Morgunblaðið - 05.06.1998, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„Kostur hvað við
þekkjumst vel“
Systkinin Magga Stína og Sölvi í Quarashi
sömdu sitt fyrsta lag saman fyrir skömmu
en þau spila hvort í sínu lagi á Poppi í
Reykjavík í kvöld. Rakel Þorbergsdóttir
forvitnaðist um samstarfíð.
MAGGA Stína kom klyfjuð inn á
Gráa köttinn, dró upp plakat og
spurði þjónustustúlkuna hvort hún
mætti ekki hengja eitt slíkt á vegg-
inn. Að því loknu settist hún niður
og pantaði sér enskan morgunverð
ásamt Sölva bróður sínum sem var
nývaknaður.
Sölvi og Magga Stína sömdu sitt
fyrsta lag saman nú fyrir skömmu
og verður lagið á breiðskífu Möggu
Stínu sem kemur út í haust. Lagið
heitir „Hard Core Attitude" og er
samkvæmt Sölva diskólag og mjög
ólíkt því sem Quarashi er að gera.
„Ég ákvað að prófa eitthvað allt
annað en ég er að gera venjulega.
Ég vissi að ég gæti aldrei notað
þetta í Quarashi og hringdi því í
Möggu Stínu og spurði hvort hún
gæti ekki notað það,“ sagði hinn
örláti Sölvi brosandi og gaf systur
sinni orðið. „Þetta er miklu meira
popp þótt þetta sé hans stíll. Svona
hart/mjúkt diskó. Það er allt annar
stíll á þessu lagi heldur en hinum
sem verða á plötunni. Ég held að
það opni plötuna," sagði Magga
Stína.
Sjö ár, ólíkt tónlistaruppeldi og
stfll aðskilur systkinin og því for-
vitnilegt að vita hvernig samstarfið
gekk.
Sölvi: „Hún hlustar ekki á neitt
sem ég segi.“
Magga Stína: „Nei, voða lítið.
Mér finnst ég samt vera svolítið
„dipló“.
S: „Þetta var óþolandi. Ég verð
bara að fá að segja það núna.“
MS: „Já, af því þig hefur alltaf
langað til að segja það og vilt nota
þetta tækifæri. Mér fannst við
vinna þetta svolítið mikið saman.“
S: „Ég var með grunninn tilbú-
inn þegar ég hafði samband við
Möggu Stínu en svo samdi hún
textann og melódíuna.“
MS: „Við vorum mjög fjót að
vinna lagið og ég held að það hljóti
að verða framhald á þessu sam-
starfi."
S: „Það er húmor í þessu lagi
sem er ólíkt hinum lögunum á plöt-
unni hennar sem era frekar alvar-
leg.“
MS: „Finnst þér það? Kannski
að vissu leyti.“
S: „Stelpur þurfa alltaf að búa til
svo tifinningaþrangna tónlist."
f kvöld er það stóra systir sem
hitar upp fyrir litla bróður en ekki
„Okkar sam-
skipti eru
flóknari en
annarra í
tónlistar-
bransanum.“
Morgunblaðið/Ásdís
SYSTKININ Sölvi og Magga Stfna hönd í hönd á góðri stundu.
öfugt eins og þegar Sölvi hitaði upp
fyrir Risaeðluna fyrir nokkram ár-
um.
MS: „Núna er ég nýliðinn og
hann er tekin við í gömlu deild-
inni.“
S: „Það verður meira að segja
ein hljómsveit á milli svo það brjót-
ist ekki út slagsmál.“(Það er aug-
Ijóslega mikil samkeppni á milli
systkinanna.)
MS: „Hver hljómsveit fær hálf-
tíma aflögu en ég á eftir að halda
alvöra tónleika seinna.“
Magga Stína kemur fram í
fyrsta sinn undir eigin nafni í kvöld
og flytur lög af væntanlegri breið-
skífu sinni.
MS: „Þetta er öðravísi núna því í
þetta sinn er þetta tónlistin mín en
ekki tónlist allra í hljómsveitinni.
Núna er ég einráð."
S: „Hún sagði alltaf við mig í
gamla daga að það væri svo flott að
vinna saman, einhver „hippismi"
sem mér finnst fáránlegur. Og svo
núna finnst henni gott að vera ein-
ráð!“
MS:v,Sölvi vinnur mikið einn.“
S: „Ég sem Quarashi lögin og út-
set þau, sem er verkaskipting á
milli okkar. Það hentar mér mjög
vel. Að mínu mati hefur hið hefð-
bundna hljómsveitarfyrirkomulag;
gítar, bassi og trommur, beðið
skipbrot."
MS: „Ég held að maður verði
frekari með áranum og vilji hafa
meira að segja. Þannig var það hjá
mér í Risaeðlunni. Þetta er eðlileg
þróun.“
Sölvi og Magga Stína segjast
ekki vera að stofna hljóm-
sveit saman en þau séu
óformlega í samstarfi. Fleirí
lög eftir þau muni því líta
dagsins ljós. „Ég held það sé
kostur hvað við þekkjumst
vel og ég rífst við hann um
aðra hluti en tónlist," sagði
Magga Stína. „Ég ber mikla
virðingu fyrir Sölva sem tón-
listarmanni. Maðurinn er
guð!“
„Þetta er stóra systir mín
og ég geri lítið af því að and-
mæla henni. Okkar samskipti
era flóknari en annarra í tónlistar-
bransanum. Það hlýtur að eiga við
um allar fjölskyldur sem vinna
saman. Til dæmis Jackson fjöl-
skyldan, Jerome hætti í Jackson
Five og LaToya talar ekki við aðra
í fjölskyldunni," sagði Sölvi og
Magga Stína tók alvarleg undir.
Frægð og frami í útlöndum er
ekki sérstakt takmark hjá Sölva og
Möggu Stínu, hvorki í sameiningu
né sitt í hvora lagi. Að þeirra mati
er aðalatriðið að geta lifað af tón-
listinni og hafa gaman af. „Allt
annað er aukaatriði. Ef þú vilt bara
verða frægur þá dugar að ganga
nakinn niður Laugaveginn," sagði
Sölvi og Magga Stína tók kröftug-
lega undir. „Ég get ekki enn lifað
af tónlistinni og um þessar stundir
er það mitt helsta markmið."
sigldi ómönnuð
út á haf.“
Hildur Friðriksdóttir veiðir sögur uppur
Hannesi Hafstein í tilefni sjómannadags.
f blaðinu á sunnudaginn.