Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ N etanyahu sakaður um laumuspil Jerúsalem. Reuters. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, mun í dag eiga fund með Madeileine Albright, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, og munu þau ræða leiðir til að koma friðarumleitunum fyrir botni Mið- jarðarhafs á skrið á ný. Netanyahu sætir nú gífurlegum þrýstingi, bæði af hálfu Bandaríkjanna, sem vilja að Israelar afhendi Palestínu- mönnum 13% lands til viðbótar á Vesturbakkanum, og einnig af hálfu harðlínusinnaðra ráðherra í stjóm sinni, sem vilja alls ekki láta eftir meira en 9% lands. Ariel Sharon, ráðherra uppbygg- ingarmála, sakar Netanyahu um að hafa haldið leyndum íyrir ráðherr- um fyrirætlunum um að Israelar láti 13% lands af hendi, en ísraelsk- ir fjölmiðlar greindu frá því á mánudag að á fundum Netanyahus með Dennis Ross, sendifulltrúa Bandaríkjastjórnar, hefðu verið lögð drög að málamiðlun. Fæli hún í sér að 10% yrði skilað til Palest- ínumanna en 3% yrðu J vörslu“ Bandaríkjamanna um ótilgreindan tíma, en á endanum afhent Palest- ínumönnum. Fréttaskýrendur segja að Net- anyahu eigi enga möguleika á að afhenda Palestínumönnum meira land á Vesturbakkanum án sam- þykkis Sharons, en á mánudag sagði Sharon að ef skilað yrði meira en 9% til viðbótar yrði ör- yggi ísraels ógnað. Fulltrúar Flokks trúaðra, sem á aðild að ríkisstjóm Netanyahus, tóku undh- orð Sharons og hótuðu að fella stjómina ef af frekara landaafsali yrði. Fréttamaður ísra- elska blaðsins Ha’aretz sagði í gær að ef Netanyahu þyrfti að velja á milli þess að bjóða Bandaríkja- mönnum birginn og að reita Sharon og trúarsinna til reiði „þá tekur hann yfirleitt þann kostinn að bjóða Bandaríkjamönnum birginn". Saksóknari rann- saki mál Herman JANET Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, fór í fyrradag fram á að skipaður yrði sérlegur saksókn- ari til að rannsaka ásakanir um að Alexis Herman, atvinnumálaráð- herra í bandarísku ríkisstjóminni, hefði átt þátt í að miðla mútum og ólöglegum greiðslum í kosningasjóð þegar hún vann sem aðstoðarmaður Bills Clintons forseta í Hvíta húsinu. Embættismenn í dómsmálaráðu- neytinu í Washington sögðu að ákvörðun þessi hefði verið niður- staða nákvæmrar athugunar, en endurspeglaði engan veginn að eitt- hvað væri hæft í ásökununum á hendur Heiman, heldur hin ströngu ákvæði laganna um óháða saksókn- ara. Samkvæmt þeim væri dóms- málaráðherra skylt að óska eftir skipun óháðs saksóknara jafnvel þótt engin sönnunargögn um glæp hefðu komið fram. Herman sagðist mjög undrandi á ákvörðuninni og sagðist ekki myndu víkja úr embætti eða að láta þessi lögfræðilegu vandamál sín hindra sig í starfi. Reuters Mannréttinda- frömuður skotinn Ankara. Reuters. MESUT Yilmaz, forsætisráð- herra Tyrklands, fordæmdi í gær skotárás á einn fremsta baráttu- mann fyrir auknum mannréttind- um í Tyrklandi sem átti sér stað í gærmorgun. Akin Birdal, leið- togp mannréttindasamtaka í Tyrklandi, særðist lífshættulega í árásinni en árásármennirnir, sem voru tveir, skutu hann sex sinn- um í brjóst og fætur á skrifstofu hans í Ankara-borg og komust undan. Birdal er þungt haldinn en enginn hefur enn sem komið er lýst ábyrgð vegna verknaðar- ins á hendur sér. Birdal hefur lengi gagnrýnt stjórnvöld í landinu harðlega fyr- ir mannréttindabrot og sérstak- lega hefur hann beint spjótum sínum að framferði þeirra gagn- vart kúrdíska minnihlutanum. Nýverið var Birdal reyndar sak- aður um það í tyrkneskum íjöl- miðlum að vera handbendi Abdullah Ocalan, leiðtoga kúrdískra skæruliða, og sögðu aðstandendur Birdals umfjöllun fjölmiðla orsök árásarinnar. Telja þeir að markmið hennar hafi verið að sýna hveijum þeim sem gagnrýndi ríkjandi skipulag í Tyrklandi að þaggað yrði niður í þeim með góðu eða illu. Danska þjóðaratkvæðagreiðslan um Amsterdam-sáttmálann Vaxandi and- staða í mið- og borgaraflokkum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. NU ER nóg komið varðandi sam- runa Evrópu. Pað er kjaminn í boð- skap Ekstra Bladet, sem eitt hinna fjörutíu dönsku dagblaða leggst gegn Amsterdam-sáttmálanum, sem Danir kjósa um 28. maí. Sam- starf milli jafnrétthárra þjóða, en ekki yfirþjóðlegt vald nema á af- mörkuðum sviðum eins og viðskipt- um og umhverfismálum er inntakið í andófi, sem komið er inn á miðju danskra stjómmála, þar sem stuðn- ingsmenn Evrópusambandsins, ESB, hafa hingað til verið einráðir. Samtökin „Evrópa þjóðanna" eru að sögn Frank Dahlgaards, þing- manns íhaldsflokksins, tilraun til að vekja fólk til meðvitundar um að pólitískt samband verði að ríki, en því sé almenningur á móti. Alls nota flokkar og samtök hlið- holl sáttmálanum um 15 milijónir danskra króna til að reka áróður fyr- ir málstað sínum, meðan hinir nei- kvæðu hafa aðeins 3,2 milljónir til umráða. Fyrirtækið Danfoss hafur í auglýsingum hvatt fólk til að segja já og fleiri fyrirtæki blanda sér í barátt- una en áður. Pað spurðist út í síðustu viku að Ekstra Bladet hyggðist mæla með því að Amsterdam-sáttmálinn yrði felldur og í gær lét blaðið málið til sín taka í fyrsta skipti. „Endimörkunum er náð - Ekstra Bladet segir NEI“ var forsíðuyfirskriftin. Blaðið gæti ekki lengur horft upp á að verið væri að svipta þjóðríkið hlutverki sínu og hreyfinguna í átt að æ sterkara rílga- sambandi yrði að stöðva. í viðtali við danska útvarpið í gær sagði Sven Ove Gade ritstjóri blaðs- ins að blaðið hefði mælt með Ma- astricht-sáttmálanum 1992 og und- anþágunum sem Danir fengu frá þeim sáttmála síðar sama ár, ekki síst með tilliti til Austur-Evrópu. Stækkun ESB hefði þó ekki verið sett á oddinn og nú yrði að koma milliríkjasamstarfi aftur að, en úr því hefði dregið og yfirþjóðlegt vald orðið æ fyrirferðarmeira. Milliríkjasamstarf - ekki yfir- ríkjasamstarf „Við viljum halda Evrópusam- starfinu áfram, en á grundvelli Maas- tricht-sáttmálans," segir Frank Da- hlgaard í samtali við Morgunblaðið. „Við þurfum ekki Amsterdam-sátt- málann til að taka Austur- og Mið- Evrópulöndin inn. Stækkun er þeg- ar hafin á grundvelli núgildandi sáttmála. Eg held reyndar að stækkun á grundvelli Maastricht sé auðveldari, því það eru þá færri skilyrði, sem nýju löndin þurfa að uppfylla og stækkunin gæti gengið hraðar fyrir sig.“ Dahlgaard segist hins vegar vona að dönsk höfnun gæti flýtt fyrir ríkjaráðstefnunni, sem þarf að halda til að aðlaga ESB að stækkun úr 15 í 26 lönd. „Við erum ekld á móti stækkun, en við erum á móti þróun í átt að pólitísku sambandi. Við viljum tak- marka hið yfirþjóðlega samstarf við svið eins og umhverfi og verslun, en halda okkur við milliríkjastarf á sviðum eins og vinnumarkaðsmál- um, sköttum, landamæravörslu og félagslegum þáttum", segir Dahl- gaard, sem segist sannfærður um að það sé ekki vilji meirihluta Evr- ópu að einstök lönd láti af hendi vald, sem bundið sé þjóðríkjunum. Áhangendur Amsterdam-sátt- málans hafna því að samningurinn stefni þróun Evrópu í átt að sam- bandsríki, eins og andstæðingar sáttmálans halda fram. Dahlgaard bendir hins vegar á að ESB hafi þegar mörg einkenni ríkis, þar sem meðal annars sé stefnt að einum ytri landamærum, einni mynt og fáninn sé þegar til. „Ég tek undir með Bretum, sem segja að dýrið sem veifi skottinu og gelti eins og hundur sé hundur. Maður þarf að vera bæði blindur og heymalaus til að gera sér ekki grein fyrir þessari þróun. Fólk getur vel séð hvert ESB stefnir og sú stefna nýtur ekki almenns stuðnings." Schengen ætti að vera milliríkjasamstarf Samkvæmt Amsterdam-sáttmál- anum verður Schengen-samkomu- lagið, sem hingað til hefur verið sjálfstætt samkomulag, tekið inn í sáttmálann. Dahlgaard segist ekki vera á móti Schengen heldur því að gera það yfirþjóðlegt, eins og það verði með Amsterdam-sáttmálan- um. Og hann er heldur ekki trúaður á að Danmörk einangrist utan Schengen. „Ef sáttmálinn verður felldur finnst mér mjög trúlegt að hin Norðurlöndin finni lausn á þeim vanda, sem þá skapast. Bretland og írland hafa ekki hugsað sér að taka þá í Schengensamstarfinu og leggja niður landamæravörslu og það get- um við líka gert.“ Kabbah ver Cook AHMAD Tejan Kabbah, forseti Sierra Leone, kom bresku rík- isstjóminni í gær til vamar er hann fullyrti að hann hefði ekki þegið hernaðarað- stoð Breta til að komast til valda að nýju. Þá hefur Robin Cook, utanríkisráð- herra Bret- lands, ítrekað vísað því á bug að stjórn Verkamannaflokksins hafi veitt Kabbah aðstoð, síðast í fyrirspumartíma í breska þinginu í gær. Birti breska stjómin í gær bréf frá Kabbah, máli sínu til stuðnings, þar sem hann segist hafa afskrifað möguleikann á hemaðaraðstoð frá Bretum. Robin Cokk 22 skornir á háls HEITTRÚAÐIR alsírskir skæruliðar em grunaðir um að hafa skorið 22 íbúa lítils þorps á háls í fyrrinótt. Vom morðin framin í mesta olíuframleiðslu- héraði Alsírs en engar nánari upplýsingar hafa verið gefnar um fórnarlömbin. Of snemmt fyr- ir kvenforseta BORÍS Jeltsín Rússlandsfor- seti lýsti því yfir í gær að Rúss- ar væm ekki enn reiðubúnir að kjósa konu sem forseta lands- ins. Þetta kom fram í viðtali sem forsetinn veitti á Netinu í gær og var svar við spurningu um hvort dóttir hans, Tatjana, kynni að feta í fótspor hans. Fotbolti vin- sælli en þjóð- aratvæði MUN líklegra er að danskir sjónvarpsáhorfendur muni fylgjast með fótboltaleik Dana og Svía hinn 28. maí nk. en talningu þjóðaratkvæða- greiðslu um Amsterdam-sátt- mála Evrópusambandsins, sem fram fer sama dag. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Gallup. Níu slösuðust á Narita-velli NÍU manns slösuðust er þeir yfirgáfu bandaríska farþega- flugvél í skyndingu á Narita- flugvelli í Japan í gær. Talið var að kviknað hefði í Boeing 747- vél United Airlines-flugfélags- ins en sú reyndist ekki raunin. Minnihluta- stjórn í Sachs- en-Anhalt JAFNAÐARMENN, SPD, í Sachsen-Anhalt í Þýskalandi tilkynntu í gær að flokkurinn myndi standa einn að minni- hlutastjórn eftir að viðræður við Kristilega demókrata fóru út um þúfur. Mun SPD njóta stuðnings arftakaflokks komm- únistaflokksins, sem áðurfyrr fór með öll völd í austur-þýzka Alþýðulýðveldinu. Leiðtogar SPD í Bonn höfðu lýst sig and- víga slíku samstarfi af ótta við að það kunni að skaða flokkinn er kemur að Sambandsþings- kosningunum í september.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.