Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kostnaður Landsbankans og dótturfélaga vegna laxveiðileyfa í Hrútafjarðará
Rúmar 8,7 millj. á sjö árum
KOSTNAÐUR Landsbanka ís-
lands og dótturfélaga hans vegna
kaupa á laxveiðileyfum af leigu-
taka Hrútafjarðarár á árunum
1991 til 1997 var samtals um 8,7
milijónir króna. Þetta kemur fram
í skriflegu svari Finns Ingólfsson-
ar viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingflokki jafnaðarmanna, en
svarinu var dreift á AJþingi í gær.
Landsbanki Islands og dótturfélög
hans keyptu þannig laxveiðileyfí af
leigutaka Hrútafjarðarár fyrir að
meðaltali um 1,2 milljónir króna á
ári hverju á fyrrgreindu tímabili.
Lægstur var kostnaðurinn árið
1991 eða samtals 1.053.900 krónur
Skólaslit í
Trygginga-
skólanum
TRYGGINGASKÓLANUM var
slitið fímmtudaginn 28. maí sl. með
útskrift 39 nemenda. 997 prófskír-
teini hafa verið gefin út frá stofnun
skólans árið 1962.
Samband íslenskra tryggingafé-
laga starfrækir skólann sem rekinn
er fyrir starfsfólk vátryggingafé-
laga undir nafninu Tryggingaskóli
SIT. Námi í skólanum er skipt í tvo
meginþætti, annars vegar iangt og
viðamikið grunnnám og hins vegar
sémám. Sérnámið felur í sér nám-
skeið um afmörkuð svið vátrygg-
inga og er ætlað þeim sem hafa
lokið grunnnáminu. Náminu lýkur
með prófum.
Þau Helga Jónsdóttir hjá Sjó-
vá/Almennum hf. og Sigurður Ingi
Viðarsson hjá Tryggingamiðstöð-
inni hf. hlutu bókaverðlaun fyrir
góðan prófárangur.
en mestur var hann árið 1997 eða
samtals 1.457.000 krónur.
Ekki upplýsingar
uni hverjir fóru
Svar viðskiptaráðherra er byggt
á þeim upplýsingum sem Lands-
banki íslands hf. hefur undir hönd-
um, en í því kemur fram að annar
kostnaður bankans og dótturfélaga
hans við veiðiferðir sé ekld sér-
greindur í bókhaldi bankans. „Sam-
kvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar
virðist annar kostnaður við veiði-
ferðir vera um 50% af kostnaði við
veiðileyfi," segir í svarinu.
Þar kemur einnig fram að á
kvittunum fyrir veiðileyfum komi
ekki fram hvað er innifalið. „Al-
menna reglan við kaup á veiðileyf-
um í Hrútafjarðará er sú að afnot
af veiðihúsi fyigi með en ekki fæði.
I skjalasafni bankans eru ekki
gögn um fjölda laxveiðileyfa, veiði-
ferða eða stangardaga. Þar eiu
ekki heldur upplýsingar um þá sem
fóiu í þessar veiðiferðir, hvorki
gesti né starfsmenn bankans," seg-
ir ennfremur.
Lýsing hf. keypti fyrir nær 3,3
milljónir í Hrútafjarðará
í svarinu kemur auk þess fram
að Landsbanki íslands hafi vegna
fyrirspurnarinnar leitað til fyrir-
tækja sem ekki eiu í meirihluta-
eigu bankans og óskað eftir svör-
um um það hver kostnaður þeirra
væri vegna kaupa á laxveiðileyfum
í Hrútafjarðará. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem bankinn fékk
höfðu engin hlutdeildarfyrirtækja
bankans keypt veiðileyfi í Hrúta-
fjarðará að undanskildu fyrirtæk-
inu Lýsingu hf. „Samkvæmt upp-
lýsingunum voiu keypt laxveiði-
leyfi í Hrútafjarðará á árunum
1993 til 1997 og var kostnaður við
þau 494.550 krónur árið 1993,
621.900 krónur árið 1994 og
720.000 krónur fyrir hvert áranna
1995 til 1997. Annar kostnaður við
veiðiferðir var 521.755 kr. samtals
fyrir öll árin.“
Stækkun NATO sam-
þykkt á Alþingi
Alþýðu-
bandalag
sat hjá
ALÞINGI samþykkti á fundi sínum
í gær tillögu til þingsályktunar um
að ríldsstjóminni verði heimilt að
staðfesta fyrir Islands hönd þrjá
viðbótarsamninga við Norður-Atl-
antshafssamninginn, þ.e. aðild lýð-
veldisins Póllands, lýðveldisins
Tékklands og lýðveldisins Ung-
verjalands. Tillagan var samþykkt
með 38 atkvæðum gegn einu, en það
var Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Alþýðubandalags og óháðra,
sem greiddi atkvæði gegn tillög-
unni. Aðrir þingmenn Alþýðubanda-
lags og óháðra, sem þátt tóku í at-
kvæðagreiðslunni, sátu hjá auk
Kristínar Halldórsdóttur, þing-
manns Kvennalista.
Auk þess afgi’eiddi Aiþingi tvær
þingsályktunartillögur á fundum
sínum í gær og átján lagafrumvörp.
Meðal þeirra frumvarpa sem sam-
þykkt voru má nefna frumvarp til
laga um almannatryggingar, frum-
vai’p til laga um búnaðarlög og
frumvarp til laga um þjóðfána.
------------------
Gantast
í þinginu
LÉTT var yfir þingmönnum á
næstsíðasta degi Alþingis í gær.
A myndinni eru skælbrosandi
þau Asta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, þingflokki jafnaðar-
manna, og Sjálfstæðisfiokksþing-
mennirnir Einar K. Guðfinnsson,
Guðlaugur Þór Þórðarson og fyr-
ir framan þau Sigríður Anna
Þórðardóttir þingflokksformaður
og Vilhjálmur Egilsson.
Morgunblaðið/RAX
152. skólaslit Menntaskólans í Reykjavík
Nýstúdentar leiti þess
sem er fallegt og gott
Morgunblaðið/Jim Smart
NÝSTÚDENTAR Menntaskólans í Reykjavík við útskriftarathöfnina.
MENNTASKÓLANUM í Reykja-
vík var slitið í 152. sinn í gær.
Að þessu sinni brautskráðust
217 nýstúdentar. Þar af útskrif-
uðust 72 nemendur úr mála-
deildum, 49 úr eðlisfræðideild-
um og 96 úr náttúrufræðideild-
um.
Dúx stúdentsárgangsins varð
Árdís Elíasdóttir úr eðlisfræði-
deild I. Hún útskrifaðist með
ágætiseinkunnina 9,52. Semidúx
varð Ása Iðunn Róbertsdóttir úr
náttúrufræðideild I. Hún út-
skrifaðist með ágætiseinkunnina
9,21. Aðrir sem hlutu ágætisein-
kunn á stúdentsprófí voru Álf-
heiður Hafsteinsdóttir, eðlis-
fræðideild II, sem útskrifaðist
með 9,18, Signý Sif Sigurðar-
dóttir, náttúrufræðideild II, sem
útskrifaðist með 9,17 og Svan-
hildur Þorsteinsdóttir nýmála-
deild sem útskrifaðist með 9,02.
Alls hlutu 89 nýstúdentanna I.
einkunn, 89 II. einkunn og 34
III. einkunn. Hæstu einkunn
neðri bekkinga hlaut Jóel Karl
Friðriksson 5.X, 9,77 og varð
hann þvi dux scholae.
Nýstúdentar eiga kost á meira
frelsi en nokkru sinni fyrr
Ragnheiður Torfadóttir rekt-
or óskaði í ávarpi sínu nýstúd-
entum velfarnaðar og sagði að
nú þegar þeir svifu fagnandi út
í sumarið væri það undir þeim
sjálfum komið hvernig vega-
nesti Menntaskólans nýttist
þeim í leit að þekkingu og
þroska, og í leit að sannleikan-
um. „í þeirri leit sem gerir ykk-
ur að menntuðum mönnum."
Rektor benti nýstúdentum á að
þeirra er valið nú að námi
loknu: „Þið eigið völ á fjöl-
breyttara námi og þið njótið
meira frelsis en nokkur önnur
kynslóð Islendinga, og þið ættuð
að nota frelsið til að leita þess,
sem er fallegt og gott.“
Að venju var fjöldi afmælis-
stúdenta viðstaddur skólaslitin
og voru skólanum færðar marg-
ar og veglegar gjafír. Til minn-
ingar um skólasystur sína, Stef-
aníu Guðnadóttur, veittu 55 ára
stúdentar sérstök viðurkenning-
ar- og hvatningarverðlaun að
upphæð 380.000. þúsund krónur
til stúlku úr hópi nýstúdenta
sem skarað hefur fram úr í námi
og félagslífi. Þau hlaut dúx stúd-
entsárgangsins Árdís Elíasdótt-
ir.
Forseti borgarstjórnar á síðasta borg-
arstjórnarfundi kjörtímabilsins
Sérstætt tíma-
bil á marga lund
FORSETI borgarstjórnar, Guðrún
Ágústsdóttir, fór nokkrum orðum
um kjörtímabilið, sem nú er að líða,
á síðasta fundi borgarstjórnar í gær
en borgarstjórn skipuð nýjum full-
trúum situr sinn fyrsta fund
fimmtudaginn 18. júní næstkom-
andi. Einnig þakkaði hún þeim
borgarfulltrúum, sem nú hverfa úr
borgarstjórn, samstarfið.
Guðrún sagði kjörtímabilið sér-
stætt á marga vegu, í fyrsta skipti
hefðu konur verið í meirihluta borg-
arfulltrúa. Þá hefði kona setið í
fyrsta sinn í stóii borgarstjóra allt
kjörtímabilið en áður hefði Auður
Auðuns verið borgarstjóri í tæpt ár.
Forseti gat þess einnig að nýverið
hefðu verið samþykktar breytingar
á fundarsköpum borgarstjórnar og
væri sú helst að möguleiki gæfist
framvegis til andsvara sem gæfí
tækifæri til mun markvissari og líf-
legri skoðanaskipta. Sagði hún það
jafnframt kalia á mikla ái-vekni og
nákvæmni af hálfu forseta borgar-
stjórnar.
Umræðan oft einkennileg
Guðrún Ágústsdóttir sagði fjóra
borgarfulitrúa nú hverfa af vett-
vangi og þakkaði þeim farsæl störf í
þágu borgarbúa og samstarfið í
borgarstjórn. Það eru þau Guðrún
Ögmundsdóttir borgarfulltrúi R-
lista og borgarfulltrúar sjálfstæðis-
manna, þau Guðrún Zoéga, Hilmar
Guðlaugsson og Gunnar Jóhann
Birgisson.
Guðrún Ögmundsdóttir sagði
ekki hægt að kveðja án þess að líta
til baka og sagði hún að lagður hefði
verið grundvöllur að frekara þróun-
arstarfí með ýmsum breytingum í
félagsmálunum. Hilmar Guðlaugs-
son sagði samstarfið hafa verið gott
en hann kvaðst hafa hafið afskipti af
borgarmálum árið 1970. Hilmar
sagðist koma til með að sakna
margs úr starfinu og það yrðu við-
brigði að hætta.
Gunnar Jóhann Birgisson þakk-
aði samstarfið við borgarfulltrúa,
bæði úr hópi sjálfstæðismanna og
af R-lista. Hann sagði menn vinna
sameiginlega að lausn ýmissa úr-
lausnarefna hvar í flokki sem þeir
stæðu. Sagði hann mörg stór mál
þannig hafa náðst í gegn með sam-
vinnu. Hann sagði umræðu í borg-
arstjórn oft einkennilega, borgar-
stjórn væri iðulega upptekin af því
að ræða um mál sem búið væri að
afgreiða annars staðar í borgar-
kerfinu. Umræðan væri því oft lík-
ust leiksýningu, umræða sett á svið
sem skilaði litlum árangri. Mætti
að nokkru leyti kenna samþykktum
borgarstjórnar um málið en þeim
hefði verið breytt nokkuð til batn-
aðar. Taldi hann hægt að breyta
þeim enn meira til að tryggja að
borgarstjórn yrði í framtíðinni öfl-
ugi’i umræðuvettvangur og stæði
betur undir því hlutverki að marka
á hverjum tíma stefnuna í mikil-
vægustu málaflokkum borgarinn-
ar.