Morgunblaðið - 05.06.1998, Side 10
I
r
10 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998__________________________________________________ _______MORGUNBLAÐIB
FRÉTTIR
Árni Sigfússon oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna í Reykjavík
Ákveður að hætta af-
skiptum af stjórnmálum
Árni Sigfússon hefur ákveðið að hætta sem
oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna og gerir tillögu um að Inga Jóna
Þórðardóttir taki við því hlutverki.
ARNI Sigfússon borgarstjóra-
efni Sjálfstæðisflokksins í
nýliðnum borgarstjórnar-
kosningum í Reykjavík hefur
ákveðið að víkja sem oddviti borg-
arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins og mun gera það að tillögu sinni
á fyrsta fundi borgarstjómar-
flokksins í dag að Inga Jóna Þórð-
ardóttir taki við því hlutverki.
„Fyrir borgarstjórnarkosning-
amar lýsti ég yfír að ég væri reiðu-
búinn að leggja pólitíska framtíð
mína að veði í kosningunum. Eg
stend við þau orð mín. Sem efsti
maður á lista sjálfstæðismanna hef
ég því ákveðið að gefa öðrum tæki-
færi til að leiða starf borgarstjórn-
arflokksins á kjörtímabilinu. Eg tel
mikilvægt að öflugt starf í stjórnar-
andstöðu geti hafíst strax og að það
geti verið sem samfelldast frá upp-
hafí. Það hvetur mig til að ganga í
þessar breytingar strax. Akvörðun
sem þessi hlýtur að taka mið af
mismunandi aðstæðum og stíl
manna. Aðstæðurnar eru kunnar
og þetta er minn stíll. Ég legg því
til að Inga Jóna Þórðardóttir, 3.
maður á lista sjálfstæðismanna,
taki að sér forystuhlutverkið. Hún
hefur í samtali við mig lýst sig
reiðubúna til þess,“ sagði Árni í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Sækist ekki eftir
oddvitahlutverkinu
Hann sagði að að vandlega at-
huguðu máli teldi hann að af mörg-
um frambærilegum einstaklingum
á listanum hefðu tveir þeirra þá
reynslu sem hann teldi þurfa til að
leiða starf hópsins frá upphafi kjör-
tímabilsins. „Auk Ingu Jónu er það
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem
hlaut afgerandi kosningu í 2. sæti
listans í prófkjöri flokksins í nóv-
ember síðastliðnum. Vilhjálmur
leggur eins og ég áherslu á einingu
um þetta val og styður það. Hann
er forystumaður Sambands ís-
lenski’a sveitarfélaga og sækist
Morgunblaðið/Golli
Árni Sigfússon
ekki eftir oddvitahlutverkinu í
borgarstjórn. Ég tel að maður með
hans eiginleika og miklu reynslu af
borgarmálum og sveitarstjórnar-
málum eigi fullt erindi á Alþingi.
Ég hef hvatt hann til þess og mun
styðja hann eindregið til sætis á
þingi ef hann býður sig fram,“ sagði
Ami ennfremur.
Hann sagðist áfram myndu
starfa sem kjörinn borgarfulltrúi
fyrst um sinn og styðja sitt fólk
með ráðum og dáð eftir fremsta
megni. Hann hafi þó lýst því yfir að
hann muni hverfa úr borgarfull-
trúahlutverkinu síðar á kjörtímabil-
inu, en tímasetning í þeim efnum
hafi ekki verið ákveðin og muni
fara eftir aðstæðum. „I borgar-
stjórnarflokknum er margt um gott
fólk sem með aukinni reynslu af
borgarmálum mun eflast enn frek-
ar á næstu árum. Þar er því efnivið-
urinn í sigurlicí að fjórum árum
liðnum," sagði Arni.
Aðspurður játar hann því að
hann sé með þessari ákvörðun að
hætta í pólitík. Hann hafi lýst því
yfir að hann hafi ekki hug á því að
setjast á Alþingi og þessi ákvörðun
þýði að hann sé að hverfa úr eldlín-
unni. Hann verði hins vegar alltaf
sjálfstæðismaður og stuðningsmað-
ur sjálfstæðisstefnunnar.
Verkefnin framundan óráðin
Árni segir verkefni sín í framtíð-
inni alls óráðin, en hann muni án
efa láta að sér kveða í verkefnum
sem verði til hagsbóta fyrir lands-
menn. Þetta sé ákvörðun hans í
framhaldi af því að það markmið að
vinna borgina aftur hafi ekki náðst.
Hann hafi að nægu að hverfa og
þurfi að gera það upp við sig að
hvaða verkefnum hann vilji starfa.
Til dæmis hafi hann verið í mjög
miklum tengslum við rekstur í sam-
bandi við starf sitt hjá Stjórnunar-
félaginu og hann hafi verið við
stjórnun verkefna hjá borginni, auk
þess að hafa verið í trúnaðarstörf-
um fyrir Félag íslenskra bifreiða-
eigenda.
Hann segir aðspurður að það
hefði verið óráð að draga ákvörðun
um það að hann léti af oddvitahlut-
verkinu. Sagan sýndi að slíkt leiddi
ekki til farsællar niðurstöðu. „Það
er mikilvægt að nýr oddviti fái
tækifæri strax til þess að móta
starfið, það verði sem samfelldast
og um hann sé full eining," sagði
Árni.
Hann segist sannfærður um að
full samstaða verði í borgarstjórn-
arflokknum um þessa niðurstöðu.
Hann hafi rætt hana við frambjóð-
endur og lagt áherslu á að um hana
náist full eining, enda sé það mjög
mikilvægt. Viðburðaríkur tími sé
framundan í borgarmálunum.
Margt sé óráðið til dæmis hvað
varði framtíð R-listans og tækifæri
sjálfstæðismanna til að setja mark
sitt á málefni borgarbúa verði mörg
á næstu misserum.
„Ég er þannig gerður pólitíkus
að ég mun alltaf verða virkur," seg-
ir hann aðspurður hvort það sé eft-
irsjá að því að hverfa úr pólitík.
„Ég hef í tólf ár verið í borgarmál-
um sem borgarfulltrúi. Fyrir þann
tíma var ég að berjast um forystu í
Heimdalli og SUS og þó ég hafi
haft sigur þar, þá hefur þetta verið
ákveðin baráttusaga, þó fæstir
kannski átti sig á því. Ég hef verið
að sækja á brattann og í tveim til-
vikum haft betur, þó við höfum ekki
náð því núna. Ég sé mig starfa í
bakvarðasveit sjálfstæðismanna og
sinna því, en ég verð ekki í fram-
varðasveitinni," sagði Árni Sigfús-
son ennfremur.
Hollvinir þýskrar menningar semja við Goethe-stofnun
Þýska bókasafnið verður
áfram starfrækt í Reykjavík
FRAMHALDSSTOFNFUNDUR
Hollvinafélags þýska menningar-
setursins í Reykjavík, (Förderver-
ein Deutsches Kulturzentrum
Reykjavík) var haldinn 26. maí síð-
astliðinn. Að stofnun félagins
standa Félag þýskukennara og
þýskudeild Háskóla Islands. Mark-
mið félagsins er tvíþætt: Annars
vegar að standa að rekstri þýsks
menningarseturs og hins vegar að
kynna og auka áhuga og skilning á
menningu þýskumælandi þjóða.
Félagið mun starfa með öðrum fé-
lögum, samtökum og stofnunum
sem miðla menningu þýskumæl-
andi þjóða.
„Sá mikli áhugi á menningu
Þýskalands og annaira þýskumæl-
andi þjóða sem fram kom þegar til-
kynnt var um lokun Goethe-stofn-
unar varð stofnendum félagsins
mikil hvatning til að reyna að
tryggja að íslendingar hefðu áfram
aðgang að þýskri menningarmið-
stöð. Fjöldi íslendinga hefur
stundað nám og störf í þýskumæl-
andi löndum og löng hefð er fyrir
margvíslegum viðskipta- og menn-
ingartengslum við þýska málsvæð-
ið,“ segir í fréttatilkynningu.
„Stjóm félagsins hefur undan-
farna daga átt í samningaviðræð-
um við fulltrúa Goethe-stofnunar í
Munchen um margháttaðan stuðn-
ing við rekstur setursins. Þær
samningaviðræður eru nú á loka-
stigi og ljóst er að þýska bókasafn-
ið sem Goethe-stofnun hefur starf-
rækt mun áfram starfa í Reykja-
vík. Meðal annars er samið við
Goethe-stofnun í Munchen um að
stofnunin tryggi hér eftir sem
hingað til endurnýjun bókakosts,
tímarita og ýmissa annan-a gagna,
svo sem myndbanda og tölvutæks
efnis. Þá er einnig samið um þátt-
töku Goethe-stofnunar í ýmiskonar
menningarviðburðum og um marg-
víslega aðstoð við þýskukennslu á
íslandi, m.a. endur- og símenntun
íslenskra þýskukennara. Stefnt er
að því að í framtíðinni verði unnt
að ljúka viðurkenndum prófum
Goethe-stofnunar hérlendis."
Þýska menningarsetrið verður
til húsa á Lindargötu 46 og verður
opnað formlega í haust. í fyrstu
stjórn félagsins eru: dr. Oddný G.
Sverrisdóttir formaður, Bernd
Hammerschmidt, Danfríður K.
Skarphéðinsdóttir, Margrét
Böðvarsdóttir og dr. Peter WeiJ3.
Stjórn félagsins mun á næstu dög-
um auglýsa ftir starfsfólki til að
annast verkefni setursins. Holl-
vinafélagið er öllum opið og unnt
er að gerast stofnfélagi út þetta ár.
STYTTA af Goethe og Schiller fyrir framan leikhúsið í Weimar, en
Weimar er menningarborg Evrópu árið 1999.
Einokunarverslunin og siðaskiptin í nýju ljósi sagnfræðirannsókna
Aftaka Jóns Arasonar forð-
aði bændum frá ánauð
AFTAKA Jóns Arasonar, einokun-
arverslunin og önnur styrking
danska ríkisvaldsins á Islandi forð-
aði hugsanlega bændum undan
kvaðaánauð svipaðri þein-i sem
komst á í Austur-Evrópu. Þetta
kemur fram í grein Árna Daníels
Júlíussonar sagnfræðings í nýút-
kominni Sögu, tímariti Sögufélags-
ins.
Árni Daníel segir að um 1500 hafi
íslenska yfirstéttin hafið sókn til
þess að auka hlut sinn í framleiðsl-
unni, en hann hafði minnkað mjög í
kjölfar svarta dauða. „Einn mikil-
vægasti hluti þess var að binda
bændur við höfuðbólin og fram-
leiðsluna með kvöðum, til dæmis
með vinnu á fískibátum og dagslátt-
um á höfuðbólum," segir Arni Daní-
el í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta var áberandi á fyrri hluta
16. aldar en eftir siðaskiptin 1550
fór að bera á því að danska stjórnin
tæki upp hanskann fyrir íslenska
bændur gegn íslensku yfirstéttinni.
Að líkindum hefur það stöðvað
þessa þróun í átt til kvaða sem var
byrjuð á fyrri hluta 16. aldar. Það
er óvíst að þessi þróun hefði
stöðvast ef danska stjórnin hefði
ekki komið inn með sterkt mið-
stjórnarvald."
Bændurnir
hálfgerðir þrælar
Árni Daníel segir að Jón Arason
hafi verið fulltrúi gömlu íslensku
yfírstéttarinnar sem reyndi að inn-
leiða kvaðirnar. „Hefði hann fengið
aðýeika lausum hala hefði þróunin
á íslandi sennilega orðið svipuð og
á Austur-Evrópu þar sem höfðingj-
ar gerðu góss sín að sjálfstæðum
smáríkjum þar sem bændur voru
mjög bundnir höfuðbólinu, undir
mjög miklum aga og í raun hálf-
gerðir þrælar. Þar hvarf allt mið-
stjórnarvald, til dæmis leystist
pólska ríkið hreinlega upp.“
Fram kemur í grein Ama að eft-
irspurn eftir korni frá vaxandi
borgum Vestur-Evrópu hafi valdið
aukinni kúgun bænda í Austur-
Evrópu. Nægt landiými var til
kornræktarinnar en skortur á
vinnuafli og landeigendur brugðust
við með því að leggja kvaðir og
ánauð á bændurna. Arni segir að
ástandið hefði getað orðið svipuð á
íslandi í tengslum við eftirspurn
eftir íslenskum fiski, hefði danska
miðstjórnai’valdið ekki stöðvað þró-
unina.
Kvaðirnar sem komust á upp úr
1500 voru með tímanum að mestu
afnumdar á Norður- og Austur-
landi, en héldu velli á Suður- og
Vesturlandi og voru þar mjög
íþyngjandi. „Það er áberandi að
þegar bændasamfélagið fer að vaxa
aftur, sérstaklega á 19. öld, þá er
fjölgun íbúa og nýbýla mestur þar
sem engar kvaðir eru,“ segir Árni.
Söguskoðun þjóðernissinnaðra
íslenskra sagnfræðinga á fyrri
hluta aldarinnar var sú að aftaka
Jóns Arasonar og einokunarversl-
unin hefði verið hluti af kúgun
Dana á íslensku þjóðinni.