Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 58
58 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Afhending verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólanema Hvað eru hjálmlás og töfraskeri? i VERÐLAUN í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna voru nýlega afhent í Borgarleikhúsinu. Keppnin var nú haldin í sjöunda sinn en markmið hennar er fyrst og fremst að vekja athygli á hugviti grunnskólanema og ör\'a þá til nýsköpunar. Fjöldi þátttakenda í keppninni hefur aukist jafnt og þétt frá ári til árs. Fyrsta árið bárust 75 umsóknir í keppnina en í fyrra voru þær orðnar rúmlega níuhundruð. Keppnin skiptist í tvo flokka UF, sem stendur fyrir Uppfinning, og ÚF, sem stendur fyrir Útlits- og formhönnun. Sigurvegai’ar fengu af- hent vegleg peninga- verðlaun sem aðilar úr atvinnulífinu gefa en fjölmargir aðil- ar atvinnulífsins styðja keppnina með ýmsum hætti og hafa til dæmis Bamasmiðjan ehf., Gull- og silfur- smiðjan Erna ehf. og GKS framleitt vörur úr hugmyndum sem komið hafa fram í keppninni. Hugmyndir þátttakenda voru bæði frumlegar og athyglisverðar en fyrstu verðlaun Uppfinninga hlaut Anton Heiðar Þórólfsson fyrir „Hjálmlásinn“, sem er öryggishjálm- ur þeim eiginleikum gæddur að hægt er að nota hann sem hjólalás. Önnur verðlaun hlaut Asdís Yr Ólafsdóttir fyrir „Uppbyggingu sjálfsálits", sem er spegill sem segir uppöi-vandi orð við notandann þegar ýtt er á hnapp. Ingvi Hrafn Viktors- son hlaut einnig önnur verðlaun fyrir „Bílavininn“, en það er innkaupa- kerra klædd gúmmílista svo bílar rispist ekki rekist hún utan í þá á bílastæði. Guðmundur Einar Sig- urðsson hlaut þriðju verðlaun fyrir „Kosningakortið“ en það er kort sem hægt er að kjósa með í hvaða hraðbanka sem er, og er ætlað að minnka kosningakostn- að þann er hlýst af opn- um kjörstöðum. í flokki Útlits- og formhönnunar hlaut Jón Karl Sigurðsson fyrstu verðlaun fyrir „Golfkerruna", sem hægt er að festa aftan í böggla- bera reiðhjóls, og því sérstaklega hugsað fyrir golfleikara sem ekki hafa bílpróf. „Glærubendill" Örlygs Hnefils Örlygssonar hlaut önnur verðlaun og notast þegar kennt er með glærur. Sleði er festur við myndvarpann og bendillinn færður til eftir hentugleika. Þriðju verðlaun hlaut Lára Guðmundsdóttir fyrir „Töfraskerann", en með honum er hægt að fullnýta oststykki heimilis- ins, hann sker ostinn með sama hætti og eggjaskeri. Innkaupakerra klædd gúmmí- lista svo bílar rispist ekki rek- ist hún utan í þá á bílastæði Morgunblaðið/Jón Svavarsson VERÐLAUNAHAFAR í Nýsköpunarkeppni grunnskólanema ásamt Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra sem afhenti verðlaunin. Frá vinstri eru Örlygur Hnefill Örlygsson, Lára Guðmundsdóttir, Jón Karl Sigurðsson, Guð- mundur Einar Sigurðsson, Ólafur Ólafsson fyrir dóttur sína Ásdísi Ýr, Ingvi Hrafn Viktorsson, Anton Heiðar Þórólfsson og Arndís Ýr Hjálmarsdóttir sem fékk hönnunarverðlaunin sem veitt voru í fyrsta sinn. ANTON Heiðar Þórólfsson hlaut 1. verðlaun í flokkn- ÞÓRA Óskarsdóttir sýnir hér ásamt systur sinni um Uppfinning fyrir hjálmlásinn, sem hefur þann eig- Hörpu barnaherðatré sem hún fann upp og hefur inleika að vera öryggishjálmur og hjólalás í senn. nú verið framleitt af GKS.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.