn í
efstu jarðvegslögunum verður
jafnari, hitastigið verður eilítið
hærra og illgresisfræ nær ekki
að spíra vegna birtuleysis. Plast-
ið má kaupa á rúllum og er það
þá um 2 m breitt. Þegar búið er
að stinga upp jarð-
veginn og blanda í
hann áburði er
plastið strengt ofan
á beðið og jaðrar
þess og endar huldir
með mold. Það er
gert til þess að ekki
komist vindur undir
plastið og svipti því
af. Miðað við 2 m
breitt plast má gera
ráð fyrir því að beð-
ið verði um 1 m á
breidd, um 50 cm
fari undir mold á
sitt hvorum jaðrin-
um.
Þá má fara að
stinga græðlingunum niður
(loksins). Víðigræðlingar eru yf-
irleitt látnir standa á beðinu í tvö
sumur og teknir upp þriðja sum-
arið. Ágætt er að hafa um 15x15
cm millibil milli víðigræðlinga en
ívið meira fyrir öspina, þar má
millibilið gjarnan vera 30x30 cm.
Eftir að búið er að stinga
græðlingunum í gegnum plastið
er gott að dreifa dálítilli grús yf-
ir plastið á beðinu til að fergja
það.
I þurrkatíð er nauðsynlegt að
fylgjast með græðlingunum
fyrsta kastið og vökva þá ef
þurfa þykir. Rótamyndunin tek-
ur 10-20 daga og ef græðlinga-
efnið hefur verið valið af kost-
gæfni verða affóll ekki mikil.
Næsta vor, áður en græðling-
arnir laufgast, er ágætt að ganga
á beðið og kippa plastinu í burtu.
Um svipað leyti þarf að gefa
græðlingunum áburð og er tilbú-
inn áburður þægilegur kostur.
Ef notast er við blákorn er ágætt
að gefa u.þ.b. 6-8 kg á hverja 100
fm, fyrst í lok maí og svo aftur í
byrjun júlí. Einnig eru plöntum-
ar klipptar niður um ca 1/3 af
ársvextinum til að þær þétti sig
og rótakerfið verði betra. Margir
ræktendur hafa reyndar komist
að því að þessi klipping er óþörf,
rjúpan er svo hrifín af víðibru-
munum að hún sér um að
hreinsa þau af á vetuma.
Asparplöntur em látnar
standa í tvö til þrjú sumur á
græðlingabeðinu, en þá er þeim
umplantað. Eftir umplöntun
þurfa þær að fá meira pláss,
fyrsta kastið er ágætt að gróður-
setja þær á beð með 70x70 cm
millibili en umplöntunin þarf að
gerast annað hvert ár þar til þær
em tilbúnar til útplöntunar.
Græðlingar sem eiga að fara
beint í potta era meðhöndlaðir
eins og aðrir vetrargræðlingar
fram að stungunni. Þeim er oft
stungið 2-3 saman í pott (t.d. loð-
víði) og er það gert í lok maí -
byrjun júní. Smávaxnar tegundir
era tilbúnar á öðra sumri en
stærri tegundir má rækta árinu
lengur.
Guðríður Helgadóttír, garð-
yrkjufræðingur.
BLOM
VIKUMAR
378. þáttur
Umsj6n Ágústa
Björnsdóttir
Áskorun
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„ÉG vil hvetja fjölmiðla til
að gera átak hjá sér í um-
fjöllun um kvennaíþróttir
og afrek kvenna. Sem
dæmi vil ég nefna að það
heyrist ekkert um fór
kvennanna sem eru að
ganga á Grænlandsjökul.
Ef þetta væru karlmenn
sem væra að ganga yfir
jökulinn væri umfjöllun
um þessa för örugglega
meiri. Ég skora á fjölmiðla
að birta ítarlegri umfjöllun
um þessi málefni."
Jakobína
Finnbogadóttir.
Fleiri bekkir
ÉG BÝ hérna rétt við
Miklatúnið og fínnst vanta
þar bekki eða sæti. Það
eru aðeins örfáir bekkir á
þessu stóra túni. Vil ég
benda á þetta. Það er
margt fólk sem kemur
þarna og aðeins einn bekk-
ur á stóru svæði.
Vegfarandi.
VELVAKAJ\DI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lítilsvirðing við
unga íþróttamenn
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Ég var stödd á Vina-
móti Valsmanna þar sem
fótboltaleikur drengja 7-10
ára var í gangi á milli Vals-
manna og Vestmanney-
inga. Meðan drengirnir
voru að spila á Valsvellin-
um var meistaraflokks-
leiknum að ljúka. Bílum
sem vora á svæðinu var þá
ekið yfír völlinn þai- sem
drengirnir voru að spila og
undrar það mig mest að
ekki skyldi verða þarna
slys. T.d. hljóp ungur
markvörður frá markinu
til að spyrna boltanum frá
og þá keyrði bíll á milli
hans og marksins. Mikil
mildi var að þarna skyldi
ekki verða slys. Börnunum
var sýnd mikil óvirðing og
þetta myndi aldrei líðast ef
um meistaraflokk hefði
verið að ræða. Fordæmið
er ekki glæsilegt hjá full-
orðna fólkinu. Finnst mér
að Valsmenn ættu að biðja
Vestmanneyingana afsök-
unar á þessu, því ég hef
aldrei séð þvílíkt og annað
eins.“
Hrefna Pétursdóttir.
Tapað/fundið
Lyklakippa týndist
SVÖRT lyklakippa með
gylltri nafnáletrun týndist
fyrir u.þ.b. tveim vikum
einhvers staðar á leiðinni
úr Beykihlíð, niður
Hamrahlíð, Lönguhlíð og
yfir Miklatún niður á
Hverfisgötu. Skilvís finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 566 6253.
Seðlaveski týndist
í Kringlunni
SEÐLAVESKI, brúnt,
týndist í Kringlunni laug-
ardaginn 9. maí. Mjög lík-
lega í Hagkaup, sérvörum.
Veskisins er sárt saknað
vegna persónulega muna í
því. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 557 4457
eða vs: 510 8000, ína.
Peysa týndist
Á SUMARDAGINN
íyrsta fór ég á sumarhátíð
í Hamraskóla og svo í
skrúðgöngu í íþróttahúsið.
Þá týndi ég peysu sem
amma mín prjónaði handa
mér. Peysan er blágrá með
bleiku munstripg norskum
krækjum. Ég sakna
peysunnar mikið og ég
vona að einhver hafi fundið
hana. Ef svo er viltu þá
hringja heim til mín í síma
587 0883. Takk Hrefna Ýr,
5 ára.
Dýrahald
Kanínur óskast
KANÍNUR óskast, ekki
dvergkanínur heldur
venjulegar, helst ungar.
Upplýsingar í síma
552 1548 eftir kl. 17.
Síamskisa týndist
í Hlíðunum
SÍAMSBLÖNDUÐ læða,
yrjótt, gæti verið með bláa
hálsól, týndist 1. maí úr
Stigahlíð. Þeir sem hafa
orðið varir við kisu hafi
samband í síma 588 0204
eða vs: 5601067. Kristín
Ivarsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
I FJOLSKYLDUGARÐINUM
Víkverji skrifar...
FYRIR nokkrum dögum átti Vík-
verji þess kost að slást í hóp
með áttunda bekk í Hólabrekku-
skóla og íslenskukennara bekkjar-
ins, þar sem farið var í dagsferð á
söguslóðir Kjalnesingasögu og
Gunnlaugs sögu Ormstungu. For-
eldrum nemendanna var boðið að
slást í hópinn og sér Víkverji svo
sannarlega ekki eftir að hafa þegið
það boð. Víkverji getur ekki stillt
sig um að lýsa ánægju sinni með þá
kennsluaðferð sem þama var beitt.
Bömin fluttu hvert um sig undirbú-
inn fyrirlestur í hátalarakerfi rút-
unnar og var byrjað á að fara í
gegnum Kjalnesingasögu og að því
búnu í gegnum Gunnlaugs sögu.
xxx
GREINILEGT var að mikil
vinna hafði verið lögð í undir-
búning fararinnar, bæði af hálfu
kennarans og nemenda, enda var
ánægjan með frammistöðu krakk-
anna mjög almenn, þótt greinilega
væri nú kennari þeirra manna stolt-
astur. Það var líka skemmtilegt að
fylgjast með því hversu bókmennt-
imar urðu lifandi fyrir nemendun-
um, þegar þeir veltu vöngum með
kennara sínum, yfir því hvort þetta
væri nú öragglega rétt staðsetning
fyrir þennan atburð eða hinn, eða
hvort barist hefði verið á þessum
hóli, eða einhverjum öðrum og svo
framvegis. Síðan fóra fram heim-
spekilegar umræður, þar sem sum-
um sýndist sem Hrafn Önundarson
hefði verið heiðursmaður og prúð-
menni, en Gunnlaugur fantur og fúl-
menni, en líklega vora þeir þó fleiri
sem hölluðust að því að Gunnlaugur
væri hetja sögunnar en Hrafn
skúrkurinn. Að minnsta kosti voru
þeir ekki margir, sem mæltu því bót
að Hrafn skyldi svíkja Gunnlaug,
þegar Gunnlaugur færði honum
þyrstum vatn, í hjálmi sínum, eftir
að hafa hoggið fótinn undan Hrafni,
með því að höggva Gunnlaug í höf-
uðið þannig að hann hlaut síðar
bana af!
xxx
SJÁLFSAGT er flestum í fersku
minni sú mikla umræða sem
spannst í fyrra um ljósmyndarana
sem gjarnan ganga undir nafninu
paparazzi, í kjölfar þess að þeir eltu
Díönu prinsessu á ofsahraða eftir
götum Parísarborgar með hörmu-
legum afleiðingum. Islendingar
hafa verið blessunarlega lausir við
þessa gerð ljósmyndara og ekki
þurft að sætta sig við að eiga von á
fyrirsát ljósmyndara eða því að vera
eltir af ljósmyndurum. Nú bregður
svo við, samanber baksíðumynd í
DV í síðustu viku, sem greinilega er
tekin í gegnum rúðuna á Hótel
Borg, að þessir góðu tímar á Islandi
kunna að heyra liðinni tíð til. Það
hlýtur að vera, að ljósmyndarar DV
hafi fylgst með hverju fótspori
þeirra Sverris Hermannssonar og
Kjartans Gunnarssonar, sem á
myndinni sjást sitja saman að kaffi-
drykkju á Borgunni. Er það nú ekki
nokkuð langt gengið að sitja fyrir
fólki og mynda það svo í gegnum
rúðuna?!
X X X
ANNARS var Heiti potturinn í
Degi litlu skárri þennan dag,
því ekki var hægt að skilja orð
pottverja á annan veg en þann, að
Dagur hefði einnig sinn eigin
„frakka" á Sverri Hermannssyni,
því pottverjinn sagði að Sverrir
hefði setið á löngum fundi með rit-
stjórum Morgunblaðsins og a.m.k.
þurft einu sinni að skreppa ábúð-
armikill út í bíl til þess að ná í
gögn! Pottverjinn lauk máli sínu á
þessu: „BÚMM, BÚMM, BÚMM,“
hvaða merkingu sem það svo hef-
ur.