Morgunblaðið - 13.05.1998, Side 21

Morgunblaðið - 13.05.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 13. MAÍ 1998 21 ERLENT Estrada varar við kosninga- svikum Manila. Reuters. TÖLUR, áem ein af fáum, áreiðan- legum skoðanakannanastofnunum á Filippseyjum birti í gær, sýna, að Joseph Estrada, helsti frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, hafi unnið yf- irburðasigur í forsetakosningunum sl. mánudag. Útgönguspár á kjördag sýndu það sama en stjómarflokkur- inn hefur kallað þær „skuggalegt samsæri". Atkvæðatalningin tekur um hálfan mánuð en nýjustu tölur benda til, að Estrada hafi 22 prósentusig umfram helsta keppinaut sinn, Jose de Venecia, forseta þingsins, eða 38,5% atkvæða gegn 16,5%. í útgönguspá kom einnig fram, að frambjóðandi stjórnarinnar í embætti varaforseta, Gloria Macapagal AiToyo, fékk rúm- lega helming atkvæða. Formaður stjómarflokksins, Raul Manglapus, sagði í gær, að það væri skuggalegt samsæri og afar undar- legt að lýsa yfir sigri einhvers fram- bjóðanda áður en farið væri að telja atkvæðin. Reuters NÁMSMAÐUR veifar þjóðfána Indónesíu á mótmælafundi við háskólann í Jakarta á Jövu. Indónesía sögð vera að springa í loft upp Genf. Jakarta. Kaíró. Reuters. Hvatt til einingar Talningin tekur hálfan mánuð eins og fyrr segir og þessi langi tími hef- ur áður boðið heim alls konar svik- um. Estrada skoraði í gær á fólk að gæta kjörkassanna vel svo það færi ekki á milli mála hver hefði sigrað í kosningunum. BANDARÍSKA leyniþjónustan, NSA, hefur njósnað um mannrétt- indasamtökin Amnesty Intemat- ional, umhverfisverndarsamtökin Greenpeace og fleiri samtök, að því er fullyrt er í skýrslu Evrópuþings- ins, og sagt er frá í finnska blaðinu Helsingin Sanomat. Hafa njósnirn- ar verið stundaðar frá árinu 1948. Skýrsla Evrópuþingsins hefur ekki verið birt opinberlega en þar segir m.a. að njósnir NSA hafi verið hluti eftirlitskerfis sem kallaðist „Echelon" sem vísar til skipan her- sveita. Það var breskur sagnfræðingur, BANDARISKUR efnahagsráðgjafi Suhartos, forseta Indónesíu, varaði í gær við því að ástandið í Stephen Wright, sem safnaði upp- lýsingunum um NSA. Hann komst að því að „Echelon" var starfrækt á hlerunarstöðvum í Bretlandi, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Banda- ríkjunum, sem hleruðu samtöl sem fóru um Interstat-gervihnöttinn. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um skýrsluna. Talsmaður Greenpeace, Johnson Walter, sagð- ist í gær sleginn vegna fréttanna en hjá Amnesty International lýstu menn yfir áhyggjum sínum, ekki síst vegna viðkvæmra upplýsinga um pólitíska fanga, sem samtökin byggju yfir. Indónesíu væri svo eldfimt að landið væri í þann mund að „springa í loft upp“. Steve Hanke, sem er prófessor við John Hopkins- háskóla í Baltimore, sagði að efna- hagsaðstoð Vesturlanda, og aðgerð- ir þeim tengdar, kæmu ekki að gagni og að tilraunir til að þrýsta á um efnahagslegar og pólitískar úr- bætur kæmu á versta tíma og myndu orsaka enn frekari óeirðir. Talið er að sex hafi látist í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, þegar námsmenn héldu áfram mótmælum sínum gegn Su- harto, forseta landsins í gær. Madeleine Aíbright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagðist á fundi átta iðnríkja í London hafa miklar áhyggjur af ástandinu í Indónesíu en Bandaríkin hafa beitt sér fyrir efnahagsaðstoð Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) til handa Indónesíu. Miklar óeirðir brutust út í Indónesíu í síðustu viku þegar stjórnvöld felldu á brott ríkisniður- greiðslur og tilkynntu hækkanir á eldsneyti og raforku í samræmi við kröfur IMF. Gengu námsmenn þá berserksgang i helstu borgum Indónesíu en þeir hafa síðan í febr- úar krafist afsagnar Suhartos for- seta vegna efnahagsvandræðanna. Að sögn vitna skaut lögreglan gúmmíkúlum og leysti upp mót- mælastöðu hundraða námsmanna við Trisakti-háskóla í Jakarta eftir að ráðist hafði verið á óeinkennis- klæddan lögreglumann. Hennenn í brynvörðum bílum stöðvuðu jafn- framt mótmælagöngu um 5.000 stúdenta til þinghallar borgarinnar í nágrenni háskólans. Þrýstingur á Suharto jókst mjög í fyrradag þegar nokkrir kunnir stjórnarandstæðingar lýstu stuðn- ingi sínum við baráttu stúdentanna. Stjórnmálaskýrendur segja nú meira en helmingslíkur á því að Su- harto hrökklist frá völdum en hann er staddur á fundi fimmtán þróun- arríkja í Kaíró og sagði hann í fyrradag að gífurlegar fórnir þyrfti að færa ef koma ætti efnahag landsins í lag. Njósnað um Green- peace og Amnesty Skáld- skapur á röngum stað BANDARÍSKA tímaritið The New Republic birti nýlega grein, sem vakti mikla athygli. Þar sagði frá svo ofurslyngum tölvuþrjótum, að tölvufyrir- tækin kepptust um að bjóða þeim gull og græna skóga vildu þeir koma í vinnu til þeirra. Nú hefur höfundur greinarinnar verið rekinn enda kom á dag- inn, að hún var uppspuni frá byrjun til enda. Ritstjóri tímaritsins, Charles Lane, segir, að höfundur grein- arinnar, Stephen Glass, hafi verið rekinn í síðustu viku en þá hafði hann viðurkennt að hafa „farið dálítið frjálslega" með staðreyndir. Staðreyndin væri raunar sú, að greinin væri alger tilbúningur. Glass, sem 25 ára gamall, hefur ritað 40 greinar fyrir The New Republic frá 1995 og og einnig fyrir tímarit eins og GQ, Harper’s, Rolling Stone og Ge- orge. Sagði Lane, að hugsan- lega væri ekki allt með felldu með aðrar greinar hans þótt sumar væru í lagi. Glass var einn af aðstoðarritstjórum The New Republic. Æviáskrift að klámblöðum I greininni segir frá 15 ára gömlum tölvuþrjót, Ian Restil, sem braust inn í gagnabanka Jukt Micronics, „stórs hugbún- aðarfyrirtækis", og krafðist síðan mikils fjár, æviáskriftar að nokkrum klámblöðum og sportbíls þegar fyrirtækið vildi ráða hann til sín. Sagan vakti meðal annars at- hygli Adams Penenbergs, rit- stjóra vefsíðunnar hjá Forbes- tímaritinu, og þegar hann fór að forvitnast um hana kom í ljós, að Ian Restil, Jukt Micronics og Landsamband tölvuþrjóta, sem nefnt er í greininni, voru ekki til. Hjá The New Republic er stuðst við ákveðið kerfi til að sannreyna fréttir og greinar en Glass sá við því með því að falsa ýmis gögn máli sínu til stuðnings. Norska sljórnin og Hægriflokkurinn semja F oreldragr eið sl- ur samþykktar Ósló. Morgunblaðið. NORSKA þingið hefur komist að samkomulagi um foreldra- greiðslur, sem gera eiga foreldr- um yngstu bamanna kleift að dvelja heima hjá þeim. For- eldragreiðslurnar voru eitt helsta baráttumál Kristilega þjóðarflokksins í kosningabar- áttunni sl. haust en treglega hef- ur gengið að fá samþykki ann- arra flokka fyrir þeim. I gær féllust hægrimenn hins vegar á að styðja frumvarpið. Foreldragreiðslurnar hefjast í ágúst nk. og fyrst um sinn em þær aðeins ætlaðar foreldruin ársgamalla barna. Fá þeir 3.000 kr. norskar, um 30.000 ísl. kr. á mánuði, skattfrjálst, sé annað foreldrið heima með barnið. Ef það er á barnaheimili hluta úr degi, lækka greiðslurnar sem því nemur. Þá er ætlunin að foreldrar tveggja ára bama fái greiðslur frá og með næstu áramótum en ekki er víst að það náist að ganga frá þeim greiðslum fyrir tilskilinn tíma. Margir þingmenn hafa mót- mælt fyrirætlunum um greiðsl- urnar, m.a. á þeim forsendum að þær séu afturför í réttindabar- áttu kvenna. Það verði fyrst og fremst mæður sem notfæri sér möguleikann á því að vera heima hjá börnum sínum. Ekki hefur verið eining um málið innan stjórnarinnar og Hægriflokkurinn og Framfara- flokkurinn sem hafa veitt minni- hlutastjórn Miðflokkanna stuðn- ing, hafa reynt að nota málið til að ná fram kröfum um enn frek- ari skattalækkanir til barnafjöl- skyldna sem næmi um 100 millj- ónum kr., um einum milljarði ísl. kr. en þær fengust ekki sam- þykktar. Hins vegar fékk flokkurinn framgengt skattalækkunum sem nema um 50.000 kr. til viðbótar við það sem nú er, til foreldra sem greiða fyrir barnagæslu. Aðstoð Breta ekki „mútur“ Belfast. Reuters. GORDON Brown, íjármálaráð- herra Bretlands, neitaði í gær full- yrðingum andstæpinga friðarsam- komulagsins á N-írlandi þess efnis að efnahagsaðstoð til handa svæð- inu er nemur rúmlega 17 milljörð- um ísl. kr. væru „mútur“ sem ætlað væri að tryggja samþykkt sam- komulagsins í þjóðaratkvæða- greiðslu 22. maí. Brown, sem í gær heimsótti N-írland fyrstur breskra fjármálaráðherra síðan átök hófust á svæðinu árið 1968, sagði aðstoðina þó augsýnilega einungis geta aukið velmegun á N-írlandi ef friður og stöðugleiki ríkti. Um það leyti sem ráðherrann kom til Belfast var lög- regla í borginni í óða önn að af- tengja sprengju sem lýðveldissinn- ar í samtökum INLA, sem andsnúin eru friðarsamningnum, sögðust hafa komið fyrir. Sagt var frá því í The Irish Times í gær að Molyneaux lávarður, fyrr- um formaður Sambandsflokks Ulst- er (UUP), muni sennilega mælast til þess að kjósendur á N-írlandi hafni friðarsamkomulaginu. Stjórn- málaskýrendur blaðsins telja þetta nokkurt áfall fyrir David Trimble, núverandi leiðtoga flokksins, sem beitt hefur sér fyrir samþykkt samningsins. Jafnframt hafa menn áhyggjur af því að sjónvarpsmyndir frá þingi Sinn Féin um síðustu helgi, þar sem dæmdum IRA-fóng- um var fagnað sem hetjum, hafi slæm áhrif á sambandssinna á N-ír- landi. Því er haldið fram í The Irish Times að þrír af hverjum fjórum sambandssinna, sem áður voru óá- kveðnir, streymi nú í herbúðir and- stæðinga samningsins en stjóm- málaskýrendur hafa bent á að til að samkomulagið haldi verði að minnsta kosti helmingur sambands- sinna að styðja það. Um þetta eina atriði snúist í raun þjóðaratkvæða- greiðslan, ekki hvort samningurinn verður samþykktur yfir heildina. Sú útkoma sé næsta örugg vegna þess hversu mikill meirihluti kaþólikka ætli að styðja hann. Megane Operi Þéttari og þægilegri sæti sem veita góðan stuðning RF.NAU1.T - þekktur fyrír þægindi Ármúla 13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.