Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„Sálumessa breskra fiskimanna“
afhjúpuð á Patreksfírði
MINNISVARÐI um sjósókn
breskra sjómanna á íslandsmiðum
og þá sem fórust við íslandsstrend-
ur var afhjúpaður á Patreksfirði sl.
laugardag. Minnisvarðinn heitir
„Sálumessa breskra fiskimanna“ og
er eftir Jón Sigurpálsson myndlist-
armann á Isafirði. Minnisvarðinn er
gefinn af íbúum og borgarstjórnum
Aberdeen í Skotlandi og Grimsby
og Hull í Englandi.
Sjávarútvegsráðherra Breta
Elliot Morley afhjúpaði minnisvarð-
ann, en meðal annarra gesta sem
viðstaddir voru afhjúpunina voru
James McCulloch sendiheiTa Breta
á íslandi, fulltrúar borgarstjórna
Aberdeen, Grimsby og Hull og ætt-
ingjar sjómanna sem drukknuðu við
íslandsstrendur auk manna sem
stunduðu sjó við ísland frá Grimbsy
og Hull.
Athöfnin hófst með stuttri helgi-
stund í Patreksfjarðarkirkju. Að
henni lokinni lögðu sjávarútvegs-
ráðherra Breta og breski sendi-
herrann blómsveiga að gröfum
breskra sjómanna sem jarðsettir
eru í kirkjugarðinum á Patreks-
firði. Að því búnu var haldið að
minnisvarðanum, þar sem hann var
afhjúpaður af sjávarútvegsráðherra
Breta. Hann hélt stutta ræðu þar
sem hann lýsti ánægju sinni með
minnismerkið, og hve vel það túlk-
aði tengslin milli þjóðanna og ná-
lægð sjómanna við náttúruöflin.
Hann benti á að verkið legði
áherslu á þá hörðu baráttu stáls og
steins, sem á sér stað við skips-
strand. Þar sem minnismerkið hef-
ur krosslögun, undirstrikar það þá
trú sem bærist í flestum og kemur
kannski hvað sterkust fram þegar
maðurinn lendir í lífsháska. James
McCulloch, breski sendiherrann,
las 23. Davíðssálm og sr. Hannes
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
Breta, Elliot Morley, afhjúpar
minnisvarðann um breska sjó-
menn á Vatneyri á Patreksfirði
sl. laugardag.
Björnsson sóknarprestur blessaði
minnisvarðann.
Borgarfulltrúar frá Grimsby,
Hull, Aberdeen og fleiri aðilar lögðu
að því búnu blóm að minnismerk-
inu. Það voru bæði íslenskir aðilar
sem tengjast togaraútgerð Breta
við íslandsmið og eins aðilar sem
komu frá Bretlandi gagngert til að
verða viðstaddir afhjúpunina. Að at-
höfninni lokinni var haldið til kaffi-
samsætis í Félagsheimili Patreks-
fjarðar í boði Vesturbyggðar. Höf-
undi verksins voru færðar þakkir
fyrir góða og fallega hönnun, og
gestgjöfunum voru færðar gjafir og
þakkir fyiár hlýlegar móttökur og
ánægjulega samverustund.
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
L. IRONSIDE borgarfulltrúi frá Aberdeen, A. Bovill borgarfulltrúi frá
Grimsby, J. Mulgrove borgarfulltrúi frá HuII, Jón Sigurpálsson mynd-
listarmaður og höfundur minnisvarðans, Elliot Morley sjávarútvegs-
ráðherra Breta, James Iron McCuIloch sendiherra Breta á Islandi og
Viðar Helgason ba/jarstjóri Vesturbyggðar, við afhjúpun minnisvarð-
ans sl. laugardag.
Ný Hagkaupsverslun við Smáratorg í Kópavogi
Sú stærsta
á landinu
Morgunblaðið/Arnaldur
VIÐSKIPTAVINIR á fyrsta opnunardegi.
HAGKAUPSVERSLUN var opnuð
í gærmorgun við Smáratorg í Kópa-
vogi. Hún er um 5.000 fermetrar á
stærð og er stærsta verslun sinnar
tegundar á landinu.
Sigurður Reynaldsson er versl-
unarstjóri í nýju versluninni. „Við
opnuðum klukkan 10 og þá lék
lúðrasveit fyrir gesti og viðskipta-
vini. Veitingar eru í boði, andlits-
málun fyrir yngri kynslóðina og svo
ýmis tilboð og kynningar. Lokaund-
irbúningur stóð fram á morgun,
svona að hætti íslendinga, en þetta
gekk allt upp á endanurn."
Bflastæði full
Sigurður segir bílastæðin hafa
fyllst snemma morguns og stöðug-
an straum hafa verið um verslun-
ina. „Ég kalla það gott að sjá svona
stórt bílastæði fyllast á fimmtu-
dagsmorgni. Auðvitað er það um-
hugsunarefni hvort bílastæðið sé
nógu stórt. Það eru stæði fyrir um
það bil 500 bíla hér á planinu fyrir
framan og tvö- til þrjúhundruð
stæði í bílahúsi undir versluninni.
Við höfum svo möguleika á að
fjölga stæðunum eitthvað í kringum
húsið.“
Upp úr hádegi giskaði hann á að
þegar hefðu á þriðja þúsund manns
komið í verslunina. Sigurður segir
fólk í nágrenninu hafa beðið opnun-
arinnar með óþreyju svo líklega
hafi það verið í meirihluta við-
skiptavina á opnunardaginn.
Heildsalar og verslunarmenn komi
líka gjarnan til að kanna aðstæður
þegar nýjar verslanir eru opnaðar.
Við inngang verslunarinnar er
krakkahorn, þjónustuborð og sölu-
turn á vegum Hagkaups. Þar hafa
líka aðstöðu Bæjarins beztu, útibú
frá SPRON, framköllunarþjónusta,
efnalaug og skósmiður. Sigurður
hefur orð á því að sér finnist Bæjar-
ins beztu sóma sér vel í þessu nýja
umhverfi, „biðröðin í pylsurnar gef-
ur svolitla miðbæjarstemmningu."
Birgðir í búðinni
Sigurður telur verslunar- og
þjónustukjarnann við Smáratorg
styrkjast enn frekar við opnun Hag-
kaupsverslunarinnar. „Fólk kemur
þangað sem vöruúrvalið er gott, 2/3
hlutar verslunarinnar eru undir sér-
vöru og 1/3 undir matvöru. Ekkert
kjötborð er í henni en forpakkaðar
ferskar kjötvörur er samt sem áður
á boðstólum." Sigurður segir úrval
af raftækjum mjög gott og úrvalið
eigi enn eftir að aukast í ýmsum
sérdeildum. Það sem gerir þessa
verslun einkum frábrugðna öðrum
Hagkaupsverslunum er að allar
birgðir eru inni í búðinni. „Efstu
hillurnar eru undir birgðir svo áfyll-
ing á að ganga hratt fyrir sig og
hagræði er að því að sjá lagerinn
með því að líta yfir verslunina."
Staðsetningin við Smáratorg er
að mati Sigurðar góð. „Það er full
þörf fyrir þessa verslun hér. Upp-
byggingin í Kópavoginum er t.d.
mjög hröð og íbúum hefur fjölgað
mikið upp á síðkastið. Staðsetning
verslunarinnar er sérstaklega
Sigurður Guðrún
Reynaldsson Magnúsdóttir
heppileg fyrir Hafnfirðinga, Kópa-
vogsbúa og Breiðhyltinga.“
Viðskiptavinir ánægðir með
staðsetningu
Guðrúnu Magnúsdóttur líst vel á
verslunina. „Þetta minnir dálítið á
Miklagarð. Ég er sérstaklega
ánægð með fatadeildina, úrvalið þar
er mjög gott. Ég bý í Hafnarfírði
svo staðsetningin hér í Smáranum
er góð fyrir mig, maður á eftir að
koma hingað aftur.“
Hrefna Jónsdóttir var ekki búin
að skoða alla búðina en var ánægð
með það sem hún hafði séð. „Úrval-
ið í snyrtivörudeildinni er t.d. fínt.
Annars er ég að flytja norður svo
Hrefna Bjarni
Jónsdóttir Nikulásson
þetta verður ekki beinlínis í leiðinni
fyrir mig. En ég er úr Kópavogin-
um og Kópavogsbúar sækja ábyggi-
lega hingað."
Bjami Nikulásson segist ekki
átta sig á því hvemig þetta geti allt
borið sig. „Elko og Rúmfatalager-
inn eru hér við hliðina og að hluta til
eru þetta sömu vörur sem verslan-
imar bjóða, maður spyr sig hvort
þetta geti gengið til lengdar. Þetta
er ansi stór verslun, minnir helst á
verslunarmiðstöðvar erlendis. Ég
er úr Hafnarfirðinum svo þessi
verslun liggur ágætlega við fyrir
mig og aðkoman hér er góð. Hins
vegar er ekki allur munur á því að
keyra í Smárann eða í Kringluna.
Y eðurklúbburinn
á Dalvík spáir
„Enn á
eftir að
skjálfa“
VEÐURKLÚBBURINN á
Dalbæ á Dalvík spáði síðast fyr-
ir jarðskjálftum og hafa þeir
spádómar nú ræst með kröftug-
um skjálftakippum síðustu
daga á Hengilssvæðinu og við
Herðubreiðarlindir. I nýrri spá
frá klúbbnum segja þeir að enn
eigi eftir að skjálfa.
Spámenn á Dalvík telja að
júnímánuður verði ágætur,
heldur kalt og þurrt, en veðrið
batni eftir því sem líður á mán-
uðinn og góðviðrisdagar verði
inn á milli. Útlit fyrir sprettu
segja þeir ekki slæmt. Þeir spá
góðviðri norðanlands á þjóðhá-
tíðardaginn, þó hitatölur verði
ekki himinháar. „Á Jónsmess-
unni 24. júní, þegar nýtt tungl
kviknar í NNÁ, teljum við að
sumarið komi, með hlýindum,
rigningu og sól og öllu sem því
fylgir," segir í nýjustu spá veð-
urklúbbsins.
Næturskíði á
Jónsmessu
FYRIRTÆKIÐ Snjófell á Arn-
arstapa ráðgerir að opna skíða-
lyftu sína á Snæfellsjökli næt-
urlangt um helgar í sumar og
verður fyrst opnað 19. og 20.
júní nk. Áð sögn Tryggva Kon-
ráðssonar, eins eiganda fyrir-
tækisins, er þessi hugmynd til
komin vegna fjölda áskorana
skíðamanna. Á nóttunni er
besta skíðafærið þar sem snjó-
bráð er í lágmarki og snjótroð-
arar ná vel að vinna úr snjón-
um. Ágæt aðsókn hefur verið að
svæðinu en þó segir Tryggvi að
fólk sé enn að uppgötva að
hægt sé að skíða þrátt fyrir
snjóleysið. Hann gerir ráð fyiir
að svæðið verði opið til loka
júlímánaðar. Lyfta Snjófells
var sett upp í febrúar sl. og er
hún 470 m.
Hálendisvegir
opnaðir fyrr
en áður
VEGIR um hálendið eru að
opnast. Nú er fært í Eldgjá úr
Skaftártungum og í Land-
mannalaugar frá Sigöldu.
Einnig er orðið fært til Hvera-
valla að norðan og einnig um
Hólssand milli Grimsstaða á
Fjöllum og Oxarfjarðar.
Uxahryggir eru færir fyrir
jeppa og áætlað er að Kaldidal-
ur opnist fyrir jeppa í dag.
Vegir um hálendið eru opnað-
ir mun fyrr nú en í meðalári.
Vegurinn í Landmannalaugar
opnast í meðalári 3. júlí og hefur
fram til þessa ekki verið opnað-
ur fyrr en 20. júní. Kjalvegur
hefur verið opnaður í fyrsta lagi
20. júní en 2. júlí í meðalári.
Uxahryggir opnast í meðalári
26. júní og Kaldidalur 5. júlí.
Sameiginlegt
vinstra framboð
Málefnavinnu
að ljúka
MÁLEFNAHÓPAR, sem vinna
að undirbúningi sameiginlegs
framboðs stjórnarandstöðu-
flokkanna eru að ljúka störfum í
þessari viku, að sögn Margrétar
Frímannsdóttur, formanns Al-
þýðubandalagsins. Einn hópur
hefur þegar lokið störfum en
Margrét sagði að niðurstöður
hópanna verði teknar fyrir á
miðstjórnarfundi Alþýðubanda-
lagsins um miðjan júní og gerð-
ar opinberar um það leyti.