Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Seldu allar eigur sínar og festu kaup á móteli í Bandaríkjuiium
MANOR Motel í Milbank í Suður-Dakota sem fjölskyldan í Múlasíðunni hefur fest
kaup á, en þau taka við rekstrinum um miðjan næsta mánuð.
Morgunblaðið/Kristján
JÓN Ævar og Jórunn með mexíkóska
dverghundinn Cayenne.
MIKIL umskipti eru í vændum
hjá íjölskyldunni í Múlasíðu 34
á Akureyri, þeim Jórunni G.
Sæmundsdóttur og Jóni Ævari
Asgrímssyni og dóttur þeirra
Heiðu. Þau hafa síðustu daga
verið að selja allar sínar eig-
ur, íbúð, bfla, sumarbústað og
innbú og fest kaup á móteli í
Suður-Dakota í Bandaríkjun-
um. Þau taka við rekstrinum
um miðjan næsta mánuð.
„Þetta er tuttugu ára gam-
all draumur," sagði Jórunn,
en það sem kveikti í þeim á
si'num tíma var þegar þau
kynntust Bandaríkjamanni
sem hafði verið hér á landi í
seinni heimsstyrjöldinni og
kynnst föður Jóns Ævars.
Hann rak ásamt fleirum fyrir-
tæki sem keypti og gerði upp
gömul hús og bauð þeim að
ganga inn í fyrirtækið „Við
gugnuðum þá, þorðum ekki að
taka áhættuna,“ sagði Jórunn.
Á þeim tíma voru þau nýlega
búin að byggja einbýlishús á
Akureyri og hafið rekstur
byggingavöruverslunarinnar
Skapta. Jórunn sagði að
draumurinn hefði blundað
með þeim öll þessi ár, en þau
hefðu sett stefnuna á að
breyta til um næstu aldamót.
Eftír ferð um Bandaríkin fyrir
tveimur árum datt þeim í hug
að kaupa mótel og hefja rekst-
ur og nú í vetur fór Heiða að
kanna málið á Netinu og
fengu þau 21 tilboð. Eftir að
hafa vegið þau og metið stóðu
Qögur eftir, í Suður-Dakota,
Tuttugu ára
gamall draum-
ur rætist
Maine, Massachusetts og New
York ríki. Jón Ævar fór út í
vor og eftir að hafa skoðað
mótelið í Suður-Dakota vissi
hann að þar var draumastað-
urinn kominn. Eigandinn
hafði verið sá sami frá upphafi
og því hefur verið vel við
haldið, umferð er mikil og
mótelið nánast alltaf fullnýtt.
Kvíðum ekki
mikilli vinnu
Mótelið sem heitir Manor
Motel er við hraðbraut 12 í
bænum Milbank, þar sem búa
7-8 þúsund manns. Alls eru
þar 30 herbergi og eru þau öll
nýuppgerð. Innisundlaug,
nuddpottur og saunabað
standa gestum til boða. Rúm-
góð 6 herbergja íbúð fylgir
þar sem eigendurnir munu
búa. Fyrrverandi eigendur
eru á svipuðum aldri og þau
Jórunn og Jón Ævar, en eru
nú að hætta rekstri og sjá
fram á náðuga daga. „Við
kvíðum því ekkert að sjá fram
á heilmikla vinnu í framtíð-
inni, við höfum alltaf unnið
mikið, verið með eigin rekstur
og þekkjum þetta vel,“ sögðu
þau. „Þessi rekstur eins og
annar byggist á að veita góða
þjónustu, það verður okkar
markmið.14
Þegar hafa þau skipt með
sér verkum, Jón Ævar mun
sjá um daglegan rekstur og
viðhald, Jórunn um ræsting-
arnar og Heiða um gestamót-
tökuna. „Við treystum hvert
öðru fullkomlega, þetta bygg-
ist mikið á því. Hver sér um
sitt og við verðum ekkert að
grípa fram fyrir hendurnar
hvert á öðru. Við erum vön
þessu,“ segja þau. Jón Ævar
og Jórunn eru afar samhent
og hafa unnið saman í 30 ár,
ráku verslunina Skapta í tvo
áratugi, en seldu hana Þýsk-
íslenska fyrir nokkrum árum
„og fylgdum með í kaupun-
um“, segir Jórunn og hlær, en
nú síðast hafa þau bæði starf-
að í verslun Byko á Akureyri.
„Við verðum aldrei þreytt
hvort á öðru,“ sögðu þau.
Áður en þau taka við rekstri
mótelsins ætla þau að kynna
sér staðhætti, skoða áhuga-
verða staði sem eru margir í
nágrenninu svo þau getí vísað
gestum sínum á þá. „Við
hlökkum mikið til að takast á
við þetta verkefni, enda verið
draumur okkar lengi. Auðvit-
að hefur maður oft velt því
fyrir sér að þetta sé hálfgerð
klikkun, en við lítum á þetta
sem vissa áskorun. Það er ein-
hver tilhneiging í Islendingum
að fara út, kanna nýjar slóðir
og gera eitthvað nýtt. Þetta er
einhver ævintýraþrá,“ segja
þau.
Eftirsjá mest eftir
íjölskyldu og vinum
Síðustu daga hafa þau verið
að selja eigur sínar, íbúð, tvo
bfla, sumarbústað og heilmik-
ið innbú. Eftirsjáin er vitan-
lega mest eftir samskiptum
við barnabörnin, fjölskyldu og
vini, en af veraldlegum eigum
sjá þau mest eftir sumarbú-
stað sínum í Bárðardal. „Við
vorum búin að planta fleiri
þúsund plöntum á svæðinu,
yfir 30 tegunduin, og skrá-
setja allt saman. Árangurinn
hefur verið að koma í ljós, en
þarna höfum við átt margar
góðar stundir,“ segja þau en
bæta við að bústaðurinn hafi
lent í góðum höndum.
„Kannski komum við aftur í
ellinni, hver veit, það verður
bara að koma í ljós,“ segir
Jórunn.
Viðamikil dag-
skrá á sjó-
mannadaginn
Morgunblaðið/Kristján
Umferðarslys í Ljósavatnsskarði
Ung kona slasaðist
VIÐAMIKIL dagskrá verður á
Akureyri vegna sjómannadagsins,
en auk þess sem dagskrá verður á
sjómannadaginn efna Eimskip og
fleiri fyrirtæki til útihátíðar við
Oddeyrarskála á morgun, laugar-
dag, og á sunnudag verður Bifreiða-
stöð Norðurlands með rútudag.
Forskot verður tekið á sæluna
strax í dag, fostudag, en þá munu
nokkur af helstu matvælafram-
leiðslufyrirtækjum bjóða gestum og
gangandi að bragða á matvöru úr
sjávarfangi á Ráðhústorgi.
Á laugardag verður róðrarkeppni
á Pollinum og hefst hún kl. 13 en á
sama tíma hefst útihátíð á Oddeyr-
artanga, fyrirtæki sem starfa í skál-
anum kynna starfsemi sína, strand-
ferðaskipið Reykjafoss verður til
sýnis og boðið verður upp á veiting-
ar og skemmtiatriði. FMN og Pizza
67 bjóða upp á siglingu með Sæfara.
Knattspymukeppni sjómanna verð-
ur kl. 16.30 og golfmót kl. 20. Um
kvöldið verður sjómannaball á Ráð-
hústorgi.
Sjómannaguðsþjónustur verða í
kirkjunum kl. 11 og athöfn við
minnisvarðann í Glerárkirkju að
þeim loknum. Fjölskylduhátíð verð-
ur á hafnarsvæðinu við Oddeyrar-
bryggju kl. 13.30 á sjómannadaginn
og flytur Svanfríður Jónasdóttir há-
tíðarávarp, en einnig verður marg-
vísleg dagskrá í boði.
Rútudagur
Rútudagur verður haldinn við
Umferðarmiðstöðina á sunnudag og
verður þar sýndur bílakostur Sér-
leyfisbfla Akureyrar, BHS Húsavík,
Norðurleiðar og Ævars og Bóasar á
Dalvík. Kynntir verða margvíslegir
ferðamöguleikar og boðið upp á
stuttar skoðunarferðir um Akureyri
og Eyjafjörð.
Að kvöldi sjómannadagsins
verður hátíð í Iþróttahöllinni þar
sem boðið er upp á vönduð
skemmtiatriði. Miðasala verður í
dag og á morgun frá kl. 14 til 16 á
skrifstofu Sjómannadagsráðs í Al-
þýðuhúsinu.
UNG kona slasaðist, m.a. á höfði,
er bíll hennar valt á þjóðvegi 1
skammt frá Stórutjarnarskóla í
Ljósavatnsskarði í S-Þingeyjar-
sýslu seinni partinn í gær. Konan,
sem var ein í bflnum, var flutt á
slysadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík er talið að kon-
an hafi misst vald á bflnum, sem
fór eina veltu á miðjum veginum og
valt áfram yfir akreinina á móti og
útaf hinum megin, þar sem hann
hafnaði á hvolfi. Talið er að bíllinn
hafi farið íjórar veltur.
Sjúkrabfll og slökkvibfll
frá Akureyri
Sjúkrabfll og slökkvibfll með
klippur fóru frá Akureyri og síðan
annar sjúkrabfll með vaktlækni
heilsugæslustöðvarinnar en
slökkvibílnum var snúið við eftir að
ljóst var að konan var komin út úr
bflnum. Eins og sést á myndinni
sem tekin var á slysstað er bfllinn
gjörónýtur.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Um 50 hjtíkr-
unarfræð-
ingar hafa
sagt upp
UM 50 hjúkrunarfræðingar á Fjórð-
ungssjúki-ahúsinu á Akureyri hafa
sagt upp störfum með þriggja mán-
aða fyrirvara, en þetta er að sögn
Vignis Sveinssonar aðstoðarfram-
kvæmdastjóra um einn þriðji af öll-
um starfandi hjúkrunarfræðingum á
sjúkrahúsinu.
Ástæða uppsagnanna er óánægja
með að ekki hafi enn tekist að útfæra
nýjan kjarasamning, en svonefndar
aðlögunarnefndir hafa frá því um
áramót unnið að því að útfæra kjara-
samning þann sem gerður var við
ríkisstarfsmenn á liðnu ári.
„Eg vona að menn nái samkomulagi
um útfærslu á þessum samningum og
vænti þess að uppsagnir verði dregn-
ar til baka í kjölfar þess, því annars er
í mikið óefni komið,“ sagði Vignir.
---------------------
Iþrótta-
skemman seld
BÆJARRÁÐ Akureyrai' samþykkti
á fundi sínum í gær, að leggja til að
bæjarstjóra yrði heimilað að ganga
til samninga við Sandblástur og
málmhúðun um kaup á Iþrótta-
skemmunni á grundvelli tilboðs fyr-
irtækisins.
Athafnasvæði Sandblásturs og
málmhúðunar er á næstu lóð við
Iþróttaskemmuna og því er talið að
húsnæðið geti nýst fyrirtækinu vel.
Bæjarráðsmaðurinn Sigríður Stef-
ánsdótth lét bóka á fundinum að hún
teldi rétt að reyna sölu á Iþrótta-
skemmunni en lagði áherslu á að
jafnframt yrði að finna þeirri starf-
semi sem nú er í húsinu annan stað.
„Fyrir utan íþróttaiðkunina er mjög
brýnt að bæta eða byggja upp að-
stöðu fyrir stærri tónleika," sagði
ennfremur í bókun Sigríðar.
------♦-♦-♦-----
Sveinbjörg- sýnir
á Karólínu
SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir
opnar gi-afíksýningu á laugardag, 6.
júní, í Café Karólínu en þetta er
fjórða einkasýning hennai- auk þess
sem hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga. Sýningin stendur til 3.
júlí næstkomandi.
Innblástur verkanna er koma far-
fuglanna og gróandans, um flugið
sem virðist svo leikandi létt og róm-
antíkina sem ekki síst tengist þess-
um árstíma birtu og gróðurs.
Myndirnar eru allar unnar nú í
vor. Tæknin sem notuð er kallast
þuixnál og er unnin á kopar- og álp-
lötur og hver mynd þrykkt með mis-
mörgum plötum.
Vinnustofa Sveinbjargar er í Gil-
inu en þar rekur hún einnig Galleri
Svartfugl.
----------------
Bryndís Björg-
vinsdóttir sýnir
í Svartfugli
BRYNDÍS Björgvinsdóttir sýnh
verk sín í Gallerí Svartfugli á Akur-
eyri til 7. júní.
I vetur hefur Bryndís eingöngu
verið að mála myndir af hestum. í
Skagafhðinum er lögð mikil áhersla
á hestamennsku og eru því hestar
nærtækt myndefni hjá listamannin-
um. Hún er ekki eingöngu að fást við
gæðinga heldur íslenska hestinn eins
og hann bhtist henni í íslenskri nátt-
úru, segh í fréttatilkynningu.
Bryndís er búsett á Hólum í
Hjaltadal.
AKSJON
Föstudagur 5. júnf
21:00 ►Sumarlandið Þáttur ætlaður
ferðafólki á Akureyri og Akureyr-
ingum í ferðahug.