Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 31
LISTIR
Fiðluleikarinn Viviane Hagner á tónleikum Sinfóníunnar
Morgunblaðið/Arnaldur
EINLEIKARINN Viviane Hagner og hljómsveitarstjórinn Yan Pascal
Tortelier verða gestir Sinfóníuhljómsveitar íslands á tónleikum í Há-
skólabíói í kvöld.
Myndlist í
búðarglugga
Ástríða
einleik-
arans
HUN ER ung, hún er aðlaðandi,
hún hefur lagt heiminn að fótum
sér. Þýsk-kóreski konsertfiðlarinn
Viviane Hagner er enginn nýgræð-
ingur í faginu, þótt hún sé ekki
nema 22 ára gömul. Fjögurra ára
tók hún sér fiðlu fyrst í hönd, tólf
ára sigraði hún í hæfileikakeppni
þýskra tónlistarnema og ári síðar
hófst einleikaraferill hennar. Nú
slást margar af stærstu hljómsveit-
um heims um krafta hennar.
Framtíðin blasir við Viviane
Hagner, björt og spennandi.
I kvöld leggur hún Sinfóníu-
hljómsveit Islands lið á tónleikum
Listahátíðar í Reykjavík í Háskóla-
bíói. Verkið sem hún mun flytja er
Fiðlukonsert Albans Bergs, eitt
síðasta verkið sem tónskáldið lauk
við áður en það lést á aðfangadag
1935. Er þetta í fyrsta sinn sem Vi-
viane glímir við verkið.
„Fiðlukonsert Aibans Bergs er
einn frægasti konsert sem saminn
hefur verið á þessari öld - og ekki
að ósekju. Verkið er ákaflega fal-
legt, þrungið tilfinningum enda
skrifaði Berg það til minuingar um
18 ára gamla dóttur Olmu Mahler,
sem þá var nýlátin, en hún var
honum afar kær. Það sem mér lík-
ar best við konsertinn er hvernig
Berg fléttar þar saman nýja og
klassiska túnann í tónlist.“
Að sögn Viviane er það líka ein-
kenni á konsertinum að hljóm-
sveitin fær virkilega að láta að sér
kveða. Ábyrgð sem Sinfóníuhljóm-
sveit Islands mun sannarlega ekki
Föstudagur
Háskólabíó: Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Hljómsveitar-
stjóri er Yan Pascal Tortelier.
Einleikari er Viviane Hagner.
Kl. 20.
Borgarleikhúsið: Islenski
dansflokkurinn. Kl. 20.
Raðganga: Skipulag og
húsagerð í Reykjavík á 20. öld.
Frá torgi við Rimaval kl. 20.
(Rúta frá Iðnó kl. 19.30.)
kikna undan. „Aldeilis ekki! Þið
eigið frábæra hljómsveit hér á Is-
landi, flinka hljóðfæraleikara,
samvinnufúsa og fylgna sér. Það
er virkilega gaman að spila með
þessu fólki.“
Mikil áskorun
Meðan Viviane var í tónlistar-
námi kveðst hún af ráðnum hug
hafa takmarkað fjölda einleikstón-
leika en eftir að náminu lauk form-
lega fyrir tveimur árum hellti hún
sér af fullum krafti út í tónleika-
hald. „Það var mikil áskorun að
takast á við líf einleikarans. Eg
fékk aftur á móti snenuna byr í
seglin og hef átt góðu gengi að
fagna. Þetta líf á ágætlega við
mig, þótt oft vildi ég hafa meiri
tíma aflögu, til dæmis hér á Is-
landi. Landið ykkar er virkilega
hreint og fallegt. Mér sýnist fólk
líka vera með öllu laust við æði-
bunuganginn sem er svo einkenn-
andi fyrir hinn vestræna heim!“
Viviane lítur ekki á hlutverk sitt
sem starf, miklu frekar h'fsstil -
ástríðu. En sér hún sig fyrir sér í
þessu hlutverki eftir tuttugu, þrjá-
tíu ár? „Já, á þessum tímapunkti
geri ég það. Þetta er það sem ég
vil gera við líf mitt. Annars er ekki
gott að segja, tímarnir eru svo
fljótir að breytast. Eigum við ekki
bara að sjá hvað setur?“
Viviane er fædd og uppalin í
Miinchen en býr nú í Berlín. Faðir
hennar er þýskur en móðirin frá
Suður-Kóreu eins og austurlenskt
yfirbragð fiðluleikarans ber með
sér. Hvorugt þeirra leggur stund á
tónlist en Viviane segir áhuga
þeirra óbilandi. „Þau hafa hvatt
mig óspart til dáða.“
Því fer þó fjarri að Viviane sé
eini tónlistarmaðurinn í fjölskyld-
unni en systir hennar, hin átján
ára gamla Nicole, er óðum að
hasla sér völl sem konsertpíanisti.
Koma systurnar reglulega fram
saman á kammertónleikum og eru
til að mynda nýkomnar frá Japan.
„Kammermúsík er hverjum hljóð-
færaleikara nauðsynleg, hún auðg-
ar mann. Þá er auðvitað gaman að
fá tækifæri til að spila með systur
sinni.“
Barenboim frábær
Viviane hefur leikið með mörg-
um þekktum hljómsveitum og und-
ir stjórn margra af fremstu hljóm-
sveitarstjórum heims. Tekur hún
Daniel Barenboim sérstaklega út
úr þeim hópi. „Það er ólýsanleg til-
finning að spila undir hans stjórn.
Hann er svo næmur, tilfinningarík-
ur og fær. Hann hefur fullkomið
vald á hljómsveit sinni.“
Viviane hefur í mörg horn að
líta. Héðan heldur hún heim til
Þýskalands, þar sem hennar bíða
einleikstónleikar á ýmsum hátíð-
um í sumar og tónleikaferð með
kammerhljómsveit. Úr nógu er að
velja og engan veginn unnt að
þekkjast öll boð. En hefur vel-
gengnin haft varanleg áhrif á Vivi-
ane sem persónu - breytt henni?
„Það vona ég ekki. I mínum huga
skiptir nefnilega mestu máli að
vera maður sjálfur, vera sjálfum
sér trúr og heiðarlegur gagnvart
öðrum. Það þjónar engum tilgangi
að ætla sér að vera einhver annar
en maður er!“
Aukinheldur verða á efnisskrá
kvöldsins Pelléas & Mélisande eftir
Gabriel Fauré, Gæsamamma, svíta
eftir Maurice Ravel og Symphonic
Metamorphoses eftir Paul
Hindemith. Tónsprotinn verður í
höndum hins kunna Yan Pascal
Torteliers, aðalstjórnanda Fíl-
harmóníusveitar BBC.
MYMILIST
Flögð og fögur skinn
LISTAMENN í
VERSLANAGLUGGUM
Til 7. júní.
Myndlistarviðburðurinn Flögð
og fógur skirtn hefur verið í fullum
gangi út um allan bæ, þótt aðalsýn-
ingin sé í Nýlistasafninu. Sá hluti
viðburðarins sem hinn óbreytti
vegfarandi verður helst var við eru
sérkennilegar gluggaútstillingar á
Laugaveginum, frá Bankastræti
upp að Hlemmi. Fimmtán lista-
menn hafa komið fyrir gluggaút-
stillingum í verslunum á Lauga-
veginum, og hlýtur maður að fagna
því að verslunareigendur búi yfir
þeirri víðsýni að þeir eru tilbúnir
til að taka þátt í verkefni af þessu
tagi.
Hugmyndin er sú að vekja at-
hygli á því hvernig verslun og við-
skipti snúast um líkamann og hug-
myndir okkar um líkamann, í gegn-
um fatnað, tískuvörur, snyrtivörur,
heilsuvörur, o.s.frv. Það má líka sjá
það á gluggaútstillingunum sjálf-
um hvernig leikið er á ímyndir lík-
amans. Onefndur myndlistarspek-
úlant benti mér á að hvaða glugga-
útstilling sem er á Laugaveginum
gæti tilheyrt sýningunni. Og mynd-
listarfólkið sem tekur þátt i henni
gæti ýmislegt af þeim lært. Reynd-
ar er myndlistin í vonlítilli sam-
keppni við sjónrænt ofhlæði aug-
lýsinga, skilta og útstillinga,
þannig að maður þarf að vera vel
vakandi til að taka eftir verkum
þátttakenda.
Flestir þátttakenda eru óþekkt
nöfn og sumir tiltölulega nýútskrif-
aðir. Utkoman er því frekar upp og
ofan, og lítið um óvænta hluti. Út-
stilling Helgu Kristrúnar Hjálm-
arsdóttur í snyrtivöniversluninni
Hygeu, á homi Klapparstígs, kem-
ur vel út. Helga Kristrún hefur
unnið með sykur og notar hann hér
bæði sem andlitsfarða til að sykur-
húða eigið andlit og til að sykur-
húða kjól. Þóra Þórisdóttir hefur
unnið á athyglisverðan hátt með
trúarlegt táknmál og útstilling
hennar í Lífstykkjabúðinni leikur
sér með margræðar tilvísanir, en
ætlar sér um of miðað við aðstæð-
ur. Nína Magnúsdóttir er eini þátt-
takandinn sem ekki er á réttum
stað, ef svo má segja, en innsetning
hennar er í Regnboganum við
Hverfisgötu. I hennar verki fáum
við að hlera draumfarir fólks í
gegnum símtól og horfa á draum-
sýnir hennar af sjálfri sér. í glugga
Hagkaups hefur Hekla Guðmunds-
dóttir komið fyiir stórri ljósmynd,
sem er ætlað að stugga við
hrekklausum vegfarendum. Úr
fjarlægð lítur myndin út eins og
venjulegt auglýsingaskilti, en þeg-
ar nær er skoðað sést kona með
þrjá handleggi, sem situr á klósett-
inu. Titill myndarinnar lýsir helstu
nauðþurftum mannskepnunnar:
„Að skeina sig, drekka mjólk og
klappa hundi.“
Verkið sem ber af er eftir Ragn-
hildi Stefánsdóttur og er að finna í
nýrri verslun Sævars Karls við
Bankastræti. Og þegar Nýlista-
safnið er með talið er þetta líklega
besta verkið á allri sýningunni. Það
er í nokkrum hlutum og er dreift
um verslunina eins og innsetning.
Verkið er byggt á gifsafsteypu af
kvenlíkama. Tvær blokkir eru gifs-
mótin fyrir hin verkin og sýna sinn
helming líkamans hvor, framhlið-
ina og bakhliðina. Þrjár afsteypur
sýna líkamann teygðan eða sam-
þjappaðan. Sneiðar hafa verið fjar-
lægðar úr einni styttunni þannig að
líkaminn er aðeins í hálfri hæð.
Önnur stytta hefur verið lengd
með því að bæta inn hlutum af lík-
amanum. Fyrir miðju er síðan
stytta af kvenlíkamanum, þar sem
taugamar vaxa út úr mænunni og
hylja líkamann að hluta. Fyrir utan
það að verkið er sérlega vel gert þá
hefur það ýmsa kosti. Það tekst á
við hugmyndina um skynjun á eig-
in líkama, og hvemig maður skynj-
ar eigin líkama annars vegar sem
hlut, eins og hvern annan líkama,
en hins vegar sem hugarástand, í
gegnum skynjunina og tilfinning-
arnar. Myndræn úrlausn hennar er
sérlega skýr og sjónrænt sláandi.
Hið ólíklega umhverfi sem verkið
er í, herrafataverslun, skerpir enn
áhrif þess, og það er einnig athygl-
isvert að velta fyrir sér muninum á
verki Ragnhildar og kvenímyndum
Errós sem em í sýningarsalnum í
kjallaranum.
Gunnar J. Árnason
Miöasala Bankastræti 2. Sími 5528588. Opiö frá 8. 30 - 19 og í Háskólabíói klukkutíma fyrir tónleika.
Einstæöir tónleikar á lokahelgi Listahátíðar í Reykjavík
Sinfóníuhljómsveit Islands
Stjórnandi: Yan Pascal Tortelier
Einleikari á fiólu: Viviane Hagner
Háskólabíói fö. 5. júní kl. 20
Efnisskrá:
Gabriel Fauré: Pelléas et Mélisande
Alban Berg: Fiðlukonsert „A la mémoire d'un ange“
Maurice Ravet: Gæsamamma, svíta
Paul Hindemith: Sinfónískar myndbreytingar
Einstakt tækifæri til aó hlýóa á Sinfóníuhljómsveit íslands
leika undir stjóm hins heimsþekkta franska hljómsveitarstjóra
Yan Pascal Tortelier, sem er er aóalstjórnandi BBC
Philharmonic.
„Kostir hljómsveitarstjórnans Yan Pascal Tortelier sem
túlkanda eru einstakir" (The Independent) mi 111
Fióluleikarinn Viviane Hagner hefur verió eftirsóttur einleikari
meó virtum hljómsveitum hljómsveitarstjórum frá því hún
lék einleik á fiðlu meó fílharmóníuhljómsveit Hamborgar
undir stjórn Gerd Albrechts aóeins þrettán ára. Nú tæpum
níu árum síóar stendur hún á hátindi ferilsins. Á síóustu
Listahátíó í Berlín lék hún einleik meó Staatskapelle Berlin
undir stjórn Daniels Barenboims.
Franska sendiráóió styrkti komu Yan Pascal Tortelier á
Listahátíó.
í REYKJAVÍ